Morgunblaðið - 10.11.1984, Side 4

Morgunblaðið - 10.11.1984, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1984 2000 fleiri bíl- ar fluttir inn í ár en í fyrra LIÐLEGA tvö þúsund fleiri bifreidir voru fluttar til landmns fyrstu níu mánuði irsins en fyrstu níu mánuði síðasta árs, skv. upplýsingum Hag- stofu íslands. Mest var flutt inn af nýjum fólksbifreiðum, samtals 5.348 en á sama tímabili í fyrra samtals 3.701. Langflestar bifreiðirnar eru búnar bensínvélum — í ár hafa verið fluttar inn 284 diesel-bifreiðir en 249 í fyrra. Nokkru fleiri notaðar fólksbif- reiðir voru fluttar inn á þessu ári. Forseti íslands; Erlendis í einkaerindum FORSFÍTI íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, hélt ( morgun utan til Lundúna og Parísar í einkaerind- um. Forseti kemur aftur heim föstudaginn 23. nóvember. fFrétUtilkyooillg-) 293 á móti 224 í fyrra. Nýir sendi- bílar voru alls 322 fyrstu níu mán- uði þessa árs en voru 286 í fyrra. Notaðir sendibílar voru 11 í ár en 17 á sama tíma í fyrra. í ár hafa verið fluttir inn 286 nýir vörubílar en voru 264 í fyrra. Notaðir vöru- bílar í ár eru orðnir 43 en voru 55 á sama tíma í fyrra. Af einstökum tegundum má nefna að fluttar hafa verið inn 483 Fiat Uno bifreiðir frá Ítalíu. Næst kemur Subaru frá Japan, alls 368 bílar, þá Daihatsu Charade frá Japan, alls 322. í fjórða sæti er Lada 2107 frá Sovétríkjunum, alls 319, og í fimmta sæti er Skoda 105/120/Rapid frá Tékkóslóvakíu, alls 286 bifreiðir. INNLENT Kristjana P. Helga- dóttir lœknir látin Kri-stjana P. Helgadóttir læknir lézt í Landspítalanum fimmtu- dagskvöldið 8. nóvember sl. Krist- jana var fædd í Hafnarfirði 5. ágúst 1921 og því 63 ára er hún lézt. Foreldrar hennar voru þau Helgi ólafsson trésmíðameistari og kona hans Þóra Guðrún Krist- jánsdóttir í Hafnarfirði. Kristjana lauk stúdentsprófi í Reykjavík ár- ið 1940 og læknaprófi frá Háskóla fslands 1948. Hún starfaði fyrst á Vífilsstaðaspítala, en síðar á Landspítalanum. Við Grace Hospital í Winnipeg starfaði hún sem námskandidat og einnig við barnaspítala i Winnipeg, auk fleiri spítala í Bandaríkjunum, en þar lauk hún sérfræðinámi i barnasjúkdómum. Hún var starf- andi læknir á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 1952. Eftirlifandi eiginmaður Krist- jönu er Finnbogi Guðmundsson Kristjana P. Helgadóttir læknir. landsbókavörður i Reykjavík. Þau eignuðust eina dóttur, Helgu Laufeyju. Þorsteinn Ölafsson tannlæknir látinn Síðastliðinn þriðjudag varð Þor- steinn Ólafsson tannlæknir bráð- kvaddur á heimili sínu hér í Reykja- vík, Laufásvegi 42. Hann var 63ja ára, fæddur 21. desember árið 1920. Þorsteinn var borinn og barnfæddur Reykvíkingur. For- eldrar hans voru Kristín Guð- mundsdóttir og ólafur Þorsteins- son háls- nef- og eyrnalæknir. Að loknu stúdentsprófi frá MR vorið 1940 hóf hann tannlækninganám við Háskóla fslands. Er hann lauk því, árið 1947, opnaði hann tann- lækningastofu sína á Skólabrú 2 og rak hana til dauðadags. Á skólaárum sínum lék Þor- steinn í knattspyrnuflokkum Vík- ings um árabil. Var ætið mikill og sannur Víkingur. Hann átti sæti í stjórn Reykvíkingafélagsins. Geta