Morgunblaðið - 07.06.1983, Síða 41
(
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
41
fclk í
fréttum
Abba ásamt Stikkan Anderson, sem hefur stýrt sameiginlegum fjármálum þeirra og fjárfest í hverju
fyrirtækinu á eftir öðru.
Abba kaupir útgáfufyrirtæki
+ Þau í sænska söngflokknum
Abba eru um þessar mundir að
kaupa hlutabréf í sænska út-
gáfufyrirtækinu Saxon &
Lindström fyrir um 50 millj.
sænskra króna, um 180 millj. ís-
lenskra króna. Er það fyrirtæki
þeirra, Polar, sem kaupin ann-
ast.
Saxon & Lindström gefur út
ýmis timarit í Svíþjóð og Noregi,
t.d. Svensk Damtidning, Saxon,
Lektyr, Alle Menn, Express og
P.S., en sum þessara rita hafa
veriö gefin út með töluverðum
halla aö undanförnu. Mikil óein-
ing hefur auk þess rikt meöal
fjölskyldunnar sem á meirihluta
hlutafjárins, og þess vegna er
hún tilbúin til að selja 75% hluta-
bréfanna á hálfviröi, fyrir 50 miilj.
sænskra kr., en þau eru virt á
100 millj.
Starfsmenn blaðanna eru hins
vegar mjög óhressir meö kaupin
og telja Abba aöeins vera á hött-
unum eftir auöfengnum gróöa.
Segja þeir, aö Abba-fyrirtækiö
Polar hafi fyrr ráöskast meö fyrir-
tæki í gróöaskyni og ekki skeytt
neinu um hag starfsmanna
þeirra. Þess vegna hafa starfs-
menn Saxon & Lindström efnt til
mikilla mótmæla fyrir utan aðal-
skrifstofur Polar, sem þeir kalla
braskfyrirtæki Abba.
John Wayne
vildi skjóta sig
+ „Pat, heyrðu mig nú. Farðu
heim og náðu í byssuna mína.
Ég ætla að senda sjálfum mér
kúlu í gegnum höfuðið."
Þetta gæti verið setning úr
einhverri vestramynd meö
John Wayne, og það var líka
hann sem sagði þetta. Að vísu
ekki í kvikmynd, heldur í
raunveruleikanum, eftir því
sem segir í bók eftir einkarit-
ara hans og ástkonu, Pat
Stacy. „Hertoginn: Ástarsaga",
heitir bókin og er nýkomin út.
Síöustu tíu ár ævi sinnar
þjáöist John Wayne af krabba-
meini og gekkst undir margar
kvalafullar læknisaögerðir.
Undir lokin var hann oröinn svo
þreyttur á þessum þjáningum,
aö hann vildi svipta sig lífi til aö
binda enda á þær.
Pat neitaði aö veröa viö bón
Waynes og þá brást hann hinn
versti viö:
„Skilurðu þaö ekki? Ég vil
Ijúka þessu af. Þaö er best fyrir
þig og þaö er best fyrir mig,“
sagöi Wayne. Pat lét sig þó ekki
og John Wayne gerði ekki fleiri
tilraunir til að taka fram fyrir
hendurnar á örlögunum. Hann
lést áriö 1979.
ARMAPLAST
Brennanlegt og tregbrennanlegt.
Sama verð.
Steinull — glerull — hólkar.
'Armúla 16 sími 38640
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
HITAMÆLINGA-
MIÐSTÖÐVAR
fyrir báta,
skip og iðnað
Fáanlegar fyrir sex, átta, tíu, tólf, sextán, átján eöa
tuttugu og sex mælistaöi.
Ein og sama miöstööin getur tekiö viö og sýnt
bæöi frost og hita, t.d. Celcius +-200+850 eða
0+1200 o.fl.
Hitaþreifarar af mismunandi lengdum og með mis-
munandi skrúfgangi fáanlegar.
Fyrir algengustu riö- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Þaö er hægt aö fylgjast með afgashita, kæli-
vatnshita, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum,
frystum, lestum, sjó og „man ekki fleira í bili“ í einu
tæki.
Lofaöu okkur aö heyra frá þér.
®8tu»rfmo8Mr cJ&iniæsoin) & (S® REYKJAVIK, ICELANO
Vesturgötu 16. Símar 14680 — 13280.
