Morgunblaðið - 07.06.1983, Qupperneq 48
Veist þú um einhverja
góóa frétt?
H
ringdu þá í 10100
ftfgptttlrifafeifr
ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNI 1983
Sími 44566
RAFLAGNIR
samvirki -=vf
V erðhækkanir á
bilinu 12—30%
VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gærdag, að heimiia 19%
hækkun á benzíni, sem hefur í fdr
með sér, að hver lítri hækkar úr
16,20 krónum í 19,30 krónur.
Verðlagsráð samþykkti enn-
fremur, að heimila 15% hækkun á
gasolíu, sem hefur í för með sér,
að hver lítri hækkar úr 7,30 krón-
um í 8,40 krónur. Þá samþykkti
Verðlagsráð, að heimila 29,9%
hækkun á verði svartolíu, sem hef-
ur í för með sér, að hvert tonn
hækkar úr 5.350 krónum í 6.950
krónur.
Verðlagsráð samþykkti á fundi
sínum, að heimila 24 — 25% hækk-
un á útsöluverði á fiski, sem m.a.
hefur í för með sér 24% hækkun á
ýsuflökum.
Verðlagsráð samþykkti að
heimila 12—17% hækkun á svo-
kölluðum vísitölubrauðum, 22%
hækkun á smjörlíki og loks sam-
þykkti ráðið, að heimila 8% hækk-
un á útseldri vinnu í samræmi við
hækkun launa um mánaðamótin.
Sjá frásögn um verð-
lagsmál bls. 2
J'
Formannaráðstefna ASI:
Fyrstu aðgerðir
upplýsingamiðlun
FARA verður aftur til ársins 1952 til I segir meðal annars í ályktun for- I gerðir verkalýðssamtakanna
þess að finna dæmi um lakari kaup- mannaráðstefnu ASÍ, sem haldinn hljóti að vera markviss upplýs-
mátt kauptaxta verkafólks og samn- var í gær, um þá kjaraskerðingu sem ingamiðlun til félagsmanna sinna,
ingar í byrjun næsta árs yrðu að stefnt er að með bráðabirgðalögun- þar sem stjórnvöld hafi kosið að
tryggja 40% kaupmáttaraukningu ef um. gera hvergi grein fyrir afleiðing-
ná ætti kaupmáttarstigi ársins 1982, | f ályktuninni segir að fyrstu að- | um bráðabirgðalaganna. Verka-
fólk verði að þjappa sér saman í
skýrt mótaðri andstöðu gegn
ráðstöfununum.
Aðgerðir stjórnvalda feli í sér
tvennt, afnám samningsréttar og
kjaraskerðingu. Um fyrrnefnda
atriðið segir, að afnámi samnings-
réttar verði ekki saman jafnað við
neinar íhlutanir stjórnvalda á síð-
ari tímum. Með afnámi hans sé
brotið eitt frumlögmál lýðræðis-
þjóðfélagsins og því verði ekki trú-
að að meirihluti Alþingis sé reiðu-
búinn að ganga gegn því að ísland
sé samfélag frjálsra manna, sem
hafi rétt til að vinna að hags-
munamálum sinum.
Aðgerðir stjórnvalda séu ein-
hliða kaupskerðing og á engan
hátt reynt að stemma stigu við
verðhækkunum. 8% kauphækkun-
in 1. júní sé þegar uppétin hjá
flestum áður en hún kemur til út-
borgunar og gagnráðstafanir
stjórnvalda til að létta þunga
ráðstafananna samsvari í heild
ekki nema 2‘A% í kaupi, ef allt sé
talið. Kjaraskerðingin sé þreföld á
við áætlaða rýrnun þjóðartekna.
Mynd Mbl. Skapti Hallgrímsson.
Yngsti landsliðskappinn
Sigurður Jónsson, knattspyrnumaður af Akranesi, varð á laugardag yngsti
leikmaður til þess að leika með íslenzka landsliðinu, aðeins 16 ara gamall,
en hann verður 17 ára 27. september næstkomandi. Þar sló Sigurður met
Ásgeirs Sigurvinssonar, sem lék sinn fyrsta landsleik 17 ára gamall.
^j|
Ljðsm. Mbl. Guðjón.
Svo vildi til á bænum Melabergi nærri Sandgerði f Miðneshreppi að hryssa
kastaði tveimur folöldum, sem bæði lifa. Minni en 1% líkur eni á að meri
kasti tveimur, hvað þá að bæði afkvæmin lifi, að sögn Gunnars Bjarnasonar
hrossaræktarráðunauts.
Merin, sem heitir Móa, er af hreinræktuðu Uxahryggjarkyni undan
Tígli frá Uxahrygg. Folöldin, sem eru meri og hestur, komu i heiminn
aðfaranætur 28. og 29. maí. Annað folaldið flæmdist i fyrstu undan
móðurinni og saug aðrar merar, en telja má að það hafi orðið því til lífs.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins:
Meirihlutinn vill
þinghald í sumar
„ÞINGFLOKKURINN hefur falið ráðherrutn sínum að ræða við samstarfs-
flokkinn um möguleika á að kalla saman þing. Það eru breytilegar skoðanir
á því hvort það sé skynsamleg aðgerð. Ég legg áherslu á, að þetta er ekkert
deilumál, hvorki innan þingflokksins né við samstarfsflokkinn, en það eru
fleiri en færri sem telja rétt að kalla þingið saman núna sem fyrst,“ sagði
Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, í lok þing-
flokksfundar í gærkvöldi, en þar var m.a. rætt um samkomudag Alþingis.
Eins og Mbl. hefur skýrt frá eru
skiptar skoðanir meðal stjórnar-
liða hvort kalla eigi saman þing
nú strax í sumar eða ekki fyrr en á
reglulegum tíma í haust, og var
málið til umræðu í þingflokknum í
gær. Ólafur sagði nánar aðspurður
um hvernig þeir, sem vildu þing-
hald í sumar, hugsuðu sér það.
Hann sagði: „Þá ganga menn út
frá ákveðnum forsendum sem eru
þær að verkefni þingsins núna
verði í fyrsta lagi þau að kjósa í
trúnaðarstöður, í öðru lagi að
ræða og afgreiða bráðabirgðalög-
in, þá að þinghaldið standi helst
ekki lengur en í þrjár vikur og síð-
ast en ekki síst, að um þetta verði
samkomulag milli allra þingflokk-
anna. Þetta eru meginforsendurn-
ar sem menn tala út frá.“
Uppboð í Danmörku:
Hæsta tilboð
í íslenzka
mynd erlendis
MÁLVERK Jóns Stefánssonar af
Þingvöllum var selt fyrir 300 þús-
und krónur til íslands á uppboði í
Danmörku fyrir skömmu. Var þetta
hæsta verð sem boðið var fyrir mál-
verk á uppboðinu, en jafnframt
hæsta tilboð sem gert hefur verið í
íslenzkt málverk erlendis.
Á voruppboðinu í Oddfellow-
höllinni í Danmörku var verk
Jóns Stefánssonar listmálara af
Þingvöllum slegið á 100 þúsund
danskar krónur, sem er hæsta
tilboð sem gert hefur verið í ís-
lenzka mynd erlendis. Myndin
var metin á 35 þúsund danskar
krónur. Á uppboðinu var einnig
verk Þorvalds Skúlasonar,
Gríma, selt fyrir 32 þúsund
danskar krónur til Þýzkalands.
Þá seldust verk danska listmál-
arans Asger Jorns dýru verði, en
í heild varð söluverðmæti list-
muna á þessu uppboði langtum
meira en áætlað hafði verið.
„Veldur manni alltaf gleði
að geta gert öðrum greiða“
- segir Guðjón Pálsson, skipstjóri á Gullberginu
„ÞAÐ veldur manni náttúrlega alltaf gleði að geta gert öðrum greiða," sagði
Guðjón Pálsaon, skipstjóri á Gullberginu frá Vestmannaeyjum, þegar Morgun-
blaðið náði tali af honum seint í gærkveldi skammt út af Bretlandsströndum
og spurði hann hvernig tilfinning það væri að bjarga mönnum úr sjávarháska,
en eins og sagt hefur verið frá í fréttum kom Gullbergið að sökkvandi skipi á
sunnudagsmorgun og tók fjóra menn um borð úr því.
„Við komum að dönsku skipi sem
hét Tramp í gærmorgun um klukk-
an 9. Þá var áhöfnin komin í lífbát-
ana og við tókum þá upp og biðum
síðan eftir að skipið sykki. Þetta
var 400 tonn fraktskip og það sökk
ekki fyrr en um tvöleytið," sagði
Guðjón.
Guðjón sagði að danska skipið
hefði verið á leið til Skotlands frá
Fuglafirði í Færeyjum og áhöfnin
hefði verið aðeins fjórir, allt ungir
menn, tveir undir 18 ára aldri og
skipstjórinn sennilega um þrítugt.
„Það kom leki að vélarúminu og
hann var kominn það djúpt þegar
við komum að, að það var þýð-
ingarlaust fyrir okkur að reyna að
bjarga honum. Það var ágætisveð-
ur þegar þetta var og við sigldum
bara fram á þá, en þó vissum við að
það var neyðarkall í gangi í gegn-
um Færeyjaradíó," sagði Guðjón
ennfremur.
Guðjón Pálsson, skipstjóri.
Gullbergið er á leið til Grimsby i
fisksöluferð og siglir þangað með
Danina sem það tók upp. Bjóst
Guðjón við að þeir yrðu komnir
þangað inn um tvöleytið í dag.
„Þeim varð ekkert meint af volk-
inu og voru bara hinir hressustu
miðað við aðstæður. Tramp var 33
ára gamalt skip og virtist vera í
"tjög góðri hirðu. Þeir eru svo fáir
á að þeir urðu ekki varir við lekann
fyrr en vélin drap á sér. Sá sem er
vakthafandi í brú fylgist líka með
vélinni. Þeir fara niður í vél á 2ja
tíma fresti og urðu ekki varir við
neitt fyrr en vélin drap á sér. Þá
var kominn svo mikill sjór í skipið
að ekki var hægt að setja dælurnar
í gang, en annars hlýtur þetta að
koma fram í sjóprófum nánar,“
sagði Guðjón að lokum.