má þess að Þorsteinn átti merki- legt ljósmyndasafn Reykjavík- urmynda frá ýmsum tímum og af fjölda einstaklinga, sem á sinum tíma settu svip sinn á bæinn. Eftirlifandi eiginkona hans er Ólöf Vilmundardóttir landlæknis Þorsteinn Ólafsson tannlæknir. Jónssonar. Börn þeirra eru ólafur viðskiptafræðingur og Kristín blaðamaður. Hafskip hefur beinar áætlunarferðir milli Evrópu og Bandaríkjanna HAFSKIP hf. hóf reglubundnar áætlunarsiglingar milli meginlands Evrópu og Bandaríkjanna í byrjun október sl. Til siglinganna eru notuð tvö tæplega 600 gáma leiguskip, sem eru það stór að þau komast ekki inn í Keykjavíkurhöfn. Er því siglt á milli heimsálfanna án viðkomu á fs- landi. Annað skipanna er níu þús- und tonn og hitt er 12 þúsund tonn. Ferðir eru hálfsmánaðarlega. Þetta er i fyrsta sinn sem ís- lenskt skipafélag hefur reglu- bundnar áætlunarsiglingar er- lendis án viðkomu á fslandi. Und- irbúningur fyrir þessa starfsemi erlendis hefur staðið frá því á sl. ári og hefur heildarskipulag og framkvæmd verið í höndum Björgólfs Guðmundssonar, for- stjóra Hafskips. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Björgólf og var hann spurður hvernig staðið hefði verið að undirbúningi fyrir þessar sigl- ingar. „Stjórn félagsins ákvað á sínum tíma að stórauka starfsemi félags- ins erlendis. Fyrst voru opnaðar svæðisskrifstofur Hafskips í Hamborg, Kaupmannahöfn, Ips- wich, New York, Rotterdam og nú síðast í Varberg i Svíþjóð. Þvi næst var fest kaup á bandariska flutningsmiðlunarfyrirtækinu Cosmos Shipping Co., sem rekur 5 skrifstofur þar í landi. Auk þess eru nú Cosmos-skrifstofur i Reykjavík og Rotterdam. Þriðja skref stjórnaráætlunarinnar eru umræddar siglingar milli Evrópu og Ameríku.“ Eru þið ekkert hræddir við sam- keppnina úti i hinum stóra heimi? nVið vitum að samkeppni á þessari siglingaleið er bæði hörð og ströng,“ sagði Björgólfur. „Risastór skip og öflug skipafélög eru þegar á þessum markaði og eru þau hættulegir keppinautar. En ef vel tekst til, er ljóst að velta félagsins vegna þessara siglinga verður meiri en heildarvelta Haf- skips hf. er nú. Bersýnilegt er að íslendingar geta ekki öllu lengur lifað hver á öðrum og fréttir af Fiskiþingi sýna, að sjávarútvegur- inn einn getur ekki lengur staðið undir velferð þjóðarinnar. Þess vegna þurfa íslensk fyrirtæki, þ.m.t. skipa- og flugfélög að ryðj- ast út á erlenda markaði og skapa gjaldeyristekjur af sölu þjónustu og hugvits. Að sjálfsögðu ber að hafa í huga að hér er um algjöra tilraun að ræða, sem miðast við fjóra mánuði i senn, en við stefn- um að því að hér verði um fram- tíðarverkefni að ræða.“ Eruð þið sem sagt að sýna bæði ykkur sjálfum og öðrum íslend- ingum fram á að þessi þjóð sé samkeppnisfær erlendis? „Já, það er eitt af markmiðum félagsins,“ sagði Björgólfur. „Það eru allt of margir sem draga í efa getu okkar á erlendum vettvangi og of margir sem reyna nú að draga úr okkur kjarkinn. Ef þess- ar siglingar takast vel, þá höfum „Islenzk fyrirtæki verða að ryðjast á erienda markaði,“ segir Björgólfur Guðmundsson, forstjóri Hafskips við sýnt a.m.k. að við þorum að takast á