Morgunblaðið - 07.06.1983, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
m&nwn
CI9<1 Umyrtol Pffll Syndicof
72-2.2.
» 1%^ er annar AsK-rnatsöLusiaður
oibri d Laucjauegi. Kann«k.i hefuráu
ó.bt oúb hittcL hana fpcxr-11
ást er...
3/2—
... að óska honum
velfarnaðar í
heimsreisunni.
TM Reg U S Pat Oft — all rights reserved
C|983 Los Angetes Times SynOfcate
Úr því þú heimtar morgunkafflð í
rúmió þá gjöröu svo vel.
Kg fullvissa þig um að það er ekki
erfitt að vinna hér hjá mér. Sjáðu,
hér eru meðmæli frá einum af fyrri
einkariturum mínum.
Neytendur, sameinist!
Reynir Ármannsson, fyrrver-
andi formaður Neytendasam-
takanna, skrifar:
„Velvakandi!
Tilefni þessara skrifa er hin
svívirðilega hækkun á land-
búnaðarvörum sem tók gildi 2.
þ.m., samkvæmt úrskurði
hinnar alræmdu sexmanna-
nefndar. Að mínu mati á eng-
inn fulltrúi frá hendi neytenda
sæti í henni, enda dró fulltrúi
ASÍ sig út úr nefndinni fyrir
mörgum árum.
Þessi síðasta hækkun land-
búnaðarvara er algjört kjafts-
högg framan í allan landslýð,
sem þarf á þessari nauðsyn-
legu vöru að halda, og þá fyrst
og fremst unga kynslóðin.
Hvergi á Vesturlöndum og
vart í svörtustu Afríku væri
hægt að bjóða neytendum
annað eins. En hér á landi er
neytandinn sem næst rétt-
indalaus. Sú hækkun sem nú
hefur átt sér stað, byggist á
löngu úreltum lögum um verð
landbúnaðarvara. Það er ósk
og von neytenda að hið háa
alþingi endurskoði þessi lög
strax á vetri komanda.
Ágætu íslensku húsmæður!
Hugsið ykkur að slík verð-
hækkun ætti sér stað í ná-
grannalöndum okkar. Henni
yrði mætt með öldu mótmæla
frá kvenfélögum, launþega-
samtökum og öflugum neyt-
endasamtökum. Ef þessum
mótmælum yrði ekki sinnt,
myndu neytendur skera upp
herör um að hætta að kaupa
vöruna um tíma. Það er eina
vopnið sem þeim hefur dugað.
Það er talið að 70—80% launa-
tekna heimila hér á landi fari
um hendur húsmæðra. Á
þessu getið þið séð hvað vald
ykkar er mikið ef þið beitið
ykkur.
Þessi skrif beinast ekki að
bændum sem sjálfir fá 8%
hækkun á laun sín. Ég vil
skora á bændur þessa lands að
koma til móts við neytendur
og ýmis samtök þeirra, milli-
liðalaust. Þið vitið að milli-
liðakostnaðurinn er óbærilega
hár.
Að lokum skora ég á Kven-
félagasamband íslands, Hús-
mæðrafélag Reykjavíkur,
launþegasamtökin og Neyt-
endasamtökin að sameinast í
þá sterku fylkingu sem neyt-
endur eru, ef þeir hafa vit og
þor til að standa saman.
Virðingarfyllst."
Yndislegt og
ógleymanlegt
Sveinn Sveinsson, skrifar:
„Mig langar til að færa frú
Maríu Markan óperusöngkonu
hjartans þakkir, þótt síðbúnar
séu, fyrir frábæran söng hennar á
kvöldvökum heilsuhælis Náttúru-
lækningafélags íslands í Hvera-
gerði um síðastliðin jól og áramót.
Auðvitað bar röddin hennar
Maríu alls staðar af, en svo var
eins og hún gæti fengið alla til að
syngja með sér. Kapellan dunaði
af söng langt fram á ganga. Það
var yndislegt og ógleymanlegt.
Við sem höfum orðið þeirra for-
réttinda aðnjótandi að kynnast
Maríu Markan og söng hennar,
Ijúfmennsku hennar og látleysi,
hyllum hana með fögnuði, sem
fylgir henni hvert sem hún fer.
Kæra María. Þökk fyrir stund-
irnar frá í vetur. Lifðu heil.“
María Markan
Er keldusvínið hætt
að verpa hér á landi?
Fuglaáhugamaður skrifar:
„Heiðraði Velvakandi.
Mér þætti gaman að fá að vita
svar við eftirfarandi spurningum:
Er keldusvínið hætt að verpa hér
á landi? Ef svo er ekki: Hvar er
helst möguleiki á að finna þennan
fulg hér á landi?
Árni Waag kennari svaraði
spurningunni þannig: — Þetta er
nú ekki eins einföld spurning og
hún lítur út fyrir að vera. Mér er
ekki kunnugt um, að keldusvíns-
hreiður hafi fundist hér á landi
síðastliðið ár, en þó hafa keldusvín
sést hér og hvar, t.d. suður með
sjó, í Ölfusi og svo í borgarland-
inu. Ég held, að aldrei hafi verið
vitað með vissu, hversu mörg
keldusvín hafi verið hér, en þau
voru um allt land, þar sem að-
stæður voru fyrir fulginn til að
verpa, þ.e. mjög vel grónar mýrar.
Annars staðar verpir hann ekki,
svo að það er sennilegt, að fram-
ræsla hafi haft einhver áhrif á
stofnstærðina.
Þessir hringdu . . .
Eg var að vona
að nú yrði
breyting á
Aldamótamaður hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Það velk-
ist dálítið fyrir mér núna, hvernig
ég eigi að þakka fyrir mig. Það
tíðkaðist nefnilega í mínu ung-
dæmi, að menn þökkuðu fyrir sig.
Nú fékk ég 8% hækkun á ellilíf-
eyrinum mínum um mánaðamót-
in, en sé í blaðinu, að landbúnað-
arvörur hækka um 20—30% frá
sama tíma, fyrir utan allar hækk-
anir sem hafa orðið nýlega, t.d. á
rafurmagni og hita og strætis-
vögnum og væntanlega hækkun á
símagjöldum, aldrei þessu vant.
Og nú er ég að velta þvi fyrir mér,
hvernig útkoman verði hjá mér.
Hvernig á ég svo að þakka fyrir
mig og fyrir hvað á ég að þakka?
Ætli ég geti fengið einhverjar
upplýsingar um það? Er það fyrir
afganginn sem verður hjá mér?
Ég get ekki reiknað dæmið og
fengið afgang. Það var nú kenndur
reikningur, þegar ég var krakki,
svona smávægilega, en það dugir
mér ekki, ég get ekki reiknað þetta
út. Ég var að vona, að nú yrði
breyting á og þessum eltingaleik á
milli kaups og vöruverðs yrði
hætt. En mér sýnist sama kapp-
hlaupið ætli að halda áfram.
Kaupið hækkar og varan hækkar
þre- eða fjórfalt á við kaupið, svo
að það er sami dansinn áfram.
Ætli þetta verði svona áfram?
Hefði ekki verið nær að halda
þessu öllu óbreyttu?