Morgunblaðið - 07.06.1983, Side 33
I
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
33
Hrólfur Sturlaugs-
son rafvirkja-
meistari — Minning
Fæddur 15. ágúst 1916
Dáinn 30. maí 1983
f dag er til moldar borinn á Ak-
ureyri tengdafaðir minn og vinur,
Hrólfur Sturlaugsson.
Dauðinn gerir ekki ávallt boð á
undan sér og svo var sl. mánu-
dagskvöld er hann hafði lokið
störfum að hann veiktist skyndi-
lega á heimili sínu og andaðist
skömmu síðar. Ekki hafði hann
kennt sér meins svo aðrir vissu og
var á ágætum aldri, aðeins 66 ára
gamall. Það er nú með döprum
huga að ég minnist hans með
nokkrum fátæklegum orðum og á
hér við orðtakið „Enginn veit hvað
átt hefur fyrr en misst hefur".
Fyrir fáum árum kynntist ég
Hrólfi og voru þau kynni hin
ánægjulegustu og urðu að sannri
vináttu. Vissulega hafði ég vænst
þess að eiga fleiri samverustundir
með honum og njóta mannkosta
hans og lífsreynslu, en enginn má
sköpum renna. Kristur sagði: „í
húsi föður míns eru margar vist-
arverur." Ég er sannfærður um að
hönd Krists muni leiða hann og
búa honum góðan dvalarstað.
Ástundun, samviskusemi og
greiðvikni voru ríkir þættir í
skapgerð hans og mótuðu starf
hans alla tíð. Starfið átti hug hans
allan og vinnusemin var honum í
blóð borin.
Á yngri árum stundaði hann
íþróttir, útiveru og ferðalög og var
það honum mjög að skapi, enda
vel á sig kominn til líkama og sál-
ar.
Hrólfur kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Sigríði Ólafsdótt-
ur, árið 1940, hinni elskulegustu
ágætiskonu. Þau voru einkar sam-
hent og eignuðust hið fegursta
heimili að Strandgötu 35, Akur-
eyri, þar sem þau bjuggu alla tíð.
Börnin urðu þrjú, Olafur Ingi,
Hallfríður og Auður.
Fyrir þremur árum áttum við
samleið um Ítalíu í nokkrar vikur
og kom það mér skemmtilega á
óvart hversu fróður Hrólfur var
um þessi suðlægu lönd og sagði
hann mér frá ýmsu sem hann
hafði lesið um sögu þessara landa
og t.d. um áhrif Rómverja á sögu
evrópskrar menningar.
í ferð þessari var Hrólfur ávallt
glaður og reifur og hinn skemmti-
legasti ferðafélagi. Þar komu fyrir
tilvik þar sem hann sýndi af sér
alveg óvenjulega hugulsemi og
nærgætni við aðra ferðafélaga
sem fleiri tóku eftir og mun ég
ávallt minnast hans með alveg
sérstökum hlýhug fyrir það.
Er Hrólfur kynntist fjölskyldu
minni vann hann hug og hjörtu
hennar. Var þeim mikið brugðið er
ég tilkynnti andlát hans, því það
bar svo snöggt að og oft höfðum
við rætt um að nú ættum við að
heimsækja Hrólf og Sigríði í
sumar.
Þegar þau hjónin komu til
Reykjavíkur dvöldust þau ætíð hjá
okkur og var Hrólfur alltaf boðinn
og búinn að hjálpa til og aðstoða.
Honum féll aldrei verk úr hendi og
var sívinnandi, enda hafði hann
búið fjölskyldu sinni hið besta
heimili eins og áður sagði.
Vinskapur hans og ástríki gagn-
vart öllum er hann þekkti er ofar-
lega í huga mínum er ég hugsa um
hann. Það er erfitt að ætla sér að
skrifa um einhverja sérstaka eig-
inleika hans, því í alla staði var
hann slíkur ágætismaður, vinátta
og sterk réttlætiskennd var ríkj-
andi í skapferli hans. Ég er sann-
færður um að menn sem gæddir
eru slíkum mannkostum ávinna
sér ávallt hlýhug og elsku ann-
arra.
