Morgunblaðið - 23.11.1984, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984
63
Frábær leikur
„ÞETTA VAR geysilega skemmti-
legur leikur. Góöar sóknir og
varnir — eins og körfuknattleik-
urinn gerist bestur hór é landi,“
sagöi Gunnar Þorvaröarson,
þjálfari og leikmaöur íslands-
meistara Njarðvíkur, eftir sigur
liösins é Haukum í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í íþróttahús-
inu í Hafnarfirói í gærkvöldi,
93:87. Staðan í hélfleik var 47:44
fyrir Hauka.
„Bæöi liöin eru mjög léttleikandi
og hafa góöum mönnum á aö
skipa, en viö vorum aöeins betri í
kvöld, og þaö skemmir ekki aö
vinna svona leikl," sagöi Gunnar.
,Viö ætlum ekkert aö gefa eftir í
vetur. Stefnum ótrauöir á fs-
landsmeistaratitilinn."
Leikurinn í gærkvöldi var stór-
kostlegur og báöum liöum til
sóma. Leikmenn sýndu glæsileg
tilþrif, hratt spil var einkennandi og
bæöi liö léku skynsamlega. Þegar
svona liö eigast viö má ekkert fara
úrskeiöis — þá er andstæöingur-
inn búinn aö færa sér þaö í nyt.
Leikurinn stóö í járnum fyrstu 8
mín. Staöan var þá 17:15 fyrir
Hauka, en þá náöu þeir góöum
Grimsby heima
gegn Norwich
Dregiö var í ensku mjólkurbik-
arkeppninni í knattspyrnu í gær,
en étta liöa úrslitin eru framund-
an. Eftirtalin lió leika saman:
Grimsby — Norwich
Chelsea — Sheff. Wedn.
Ipswich — QPR/Southampton
Watford — Spurs/Sunderland
kafla og komust í 25:15. Njarövík-
ingar minnkuöu muninn fljótlega
en Haukar höföu þó alltaf nauma
forystu í fyrri hálfleik.
Njarövíkingar tóku forystu strax
í upphafi í siöari hálfleik — komust
í 56:50. Haukar slepptu þeim þó
ekki langt, munurinn varö aldrei
meiri en 3 stig, og Haukar voru
m.a.s. yfir um tíma — örfáum stig-
um.
Undir lokin reyndu Haukarnir
allt sem þeir gátu til aö jafna leik-
inn — léku djarft, en náöu ekki aö
jafna. Þegar þrjár mín. voru eftir
var staöan 85:88 fyrir Njarövík-
inga. Þeir skoruöu þá fimm stig í
röö og geröu út um leikinn. Staöan
þá 85:93.
Eins og áöur sagöi sýndu liöin
körfuknattleik í hæsta gæöaflokki
— og veröur aö telja þaö synd aö
Haukarnir skuli hafa tapaö leik
þegar þeir spila svona vel. En í
þetta sinn voru andstæöingarnír
bara örlítiö betri.
Pálmar Sigurösson var bestur
Haukanna sem oft áöur. „Viö ætl-
uöum okkur aö sigra og því er
auövitaö sárt aö tapa, en Njarövík-
ingar spiluöu mjög vel — bæöi í
vörn og sókn. Hittnin hjá þeim var
gífurleg og þaö er erfitt aö leika
vörn gegn liöi sem þeirra," sagöi
Pálmar eftir leikinn. Segja má aö
Haukarnir hafi allir veriö góöir,
Ólafur, Webster, Reynir, Hálfdán
og Henning svo einhvernir sóu
nefndir. Valur og Árni Lárusson
voru mjög góöir hjá UMFN, einnig
ísak, Gunnar og Jónas.
Stigin. HAUKAR: Pálmar: 24,
ívar Webster 18, Ólafur Rafnsson
17, Hálfdaii 14, Kristinn 6, Reynir 6
og Henning 2. UMFN: Valur 30,
Árni Lárusson 21, isak 20, Gunnar
12, Jónas 6, Helgi Rafnsson 4.
— égés.
• Ivar Webster skorar eina af körfum sfnum f gærkvöldi. Hann lék vel sem og aörir Haukar — en þaö dugöi
ekki aö þessu sinni.
s
Ragnar, herrafata-
verslun, opnar á
morgun í nýju og
glæsilegu húsnædi
við Laugaveg.
Ragnar, herrafata-
verslun, leggur
áherslu á vandaða
vöru og persónulega
þjonustu.
Ragnar, herrafata-
verslun, býður yður
velkominn á nýja
staðirm að Laugavegi
61-63.
Með ftessum áfanga
verslunarinnar væntir
Ragnar og starfsfólk
hans, að þau geti veitt
viðskiptavinum sinum
enn betri þjónustu en
áður.
Ragnak Flytijr í Nótt
Öq Opnar a MORGUN
Verið velkomin í nýju verslunina.