Morgunblaðið - 10.11.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1984
3
Séð í glugga verslunarinnar Sviss. Morgunblaðið/Emilia
Súkkulaði flug-
leiðis frá Sviss
„f MÖRG ár hef ég feröast mikið og ávallt reynt að koma þvi þannig fyrir
að ég gæti millilent í Sviss, til að geta keypt mér rómaða handunna
súkkulaðið þeirra," sagði Freygerður Kristjánsdóttir, einn af eigendum
verslunarinnar Sviss, sem opnuð hefur verið að Laugavegi 8. Þar er
eingöngu selt svissneskt handunnið súkkulaði. Eigandi verslunarinnar er
fyrirtækið Súkkulaði hf. sem rekið er af Freygerði, Ingibergi Þorkelssyni,
Sigurbjörgu Kristjánsdóttur og Ástu Dan Ingibergsdóttur.
t versluninni Sviss eru seldir Freygerður sagði að ekki væri
konfektmolar og „truffles" ætlunin að láta staðar numið með
(súkkulaðikúlur) með mismunadi opnun Sviss og væri verið að
bragði. Sætindin koma vikulega ganga frá samningum fyrir fleiri
að utan þannig að það er aldrei versíanir. Súkkulaði hf. mun
eldra en 2 til 3 vikna gamalt í næsta vor opna „konditorí" ofar á
versluninni. Súkkulaðið er selt Laugaveginum þar sem hægt
eftir vigt og er öllu pakkað inn i verður að setjast niður og snæða
gjafapakkningar. svissnesk sætindi af ýmsu tagi.
Óskar Magnússon AK-177 sleginn Krossvík hf. á nauðungaruppboði:
Heimamönnum kapps-
mál að halda í skipið
— segir Guðjón Guðmundsson forseti bæjarstjórnar Akraness
Morgunblaðid/Jón Gunnlauþ won.
Hluti þeirra sem viðstaddir voni uppboðið á togaranum Óskari Magnússyni
AK-177 í þingsal bæjarfógetaembættisins á Akranesi f gær. Lengst til vinstri er
Guðjón Guðmundsson forseti bæjarstjórnar. Sitjandi næst honum er Valdimar
lndriðason alþingismaður og bæjarfulltrúi. f dyrunum má m.a. sjá Harald
Sturlaugsson, forstjóra Haralds Böðvarssonar, og lengst til hægri stendur Er-
lendur Markússon hdl., sem bauð í togarann fyrir hönd Krossvíkur.
„Ég er mjög ánægður með að togar-
inn verður hér áfram. Það var
kappsmál allra heimamanna að halda
í skipið," sagði Guðjón Guðmunds-
son, forseti bæjarstjórnar Akraness, f
samtali við Mbl. eftir að skuttogarinn
Óskar Magnússon AK-177 var sleginn
útgerðarfélaginu Krossvík hf. á Akra-
nesi með tilheyrandi vél, rá og reiða
fyrir 98,5 milljónir króna á nauðung-
aruppboði. Auk Krossavíkur bauð
Fiskveiðasjóður fslands í togarann.
Uppboðið fór fram í þingsal bæj-
arfógetaembættisins á Akranesi
þar sem togarinn var á veiðum.
Viðstaddir voru fulltrúar ýmissa
kröfuhafa og frammámenn bæjar-
félagsins og atvinnulífs þar. Stýrði
Björgvin Bjarnason bæjarfógeti
nauðungaruppboðinu.
Fógeti óskaði eftir boðum f skipið
er hann hafði sett réttinn. Fyrsta
boð kom frá ólafi Stefánssyni hdl.
fyrir hönd Fiskveiðasjóðs, að upp-
hæð 98,4 milljónir króna, eða sömu
upphæð og kröfur sjóðsins í skipið
námu. Að vörmu spori kvaðst Guð-
mundur Markússon hdl. svo vera
með boð fyrir hönd Krossvíkur að
upphæð 98,5 milljónir, eða 100 þús-
undum hærra en Fiskveiðasjóður.
Fógeti lýsti eftir fleiri boðum en
þau komu engin og tók hann sér þá
frest til að athuga boðin.
