Morgunblaðið - 07.06.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
29
Sveinn Ginarsson skýrir frá þörf- Séð yfir fjölmennið í sal Háskólabíós á fundinum á laugardag.
inni fyrir tónleikahús á Islandi.
Morgunbladið/KÖE.
700 hafa skráð sig f áhugafélag um byggingu tónlistarhúss í Reykjavík:
„Kemur á óvart hversu mikill
áhugi ríkir fyrir þessu“
- segir Jón Þórarinsson, einn 12 manna í
sérstaklega kjörinni undirbúningsnefnd
„Við gerðum okkur vonir um að ná 3—4000 manns í þessi áhugasam-
tök og ef marka má þessa byrjun held ég að það reynist ekki erfiðleikum
bundið. Mér kemur sannast sagna á óvart hversu mikill og almennur
áhugi virðist ríkja fyrir þessu,“ sagði Jón Þórarinsson, tónskáld, er
Morgunblaðið reddi við hann. Um 700 manns hafa nú þegar skráð sig í
áhugamannafélag um byggingu tónleikahúss á íslandi.
Jón er einn tólf manna, sem búningsnefnd fyrir formlega
kjörnir voru í sérstaka undir- stofnun þessa áhugafélags, en
nefndin var kjörin á mjög fjöl-
mennum fundi, sem efnt var til í
Háskólabíói að loknum endur-
flutningi Sinfóníuhljómsveitar
íslands á 9. sinfóníu Beethovens
á laugardag fyrir troðfullu húsi
áheyrenda.
Hákon Sigurgrímsson, stjórn-
arformaður Sinfóníuhljómsveit-
ar Islands, setti fundinn fyrir
hönd fundarboðenda og tilnefndi
síðan Erlend Einarsson fundar-
stjóra. Raeðumenn auk hans
voru Sveinn Einarsson, Ármann
Örn Ármannsson og Ingi R.
Helgason. Gerði Sveinn grein
fyrir þörfinni fyrir hús af þessu
tagi og Ármann ræddi tæknilegu
hliðina við byggingu slíks húss.
Ingi R. skýrði hins vegar frá til-
lögum um samþykkt á byggingu
tónlistarhúss.
Eftirfarandi tillaga var síðan
samþykkt á fundinum: „Almenn-
ur fundur áhugamanna um tón-
list, haldinn í Háskólabíói 4. júní
1983 að loknum flutningi 9. sin-
fóníu Beethovens, samþykkir að
stofna samtök um að reisa tón-
listarhús í Reykjavík." Var þessi
tillaga samþykkt bæði með
handauppréttingu og svo dynj-
andi lófataki.
Á fundinum var sem fyrr
sagði kjörin tólf manna nefnd,
sem vinna á að að undirbúningi
formlegs stofnfundar áhugafé-
lags um byggingu tónlistarhúss
síðla sumars eða í haust. í hana
voru kjörnir, auk Jóns, eftirtald-
ir: Ármann Örn Ármannsson,
Björgvin Vilmundarson, banka-
stjóri, Einar Jóhannesson, klar-
inettleikari, Finnur Torfi Stef-
ánsson, lögfræðingur, Gunnar
Egilsson, hljóðfæraleikari, Há-
kon Sigurgrímsson, fram-
kvæmdastjóri, Ingi R. Helgason,
forstjóri, Jón Nordal, tónskáld
og skólastjóri, Karólína Eiríks-
dóttir, tónskáld, Ruth Magnús-
son, söngvari og Sigurður Helga-
son, forstjóri.
Að sögn Jóns hefur nefndin
þegar komið saman einu sinni og
skipt með sér verkum. Tekur
hver þriggja manna hópur að sér
sérstakt verkefni og einum þess-
ara hópa er ætlað það hlutverk
að kynna áhugamannasamtök
þessi og afla fleiri félaga. Hann
lagði á það áherslu að málið væri
ennþá allt á undirbúningsstigi
þrátt fyrir fjölmennan og vel
heppnaðan fund. Sagði hann að
tólf manna nefndin myndi vinna
af fullum krafti í sumar og
væntanlega yrði efnt til sam-
keppni um teikningu hússins.
Áður en af því gæti hins vegar
orðið þyrfti að gera sér ná-
kvæma grein fyrir hvernig það
ætti að vera. Hefðu komið fram
hugmyndir um 15.500 manna að-
alsal, auk tveggja minni, en þær
þyrftu ekki að vera endanlegar.
