Morgunblaðið - 26.02.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.02.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984 63 nevvsline Mews ffon', a» 50 * Weaihter ,.’TL across the USA PvjS> p#t&i >:£ \i?>. Ewery score Top ÍÍ5 <x>Hege Veams Suitday íptíShíí just not De Soto. .« Missoyn: tne same gy<of 4 MQN£Y «1gag?cr,.*y' explosion teííi^— TTs?';^*:..iujná* imn Jwawiwa***. MimvmM. ÍKy>Sf< »«<# ÍW't' cKe! oíTSxm* íp«í« «cn» <m L'S,a StoVv vrt® ASA ra idWfvW''- fcaaí^a ' PPTaHH 'v,;s«e ■ þess það komi nokkurn hlut við útbreiðslu Wall Street Journal. Spurningin er líka sem fyrr segir, hversu margar milljónir Banda- ríkjamanna vilja leggja útí þann kostnað sem slíkri þjónustu fylgir. Má ekki búast við því að sá kostnaður lækki mjög á næstu ár- um? Jú, en ókostir þessa fyrirkomu- lags eru ennþá svo miklir að dagblaði stendur engin ógn af því. Það er samt mikilvægt að útgef- endur haldi vöku sinni og átti sig á því hvað er að gerast, svo þeir geti brugðist skynsamlega við í tíma. Geturðu nefnt dæmi þess, að út- gefendur séu með á nótunum í þessu sambandi? Já, mýmörg. Við Bandaríkja- menn erum leiðandi í þessum efn- um, bæði hvað varðar rannsóknir og framkvæmdir. Knight-Ridder- samsteypan, sem gefur út úrvals- blöð í Miami, Philadelphia og víð- ar, hefur t.d. fjárfest 26 milljón dollara í slíkri tölvuvæddri upp- lýsingaþjónustu sem send er inná heimili manna. Jafnvel hér í Ath- ens hefur útgefandi Athens Bann- er Herald gefið út auglýsingapésa til dreifingar í verslanir og með blaðí sínu, hann hefur tekið upp samvinnu við auglýsendur um beinar póstsendingar og einnig rannsakað hvernig haga skuli rekstri kapalsjónvarps í bænum. Það má segja að útgefendur um allt land séu mjög sveigjanlegir i þessum efnum. Það er mikil breyt- ing frá því útvarpið kom til skjal- anna. Þá héldu blaðaútgefendur sig í fyrstunni í hæfilegri fjarlægð frá útvarpsstöðvunum og vildu ekkert koma nálægt því fyrirtæki. Smám saman breyttist viðhorfið og þeir tóku að kaupa útvarps- stöðvar og á endanum einnig sjón- varpsstöðvar. Blaðaútgefendur eru nú á kafi í alls kyns rekstri og má nefna stórfyrirtæki á borð við Gannett, Knight-Ridder, New York Times, Howard Hanks o.s.frv. Hið dæmigerða fjölmiðla- fyrirtæki nútímans er einungis að hlusta til í dagblaðarekstri. 1 eigu New York Times-fyrirtækisins eru t.d. útvarpsstöðvar, tímarit, kvikmyndafyrirtæki og bókaút- gáfa, svo eitthvað sé nefnt, auk hins fræga blaðs og 30 lítilla dagblaða víðs vegar um Bandarík- in. Þetta er framtíðin. En munu gæði dagblaðsins aukast að sama skapi og fyrirtæk- ið þenst út? Já, lögmál markaðarins mun sjá til þess að blaðalesendur geti lesið það sem þeir vilja lesa. Ef dag- blaðalesandinn er ekki ánægður þá hættir hann að lesa blaðið. í þessu landi geta menn labbað sig inní næstu bókaverslun og valið á milli 300 tímarita í rekka. Ég get farið heim hér í Athens og skipt á milli 20—30 sjónvarpsstöðva eftir vild minni og hlustað á 10 út- varpsstöðvar. Þannig hefur neyt- andinn mikið að segja um framtíð blaðamennskunnar í Bandaríkjun- um. En mér finnst, sem blaðales- anda i 35 ár, að blaðamennskan hafi aldrei verið betri í Bandaríkj- unum. Við höfum mörg stór fyrir- tæki sem keppa að framúrskar- andi blaðamennsku: Knight-Ridd- er-fyrirtækið gefur út afburða dagblöð víða um land og kostar til þess milljónum. Ég spurði nýverið stjórnarformann Knight-Ridder, hvort það væri í rauninni þörf á þvi að eyða svo miklu sem raun ber vitni í fréttaflutning. Ég sagði að þeir gætu