Morgunblaðið - 26.02.1984, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.02.1984, Blaðsíða 10
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984 ríkur fundur, sem hann átti með kirkjunnar mönnum í Houston, þar sem hann hvatti menn ein- dregið til trúarlegs umburðar- lyndis. „Ég myndi ekki hafa unnið án þeirrar ræðu, né án Texas- fylgisins," sagði hann. Nú var hann aftur á leið þangað til þess *að bera vopn á klæðin í innbyrðis deilum Demókrataflokksins í Tex- as. Hann var eiginlega dálítið miður sín vegna þess ástands, sem ríkti innan flokksins í fyikinu, en var hins vegar alveg sannfærður um, að honum myndi takast að vinna Texasbúa á sitt mál í þess- um efnum. „Það er alltaf mikill mannfjöldi samankominn að fagna mér þar suðurfrá," sagði hann. í þetta skipti áleit hann, að mannfjöldinn myndi verða jafnvel enn meiri, af því að Jackie ætlaði að slást í för með honum. „Heyrið þið, við ætlum að koma aftur til Palm Beach um helgina, eftir að við erum komin aftur frá Texas; af hverju komið þið bara ekki með?“ spurði hann. Jack gerði sér alla tíð vel ljóst, hve allt mannlegt líf er fallvalt, en það sem kom okkur samt allra sízt í hug þennan dag, þegar rökkrið tók að færast yfir, var að dagar hans kynnu þegar að vera taldir eða forsetatíð hans á enda. Ég held, að ef hann hefði haft tækifæri til að setjast út á sval- irnar á Hvíta húsinu og líta yfir farinn veg í forsetaembættinu, myndi hann hafa staldrað sér- staklega við vissa þætti, sem hon- um hafði tekizt að koma til leiðar, og hafa jafnvel eflzt og hlotið auk- ið gildi í áranna rás. Fyrst og fremst lagði hann jafn- an áherzlu á, að Bandaríkjamenn geti bæði verið auðug þjóð og einnig færir um að sýna þeim samúð sína og hjálpfýsi, sem orðið hafa undir í þjóðfélaginu. Bróðir minn var vissulega enginn óraun- sær hugsjónamaður, sem óð í villu og svíma, eða maður, sem áleit, að ríkisstjórn sé annaðhvort alltaf góð eða þá öll af hinu illa; það sem öllu fremur stóð honum fyrir hugskotssjónum var virk, fram- takssöm ríkisstjórn, sem hefði til að bera ábyrgðartilfinningu og stuðlaði þannig að bættum hag verkamannafjölskyldna og mið- stéttarfólks og veitti öllum þeim mörgu, sem gleymzt höfðu í þjóð- félaginu eða orðið útundan og utanveltu, þá bráðnauðsynlegu að- stoð, sem þeir þörfnuðust. Hann áleit, að einn af marktæk- ustu prófsteinum á gildi hvers þjóðfélags væri það, hvernig búið væri að hinum öldruðu, sjúku og hinum snauðu. Það var þess vegna sem hann barðist svo ákaflega fyrir almennu sjúkratryggingar- lögunum, almennri starfsþjálfun og matvæladreifingu til þeirra, sem bágast voru staddir, og hann hafði á prjónunum eitt allsherjar stríð gegn örbirgðinni í Banda- ríkjunum, þegar hann lézt. Hann hafði hreinlega orðið felmtri sleg- inn, þegar hann leit alla þá ör- birgð og eymd, sem víða ríkir í sveitahéruðum Vestur-Virginíu, og hann sá það djúpa vonleysi, sem rist hafði rúnir sínar í svip hundruða manna. Hann gat aldrei gleymt þessu, og hann vildi ekki, að Bandaríkjamenn létu eins og þeir vissu ekkert um þetta. Það var einmitt þetta, sem var megin- kjarninn í hvatningu hans til þjóðarinnar að spyrja fremur, hvað við gætum gert fyrir land okkar — og hver fyrir annan. Hvergi var þessi siðferðilega áskorun þó jafn brýn eins og að því er varðaði fullt og óskorað jafnrétti. Jack var fyrsti forseti Bandaríkjanna, sem nokkurn tíma hafði haft orð á því, að almenn réttindi þegnanna væru grund- vallaratriði „siðferðilegs málstað- ar“ og meðhöndlaði þau líka þann- ig. Hann var fús til að leggja vin- sældir sínar að veði til þess að ná fram því jafnræði, að svörtu fólki væri heimilt að setjast í hvaða bandaríska skóla, sem það óskaði eftir og til að fjarlægja öll skilti með áletruninni „Aðeins fyrir hvíta menn“, sem hvarvetna höfðu verið eins og til sérstakrar háð- ungar við „Frelsisyfirlýsingu [ Bandaríkjanna", þar sem segir m.a. „allir menn eru skapaðir jafnir". Þess skal svo að lokum getið, að Jack barðist fyrir því, að Banda- ríkjamenn hefðu nægilegan styrk sjálfum sér til varnar og eihs til að berjast fyrir málstað friðarins. Honum urðu á mistök eins og hann sjálfur varð fyrstur manna