SPUNNIÐ UM STAUN
eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN
47
Minning, 1953.
ngi drengurinn, sem kynntist Rússlandi af
Straumlygnri Don, er nú orðinn blaðamaður við
stærsta dagblað á fslandi. Hann situr og skrifar
frétt um dauða Stalíns uppúr BBC í London og af frétta-
skeytum frá NTB-Reuter. Hann les skeytin hægt, punkt-
ar innihaldið hjá sér á blað og semur svo upp úr punktun-
um frétt á forsíðu blaðsins. Stalín er að vísu ekki dauður,
en hann er meðvitundarlaus og liggur á banabeði. Fréttin,
sem blaðamaðurinn er að skrifa, kallar fram margar
minningar í huga hans.
I stríðinu keypti faðir hans, auralítill millistéttarmaður,
stórt landabréf af austurvígstöðvunum og þegar hann
kom heim úr vinnunni færðu þeir feðgar litla pappírsfána
Þýzkalands og Svoétríkjanna fram og aftur á kortinu eftir
því, sem útvarpið sagði, að staðan væri hverju sinni. Þeir
voru oft broslcitir, jafnvel hamingjusamir, þegar þeir
gátu fært rauðu fánana vestur á bóginn. Drcngurinn dáði
hetjuskap rússnesku þjóðarinnar og óskaði henni sigurs.
Hann mundi vel eftir dagskipunum Stalíns, sem lesnar
voru í útvarpið, og þótti mikið til um. Kannski hefur hann
verið farinn að trúa því, að Stalín væri mikilmenni. En
það skipti ekki lengur máli. Nú var hann að deyja. Það
eru einungis skáldsagnapersónur, sem deyja ekki, hugsar
hann. Við hin erum kölluð burt af síðum sögunnar. Það er
eins og einhver komi með stóran klút og þurrki hvíta krít
af svartri töflu. En Stalín verður samt áfram á þessum
síðum, það veit hann. Þegar hann hættir að vera til,
breytist hann í sögulega skáldsagnapersónu og þannig
mun hann lifa, svo lengi sem nokkur man þessa voðalegu
tíma.
Ungi blaðamaðurinn er 23ja ára gamall. Hann er trú-
lofaður og stundar nám í háskólanum. Þar tekur hann
þátt í félagslífi stúdenta og slæst við kommúnista. Áður
hafði hann verið í nokkrum vafa, en ekki lengur. Ástæðan
er sú, að hann hefur verið sjómaður og m.a. siglt til
Sovétríkjanna, þar sem hann var bólusettur til frambúðar.
Hann lítur á fréttaskeytin. Það er ekki um að villast.
Stalín er að dauða kominn.
Það er fimmtudagur 5. marz 1953. Hann lítur á forsíðu
Morgunblaðsins, les: Stalín marskálkur var enn meðvit-
undarlaus seint í gærkvöldi. Öll rússneska þjóðin fylgist
með dauðastríði hans ... Seint á miðvikudagskvöld hafði
ekki verið send út ný tilkynning um heilsu hans eftir
heilablæðinguna á sunnudag . . . Fyrsta tilkynningin um,
að hinn 73 ára gamli einræðisherra hefði fengið slag og
lægi meðvitundarlaus og að nokkru lamaður, var gefin út
í Moskvu snemma á miðvikudagsmorgun. Eftir heilablóð-
fallið lamaðist Stalín hægra megin og mátti eigi
mæla . . .
Hugsanir blaðamannsins sveiflast milli gamalla minn-
inga og fréttaskeytanna, sem hann les nú hvert af öðru.
Hann sér, að heilsu Stalíns hrakar jafnt og þétt. Sam-
kvæmt síðustu tilkynningu þeirra lækna, sem stunda ein-
valdann, á hann erfitt um andardrátt. Þennan dag eru
gefnar út þrjár tilkynningar um líðan hans, undirritaðar
af heilbrigðisráðherra landsins og þeim níu læknum, sem
stunda marskálkinn. Hann lifir á súrefnisgjöf. Engum
dettur annað í hug en hann sé að kveðja þetta líf. Og hvað
skyldi bíða hans? hugsar blaðamaðurinn með sjálfum sér.
Skyldi Búkharin taka á móti honum hinum megin(!) Eða
Trotsky(!) Hann brosir með sjálfum sér. Heldur áfram að
FRAMHA1.D