Morgunblaðið - 07.06.1983, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
Bandaríska háskólameistaramótið í frjálsíþróttum:
Allir íslendingarnir komust
í úrslitin í sínum greinum
Allir íslenzku frjálsíþrótta-
mennirnir, sem kepptu á banda-
ríska háskólameistaramótinu,
stóðu sig meö miklum ágætum
og voru þjóð sinni til sóma á mót-
inu. Hefur frammistaða þeirra
vakið verðskuldaða athygli vestra
og á ugglaust eftir að greiða götu
þeirra íslenzkra frjáisíþrótta-
manna sem á eftir kunna að
fylgja i framtíðinni.
Svo rifjuð sé upp í stuttu máli
frammistaða íslendinganna á
mótinu, bera hæst sigrar Einars
Vilhjálmssonar UMSB í spjót-
kastinu og Þórdísar Gísladóttur
ÍR í hástökki. Einar vann glæsi-
legt afrek er hann náði fimmta
bezta árangri heims á þessu ári
meö nýju Islandsmeti sínu, og
Þórdís varöi titil sinn frá í fyrra og
setti fslandsmet í leiðinni.
Óskar Jakobsson ÍR varð þriöji í
kringlukasti og fjóröi i kúluvarpi og
hefur samtals unniö til þriggja
verölauna á þessu móti. Hann hef-
ur átta sinnum á fjórum árum oröiö
„All American", sem er sæmdartit-
ill, sem þeir hljóta sem hafna í
efstu sex sætum hverrar greinar á
mótinu. Aö sögn Óskar hefur eng-
inn nemandi viö háskólann í Austin
unniö jafn oft til þessa titils.
Þráinn Hafsteinsson HSK átti í
haröri keppni í tugþrautinni og ör-
lítil óheppni í einni grein, ef þannig
má komast aö oröi, kostaöi hann
jafnvel gullverölaunin. Svo mjótt
var á munum aö hann hafnaði í
fimmta sæti, jafn fjóröa manni aö
stigum. Árangur Þráins var hans
lengbezti hingað til, en sekúndu-
brotsmeövindur í grindahlaupi ger-
ir aö verkum að afrekiö fæst ekki
staðfest sem íslandsmet.
Vésteinn Hafsteinsson stóö sig
einnig vel, varö fimmti í kringlu-
kasti með 61,50 metra, sem er
hans næstbezti árangur. Vésteinn
var kominn í sitt bezta form, en
óheppnin elti hann líka, hann togn-
aöi í baki viku fyrir mót, en sýndi
samt af sér hörku og mætti til leiks
þótt hann gæti ekki beitt sér til
fulls.
Þessi íþróttamenn unnu allir „All
American" sæmdartitil, og reyndar
Oddur Sigurösson KR, einnig, því
boðhlaupssveit skólans í Austin
varö í fimmta sæti. Sveitin átti
næstbezta árangur fyrir mótiö og
haföi veriö spáö þriöja sæti, en
hafnaði í fimmta í haröri keppni.
Auk þessa komust spjótkastar-
arnir iris Grönfeldt UMSB og Sig-
urður Einarsson Ármanni, sem
bæöi eru viö nám í Alabama, í úr-
slitin. iris varö sjöunda og Siguröur
tíundi. Siguröur vann á í úrslitun-
um, var meö 14. bezta kastiö eftir
undanúrslitin.
• Enn einu sinni varð Þórdís Gísladóttir háskólameistarí kvenna í hástökki. Glæsilegur árangur
sem verður seint leikinn eftir.
„Erfitt að verja titilinn“
# — segir Þórdís Gísladóttir
ÍR sem varð bandarískur há-
skólameistari þriðja sinni
„ÞAÐ ER erfitt að koma til svona
móts og þurfa aö verja titil. Það
var mikil pressa á mér, en gaman
íris sjöunda
í spjótkastinu
ÍRIS Grönfeldt spjótkastari úr
UMSB varö sjöunda í úrslitum
spjótkastskeppninnar á banda-
ríska háskólameistaramótinu í
frjálsíþróttum.
íris kastaði spjótinu 50,86
metra, og er þaö í þriöja sinn sem
hún kastar yfir 50 metra. íris
missti naumlega af sjötta sætinu,
sem gefið hefði hin eftirsóttu „All
American'-verölaun, sem veitt
eru fyrstu sex mönnum í hverri
grein.
íris keppir fyrir háskólann í
Tuscaloosa í Alabama, ásamt
Þráni og Vésteini Hafsteinsson-
um, Þórdísi Gísladóttur, Sigurði
Einarssyni og Pétri Guömunds-
syni.
aö sigra aftur og ánægðust er ég
aö þessu skuli lokið,“ sagði Þór-
dís Gísladóttir, frjálsíþróttakona
úr ÍR, í samtali viö Morgunblaðið
eftir að hún hafði varið meistara-
titil sinn á bandaríska háskóla-
meistaramótinu í frjálsíþróttum.
Þórdís stökk 1,87 metra og jafn-
aði íslandsmet sitt. Tvær aörar
stúlkur, Wendy Markan frá Flórída
og Sue Jones frá Arkansas stukku
sömu hæö, en Þórdís fór yfir í
fyrstu tilraun og vann á því. Þórdís
sigraöi á sama móti í fyrra, er þaö
fór fram í Provo í Utah, og stökk
þá 1,86 metra. Þá sigraöi Þórdís á
innanhússmeistaramóti banda-
rískra háskóla í vetur og stökk þá
1,88 metra.
„Ég fór alltaf yfir í fyrstu tilraun,
en Markan og Jones felldu bæöi á
1,84 og 1,87. Við byrjuöum á 1,78,
síöan 1,81, þá 1,84 og loks 1,87.
