Morgunblaðið - 07.06.1983, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
Fólk og fréttir í máli og myndum
íslandsmeistarar Víkings:
Endanlega gengió frá
ráðningu Havlíks
GENGIÐ hefur verid endanlega frá samningum milli handknattleiks-
deildar Vtkings og fyrrum landsliösþjálfara Tékka, Rudolf Havlík, um
aö hann þjálfi hjá Víkíngi næstu tvö ár a.m.k. Hann tekur við af
Pólverjanum Bogdan Kowalczyk, sem lét af störfum hjá Víkingi í vor
eftir 5 ára árangursríkt starf.
Rudolf Havlík er einn kunnasti
handknattleiksmaður Tékka fyrr
og síðar. Hann hóf aö leika meö
Dukla Prag árið 1957 og lék með
liðinu til ársins 1971. Alls lék hann
hvorki meira né minna en 1.514
leiki meö Dukla og skoraöi á því
tímabili 4.521 mark. Þá lék hann
125 landsleiki fyrir Tékkóslóvakíu
og skoraði 382 mörk. Hann varð
heimsmeistari með Tékkum í HM í
Svíþjóð 1967.
Havlík byrjaði að þjálfa 21 árs
landslið Tékka árið 1976 og
gegndi því starfi til 1978, er hann
varö landsliösþjálfari. Því starfi
gegndi hann til 1982.
Sendiherra Tékkóslóvakíu á ís-
landi, Josef Rajchart, hafði milli-
göngu um ráðningu Havlíks til Vík-
ings og veitti félaginu ómetanlega
aðstoð í því sambandi. Havlík byrj-
ar störf hjá Víkingi í byrjun ágúst
nk.
Ljóst er, að nokkrar breytingar
munu verða á liði Víkings, þar sem
nokkrir eldri leikmenn munu leggja
skóna á hilluna, en jafnframt koma
nýir leikmenn i staöinn, t.d. einn
fyrrverandi Víkingur, Gunnar
Gunnarsson úr Fram, og Heimir
Karlsson úr Stjörnunni.
• Rudolf Havlík, hinn nýi þjálfari
Víkings.
Davies skoraði
Noröur-írland tapaöi á
heimavelli sínum 0:1 fyrir
Wales í bresku meistara-
keppninni í fyrrakvöld. Gor-
don Davies skoraöi eina
mark leiksins — og var þetta
fyrsta tap íranna á heima-
velli í fjögur ár.
• Á meöfylgjandi myndum sjá-
um viö hvernig Hansi Milller, Int-
er, sparkar af öllum mætti í mag-
ann á andstæðingi sínum og svo
hvernig dómarinn reynir að halda
aftur af honum. Hansi MUIIer hef-
ur greinilega látið eitthvað fara í
taugarnar á sér, því að öllu jöfnu
er hann mjög kurteis leikmaður.
Nýtt tennismót
ALÞJÓÐASAMTÖK atvinnu-
manna í tennis skýröu frá því fyrir
skömmu, að árið 1985 hæfi nýtt
mót göngu sína og næmu verð-
launin í því alls 1,5 milljónum
dollara. Keppt verður bæöi (
kvenna- og karlaflokki og mun
mótið standa í um tvær vikur.
Maraþon
kvenna
RÚMLEGA þúsund konur taka
þátt í maraþonhlaupi í Bandaríkj-
unum um helgina. Þetta mót er
hugsað sem úrtökumót fyrir
maraþonkonur sem keppa munu
á heimsmeistaramótinu í frjáls-
um íþróttum sem fram fer í Hels-
inki í ágúst. Elsti þátttakandinn
er 74 ára gömul og sú yngsta er
aöeins 14 ára, en sjö úr hennar
fjölskyldu taka þátt í þessu
hlaupi.
Sigurstranglegastar eru taldar
þær Julie Brown frá San Diego og
Joyce Smith frá Englandi. Besti
tími Brown er 2:28,33 og er hún
talin þriðja besta í heiminum (
dag, en tími Smith, sem er talinn
í níunda sæti, er 2:29,43.
• Stórsigur Manchester United í seinni úrslitaleik FA-bikarkeppninn-
ar í höfn, og Bryan Robson getur því leyft sér að brosa örlítið um leið
og hann hampar bikarnum. United sigraði Brighton í þessum leik,
4—0, eins og menn muna eflaust.
Stór nöfn á Bislet-leikunum
HEIMSMETHAFARNIR Sebastian Coe og Steve Ovett veröa meðal
keppenda á „Bislet“-leikunum, sem fram fara á samnefndum leikvangi
í Ósló seinni hluta júní. Tilkynnt hefur verið, að Coe muni keppa í 1500
hlaupi og Ovett í 3000 eða 800 metrum. Bandaríski spjótkastarinn
Petranoff verður einnig meðal keppenda, en eins og kunnugt er,
kastaði hann spjótinu 99,72 metra á móti í síðasta mánuði, en það er
þremur metrum lengra en skráö heimsmet.
• Þessi mynd er tekin af Standard Liege, Belgíumeisturunum í ár,
fyrir þeirra 100. Evrópubikarleik og var þá leikiö gegn Juventus á
þeirra heimavelli, Stadio Communale i Torino. Af þessum hundrað
leikjum hefur Standard unnið 52, tapað 33 og gert 15 jafntefli. Þeir eru
meö 50 mörk í plús, hafa skorað 172, en fengið á sig 122.
