Morgunblaðið - 10.11.1984, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1984
47
Snyrtivöruyerzlunin Sara í Bankastræti
Snyrtivöruverzlunin Sara opnaði nýja verzlun í Bankastræti 8 4. október
síðastliðinn. Verzlunin leggur áherzlu á fjölbreytt vöruúrval. Snyrtisér-
fræðingur er á staðnum til leiðbeininga. Eigendur verzlunarinnar eru
Dóra Petersen og Hanna Hofsdal.
Syndin er lævís og lipur
Bók Jónasar Árnasonar um Jón Kristófer endurútgefin
„SYNDIN er lævís og lipur“ er heiti
á bók Jónasar Árnasonar um Jón
Kristófer, sem endurútgefin hefur
verið af Reykjaforlaginu, en hún
kom fyrst út haustið 1962 og hefur
verið ófáanleg.
Bókin fjallar um Jón Sigurðs-
son, sem einnig er kunnur undir
nafninu Jón Kristófer kadett, og
ævintýralegan æviferil hans. Jón-
as Árnason las bókina í útvarpi á
sl. vetri og er bókin nú endurút-
gefin vegna fjölda áskorana, segir
í fréttatilkynningu frá útgáfunni.
í fréttatilkynningunni er einnig
vitnað í blaðadóma um bókina,
þegar hún kom út í fyrsta sinn:
„Stefán Jónsson rithöfundur sagði
þá m.a.: „Þessi saga af Jóni
Kristófer er skemmtilegasta ævi-
sagan, sem ég hef lesið... Nú
nema hvað? Það er Jónas Árnason
sem skrifar söguna um þennan
gáfaða og gáskafulla pinna- og
skapraunamann; rófuþjófnað af
pólitísku ofstæki; trúnað á háska-
stund við ömmu gömlu og kýrnar í
Fagurey; ofurmannlegar dáðir
Ólafsvíkur-Kalla hins hjarta-
prúða; Óskapagöngu í hjálpræð-
isher og brezkum her um hafnar-
knæpur þúsund borga og yfir
tundurduflasvæði trítilóðrar
heimsstyrjaldar á drykkjusárum
fótum ... “
Bókin er 236 bls. að stærð,
prentuð hjá Prentrúnu, kápumynd
I eftir Hilmar Helgason.
HÖFUM OPNAÐ
gjafavöruverslunina Kendal í nýju
húsnæöi aö Laugavegi 61—63.
Viö sérhæfum okkur í
enskum postulíns- og kristalsvörum.
Glæsilegt úrval af gjafavörum, matar og kaffistell-
um frá Wedgwood, Aynsley, Spooe og öörum
þekktum enskum postulíns- og kristalsframleiö-
endum.
Kentöal
LAUi^l?
Sími 26360
Kammertónleikar
Sinfóníuhljómsveitarinnar
Tónlist
Guðríður St. Sigurðardóttir og Páll Pálsson.
Jón Ásgeirsson
Efnisskrá:
Pachelbel: Þriggja radda keðjulag
yfir þrástef.
Hindemith: Konsert fyrir píanó,
málmblásara og hörpu.
Mozart: Linz-sinfónían K.425.
Einleikari: Guðríður St. Sigurðar-
dóttir.
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
Fyrstu kammertónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands voru
haldnir í Bústaðakirkju sl.
fimmtudagskvökd, fyrir nær
fullu húsi. Tónleikarnir hófust á
sérkennilegu verki eftir orgel-
snillinginn Johann Pachelbel
(sonur hans, Charles Theodore,
var orgelleikari í Ameríku og dó
sama ár og J.S.Bach, 1750) og
nefnist verkið Kanon. Verkið er í
raun röð af þriggja radda keðju-
lögum, sem unnin eru yfir ein-
falda og síleikna bassalaglínu.
(mýnd 1) Fyrsta keðjan hefst á
einfaldri fallandi línu sem að
nokkru er notuð seinna í verkinu
í skreyttu formi (mynd 2). Ann-
að verkið var svo konsertmúsík
eftir Hindemith, fyrir málm-
blásara og hörpu ásamt píanói.
Þetta verk er í raun stuttur pí-
anókonsert, skemmtilega unnið,
bæði fyrir pianóið og blásarana.
Guðríður St. Sigurðardóttir lék
á píanóið og flutti verkið mjög
fallega. Guðríður hefur mjúka
tækni, sem nýttist henni ekki til
fullnustu, þar sem Hindemith
hefði þolað kraftmeiri átök. í
einleiksköflunum komu fram
kostir Guðríðar og í hæga þætt-
inum lék hún oftlega mjög fal-
lega. Þau fáu skipti sem undir-
ritaður hefur heyrt Guðríði
leika, aðallega sem undirleikari
hjá söngvurum, hefur hún ávallt
komið á óvart fyrir fallegan og
ljúflegan leik.
Síðasta verkið var Linz-sin-
fónían eftir Mozart. Verkið er
undurfallegt og var leikur
hljómsveitarinnar á stöku stað
mjög góður, einkum i síðasta
kaflanum, sem var mjög lifandi.
Það kann að vera, að það sé eins
og að bera í bakkafullan lækinn,
að tala um styrkleikaviðmiðun-
ina í hljómsveitinni, en á köflum
var sem svonefnt p (pianó =
veikt) væri leikið mf (mezzoforte
= meðalsterkt) en f (forte =
sterkt) leikið ff (fortissimo =
mjög sterkt). Nú voru það
strengirnir sem voru í það
sterkasta og var í leik þeirra
hvergi að heyra virkilega veika
tónmyndun. Hvað sem þessu
naggi líður, þá var leikur sveit-
arinnar í heild góður;
Jón Ásgeirsson
^.ll..O l T- -
w I JHi K. A
/ -«<j i 1* jil j l Mynd 1. * 11J14
f m -f
lVr 1 M. J | \ h—r ^ 1 1 4
v1!.- i- H=1
Mynd 2.
Hárgreiðslunámskeið
Dr. Peter Gress, hárgreiöslumeistari frá Hans Schwarzkopf,
Þýzkalandi, veröur meö kennslu í hárgreiöslutækni og nýjustu
hárgreiöslum á Hótel Esju mánudaginn 12. nóv., þriðjudaginn 13.
nóv., miövikudaginn 14. nóv. Model óskast.
Allar nánari uppl. gefa Fríöa í síma 33968, Dórothea í síma 17144,
Gunna í síma 51434.
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku sem allra fyrst.
Hárgreiðslumeistarafélag íslands,
Heildverslun Péturs Péturssonar.