Kjörorð „efnahagsstefnu** Karnabæjar valið:
Islendingar sýna á sér batamerki
„MJÖG fljótlega eftir að við
kynntum „efnahagsstefnu** Karna-
bæjar í Morgunblaðinu — þar sem
við hvöttum til bjartsýni, kjarks,
elju og ábyrgðar í stað barlóms og
volæðis — urðum ég og starfsfólk
mitt vör við mikinn áhuga og góðar
undirtektir hjá almenningi, svo
ekki sé meira sagt Var það til þess
að við ákváðum að efna til sam-
keppni um einkunnarorð fyrir
„efnahagsstefnuna**, sera væru fá
og hnyttin, en samt með alvarleg-
um undirtón. Móttökurnar urðu
betri en við áttum von á, og vorum
við þó vongóð. Á annað þúsund
bréf bárust, öll mjög jákvæð."
Þetta sagði Guðlaugur Berg-
mann, bjartsýnismaðurinn í
Karnabæ í samtali við Morgun-
blaðið í gær, en nú liggur fyrir
niðurstaða fjögurra manna dóm-
nefndar um bestu kjörorð stefnu
Karnabæjar í efnahagsmálum.
Sá sem verðlaunin hlaut —
utanlandsferð á vegum Úrval og
fataúttekt í Karnabæ — heitir
Einar Matthíasson, en hann er
greinilega glúrinn hugmynda-
smiður, því hann vann einnig í
hugmyndasamkeppni Félags ís-
lenskra iðnrekenda vegna vænt-
anlegrar Iðnaðarsýningar. í
bréfi vinningshafans segir m.a.:
„Þið segið réttilega að þjóðin
eigi við efnahagssjúkdóm að
stríða og að með réttri efna-
hagsstefnu sé hægt að sigrast á
meininu, þ.e. með efnahags-
stefnu Karnabæjar verði óvinur-
inn bugaður. Gott.
Það er mjög erfitt að segja
þetta í einni stuttri setningu sem
kemst fyrir á barmnælu. Gott,
þá gerum við það á svolítið ann-
an hátt.
Guðlaugur Bergmann blaðar í tillögum um einkunnarorð efnahagsstefnu Karnabæjar. Á annað þúsund bréf
bárust.
Þið segið að þjóðin sé efna-
hagssjúklingur og viljið sjá á
henni batamerki. Nú þá skuluð
þið bara gefa henni batamerki,
gefa öllum íslendingum sem
hafa vilja eitt batamerki. Merkið
heitir einfaldlega, með snyrti-
legri útfærslu og merki ykkar,
Batamerki Karnabæjar
Auglýsingin um þessa merki-
legu gjöf gæti verið á þessa leið:
Nú ætlum við að koma lagi á
efnahagsheilsu þjóðarinnar og
gefa öllum íslendingum bata-
merki sem þeir geta brugðið á
sig i staðinn fyrir efnahagsvol-
æðisfölvann og bölmóðinn.
Nei, bíddu nú, það er ekki
hægt að gefa neinum batamerki,
batamerki eru einkenni þess að
sjúklingi sé að batna krankleiki
og slíkt er ekki hægt að fá gef-
ins.
O jú, sjáðu til, BATAMERKI
KARNABÆJAR er ávísun á
bata og betra líf fyrir þá sem
fylgja vilja efnahagsstefnu
Karnabæjar. Sú stefna byggir á
þrauthugsuðum grundvallarlög-
málum sem felld hafa verið í
fimm meginatriði:
1. að brosa
2. að vinna vel
3. að bæta allt sem íslenskt er
4. að vera jákvæð(ur)
Batamerki júnímánaðar.
5. að standa með öllum sem
sýna
BATAMERKI í barmi og/eða
verki"
Guðlaugur sagði að upp úr
þessu bréfi Einars hefði sprottið
sú hugmynd að láta gera sér-
stakt „batamerki" fyrir hvern
mánuð ársins. Búið er að teikna
fyrsta merkið, fyrir júnímánuð,
og fyrir valinu varð slagorðið
„Islensk spjör. Betri Kjör“. Þessi
hugmynd er ættuð úr tveimur
landshornum, en tvær stúlkur,
Anna Pálsdóttir frá ísafirði og
Oddrún Pétursdóttir frá Hafn-
arfirði, sendu þessa tillögu inn.
Munu þær skipta með sér verð-
launum, sem eru 5 þúsund króna
fataúttekt í Karnabæ. Teiknari
merkisins er Ásgeir Th. Daní-
elsson, bróðir Guðlaugs Berg-
mann.
Guðlaugur bjóst við að merkið
yrði tilbúið á morgun, miðviku-
dag, og stæði til að gefa það í
verslunum Karnabæjar. Þá er
hugmyndin að færa Sverri Her-
mannssyni iðnaðarráðherra
merkið fyrstum manna að gjöf.
Og hugmyndasamkeppnin held-
ur áfram, fólki er frjálst að
senda inn tillögur að slagorðum
fyrir batamerki næstu mánaða.