Morgunblaðið - 07.06.1983, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1983
Þrír sjómenn voru heiðraóir. Talið f.v. Sigurjón Stefánsson fyrrverandi skipstjóri, Haraldur Sigurjónsson
bátsmaður og Emil Pétursson vélstjóri. Lengst t.h. á myndinni er Pétur Sigurðsson sem heiðraði þá fyrir hönd
Sjómannadagsráðs.
Sjómannadagurinn í Reykjavík:
Þrír sjómenn heiðraðir
Sjómannadagurinn var haldinn
hátíðlegur í 45. sinn í Reykjavík á
sunnudaginn. Dagskrá dagsins var
með hefðbundnum hætti.
Fyrir hádegið var messa í
Dómkirkjunni, séra Þórir Steph-
ensen þjónaði fyrir altari og herra
Pétur Sigurgeirsson minntist
þriggja sjómanna sem drukknuðu
á þessu ári. Á sama tíma og athöfn-
in fór fram var lagður blómsveigur
að minnisvarða drukknaðra sjó-
manna í Fossvogskirkjugarði.
Að vanda voru útihátíðarhöid-
in í Nauthólsvík og þrátt fyrir
vestan strekkingsvind og kulda
var allmargt um manninn. Bíla-
umferð var allnokkur en talsvert
var um að fólk héldi sig inni í
bílunum. Hátíðarhöldin hófust
með ræðum þeirra Halldórs Ás-
grímssonar, sjávarútvegsráð-
herra, Finns Jónssonar, útgerð-
armanns, Guðmundar Hall-
varðssonar, formanns Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, og
Péturs Sigurðssonar, formanns
Sjómannadagsráðs.
Þá tóku við skemmtanir dags-
ins og kappleikar. Meðal þess
sem keppt var í var sigling
seglbáta og róður. Sigurvegari í
kappróðri landsveita var A-sveit
verksmiðjunnar Vífilfells en í
öðru sæti var sveit Sendibíla-
stöðvarinnar hf. en hún hefur
unnið þessa keppni sex undan-
farin ár og hafði reyndar gefið
þann bikar er nú var keppt um.
í flokki skipshafna sigraði
sveit Ásbjarnar RE-50 en hún
var eina sveitin sem reri í þess-
um flokki. í flokki kvennasveita
sigraði sveit BÚR.
Einnig var keppt í koddaslag
en keppni í stakkasundi féll
niður vegna þátttökuleysis.
Um kvöldið var síðan sjó-
mannadagsskemmtun að Hótel
Sögu.
Það er vissara að halda sér fast.
Meðal skemmtiatriða var „koddaslagur" og eins og sjá má var allmargt
um manninn í Nauthólsvíkinni. Ljósm. Mbl. KÖE.
Eskifjörður:
Sjóminjasafnið
opnað í Gömlu búð
SÍÐASTLIÐINN laugardag var á
Eskifirði formlega opnað Sjóminja-
safn í Gömlu búð. Fjölmenni var við
athöfnina og komu gestir víða að.
Stjórn safnsins hélt kaffisamsæti
fyrir gesti í félagsheimilinu Valhöll,
en um veitingarnar sáu Slysavarna-
konur á Eskifirði. Hilmar Bjarna-
son, sem hefur verið einn helsti
frumkvöðullinn að stofnun safnsins
ásamt Geiri Hólm, flutti ræðu þar
sem hann ræddi aðdragandann að
stofnun safnsins. Auk hans tók til
máls Þorsteinn Gunnarsson, sem
l
Dansinn dunar í íþróttahúsinu.
Þakjárn
litaö eöa ólitaö.
Aluzink — margföld ending.
Réttar lengdir. Rétt
iir eöa sérsmíöi
Allir
Gæöi t- Reynsla1 onusta
HEÐINN =
Storas 4. 210 Garðabæ. Simar 52922 — 52416.
Hátíðahöldin í Hafnarfirði:
Bæjarfulltrúar
fluttu gamanvísur
Á laugardagskvöldið var haldinn
dansleikur, sem var lokapunkturinn
á vikulöngum hátíðahöldum Hafn-
firðinga í tilefni 75 ára afmælis bæj-
arins. Þar var flutt óvænt skemmti-
atriði, er bæjarfulltrúar fluttu frum-
samdar gamanvísur.
Mbl. hafði tal af Árna Grétari
Finnssyni forseta bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar varðandi hátíða-
höldin og kvað Árni þau hafa tek-
ist vel í heild. Hátíðin hófst laug-
ardaginn 28. maí en lauk svo á
laugardaginn var. Um daginn voru
skátarnir í Hafnarfirði með ýmis
konar starfsemi í gangi, en sökum
veðurs var þátttaka dræmari en
gert hafði verið ráð fyrir. Um
kvöldið var svo ætlunin að dansað
yrði á götum úti, en veður kom í
veg fyrir að slíkt væri mögulegt.
Dansleikurinn var því fluttur inn í
íþróttahúsið og var hann vel sótt-
ur að sögn Árna. Á annað þúsund
manns á öllum aldri dönsuðu þar
fram eftir kvöldi og sáu hljóm-
sveitin Vaka og Dansbandið um
tónlistina. Mesta athygli vakti þó
óvæntur flutningur bæjarfulltrúa
á frumsömdum gamanvfsum. Ell-
ert Borgar söng vísur eftir Hörð
Sófaníasson við undirleik Markús-
ar Á. Einarssonar, en þeir gegna
allir störfum bæjarfulltrúa í
Hafnarfirði.
Árni taldi hátíðahöldin í Hafn-
arfirði almennt hafa gengið mjög
vel fyrir og þátttöku almenna.