Morgunblaðið - 07.06.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
21
1
• Atli Eðvaldsson gerði það heldur betur gott um helgina. Á laugardaginn skoraði hann fimm mörk fyrir Fortuna Dilsseldorf í þýsku Bundesligunni — flaug síðan heim til
íslands með Arnarflugi — og skoraði sigurmark fslands gegn Möltu í Evrópukeppninni á sunnudag. Þetta var aðeins í sjöunda skipti frá upphafi knattspyrnuiðkunar í Þýskalandi
að sami leikmaður skorar fimm mörk í leik í Bundesligunni. Metið á Dieter MUIIer, en hann skoraði sex mörk fyrir Köln er liðið vann Bremen 7:2 árið 1972. Skapti Hallgrímsson,
blaðamaður Morgunblaöisins, fylgdist með leik DUsseldorf og Frankfurt á laugardag og er frásögn hans og myndasyrpa á bls. 22 og 23. Ljótmynd skapti Haiigrímsson.
• Einar Vilhjálmsson er kominn í röö mestu afreksmanna
íslands í frjálsum íþróttum frá upphafi. Um helgina varð hann
bandarískur háskólameistari í spjótkasti og setti nýtt ís-
landsmet í undanrásunum, 89,98 metra, en það er fimmti besti
árangur í heiminum í dag.
„Virkilega ánægður með
útkomuna á þessu móti“
„Ég er virkilega ánægður með
útkomuna á þessu móti,“ sagöi
Einar Vilhjálmsson frjálsíþrótta-
maður úr UMSB í samtali við Mbl.
eftir aö hann haföi tryggt sér sig-
urinn í spjótkasti á banduríska
háskólameistaramótinu á laug-
ardag. Einar kastaöi 89,36 metra í
úrslitunum og kastaði rúmum sjö
metrum lengra en næsti maöur,
og bar því ægishjálm yfir aöra
keppendur. Frammistaöa hans á
mótinu er stórglæsileg, en í und-
ankeppninni kastaöi hann 89,98
metra, sem er fimmti bezti árang-
ur ( heiminum í ár og gott vegar-
nesti fyrir Einar á heimsmeistara-
mótið í Helsinki í ágústmánuöi. í
úrslitunum sýndi Einar aö risa-
kastiö í undankeppninni var eng-
in tilviljun.
„Fimm mínútum fyrir úrslita-
keppnina hófst allt í einu mikiö
þrumuveöur meö viöeigandi eld-
ingum og helliregni. Ég var því hálf
skeptískur til aö byrja meö, þar
sem maöur rennblotnaöi og var
óvanur aöstæöum af þessu tagi.
En ég reyndi aö einbeita mér vel
aö fyrsta kasti, náöi rúmlega 81
metra og var í forystu eftir fyrstu
umferð.
í annarri umferð náöi kastari aö
nafni Steven Stocken hins vegar
forystunni af mér meö 82,40 metra
kasti. Ég kastaði tæpa 82 rétt á
eftir, og þótt veöriö væri farið aö
lægja leiö mér ekki vel vegna gíf-
urlegs hita og mikils raka.
í þriöju umferöinni tókst mér
hins vegar betur upp og náöi for-
ystu meö 84,90 metra kasti. Síðan
þurftum viö í fyrri riölinum aö bíöa
um stund meöan lokiö var fyrstu
þremur umferöunum í seinni riölin-
um. Þegar því var lokiö var staöan
óbreytt, en tveir kastarar til viö-
bótar komnir yfir 80 metra strikiö,
Bretinn Keith Bradstock og Kan-
adamaöurinn Laslo Vadic, sem
báöir köstuöu tæpa 81 metra.
Þeir beztu úr báöum riölum
köstuöu síðan saman síöustu þrjár
umferöirnar. Ekkert markvert
geröist í fjóröu umferö keppninnar,
ég kastaöi tæpa 82 metra, en í
næstsíöustu náöi ég 85,36 og siö-
an 89,36 í sjöttu og síöustu um-
ferðinni. Aörir bættu sig ekki. í
restina var veöriö orðiö gott og
kominn hagstæöur mótvindur.
Þetta var frekar erfiö keppni.
Hún tók þrjár stundir, langur tími
leið milli kasta, og maöur því orö-
inn hálf dreginn og þvældur þegar
upp var staöið,“ sagöi Einar.
Eins og Mbl. skýröi frá á laug-
ardag er árangur Einars á banda-
ríska háskólameistaramótinu sá
fimmti bezti í heiminum í ár. For-
ráðamenn háskólans í Austin eru
ánægöir meö frammistööu hans,
þar sem skólinn hefur ekki átt sig-
urvegara í spjótkasti á mótinu frá
1956. Einar varö fimmti á þessu
móti í fyrra meö 78,68 metra, en
þá vannst greinin á 83,72 metra.
„Ég keppi næst á móti í Van-
couver í Kanada 16. júní, dvelst í
millitíöinni hjá Óskari Jakobssyni í
Texas, kem síðan heim á íslands-
meistaramótiö, en aö því búnu
taka heimsleikar stúdenta viö í júlí-
byrjun," sagöi Einar.
Sigurður Einarsson Ármanni,
námsmaöur í Alabama, varö tíundi
í spjótkastinu meö 72,86 metra.
Siguröur var meö 14. bezta árang-
ur eftir undanúrslitin, 72,40, og
vann sig þvi upp á viö í úrslita-
keppninni. — ágás.