Vera hans hér á jörðu verður
hvatning til að breyta eins og
hann gerði, ganga fordómalaust í
gegnum lífið og hjálpa öðrum eins
og kostur er.
Minningin um Hrólf verður allt-
af björt og hrein.
Ég votta kærri tengdamóður
minni og fjölskyldunni innilegustu
samúð mína.
Guðmundur Magnússon
Frank Anker
Engelund
t dag verður Frank Anker Enge-
lund, prófessor við Tækniháskóla
Danmerkur í Kaupmannahöfn,
jarðsunginn. Hann lést eftir
skamma sjúkralegu hinn 1. júni sl.
Hann var 57 ára gamall.
Frank A. Engelund var sonur
Anker Engelunds, sem var lengi
prófessor í burðarþolsfræðum við
sama skóla og hönnuður margra
stærstu brúa í Danmörku.
Frank A. Engelund var prófess-
or í straumfræði. Hann var þekkt-
ur um allan heim fyrir fræðastörf
sín á sviði sandburðar. Hélt hann
- Kveðja
fyrirlestra á fjölmörgum þingum
og við margar rannsóknastofnan-
ir, meðal annars Háskóla íslands
snemma árs 1976. Hann var því
íslenskum vísindamönnum og
verkfræðingum að góðu kunnur,
auk þess sem hann var kennari
margra íslenskra verkfræðinga.
Hann var mikill mannvinur og
friðarsinni. Vinum sínum um
heim allan var hann mikill harm-
dauði. í Kaupmannahöfn skilur
hann eftir sig stóran hóp læri-
sveina, sem nú eru mikilsvirtir
vísindamenn og munu halda nafni
hans á lofti um ókominn aldur.
Frank A. Engelund lætur eftir
sig eiginkonu, Louise Engelund, og
þrjár uppkomnar dætur.
Jónas Elíasson
Guðný Sœmunds-
dóttir — Minning
Fædd 23. aprfl 1914
Dáin 29. maí 1983
Guðný var fædd 23. apríl 1914 í
Hafnarfirði, dóttir Láru Andrés-
dóttur og fyrri manns hennar,
Sæmundar Vilhjálmssonar. í
Hafnarfirði ólst hún upp hjá móð-
ur sinni og stjúpa, Steingrími
Steingrímssyni ásamt þremur
hálfsystkinum sínum, Þuríði,
Helgu og Guðmundi, er öll eru á
lífi. Einn albróður átti Guðný er
Gísli hét, hann dó ungur.
Þann 4. des. 1936 giftist hún
Haraldi Lárussyni rafvirkja er
lést 1964 og eignuðust þau þrjá
syni, Örn, Hrafn og Hauk.
Guðný, eða Gauja eins og við
ævinlega kölluðum hana, lést á
Landspítalanum 29. mai sl. eftir
erfiða en fremur stutta legu.
Margt leitar á hugann er kær
móðursystir er kvödd hinstu
kveðju, svo sannarlega sitjum við
hnípin með söknuð í brjósti.
Gauja var sterkur persónuleiki,
vönduð og sérstök kona á margan
hátt, með sínar ákveðnu skoðanir
er erfitt var að hagga. Öll sín störf
innti hún af hendi með svo sér-
stakri trúmennsku að eftirminni-
legt er og veit ég að margir eru
henni þakklátir nú fyrir hennar
góðu og óeigingjörnu störf. Það
var henni hin mesta ánægja að
geta gert eitthvað fyrir aðra.
Gauja var mjög uppörvandi og
lífsglöð manneskja, kunni manna
best að njóta lífsins og notfæra
sér það sem lífið færði henni í
fang. Eftirminnileg er kímnigáf-
an, átti hún hana í ríkum mæli og
hafði gaman af mörgu spaugilegu
í kring um sig.