Þorvaldur þriðji
á Norðurlöndunum
ÞORVALDUR Þórsson grinda-
hlaupari úr ÍR hefur náð þriðja
bezta árangri Norðurlandabúa í
400 metra grindahlaupi á þessu
ári, og hlýtur því aö eiga ein-
hverja möguleika á að verða val-
inn ( liö Noröurlandanna, sem
keppir viö Noröurlandaúrval í
næsta mánuði.
Þorvaldur hefur i vor hlaupiö á
51,38 sekúndum, en betri eru Sví-
arnir Sven Nylander með 51,15 og
Crister Gullstrand meö 51,25. Ny-
lander setti sænskt met í fyrra,
hljóp á 49,64 sekúndum og varö
sjöundi á Evrópumeistaramótinu
og 20. bezti í heiminum.
Gullstrand á 49,73 sekúndur frá
1979 og var við 50 sekúndna múr-
inn í fyrra. Þorvaldur kynntist báö-
um í Kaliforníu í vetur, þar sem
þeir stunduöu æfingar um tíma, en
Þorvaldur er námsmaöur viö há-
skólann í San Jose. — ágás.
Jón hljóp 800
á 1:52,13 mín.
„ÉG VAR þungur á mér, erfitt 10
kílómetra götuhlaup þremur dög-
um áöur sat í mér, en mér finnst
ég vera í góðri æfingu og býst við
góðum árangri þegar ég fer að
slaka á og minnka álagið fyrir
mótin,“ sagði Jón Diðriksson
hlaupari úr UMSB í samtali viö
Mbl. um helgina.
Jón tók þátt i 800 metra hlaupi á
BonnSieg héraösmeistaramótinu,
Nýr Svn
varpar
yfir 20 m
NÝR sænskur kúluvarpari bættist í
hóp 20 metra kastara um helgina,
er Yngve Wallander frá Hagen í
Skövde varpaði 20 metra slétta.
Hann varö þar meö fjóröi Svíinn
sem varpar kúlu 20 metra eöa
lengra.
Wallander átti bezt 18,55 í fyrra
og framfarirnar eru því miklar.
— ágás.
sem haldiö var í Bonn á laugardag,
og varö þriðji á 1:52,13 mínútum.
„Mér fannst ég sprækur á fyrri
hring, hljóp hann á 53 sekúndum,
en þá fór mjólkursýran frá því á
miðvikudag að segja til sín og voru
síðustu 150 metrarnir erfiöir,"
sagöi Jón. — ágás.
Norðmenn
stórtækir
NORÐMENN hafa undanfarin tíu
ár haldið „túrneringu“ fyrir yngri
flokkana í knattspyrnu og verður
ein slík haldin fyrstu vikuna í ág-
úst í sumar. Alls eru 1.190 lið
skráð til keppni og koma þau frá
610 félögum í 16 löndum. Sum
þessara liða þurfa að ferðast
talsvert langt til aö sækja þetta
mót hjá frændum vorum og má
þar nefna Saudi-Araba, Brasilíu-
menn og lið frá Nígeríu. Þátttak-
endur hafa aldrei verið fleiri en í
ár og er talið að alls muni 23.600
unglingar sparka bolta í Noregi á
meðan á þessu móti stendur og
mun það vera eitt fjölmennasta
mót í heimi.
Zoff leggur skóna á hilluna
DINO Zoff, fyrirliði heimsmeistar-
anna, sem nú er fertugur, sagöi á
blaöamannafundi í síöustu viku
að hann ætlaöi aö leggja skóna á
hilluna þegar samningur hans viö
Juventus rynni út, en það mun
vera núna í lok júní. Zoff hóf feril
sinn hjá Udinese árið 1961, en
þekktur varð hann ekki fyrr en á
árunum sem hann lék með Napólí
og auövitaö eftir aö hann hóf aö
leika með Juventus, en það var
árið 1972. Síöan hefur hann aldrei
misst úr deíldarleik með þeim, og
geri aðrir betur.
Zoff sagöi, aö þrátt fyrir aö hann
ætlaöi aö hætta aö leika knatt-
spyrnu, væri ekki þar með sagt aö
hann væri hættur afskiptum af
henni. „Þeir hjá Juventus hafa
boðið mér aö sjá um þjálfun
markvaröa hjá sér, en ég hef ekki
haft tíma til aö hugsa máliö ennþá
og hef því ekki tekiö neina
ákvöröun um hvaö ég geri í fram-
tíöinni."
Ekki er vitaö hver veröur eftir-
maöur Zoff í landsliöinu, en talið er
aö Ivano Bordon frá Inter Milan,
Giovanni Galli frá Fiorentina og
Franco Tancredi frá Roma séu lík-
legastir.
Þaö þarf vart aö taka þaö fram,
aö mikill sjónarsviptir veröur aö
Zoff, en fréttaskýrendur segja, aö
hann hafi kosiö aö hætta áöur en
hann færi aö dala, þó svo ítalskir
fótboltaunnendur kalli hann ennþá
„Suser Dino“.