aukið arð til hluthafa svo og svo mikið, ef þeir færðu sér aðrar fréttaþjónustur meira í nyt og væru ekki sjálfir með frétta- menn í öllum heimshornum. Hann svaraði: — Það má vera, að við gætum grætt meira í svipinn, en til lengri tíma litið borgar sig ekki að fórna hámarks gæðum í frétta- flutningi, hversu mikill stundar- hagnaður sem í boði er. Ég var sammála honum, en vildi heyra hann segja þessi orð. Það blað sem ekki stefnir að framúr- skarandi blaðamennsku, eftir því sem efni standa til, mun óhjá- kvæmilega detta uppfyrir. Þau fjölmiðlafyrirtæki sem ekki fylgja þessari heimspeki Knight-Ridder manna, og þau eru nokkur, munu eiga erfitt uppdráttar næstu árin og hafa raunar átt í brösum lengi. Þú varst erlendur fréttaskýr- andi í mörg ár. í nýlegri könnun segir að erlendur fréttaflutningur bandarískra fjölmiðla hafi dregist verulega saman síðustu áratugina. Árið 1940 birtust t.a.m. 14 dálkar af erlendum fréttum I meðal dagblaði í Bandaríkjunum, sam- anborið við 3—4 dálka nú. Já, ég kannast við þessar niður- stöður. Magnið segir nú ekki allt um gæðin og í annan stað, held ég, að bandarísk dagblöð séu að breytast. Á seinni árum hafa þau verið að komast meir í takt við bandarískan þankagang: afskipti okkar erlendis eru minni en þau voru og blöðin endurspegla það. T.a.m. hafa Bandaríkjamenn minni áhuga á málefnum Ind- lands, heldur en á sjöunda ára- tugnum þegar ég var þar. Banda- rískur hugsunarháttur hefur breyst: við erum teknir að þreyt- ast á þessum vandamálum sem þið eruð sífellt að glíma við í öðrum heimsálfum (!). I þriðja lagi gefur þessi könnun í skyn, að útgefendur séu farnir að skilja, að velferð dagblaðanna byggist fyrst og fremst á staðbundnum frétta- flutningi. En enda þótt dálkafjöld- inn hafi minnkað, þá tel ég engan vafa leika á því að erlend frétta- skrif bandarískra fjölmiðla séu nú hnitmiðaðri og betri, heldur er t.d. var árið 1940. / heilan vetur skoðaði ég Wall Street Journal daglega og fann þrjár línur um ísland — og þær voru allar rangar ... Með fullri virðingu fyrir íslandi, þá held ég að þú ættir ekki að leita eftir frásögnum um ísland í bandarískum dagblöðum. Kalt á málið litið, þá á ísland, sökum smæðar sinnar og lítilvægis í heimsmálunum, trúlega ekki skil- ið nema þriggja lína umfjöllun einu sinni á ári — og ég vil mælast til þess að þú dæmir ekki banda- rísk dagblöð útfrá þremur línum. En nú þegar ég hef lesið dellu- frásögn dagblaðs um kosningar á íslandi, þar sem ég þekki til, með hvaða hugarfari á ég þá að lesa á morgun frásögn blaðsins um kosn- ingar í t.d. Portúgal? Má ekki bú- ast við því að þar sé flest úr lagi fært líka ? Nei, og ég legg til að þú skrifir ærlegt skammarbréf til Wall Street Journal. En þetta vekur upp almenna spurningu um áreið- anleika dagblaða í huga almenn- ings. Hinn almenni maður er gjarn á að leggja allsherjar dóm á dagblöð útfrá persónulegri og ein- stakri reynslu. Það er ekkert efa- mál, að vantraust almennings á fjölmiðlum hefur vaxið i seinni tíð. En, einsog ég bendi nemendum mínum á, þá byggist þetta van- traust á smávægilegum mistökum blaðanna. Þegar dagblaðið misrit- ar t.d. nafn dóttur minnar í gift- ingartilkynningunni, þá segi ég við sjálfan mig, að héðan í frá skuli ég nú ekki trúa blint því sem ég sé á prenti. Þetta vantraust á áreiðanleika blaðanna hefur ekki kviknað af frásögnum af stóru viðburðunum. Samt sem áður eru nú dagblöðin einlægt að misstíga sig í þeim líka og nægir að minna á nýlegt dæmi um frásagnir Washington Post af innrás