til að játa eftir atburðina við Bay of Pigs. Hann sýndi okkur fram á, að forseti Bandaríkjanna er fær um að setja Sovétmönnum stólinn fyrir dyrnar eins og hann gerði í deilunni um staðsetningu sov- ézkra eldflauga á Kúbu, án þess að leggja á nokkurn hátt fyrir róða þær grundvallarhugsjónir, sem þjóð okkar hlýtur ætíð að standa vörð um. í Rómönsku Ameríku kom hann á fót Bandalagi til framfara, í stað- inn fyrir hið aldalanga bandalag til kúgunar, sem þar hafði ríkt. Hann hafði bjargfasta trú á málstað fullra, almennra mann- réttinda, og það er fyrir þær sakir, að myndir af honum, sem klipptar hafa verið út úr dagblöðum og eru núna orðnar krypplaðar af elli, hanga ennþá uppi um allan heim í kofum hinna fátækustu og í sveitaþorpum. Frá því að hann leið, hef ég séð minningu hans heiðraða á þennan hátt, bæði oft og víða, allt frá ofnum veggtjöldum til minningar um hann í raðhúsum í Dyflinni og til gatna heitinna í höfuðið á honum i afskekktustu sveitahéruðum Indlands. Núna á síðastliðnu vori komum við, Pat- rick sonur minn og ég, til eyju einnar úti fyrir strönd Panama, en þarna býr hinn örsnauði þjóð- flokkur San Blas-indíána. Meðal þeirra er það ævaforn hefð að skíra börn sín í höfuðið á ein- hverjum, sem þeir dást að. Á þess- ari eyju hittum við fyrir heilu hópana af drengjum, sem allir hétu John Fitzgerald Kennedy, en sumir þeirra voru aðeins tveggja eða þriggja ára gamlir. Heilli kyn- slóð síðar er Jack ennþá hetja á þessum fjarlæga, afskekkta stað, þar sem fæstir meðal indíánanna skilja jafnvel ensku. Hann bjó yfir feikilegri hæfni til að vaxa af hverjum vanda, til að læra meira og til forystu. Hann hafði boðið sig fram til forseta- kjörs árið 1960 og lagt megin- áherziuna á „eldflaugaekluna", en átti svo eftir að verða sá forseti Bandaríkjanna, sem handan allra deilna við Sovétmenn greindi gleggst möguleikana og nauðsyn- ina á að viðhalda friði á kjarn- orkuöld. r Aður en hann hélt af stað til fundar við Nikita Krúsjtsjov árið 1961, kom hann einn síns liðs til Hyannis Port. Við tveir tókum þá tal saman í húsinu hans þar á staðnum og ræddum margt og mikið, allt frá Berlínardeilunni til atburða á stjórnmálasviðinu í Boston. Á eftir gengum við svo gegnum þokumistur kvöldsins yfir til húss foreldra okkar til þess að borða kvöldmatinn hjá þeim. Á þeim fáu mánuðum, sem hann hafði þá gegnt embætti forseta Bandaríkjanna, hafði hann öðlazt skýra nærmynd af þeim ógn- þrungna gjöreyðingarmætti sem kjarnorkusprengjan býr yfir. „Ég vona, að Krúsjtsjov skilji það líka,“ sagði hann. „Hvernig eigum við að vita, hvort fundurinn gengur vel?“ spurði faðir okkar. „Þið skulið fylgjast með og sjá, hvort ég gef honum skipið," sagði Jack, en þá átti hann við nákvæmt skipslíkan, sem hann ætlaði að taka með sér sem gjöf handa sovézka leiðtogan- um. Þegar hann átti að fara að leggja af stað næsta morgun, fann hann mikið til í bakinu. Á meðan þyrlan beið eftir honum, staulað- ist hann inn í dagstofuna til þess að móðir okkar gæti sett plástur á bakið á honum. Hann kvartaði þá yfir því, að hann hefði ekki haft tíma til þess að raka þann hluta baksins, þar sem líma átti plástur- inn, og þegar hann væri kominn til Vínarborgar, „myndi það verða alveg logandi sárt að toga þetta af sér“. „Vertu nú ekki svona mikil linka, góði minn,“ svaraði móðir okkar. „Þú ert forseti Bandaríkj- anna.“ Pabbi fylgdist vel með þróun mála á Vínarfundinum. Eftir fyrsta daginn sagði hann: „Nú, jæja, Jack er ekki búinn að gefa honum skipið." En á síðasta viðræðufundi þeirra kvikmynduðu sjónvarps- myndavélarnar afhendingu gjaf- arinnar, og pabbi dró þá ályktun af þessu: „Eg býst við, að þetta hafi allt gengið mun betur en blöðin segja." Fáum dögum síðar var Jack kominn aftur til Hyannis Port, og hann sagði við okkur með eftirsjá í röddinni: „Ég vildi óska, að ég hefði sjálfur haldið skipinu." Um það leyti, sem Jack undir- ritaði samninginn um bann við tilraunum með kjarnorku- sprengjur í andrúmsloftinu árið 1963, hafði faðir okkar fengið heilablóðfall og gat ekki talað. Én á hverjum föstudegi fór hann í hjólastólnum sínum út á verönd- ina fyrir framan húsið og sat þar og beið eftir því, að