Að Krossvfk hf. standa Akranes-
kaupstaður, Haraldur Böðvarsson
hf., Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
an hf. og Haförninn hf. Sfðast-
nefnda fyrirtækið var aðili að Út-
gerðarfélagi Vesturlands hf., sem
áður gerði togarann út, ásamt Þórði
Óskarssyni hf. á Akranesi og Agli
hf. í Borgarnesi, sem 50 einstakl-
ingar þar f bæ stóðu að. Samkvæmt
uppboðsskilmálum ber Krossvfk hf.
að borga fjórðungshluta uppboðs-
andvirðis um ieið og boðið er sam-
þykkt.
Togarinn Óskar Magnússon var
smíðaður hjá Slippstöðinni á Akur-
eyri fyrir útgerðarfélag Vestur-
lands og hóf róðra 1978. Undanfarin
ár hafa ýmsir erfiðleikar steðjað að
útgerðinni og í fyrra hrundi aðalvél
skipsins með þeim afleiðingum að
skipta varð um hana. Skipið er met-
ið á um 100 milljónir, en skuldir
útgerðarinnar voru á annað hundr-
að milljónir, mest við Fiskveiðasjóð
og Byggðasjóð.
Banabiti aö missa skipiö
„Það er bráðnauðsynlegt að halda
í skipið, hér byggist svo margt á
togaraútgerð," sagði Guðjón Guð-
mundsson. „Rúmlega þriðjungur
bæjarbúa hefur atvinnu af sjávar-
útvegi. Hér eru fjórir togarar og
máttum við ekki missa þennan,
helzt þurfum við einn f viðbót, ekki
sízt þar sem bátaútgerðin virðist
vera að lfða undir lok. Þetta er mjög
gott skip með ársgamla vél og kaup-
in því ekki út í hött.
Eg vil taka það sérstaklega fram
að það er mikil eftirsjá f því ágæta
fyrirtæki, Þórði óskarssyni hf., sem
starfað hefur hér af miklum mynd-
arskap í um 20 ár,“ sagði Guðjón.
„Ég er mjög ánægður með þessa
niðurstöðu, þetta er mikill sigur,"
sagði Valdimar Indriðason alþing-
ismaður og bæjarfulltrúi við Mbl.
„Við vildum freista þess að gera
togarann út. Það hefði verið mikið
áfall að missa skipið héðan. Það lá
fyrir að hraðfrystihús Hafarnarins
hefði hætt starfsemi og lokað 1.
desember ef togarinn hefði verið
seldur héðan. Búið var að segja upp
öllu starfsfólki frá þeim tíma, um
eitt hundrað manns. Það hefði þvf
verið algjör banabiti að missa skip-
ið,“ sagði Valdimar.
Til sölu eru:
tvær 40.8m2 einstaklingsíbúðir
tvær 60. lm2 2ja herbergja íbúðir
fjórar 66.4m2 2ja herbergja íbúðir
þrjátíu 70.Om2 2ja herbergja íbúðir
sex 89.Om2 3ja herbergja íbúðir
tíu 98.6m2 3ja herbergja íbúðir
sex 99.3m2 3ja herbergja íbúðir
Hér er um að ræða netto stærðir íbúða, án
hlutdeildar í sameign.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur auglýsir:
Til sölu 60 íbúðir fyrir aldraða
félagsmenn VR við Hvassaleiti 56-58.
Þeir félagsmenn VR sem orðnir eru 63 ára
eiga rétt á að kaupa íbúð, þó þannig að fé-
lagar 67 ára og eldri eiga forgangsrétt á
íbúðunum. Miðað er við að þessum aldurs-
mörkum sé náð um áramótin 1985/1986.
Þeim félagsmönnum, sem áhuga hafa á að
kaupa þessar íbúðir, er bent á að koma á
skrifstofu félagsins, í Húsi verslunarinnar
8. hæð, og kynna sér teikningar og fá upp-
lýsingar um verð íbúðanna.
Skilafrestur umsókna ertil 7. desembern.k.
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR