Morgunblaðið - 23.11.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.11.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 230. tbl. 71. árg._________________________________FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Bretar hyggjast hætta aðild sinni að UNESCO London, 22. nÓTember. AP. SIR Geoffrey Howe, utanríkisráö- i ar- og vísindastofnun Sameinuðu herra Bretlands, tilkynnti í dag, að þjóðanna (UNESCO) í lok næsta árs. gia sig úr Menning- I apríl sl. varaði brez Bretar myndu segja sig úr Menning- brezka stjórnin við Noregur: Eldislax fyrir 4,5 milljarða OM, 22. núr. Frá fréturitara Morgnnblateina, FRAMLEIÐSLA á norskum eldis- laxi ætti að geta aukizt upp í 30.000 Mótmæla sovézkum kjarnorku- flaugum Vfnarborg, 22. nérember. AP. FORYSTUMEN N óopinberra friðarhreyfinga f Austur-Þýzka- landi og Tékkóslóvakíu gáfu f dag út sameiginlega yfirlýsingu, þar sem þeir mótmæltu uppsetningu nýrra kjarnorkuflauga Sovét- manna í löndum sfnum. Jafn- framt kröfðust þeir aukinna mannréttinda. Var þetta fyrsta sameiginlega yfirlýsing slíkra friðarhreyfinga í tveimur Austur- Evrópuríkjum. Yfirlýsing þessi er undirrituð af 16 Tékkum og 13 Austur- Þjóðverjum og eru í þessum hópi ýmsir kunnir baráttumenn fyrir mannréttindum og aðrir, sem kunnir 'eru fyrir gagnrýni sína á stjórnvöld i þessum lönd- um. Tilefni þessara mótmæla nú er uppsetning nýrra kjarn- orkuflauga f Tékkóslóvakíu og Austur-Þýzkalandi. „Friður er óaðskiljanlega tengdur mannréttindum," segir f yfirlýsingunni. „Við viljum fá að lifa í þjóðfélagi, þar sem réttindi einstaklingsins eru virt.“ Þá er þess krafizt, að eng- ar eldflaugar verði í Evrópu „allt frá Uralfjöllum til Atl- antshafs". Yfirlýsingin er m.a. undirrituð af tékkneska leik- ritaskáldinu Vaclav Havel og Katja Havemann, konu heim- spekingsins Roberts Have- Ju Erik Laure. tonn á næsta ári og upp í 40.000 tonn árið 1986. Á þessu ári verður hún um 22.000 tonn, að verðmæti um einn milljarður n.kr. (um 4,5 milljarðar ísl. kr.). Skýrði Odd Berg, forstjóri Sölusambands fram- leiðenda á eldisfiski í Noregi, frá þessu í dag. Norðmenn framleiða nú fjór- um sinnum meira af laxi en allt það magn, sem veiðist í öllu Norður-Atíantshafi. Um 85% af öllum eldislaxi í heiminum eru framleidd í Noregi, en nú verður vart æ meiri samkeppni um markaðinn frá öðrum löndum. Odd Berg sagði ennfremur, að ekki mætti einblína á fram- leiðslumagn, heldur yrði einnig að leggja mikla áherzlu á gæði eldisfisksins. Þá skipti eldi á öðr- um fisktegendum en laxi og sil- ungi miklu máli. því, að Bretar hygðust hætta aðild sinni að stofnuninni, ef ekki yrðu gerðar verulegar umbætur á starf- semi hennar. Var þvf haldið fram, að allt of miklu af fjármunum stofnun- arinnar væri eytt í óhóf og til veizlu- halda í aðalstöðvum stofnunarinnar í París. Þá væri stofnunin orðin hlut- dræg og oft beinlínis andvíg vest- rænum ríkjum. í desember í fyrra tilkynntu Bandaríkjamenn, að þeir myndu hætta aðild sinni að UNESCO í lok þessa árs, ef engar umbætur færu fram á starfsemi stofnunar- innar. Allt virðist benda til þess nú, að Bandaríkjamenn fram- kvæmi þessa ákvörðun sina. Enda þótt langt sé sfðan búizt var við þessari ákvörðun brezku stjórnarinnar, vakti hún mikla andstöðu í dag. Urðu margir þing- menn stjórnarandstöðunnar til þess að gagnrýna stjórnina harð- lega í umræðum í neðri deild brezka þingsins. Ýmsir stuðn- ingsmenn stjórnarinnar tóku einnig undir þessa gagnrýni. Þannig sagði Edward Heath, fyrr- um forsætisráðherra, að ákvörð- unina „bæri að harma" og að hún myndi draga stórlega úr áhrifum Breta í heiminum. Þá kom einnig fram mikil gagn- rýni af hálfu margra samveldis- ríkja og aðildarríkja Evrópu- bandalagsins. Var