Morgunblaðið - 26.02.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.02.1984, Blaðsíða 12
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984 Við vorum næstum komnir á áfangastað, NEC-sýningarhöllina fræ«u í Birmingham, þegar óhappið varð. Simon Le Bon hnerraði svo hraustlega, að smell- urnar á svörtu buxunum hans opnuðust. Það sem verra var, rifn- að hafði út úr buxunum við smell- urnar svo þær voru vart nothæfar. í Ijósi aðstæðna var ekki hægt að líta á þetta öðru vísi en sem meiriháttar slys. Þarna stóð hann í gangveginum í ríkulega búinni langferðabifreið sveitarinnar með opna buxnaklauf. Gvöð. Þetta hlaut að vera ægilegt. Þegar öllu var á botninn hvolft var þetta Simon Le Bon sjálfur. Söngvarinn í Duran Duran, ein- hverjum vinsælasta poppkvintett heims. Reyndar komu sönghæfi- leikarnir honum á óvart, ekki síst vegna þess, að hann losnaði ekki af mútuskeiðinu fyrr en hann var 17 ára gamall. Strákurinn, sem komst ekki á „séns“ fyrr en hann varð 15 eða 16 ára, er nú eitthvert helsta kyntákn popptónlistarinn- ar. Myndir af honum prýða veggi þúsunda ungpía um heim allan. Kkki nein venjuleg sveit Ef Duran Duran væri bara venjuleg popphljómsveit hefði ekki verið mikið mál fyrir Le Bon að skipta um buxur að sviðsbaki. En Duran Duran á tónleikaferða- lagi um heimalandið, Bretland, rétt fyrir jól er ekki nein venjuleg poppsveit. Þriðja breiðskífa flokksins, Seven and the Ragged Tiger, sat á þessum tíma í efsta sæti breska vinsældalistans og hafði selst í rúmum milljón ein- tökum í Bandaríkjunum innan tveggja vikna frá útkomu hennar. Gott dæmi til marks um vinsældir sveitarinnar. Sökum vinsældanna gripu fimmmenningarnir til þess ráðs að skipta um föt á hótelunum, sem þeir gistu á, svo þeir gætu þeyst inn og út úr tónleikahöllunum j fyrir og eftir tónleika til þess að ! losna við að lenda í aðdáendahaf- inu, sem að uppistöðu til er smá- píur. Afstaða hljómsveitarinnar ofur skiljanleg því spenningurinn ber æsta aðdáendur iðulega ofur- liði og þeir neyta allra bragða til þess að verða sér úti um einhvern minjagrip frá sveitinni. Skirrast fæir þá ekki við að rífa spjarirnar Duran Duran-flokkurinn í allri sinni dýrð. Fremri röð frá vinstri: Andy Taylor, Nick Rhodes, Simon ie Bon. Aftari röð f.v.: John Taylor og Andy Taylor. DURAN DURAN utan af hljómsveitarmönnum og taka traustataki allt, sem þeir ná í, og tengst getur átrúnaðargoðun- um. Nú voru góð ráð dýr. Stutt var í að tónleikarnir hæfust og of lang- an tíma tæki að snúa aftur til hót- elsins til þess að sækja nýjar bux- ur. Eitthvað varð að gera og það strax ef kyntáknið Simon Le Bon átti ekki að standa frammi fyrir 11.500 æstum aðdáendum með opna buxnaklauf. Það var ekki um i annað að ræða fyrir söngvarann í en að hysja niður um sig brækurn- | ar í snatri og fá þær búningakon- unum tveimur í hendur. Tvær ástralskar konur hafa þann starfa einan að sjá um að búningar sveit- arinnar séu í góðu lagi. Þær tóku þegar í stað til við að sauma sam- an rifuna. Af Húgenottum Það var í raun dálitið kyndug tilfinning fyrir mig sem blaða- mann að standa allt í einu fyrir framan heimsfrægan söngvara, þar sem hann var einungis klædd- ur bol og bláum nærbuxum. Ekki