Ég átti síöan mjög góöa fyrstu til-
raun viö 1,90 og þaö var grátlegt
aö sjá rána falla, ég fór vel yfir, en
strauk hana meö hælunum á niö-
urleiöinni. Nú er bara vona aö
þessi hæö komi í sumar, ég er
reyndar bjartsýn, því ég hef veriö
meidd og átt erfitt uppdráttar, en
nú er allt á réttri leið,“ sagöi Þór-
dís.
Eftir því sem Mbl. kemst næst er
árangur Þórdisar í hástökkinu sá
besti á Norðurlöndunum á þessu
ári. Á mótinu í Houston stökk
sænska stúlkan Annette Tannand-
er 1,81 metra, en Suzanne Lor-
entzon, sem á Noröurlandametiö,
1,91 metra, hefur ekki náö sér á
strik ennþá utanhúss. Hún stökk
1,88 innanhúss í vetur eins og
Þórdís.
„Eftir sigurinn var mér dengt
upp á sviö fyrir framan urmul af
blaöa-, útvarps- og sjónvarps-
mönnum og spurö spjörunum úr.
Þeir undruöust mjög hvernig ís-
lendingur gæti fariö aö því aö
vinna þrjá meistaratitla, og fannst
mikiö til um frammistööu okkar Is-
lendinganna á mótinu," sagöi
Þórdís, en Ijóst er aö frammistaöa
frjálsíþróttamannanna hefur veriö
góö en ódýr landkynning vestra.
— ágás.
• Óskar sannaði aö hann er í fremstu röð kastara í Bandaríkj-
unum. Þrátt fyrir að hafa átt við meiðsl að stríða, náði hann
góðum árangri og var enn einu sinni á verðlaunapallí.
„Stóð mig betur
en búist var vió“
— segir Óskar Jakobsson,
sem vann bronz í kringlukasti
„ÉG NÁÐI mínu bezta í báöum
greinum á árinu og get því vel við
unað. Einnig haföi mér verið spáö
áttunda sæti í kringlunni og
fimmta til sjötta í kúluvarpi, svo
ég stóð mig því betur en búist var
viö,“ sagði Óskar Jakobsson
frjálsíþróttamaöur úr ÍR í samtali
við Morgunblaöið, en hann var í
hópi þeirra íslenzku frjálsíþrótta-
manna, sem þátt tóku í banda-
ríska háskólameistaramótinu
meö miklum glæsibrag.
Óskar varö þriöji í kringlukast-
inu meö 62,50 metra og fjóröi í
kúluvarpinu meö 20,37, og hefur
því samtals átta sinnum unniö til
nafnbótarinnar „All American",
sem hlýzt fyrir aö hafna í einu af
sex efstu sætum í hverri grein
mótsins.
Aö sögn Óskars hefur enginn
frjálsíþróttamaöur frá skólanum i
Austin unnið jafn oft til „All Amer-
ican“ titils. Óskar hefur fjórum
sinnum tekiö þátt í mótinu og í öll
skiptin oröiö í einu af sex efstu
sætunum, bæöi í kúluvarpi og
kringlukasti, einu sinni hlotiö silfur-
verölaun í kúluvarpi og tvisvar
bronz í kringlukasti.
„Ég hef átt erfitt uppdráttar í
vetur, veriö slæmur í ökkla vegna
tognunar í haust. Þaö var ekki fyrr
en fyrir um mánuöi aö ég fann fyrir
góöum bata. Þá var of stutt í mótiö
til aö pressa sig niöur í æfingum
og hélt ég því mínu striki.
Þannig er til dæmis meö kringl-
una, aö vegna ökklatognunarinnar
hef ég varla getaö snert á henni,
og mótin í vor fleiri en æfingarnar í
allan vetur. En nú vona ég aö betri
tíö sé framundan og ég fæ gott
tækifæri á næstunni til að fínslípa
formiö," sagði Óskar.
í kúluvarpinu sigraöi Mike Cart-
er meö 20,90 varpi, John Bremner
varö annar meö 20,67 og meistar-
inn frá í fyrra, Dean Crouser, varö
þriðji meö 20,57. Síöan kom Óskar
meö 20,37 og fimmti maöurinn,
Hank Kreitscher, varpaöi 20,13.
í kringlukastinu varöi Dean
Crouser titil sinn frá í fyrra og kast-
aöi 65,84 metra, sem er mótsmet.
Annar varö Rick Meyer frá Houst-
on meö 63,50. Þá kom Óskar meö
62,50.
Vésteinn góöur
Vésteinn Hafsteinsson HSK,
námsmaöur í Alabama, varö
fimmti í kringlukastinu meö 61,50
metra. Frammistaöa Vésteins er
mjög góö, því hann tognaöi í baki
viku fyrir mót og hlaut svo matar-
eitrun í millitíðinni. Var hann kom-
inn í mjög gott form fyrir mótiö og
því óheppinn aö hljóta þessi
meiösli á síöustu stundu. Árangur
Vésteins er hans næstbezti nokkru
sinni.
Þaö er af Óskari Jakobssyni aö
segja aö hann kemur ekki til is-
lands fyrr en viku af júlí. Veröur
hann í Austin fram að heimsleikum
stúdenta í Toronto í Kanada, þar
sem hann veröur meöal keppenda.
Vésteinn veröur einnig vestra
þar til í júnílok en hann tekur þátt í
prufu-ólympíuleikjum í Los Angel-
es eftir rúmar tvær vikur, ásamt
Þórdísi Gísladóttur ÍR. — ágás.
Frjðisar fbröttir
l.. ..