Israela í Líbanon, sem reyndust í grundvallaratriðum á misskilningi byggðar — og einnig má minnast á, hvernig helstu blöð Bandaríkjanna lýstu Yuri Andro- pov á sínum tíma og heimilishög- um hans, en þær lýsingar reynd- ust byggðar á frásögn landflótta drykkjusjúklings og allar útí hött. New York Times, Wall Street Journal, Washington Post, Time — öl helstu blöð Bandaríkjanna birtu þessar frásagnir og gáfu eft- irá þær skýríngar einar að þau hefðu ekki haft í höndunum aðrar upplýsingar betri! Ja, það er mjög erfitt að eiga við Rússana: þeir eru mjög lokaðir. Kandaríska blaðið USA Today, sem minnst er á í greininni, er hugarfóst- ur Al Neuharths, forstjóra Gannett- samsteypunnar, sem á 88 dagblöð víðs vegar um Bandaríkin. USA To- day bryddar uppá ýmsum nýjungum í blaðaútgáfu, t.a.m. er það>sent í gegnum gervihnött um landið og prentað í prenLsmiöjum Gannetts hér og þar. Enn sem komið er, er útbreiðsla l!SA Today takmörkuð, því útgefandinn ætlar sér af og hef- ur fyrir sið að kynna blaðið mjög gaumgæfilega áður en hann gefur það út á nýjum stað. Glöggir menn segja, að útlit sé fyrir að dæmið hans Neuharths gangi upp, og USA Today verði fyrsta eiginlega lands- blaðið í Bandaríkjunum í þeim skiln- ingi að hafa almenna útbreiðslu um gervallt landið, síðan National Observer leið, og jafnframt verði USA Today fyrsta landsblaðið sem geti vænt sér langra lífdaga ... þeir eru ekki vestrænir, þeir eru Asíumenn í vissum skilningi. í hvert sinn sem nýr maður kemur framá sjónarsviðið í Rússlandi, standa fjölmiðlar frammi fyrir sama vandanum. Ég skal fúslega viðurkenna, að þá tefla fréttaskýr- endur oft á tæpasta vað, en þeir verða að gera það, því skyndilega skiptir persóna þessa tiltekna manns miklu máli fyrir okkur og við viljum fá að vita hver hann er — því enda þótt eldflaugarnar muni fljúga fyrir ísland, þá er þeim beint að okkur. Það er rétt, blaðamenn gera oft mistök, en ég er ekki í stakk búinn til þess að fjalla um einstök dæmi. Hver er ábyrgð blaðanna? — rangar frásagnir af þessu tagi eru yfirleitt ekki leiðréttar. Flest dagblöð hafa dálk þar sem birtar eru leiðréttingar, en þegar frásögn hefur verið birt, er erfitt, ef ekki útilokað, að draga hana til baka. Þú minntist á frásögn frá stríðinu í Líbanon: stríð eru mjög flókin fyrirbæri og ruglingsleg. Ég hef verið fréttamaður í fimm styrjöldum og ég myndi gjarnan vilja snúa aftur og draga til baka mikinn hluta þess sem ég sendi frá mér. En samt sem áður eru frétta- sendingar frá styrjöldum afar mikilvægar, enda þótt þær séu ekki alltaf kórréttar. Ég fylgdist á sínum tíma með innrás Kínverja í Indland fyrir AP og fréttaskeyti mín skorti iðulega dýpt: ég vissi t.d. ekki af hverju Kínverjarnir réðust inn í Indland og það vissu raunar ekki Indverjarnir sjálfir — engu að síður var það megin atriði í málinu: af hverju gerðu Kínverj- arnir þessa innrás? Ja, þeir höfðu sínar ástæður, sem þeir létu ekki uppi við félaga Fink og ekki held- ur við Nehru forsætisráðherra. Fréttaskeyti mín voru mjög ófullkomin, en þeir Bandaríkja- menn sem lásu þau voru betur að sér um málin en þeir ella hefðu verið. Og það er aðalatriðið. Hitt er laukrétt, að í slíkum frétta- flutningi vofir það daglega yfir manni að gera skyssu og margar skyssur. Ef maður situr norður á íslandi og veltir málinu fyrir sér í sex mánuði og skrifar siðan ítar- lega úttekt, þá er trúlegt að þar verði á ferðinni greinarbetri og traustari frásögn, heldur en mað- SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.