Morgunblaðið - 07.06.1983, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
39
Ég og f jölskylda mín varðveit-
um minningar um bjartar sam-
verustundir og kveðjum hann með
þökk, ríkari fyrir að hafa kynnst
hans fögru lífsmynd.
Til þín, Margrét mín, og barna
þinna, vil ég segja þetta. Þið hafið
öll mikið misst, en eruð líka rík af
fögrum fjölskylduminningum með
honum, sem þið búið að og yljið
ykkur við í framtíðinni. Þær verða
aldrei frá ykkur teknar.
Ég bið góðan Guð að blessa vin-
inn okkar og leiða hann inn í ljóss-
ins ríki Jesú Krists, sem sagði:
„Ég lifi og þér munuð lifa“.
Karl Kristjánsson
Hann kvaddi inn í sumarið af
sömu hógværðinni og einkennt
hafði lífshlaup hans allt; fékk sér
morgunblund og var ekki meir.
Hávaði og umsláttur var ekki aðal
Þórðar Marels Jónssonar í gegn-
um tíðina, og oft tóku menn þá
fyrst eftir að hann hafði verið
þegar hann var farinn; verkin
stóðu eftir og báru þáveru manns-
ins vitni og þess var saknað að
hann hafði ekki staldrað við leng-
ur.
Mér er Þórður í barnsminning-
unni sem hluti af heimsmyndinni;
svona rétt eins og Esjan var mér á
vetrum og Skarðsheiðin og
Skessutindur á sumrum, nema
hvað hann var bæði sumar og vet-
ur og virtist líkt og holdgast útúr
engu í hvert sinn að eitthvað
þarfnaðist viðgerðar á heimili for-
eldra minna, hvort heldur var
heima á Bjarkargötu eða í sumar-
húsinu við Strauma; löngu seinna
unnum við saman að endursmíði
gamals sumarbústaðar fyrir þau
uppi á Kjalarnesi — og það var
eins og bernskan hefði verið í gær
og ekkert breyzt utan að Esjan var
ekki lengur árstíðabundin, því
Þórður hafði haft lag á að láta
barni finnast það smiður og smið-
urinn barn.
Að Þórður yrði mér ungum
samruni lífsmyndarinnar er auð-
sætt; hann réðist til starfa við
fyrirtæki föður míns, hf. ölgerð-
ina Egill Skallagrímsson, í þann
mund að ég leit heimsljósið, 1939,
— og hirti síðan ekki um vista-
skipti meðan starfsorkan entist;
nær fjörutíu ár. Hann varð strax
heimagangur hjá foreldrum mín-
um; einstök prúðmennska, hand-
vcrkslagni og snyrtileg umgengi
svo af bar, gerðu hann mikinn au-
fúsugest — og það var fátt sem
honum var ekki falið að lagfæra,
ef á þurfti að halda. Ungur mun
hann hafa haft hug á að læra hús-
gagnasmíði, en fjárráðin skorti, og
hann fór á sjóinn. Þóttist reyndar
góður að hafa fengið pláss, því
tímar voru erfiðir og lítið um
vinnu, en seinna hafði hann gam-
an af að segja frá þessum árum;
siglingum til hafnarborga Bret-
lands fyrir stríð — og því sem þar
hafði borið fyrir augu. Mér býður í
grun, að örbyrgðin sem hann sá
þarna í hafnarhverfunum hafi
mótað hann meir en hann hefði
sjálfur viljað viðurkenna síðar;
innbrennt honum nægjusemi og
sátt við eigið hlutskipti umfram
það sem nútímaþjóðfélagið myndi
viðurkenna þegnum sínum hollt.
Vjst er um það, að vandað hand-
bragð hans og einstök umgengni
hefði opnað honum dyr hvaða hús-
gagnaframleiðanda sem var, eftir
að þjóðin fór að rétta úr
kútnum — en Þórður Marel yfir-
gaf ekki vini sína fyrir það
óþekkta, né heldur það atvinnuör-
yggi sem hann vissi sig hafa í
þeirra garði.
Þórður var í eðli sínu mikið
náttúrubarn; fæddur í sveit, að
Núpum í Ölfusi, og hafði held ég
alltaf sveitina í sér. Á yngri árum
ferðaðist hann mikið um landið, í
völdum hóp ferðafélaga, og unni
stórbrotinni náttúru þess alla tíð.
Gróður var honum hugleikinn og
hann var natinn við hann; kannski
var þessi gróðurnatni tengd
barngæsku hans, en þeim var
hann slíkur að seint gleymist.
Þegar ég sjálfur hafði eignast
börn, urðu þau eldri sömu gæfu
aðnjótandi og faðir þeirra í æsku;
að fá á stundum lánaðan hamar og
jafnvel nagla hjá Þórði; að fá að
vera umhverfissmiður augnabliks-
ins — og, það sem hvað mest var
um vert fyrir barn, að fá að taka
þátt í umræðu við fullorðinn
mann í augnhæð; — fá að vera
jafningi um stund.