við okkur stærri og sterkari samkeppnisaðila erlendis. Ef ekki, þá verðum við reynslunni rikari. Einnig er markmið okkar það að sækja tekjur og gjaldeyri til útlanda, skapa möguleika á hraðari endurnýjun skipastóls fé- lagsins, að fjölga atvinnutækifær- um íslenskra farmanna, þegar ljóst verður að þessar siglingar sanna gildi sitt og félagið hefur tekið umrædd skip á þurrleigu eða eignast þau. Einnig viljum við auka og víkka verksvið svæðis- skrifstofa Hafskips og gefa stærri hóp starfsmanna kost á a.m.k. 2—4 ára starfsreynslu erlendis og auka verkefni og flutningsgetu ís- lenska kaupskipastólsins." Hvert sigla Ms. Carlotta og Ms. Húsá? „Þau sigla til Hamborgar, Antwerpen, Tilbury við London og til New York og Norfolk. Ms. Car- lotta er þegar búin að fara eina hringferð og er nú að lesta vörur í Evrópu. Ms. Húsá er aftur á móti komin vestur til Bandaríkjanna og losar þar og verður komin til baka UNGUR maður slasaðist alvarlega aðfaranótt föstudagsins þegar hann ók bfl sínum aftan á kyrrstæðan vöru- flutningabíl við Bólstaðarhlíð í Reykjavík. Slysið varð um kl. hálftvö um nóttina og var maðurinn einn í bilnum. Vöruflutningabilnum hafði verið lagt við vegarbrúnina og mun ökumaður fólksbílsins, sem var af gerðinni Mazda 323, ekki hafa séð 26. þ.m. Skipin hafa verið nálægt því fulllestuð til Bandarikjanna, en minna er um flutninga þaðan meðan gengi dalsins gagnvart öðr- um vestrænum gjaldmiðlum helst eins hátt og það er nú. Við stefn- um að því að taka þessi eða sam- bærileg skip á þurrleigu í náinni framtíð og manna þau með is- lenskum sjómönnum. Það er staö- reynd að íslenskir starfsmenn Hafskipsskrifstofanna erlendis hafa staðið sig sérstaklega vel og hafa sýnt og sannað að þeir gefa kollegum sínum erlendum ekkert eftir i sölustarfseminni og af- greiðslu í erlendum höfnum.“ Má búast við fleiri breytingum á starfsemi Hafskips á næstunni? „í framhaldi af þessum sigling- um mun Hafskip hf. hefja reglu- bundnar hálfsmánaðar áætlunar- siglingar frá Norðurlöndunum til N-Ameríku og verða notuð i það 400—500 gáma leiguskip til að byrja með. Um er að ræða tvö skip og mun það fyrra hefja siglingar í kringum 17. desember, en hitt í janúar 1985. Þessi skip munu koma við í Reykjavík á austurleið með vörur frá Ameriku og taka hér varning vestur. Þetta þýðir að við verðum með vikulega viðkomu í New York og Norfolk, a.m.k. meðan á þessum reynslutíma stendur.“ Að lokum vildi Björgólfur Guð- mundsson að það kæmi fram að þótt hér væri um að ræða fyrstu tilraun íslensks skipafélags í áætl- unarsiglingum erlendis, þá hafa a.m.k. tvö skipafélög, Nesskip og Víkurskip, stundað leiguflutninga erlendis og náð ágætum árangri. tengivagn hans fyrr en það var orð- ið um seinan. Hann slasaðist mikið á höfði og hlaut auk þess innvortis meiðsli. Hann notaði ekki í bilbelti. Maðurinn var fluttur i sjúkrahús en var ekki lengur i lifshættu sið- degis i gær, skv. upplýsingum slysarannsóknardeildar lögregl- unnar í Reykjavík. Myndin var tekin á slysstaðnum skömmu eftir atburðinn. Mbl./Júllus. Slasaðist mikið í aftanákeyrslu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.