Morgunblaðið - 23.11.1984, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984
13
„Skugga-Sveinn
er andóf við hvers
konar kúgun“
— segir leikstjórinn, Brynja Benediktsdóttir
„Þetta er ástsKÍasta leikverk
samanlagðrar íslenskrar leikritun-
ar og það er skylda okkar að sýna
þau klassísku verk sem við eig-
um,“ sagði leikstjórinn Brynja
Benediktsdóttir, þegar blm. spurði
hana hvers vegna verið væri að
taka Skugga-Svein eða útileg-
umennina til sýninga.
„Við verðum þó að leita sam-
svörunar við samtímann í hvert
sinn sem við setjum klassísk
verk á svið. Við höfum reynt að
leita uppruna verksins, og leitast
við að skerpa andstæður þess,
gamanið á móti harminum, en
það skiptir miklu máli í verkinu.
Við Sigurjón höfum notað kafla
úr Útilegumönnunum til þess að
skerpa þessar andstæður, en við
notum engan annan texta en
þann sem kemur frá hendi
Matthíasar. Við höfum líka farið
þá leið að sviðsetja frekar en að
nota langar atburðalýsingar eins
og þegar Skugga-Sveinn stekkur
í fossinn.
Matthías timasetur verkið á
öndverðri 17. öld, á tíma galdra-
ofsókna, hungurs og mikilla
náttúruhamfara. Leikritið er
skemmtileg þjóðlífsmynd, með
óteljandi skírskotanir í fornsög-
urnar, þjóðsögurnar, rímur og
rómantík, einmitt það sem fólk
sótti til þegar harnðaði á daln-
um. þjóðin hefur fagnað
Skugga-Sveini sem andófi við
hvers konar kúgun."
En á þetta verk eitthvert er-
indi við samtímann?
„Vissulega á það erindi við
samtímann. Við lifum á erfiðum
timum í dag eins og oft áður.
Ég er alveg hugfangin af
Matthíasi og hefur þetta verið
mjög skemmtileg vinna. Ég hef
lesið allt sem ég hef fengið um
Brynja Benediktsdóttir
hann og eftir hann, auk þess sem
ég hef verið að kíkja á langafa-
börn hans svo sem okkar góðu
leikkonu Sigríði Þorvaldsdóttur,
Ragnar Arnalds, sem einu sinn
varð yfirmaður leiklistar í land-
inu, og skáldið Kristján Árnason
sem þýddi Lýsiströtu snilldar-
lega, en öll hafa þau verið vinnu-
félagar mínir. Matthías er nefni-
lega ekki eins langt frá okkur í
tíma eins og við viljum stundum
vera láta.
Persónurnar eru mjög sterk-
mótaðar frá hendi höfundar, og
ég vona að við sjáum okkur sjálf
í þessu fólki, t.d. Grasa-Guddu
og Jóni sterka. Þetta er allt fólk
sem er mjög lifandi meðal ís-
lendinga, svo ég tali nú ekki um
að annað hvert mannsbarn á ís-
landi hefur leitast við að leika
þessar persónur."
FELAGI LESTRARHESTA
Bókaorminn er auðvelt að festa við bókina.
Bókaormurinn gengur fyrir rafmagni eða rafhlöðum - eftir hentugleika.
Bókaorminn er hægt að brjóta saman og flytja með sér.
Bókaormurinn er góður félagi lestrarhesta því jiann gerir þeim kleift
að lesa í einrúmi þótt einhver sofi þeim við hlið.
Rafkaup
Suðurlandsbraut 4 - Sími 81518
Útsölustaðir: Stapafell hf. Keflavík - Raftækjaverslun Sigurðar Inavarssonar Garði - Kiami hf.
Vestmannaeyjum - Kristall hf. Höfn Hornafirði - Verslun Sveins Guomundssonar Egilsstööum - Raforka
hf. Akureyri - Póllinn hf. ísafirði - Ljósvakinn Bolungarvík - Húsið Stykkishólmi.
Ölgeróin
Fosshálsi
27
Break-
sýning
kl.6
markaöurinn
st
nr
*
opnar
kl. 13.00
jólkurst
• Video herbergi
... og við bjóðum
upp á kaffi.
• Fjoldi fyrirtækja
• Mjög hagstætt verð
• Gífurlegt vöruúrval
• Allt til jólanna
3-18
13-19
. 10-16
Hjá okkur komast allir í jólaskap — krónan í
fullu gildi.