Á vinnustað var Þórður hvers
manns hugljúfi. Afstaða hans til
lífsins og tilverunnar, á stundum
jafnvel barnslega einlæg og sak-
laus, vakti sumum undrun í upp-
hafi, en síðan væntumþykju sem
varði. Hann staðfesti ráð sitt
seint, en varanlega; kvæntist mik-
illi ágætiskonu, Margréti Árna-
dóttur, sem bjó honum hamingju-
rann í íbúð þeirra að Baldursgötu
7, en það hús mun hann hafa reist
með föður sínum og systkinum.
Þau Margrét og Þórður eignuðust
þrjú börn: Jón, Líney og Árna —
öll vel menntaða og nýta borgara,
sér og sínum til sóma. Mér hefur
sagt starfsfólk á Vífilsstaðaspít-
ala, hvar Þórður dvaldi síðustu ár,
að leitun sé á slíkri ástúð og um-
hyggju, sem Margrét og börnin
auðsýndu honum hin erfiðu ár uns
yfir lauk, en það kom mér ekki á
óvart; Þórður hafði uppskorið eins
og hann sáði.
Síðustu starfsár Þórðar voru
honum í raun um megn. Hann
fékk astma, sem ágerðist — og
gufur þeirra efna sem tengjast
smíðum voru honum hreint eitur.
Áhugi hans að vinna fyrirtækinu
og húsbændum þess var hinsvegar
slíkur, að ég held hann hafi oftar
en ekki gleymt þessari bitru stað-
reynd viljandi — og árið 1977 var
starfsþrekið að fullu þrotið. Það
vel tel ég mig hafa þekkt þennan
vin minn, að ástandið hefði orðið
huga hans óbærilegt, hefði for-
sjónin ekki gripið í taumana og
veitt honum gleymsku frá stund
og stað; veitt honum þessa líkn ell-
innar, sem þó veldur ástvinum
hryggð meðan varir.
Að leiðarlokum skilur Þórður
eftir sig ástúðarblandinn trega
hjá þeim sem kynntust honum;
trega og þakklæti fyrir að hafa
fengið að vera samferða þessu
góðmenni, sem fór af slíkri kurt-
eisi gegnum lífið, að engan né ekk-
ert meiddi — heldur miðlaði svo
einstakri hlýju hvar sem hann
kom, að yljar um ókomin ár. Mér
og minni fjölskyldu eftirlét hann
þau blóm ein, sem ekki ná að
fölna.
Tómas Agnar Tómasson.
léttir Báröi störfin
Það er í mínum verkahring að sjá um að salurinn
sé alltaf búinn stólum og borðum í samræmi við
þörfina hverju sinni. T.d. þegar sýna á börnunum
kvikmynd þarf ég að vera fljótur að skutla inn
svona hundrað stykkjum handa þeim stuttu.
Ef leikfélagið er svo með sýningu um kvöldið
þarf ég að bæta öðru eins við og kræki stólunum
saman á hliðunum svo raðirnar haldist beinar.
Svo þarf auðvitað allt að vera orðið tómt morgun-
inn eftir áður en skólaleikfimin byrjar.
Þetta er ekkert mál með Stacco stólunum sem
við eignuðumst í fyrra. Ég geymi þá eina fjögur
hundruð í litlu áhaldageymslunni okkar, ásamt
þrjátíu Stacco borðum, sem auðvelt er að
smeygja fótunum undan til að spara plássið.
Stólarnir staflast hreint ótrúlega vel, - mér reikn-
ast til að fjörutíu stykkja stafli sé rúmur metri á
hæð!
Þegar þeir héldu ráðstefnuna um daginn gerði
ég mér lítið fyrir og rúllaði þrjúhundruð stykkjum
inn í salinn og lagði síðan skrifplötu í hvern
þeirra þegar ég var búinn að raða upp. Ráð-
stefnugestir smelltu plötunum síðan á með einu
handtaki. Núna er ég svo að undirbúa salinn fyrir
dansleik og þá er auðvitað tilvalið að raða upp
borðunum og svona fimm til sex stólum í kring
um hvert þeirra, - annars eru menn nú ekkert
gefnir fyrir að sitja mikið þegar dansinn dunar á
góðu balli, - annálaðir dansmenn allt saman! En
auðvitað finnst þeim gott að tylla sér niður í
notalegan stól öðru hverju.
Já Stacco stólarnir hafa sparað honum mörg
sporin, enda sniðnir fyrir þessar aðstæður.
Arkitekt: Pétur B. Lúthersson
JSl stálhúsgagnagerd
*%wSTEINARS HF.
SKEIFUNNI 6,SÍMAR: 35110,39555,33590 *