svo að skilja, að Le Bon, sem reyndar segist vera kominn af Húgenottum er flýðu til Englands á 17. öld, sé einhver hasarkroppur. P’jarri því. Sléttur og felldur með- aijón hvað líkamsbygginguna snertir, reyndar með feita fætur og smábumbu. Rétt um það bil, sem langferðabifreiðin renndi í hlaðið bakatil við NEC-sýn- ingarhöllina, afhentu saumakon- urnar Iæ Bon buxurnar á ný. Það mátti vart tæpara standa. Full höll áheyrenda beið spennt eftir goðunum sínum, en í anddyr- inu notuðu fjögur ungmenni, nán- ast eins og afsteypur meðlima hljómsveitarinar að sjá, tækifær- ið, stilltu sér upp fyrir myndatök- ur og veittu eiginhandaráritanir í gríð og erg. Slíkur var eldmóður- inn hjá þeim aðdáendum, sem enn höfðu ekki komið sér fyrir í saln- um, að þeir (nær væri að segja þær því yfirgnæfandi meirihluti áhorfenda var ungpíur) kölluðu á eftirhermurnar með skírnarnöfn- um fimmmenninganna í Duran Duran. „Simon", „John“, „Nick“ glumdi við í anddyrinu. Úr því ekki er hægt að ná í stjörnurnar sjálfar... Allt vitlaust Um leið og slökkt var í salnum ætlaði allt um koll að keyra. Þó hafði hljómsveitin ekki látið heyra í sér. Þetta er reyndar gömul saga og ný. Þannig hafa viðbrögð áheyrenda verið allt frá því Frank Sinatra var að feta sig eftir frægð- arbrautinni. Ungpíur sungu, ungpíur grétu og ungpíur féllu í yfirlið. Hávaðinn var á köflum slíkur, að þótt heyra mætti í hljómsveitinni sjálfri var ómögu- legt að einbeita sér að því að hlusta á tónlistina. Svo var að sjá, sem stórum hluta áheyrenda væri sama þótt tónlistin færi fyrir ofan garð og neðan. Andy Taylor, gítarleikari hljómsveitarinnar, sagði nokkrum dögum síðar: „Okkur hefur verið sagt, að við gætum alveg eins mætt upp á svið og leyst vind. Hrifningin yrði alveg sú sama. Það er kannski eitthvað til í þessu." En enginn skyldi halda því fram, að tilburðir Duran Duran væru svo auvirðilegir á sviði. Með æskuhetjurnar að leiðarljósi; Queen, David Bowie og Roxy Mus- ic, eru fimmmenningarnir í sveit- inni einhuga um að skila sínu á eins fullkominn máta og frekast er kostur. Á þessu umrædda tón- leikaferðlagi um Bretland var allt lagt í sölurnar til að tónleikarnir yrðu sem glæsilegastir. Auka- hljóðfæraleikurum var bætt við; ásláttarleikara, saxófónleikara, svo og tveimur „back-up“-söng- konum. Þá vó ljósabúnaðurinn hvorki meira né minna en sex tonn. Á þessum tónleikum fengu áhangendur Duran Duran eins mikið fyrir peningana og frekast var hægt að hugsa sér. Fimm- menningarnir kyrjuðu öll vinsæl- ustu lögin sín við takmarkalausa hrifningu gesta. Hápunktur tón- leikanna hafði þó ekkert með tón- listina að gera. Á miðjum tónleik- unum varð Simon Le Bon að taka til fótanna út af sviðinu til þess að fá smáaðstoð. Buxnasmellurnar höfðu gefið sig á ný. „Þetta er skfytinn heimur,“ sagði Andy Taylor á heimili sínu í útjaðri Wolverhampton, útborgar Birmingham, eftir tónleikana. „Fyrir ári hefðum við ekki einu sinni getað selt egg í Bandaríkjun- um, hvað þá heldur plötu." Taylor býr í rándýrri íbúð í Wolverhampton, auk þess sem hann á glæsilega íbúð í London og lítinn bóndabæ og nokkra hektara lands skammt frá Birmingham.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.