Morgunblaðið - 07.06.1983, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ1983
• Markataflan glæsilega á Rheinstadion í DUsseldorf sýnir afrek Atla hór svart á hvítu. Fimm mörk skoraði kappinn gegn Frankfurt — öll mörk liðsins í 5:1-sigrinum.
Myndir: Skapti Hailgrímsson.
„Atli, Atli, ..."
— hljómaði á Rheinstadion á laugardag er
Atli skoraði fimm mörk fyrir Dússeldorf
Skapti Hallgrímsson, blaöamaöur Morgun-
blaösins, skrifar frá DUsseldorf.
„ATLI, Atli, Atli ... “ hljómaöi frá
áhangendum Fortuna DUsseldorf
hér á Rheinstadion á laugardag
er heimaliöið lék við Eintracht
Frankfurt í síðustu umferö Bund-
esligunnar. Þaö var ekki aö
ástæöulausu aö áhangendur liös-
ins væru ánægöir meö Atla, því
hann skoraöi öll fimm mörk liðs-
ins í 5:1 sigrinum.
Atli varö því annar markahæsti
leikmaöurinn i Þýskalandi meö 21
mark, og skaut heimsfrægum
stjörnum eins og Rummenigge og
Hrubesch aftur fyrir sig meö þess-
um frábæra árangri í leiknum. Rudi
Völler hjá Bremen varö marka-
hæstur meö 23 mörk, þannig aö
heföi Atli skoraö tvö mörk til viö-
bótar — sem varö alveg mögu-
leiki, hversu undarlega sem þann
kann aö hljóma — heföi frammi-
staöan orðið hreint undraverö.
Einnig ber aö gæta þess hvar í
deildinni liö hans hafnar.
Þaö var markmiö Gilbert Krem-
er þjálfara Dusseldorf, aö ná 30
stigum í deildinni og þaö tókst. Á
blaöamannafundi eftir leikinn
sagðist hann auðvitaö vera
ánægöur meö úrslitin og leikinn.
„Við sýndum í dag aö viö getum
leikið mjög vel — og viö verðum
aö vona aö framhald veröi á þessu
næsta keppnistímabil," sagöi
Kremer.
Ef viö snúum okkur aö leiknum
fer þaö ekki milli mála að stjarna
hans var Atli Eövaldsson. Áhorf-
endur voru varla búnir aö koma
sér fyrir í sætunum þegar hann
haföi skorað fyrsta markiö. Þaö
kom strax á þriðju mínútu. Hann
fékk sendingu inn fyrir vörnlna og
skoraði meö föstu skoti rétt innan
vítateigsins sem markvörðurinn
átti enga möguleika á aö verja. Þar
meö var tónninn gefinn og ekkert
fékk stöövaö Atla eftir þaö.
Bruno Pezzey, austurríski lands-
liösmaöurinn hjá Eintracht og fé-
lagar hans í vörninni réöu lítiö viö
leikmenn Dusseldorf, sem léku
mjög vel.
Atli skoraöi sitt annaö mark á
10. mínútu. Þá skallaði hann fyrir-
gjöf frá hægri í netiö — algjörlega
óáreittur. Draumabyrjun Atla, en
hann var ekki hættur. Draumur
allra knattspyrnumanna er aö
skora þjrú mörk — „hat-trick“ í
leik, og Atli geröi sitt þriöja mark á
34. mínútu. Aftur var gefiö fyrir frá
hægri — hann skallaöi á markiö,
markvöröurinn sló knöttinn í
þverslána, en hann hrökk svo aftur
út til Atla sem skallaði hann í hitt
hornið. Fyrir leikhlé náöi Frankfurt
svo aö minnka muninn er bakvörö-
urinn Berthold braust inn í vítateig-
inn hægra megin og fast skot hans
réö Kurth í markinu ekki viö.
Þaö var ekki ýkja langt liöiö á
seinni hálfleik er Atli haföi bætt
sínu fjóröa marki viö, og var þaö
jafnframt fallegasta mark leiksins.
Hann fékk boltann nokkru fyrir
utan vítateig og tveir varnarmenn
sóttu aö honum. Atli gerði sér lítiö
fyrir og vippaöi boltanum yfir þá,
skaust síðan á milli þeirra og sendi
þrumufleyg í bláhorniö. Glæsilegt
mark og algjörlega óverjandi.
„Atli, Atli ..." hljómaöi hærra
en nokkru sinni fyrr, og allir yfir sig
hrifnir meö leik liösins. Síöan fékk
Dússeldorf vítasþyrnu á 82. mín-
útu. Rudi Bommer var þá brugöiö
innan teigs — og til aö kóróna
frammistöðuna tók Atli spyrnuna
og skoraði af öryggi. Fimm mörkin
oröin aö veruleika — nokkuö sem
fáum knattspyrnumönnum tekst
aö afreka.
Þetta var í annaö skiptiö í vetur
sem sami leikmaður skorar fimm
mörk í leik í Bundesligunni —
Búrgsmúller hjá Dortmund geröi
þaö er lið hans sigraöi 11:1 fyrr í
vetur, þannig aö afrek Atla er enn
meira, þar sem hann gerði öll mörk
liös síns.
Pétur Ormslev kom inn á hjá
Dússeldorf um miöjan síöari hálf-
leikinn og stóö hann sig vel. Var
mikiö í boltanum og var hreyfan-
legur á-miðjunni. Pétur átti aö vera
í byrjunarliöinu eins og hann haföi
veriö í undanförnum leikjum, og
var hann númer ellefu í leikskránni.
Því var svo breytt á síðustu stundu
og Thiele, sem lék áöur meö
Frankfurt kom í hans staö. Hann
haföi skoraö tvö mörk gegn
Frankfurt fyrir jól — en nú var
hann slakur og Pétur kom síöan
inn á fyrir hann.
Leikurinn í heild var skemmti-
legur og vel leikinn. Bæöi lið hugs-
uöu um aö leika létta og áferöar-
fallega knattsþyrnu og sat léttleik-
inn því í fyrirrúmi. Ekki mikiö um
tæklingar eöa grófan leik.
— SH
• Markvörðurinn hefur hér slegiö fré og þjarmar síöan aö Atla. Eins
gott aö hafa gætur á honum.
• Hér varöi markvöröurinn skot — boltinn hrökk til Atla sem skaut, en
Bruno Pezzey bjargaöi á línu. Þar var Atli óheppinn að skora ekki.
MMn