Ég sé Gauju frænku fyrir mér
hvíthærða, brosmilda, létta á fæti
og umfram allt lífsglaða.
Er mér nú minnisstætt okkar
seinasta samtal í síma um sl. ára-
mót, hún alltaf sama góða um-
hyggjusama frænkan, sem ætið
var tilbúin að uppörva, segja
eitthvað gott og gefa góð ráð.
Gauja var dul um eigin hagi,
hennar hjartans málum var eigi
flíkað. Engum gat dulist er hana
þekktu, að hún var mikil tilfinn-
ingamanneskja og kunni að njóta
fegurðar og lista í ríkum mæli.
Veturinn 1968—69 bjó ég hjá
Gauju frænku og er henni svo
sannarlega þakklát fyrir alla
hennar umhyggju, svo mikið er
víst að hún stjanaði við mann
endalaust en krafðist einskis í
staðinn. Þann vetur átti ég náin
kynni við Gauju. Man ég eitt
kyrrlátt vetrarkvöld er við sátum
inni í stofu. Gauja setti plötu á
fóninn, fagrir tónarnir liðu fram
og rufu kyrrðina, hve ánægjulegt
var að hrífast með Gauju inn í
heim tóna og fegurðar. Gauja átti
gott plötusafn með úrvals klass-
ískum tónverkum, það voru gim-
steinar í hennar augum.
Gauja var unnandi gróðurs og
fagurra blóma, alltaf lifðu blómin
svo vel hjá Gauju. Er voraði árið
1969 lá leið okkar saman einn
hlýjan vordaginn í heimsókn til
kunningjafólks hennar sem átti
sér það að áhugamáli að eiga hinn
fegursta skrúðgarð, þá átti ég
ógleymanlega stund með frænku,
hve vel hún naut þess að ganga um
garðinn og njóta þess, sem fyrir
augun bar, léttstíg, glaðvær og full
áhuga.
Svo margt leitar á hugann er við
kveðjum elsku frænku í dag. Úr
sjóði minninganna er af mörgu að
taka, en hér verður einungis stikl-
að á fáeinum atriðum.
Með eigingjörnu hugarfari hefð-
um við gjarnan kosið að fá að
njóta hennar mun lengur, hún var
mörgum svo mikils virði. Börnum
sínum var hún góð móðir, barna-
börnunum góð og umhyggjusöm
amma, þau hafa mikið misst.
Að lokum til okkar sem eftir lif-
um til huggunar og umhugsunar,
segir orð Drottins Jóh. 3:16. „Því
að svo elskaði Guð heiminn að
hann gaf son sinn eingetinn, til
þess að hver sem á hann trúir
glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“
Guð blessi minningu Guðnýjar.
Inga.
«
i
BEINT FLUG í SÓLINA OG SJÓINN
Brottfarir í sumar ’83
22. júní.
13. júlt'.
3. & 24. ágúst.
14. september.
5. október.
tMffi] lUlLUKJ WORSÍWV AMSBHMM
RÓM: ALLA FÖSTU- LONDON: VIKUFERIR ALLA ÞRIÐJU- KORSÍKA: ALLA LAUGARDAGA AMSTERDAM: VIKUFERÐIR ALLA
DAGA DAGA ÞRIDJUD./FÖSTUD. HELGARFERÐ-
IR ALLA FÖSTUD.
NICE CANNES ARMA Dl TAGGIA LUXEMBORG
NICE / CANNES: FRANSKA RIVIERAN: ALLA ARMA Dl TAGGIA: ÍTALSKA BLÓMASTRÖNDIN: pLUG OG BÍl I
LAUGARDAGGA ALLA LAUGARDAGA
SIKILEY: ALLA ÞRIOJUDAGA
MAROKKO
MAROKKÓ: ALLA LAUGARDAGA