þvf haldið fram, að Bretar gætu frekar komið fram umbótum á starfsemi UNESCO með áframhaldandi aðild sinni þar. Stærsti maður heims Símamynd/AP. Bandaríkjamaóurinn Albert Jackson sést hér I farangursvagni á flug- velli í Flórída. Jackson, sem er 42 ára, er 436 kg á þyngd og tæpir tveir metrar á hæð. Hann var á leið til Nassau á Bahama-eyjum, er þessi mynd var tekin af honum. Hann heldur því fram, að hann sé „stærsti" maður heims. Nýjar afvopnunarviðræður milli stórveldanna í Genf Shultz og Gromyko koma saman til fundar snemma í janúar Washin^ton, 22. nóvember. AP. GEORGE P. Shultz, utanrikisráð- herra Bandaríkjanna, og Andrei Gromyko, utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna, munu koma saman til fund- ar í Genf snemma á næsta ári til viðræðna um mörg ágreiningsefni, þar á meðal afvopnun. Var skýrt frá þessu bæði í Washington og Moskvu ídag. Áformað er, að fundurinn fari fram 7. til 8. janúar nk. og að þar verði fjallað um öll atriði, sem snerta kjarnorkuvopn og geim- ShuRz Gromyko Enn flýja 17 Pólveriar Fleuborg, Vestur-Þýzkabuidi, 22. bút. AP. ENN HAFA 17 Pólverjar flúið frá borði, er skip þeirra kom til hafnar í Vestur-Þýzkalandi. Hafa nú yfir 300 Pólverjar yfirgefið skip sín og flúið í land í vestur-þýzkum höfn- um á minna en einni viku. Er m/s Rogalin kom til hafnar í Travemunde nærri austur- þýzku landamærunum á leið til heimahafnar sinnar I Szczecin, hurfu 17 manns af skipinu. Áður höfðu 93 menn yfirgefið skipið. Yfirvöld í Hamborg hafa skýrt svo frá, að 192 Pólverjar hefðu flúið af farþegaskipinu Stefan Batory, er skipið kom til hafnar i Hamborg á mánudag. Hafa 134 þeirra beðið þar um pólitískt hæli nú þegar, en hinir munu hafa farið til vina og ættingja i nærliggjandi borgum. vopn. Gerði Robert McFarlane, ör- yggismálaráðgjafi Reagans for- seta, grein fyrir þessum fyrirhug- uðum viðræðum í dag og sagði, að þar yrði m.a. rætt um eftirlit með kjarnorkuvopnum, en um þessar mundir er ár liðið sfðan viðræður milli risaveldanna um þessi vopn sigldu í strand. Er Reagan forseta var skýrt frá samkomulaginu um þennan fyrir- hugaða fund þeirra Shultz og Gromykos, svaraði hann: „Þetta eru góðar fréttir. Þetta er fyrsta skrefið á langri og erfiðri leið.“ Samkomulag um að halda þenn- an fund náðist eftir að Konstantin Chernenko, forseti Sovétrikjanna sendi bandariska utanrikisráðu- neytinu orðsendingu um siðustu helgi, þar sem látinn var i ljós áhugi á slíkum viðræðum með þátt- töku háttsettra ráðamanna. í þess- ari orðsendingu var þess ekki kraf- izt, að meðaldrægar eldflaugar Bandaríkjamanna í Vestur-Evrópu yrðu fluttar burt né heldur sett nein skilyrði fyrir fundi þeirra Shultz og Gromykos. I fyrra slitnaði upp úr afvopnun- arviðræðum milli risaveldanna, sem fram höfðu farið i Genf, eftir að Bandaríkjastjórn neitaði að falla frá þeirri ákvörðun Atlants- hafsbandalagsins að setja upp nýj- ar bandariskar eldflaugar í Vest- ur-Evrópu. Vladimir Lomeiko, talsmaður so- vézku stjórnarinnar sagði í dag, að hér yrði um „alveg nýjar" viðræður að ræða. Sovétstjórnin liti ekki svo á, að viðræður þeirra Shultz og Gromykos yrðu framhald þeirra viðræðna, sem slitnaði upp úr i Genf í fyrra. Dollari lækkar London, 22. MTembor. AP. GENGI Bandaríkjadollars lækkaði í dag gagnvart öllum helztu gjaldmiðl- um heims. Gerðist þetta f kjölfar til- kynningar bandaríska seðlabankans á miðvikudag um, að hann hefði lækkað forvexti um 0,5% eða úr 9% í 8,5% Þrír af helztu bönkunum í Lond- on lækkuðu vexti sina í dag úr 10% í 9,5%. Þessir bankar voru Nation- al Westminster, Lloyd’s og Mid- land. Fyrr í vikunni hafði Barclay’s lækkaði vexti úr 10% i 9,75%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.