þyrla sonar hans tyllti sér niður á grasflötina við húsið. Leyniþjónustan hafði verið ákaflega mótfallin þessum lendingarstað, en Jack hafði lagt allt kapp á að fá þetta samþykkt, vegna þess að hann vissi, að pabbi bjóst við honum þarna og beið hans. Jack útskýrði bannið við kjarnorkutilraununum í einstök- um smáatriðum, á meðan pabbi sat og hlustaði á mál hans og kinkaði ákaft kolli til hans. Pabbi vissi, að þetta var eitt af þeim stórmálum, sem Jack var hvað hreyknastur af að hafa leitt far- sællega til lykta sem forseti Bandaríkjanna. f síðasta sinn, sem við Jack komum fram saman á opinberum vettvangi, var hinn 20. október ár- ið 1963, einum mánuði áður en hann dó. Tilefnið var einn heljar- mikill og eldfjörugur pólitískur hádegisverðarfundur, haldinn í Commonwealth Armory í Boston í því augnamiði að safna fé í kosn- ingasjóð flokksins. Jack stóð þá á hátindi valdaferils síns og naut meiri vinsælda en nokkru sinni áður, og hann kom með ósköp meinlausar skrýtlur um Barry Goldwater, sem þótti líklegur keppinautur hans við forsetakosn- ingarnar árið 1964. Því næst snéri hann sér að mér og sagði stríðnis- lega við gestahópinn, hve mikið það kostaði menn að leggja fram fé, bæði til að styrkja sig í kosningabaráttunni og eins til að standa straum af minni kosn- ingabaráttu. Hvað hann sjálfan snerti, þá yrði 1964 síðasti stóri- slagurinn hans, en hins vegar kynni ég að eiga eftir að fara í ótal framboð til öldungadeildarinnar í framtíðinni. Hann brosti um leið og hann sagði: „Lokabarátta mín kann að verða háð mjög bráðlega, býst ég við — en Teddy er til alls líklegur, og svona hádegisverðir geta því haldið áfram enn um langan aldur, eða jafnvel í það óendanlega." r Eg er núorðið sannfærður um, að það sem halda mun áfram i það óendanlega, er sá kraftur og það aðdr.áttarafl, sem felst í póli- tískri arfleifð hans. Hann var leið- togi, sem gaf mönnum innblástur og vakti traust manna, ekki einn af þessum neikvæðu mönnum, sem leitast við að styrkja völd sín með því að færa sér í nyt óánægju ann- arra, tortryggni og eiginhags- munastreð. Hann sagði, að Ameríka gæti orðið betra land, og hann hafði líka bjargfasta trú á að svo yrði, en hann minnti jafnframt á, að til þess þyrfti hvert einasta okkar að leitast við að leggja sig allt fram. Hann kallaði okkur til starfa og til að leggja fram okkar skerf. Hann höfðaði til rausnarskapar okkar og gjafmildi með stofnun friðar- sveitanna og til ímyndunarafls okkar með geimferðaáætluninni. Hann eftirlét okkur þá föstu sannfæringu, að við gætum hvert um sig á einhvern hátt, hvort sem við nú erum stór eða smá, látið muna um okkar framlag — og að okkur öllum bæri siðferðileg skylda til að reyna. Nærri því helmingur bandarísku þjóðarinn- ar eins og hún er nú á dögum, var ýmist smábörn eða þá enn ófædd- ur, þegar hann dó; en samt finnst líka milljónum þessara Banda- ríkjamanna, að einnig þeir hafi orðið fyrir persónulegum missi og líta á æviferil hans sem persónu- lega hvatningu sér til handa. Bróðir minn gerði okkur öll stolt af því að vera Bandaríkjamenn. John Fitzgerald heyrir ekki ennþá sögunni til, því hann lifir ennþá í vonum okkar og hjörtum okkar. Það sem gerði dauöa hans svo þungbæran, var sú staðreynd, að það voru svo margir i Dallas, í Bandaríkjunum og alls staðar i heiminum, sem dáðust að honum og þótti jafnvel innilega vænt um hann. Hinir þúsund dagar valda- tíma hans sem forseta Bandaríkj- anna eru einna likastir liðnu kvöldi, en þeir eru ekki gleymdir. í augum fjölskyldu sinnar, vina sinna og allra þeirra, sem þekktu hann, var hann einna líkastur björtu leiftri í lífi okkar, ljós, sem núna er slokknað. í hugum tuga og hundruða milljóna manna um all- an heim, sem aldrei hittu hann, en fannst samt að þeir þekktu hann, lifir minningin um hann áfram, og bjarminn frá þeirri birtu, sem hann bar með sér, nær jafnvel að lýsa inn í dimmustu afkima mann- legrar tilveru. Tuttugu árum síðar glampar enn á neistann frá lífi hans — og ég trúi því ekki, að sá neisti muni kulna og slokkna. Jack er bróðir minn og ég ann honum. c 1983 Parade Publications, Inc.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.