Morgunblaðið - 23.11.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.11.1984, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984 Full langt gengið í öreigapólitíkinni Mikil umræða í Svíþjóð um gjaldþrotabú einnar ríkustu konu landsins Eins og sagt var frá í Mbl. í g«r var dánarbú einnar ríkustu konu í Svíþjóð lýst gjaldþrota vegna þess, að með erfðafjárskattinum vildi ríkið taka til sín meira en nam öllum eignunum. Var þó ekki um neina smápeninga að ræða, rúman milljarð ísl. kr., 230 millj. skr. Raunar hafði skatturinn verið miðaður við aðra upphæð, 311 millj. skr., en ekkert tillit tekið til þess, að eignirnar, sem voru að langmestu leyti í hlutabréfum, höfðu rýrnað um rúmar 80 millj. skr. Um þetta mál fer nú fram mikil umræða í sænsku blöðunum. Sally Kistner var ein af rík- ustu konum í Svíþjóð þegar hún lést 25. mars sl. 86 ára að aldri. Hún var ekkja eftir stórkaup- manninn Erik Kistner, sem ásamt öðrum keypti Astra-fyrir- tækið af ríkinu á þriðja tug ald- arinnar. Þá var rekstur þess í molum en Erik tókst að koma undir það fótunum og síðan hef- ur vegur þess lengst af farið vax- Konkursbeslut Oodsboet etter Sally Kistner, 970924 0866, frán Vendevagen 5 A, 182 61 DJU8SH0LM, har den 15 november 1984 forsatts i konkurs vid Sodra Roslags tmgsratt Konkursen handlaggs som mmdre konkurs Tillsynsmyndighet ar kronofogdemyndigheten i Sollentuna distnkt, Box 910, 191 29 SOLLENTUNA 1 Kungorelser om konkursen infors i Dagens Nyheter Konkursdomarens postadress ar Erik Dahlbergsgatan 60. '15 32 STOCKHOLM Auglýsingin um að dánarbú Sally Kistner hefði verið lýst gjaldþrota. andi. Oftast nær hafa hlutabréf þess verið í háu verði en hafa þó fallið allnokkuð að undanförnu. Til þess tóku skattheimtumenn ríkisins þó ekkert tillit þegar þeir reiknuðu út erfðafjárskatt- inn. Erfingjar Sally Kistner eru sonur hennar og barnabarn og skattprósentan því eins lág og hún getur verið lögum sam- kvæmt. Ef erfingjarnir hefðu verið fjarskyldari hefði hún orð- ið enn hærri. Þrátt fyrir það hrukku eigurnar ekki til, erf- ingjarnir tóku gjaldþrot í arf og 20 millj. skr. skuld. Sænsku blöðin gera þessu máli mikil skil og velta því fyrir sér á ýmsa lund. Á það er minnt, að Erik Kistner tók við gjaldþrota fyrirtæki af ríkinu og kom undir það fótunum. Þegar eigéndurnir falla frá kemur svo ríkið aftur til skjalanna og hirðir allan af- raksturinn og raunar meira til. Svíar eru jafnréttissinnaðir í eðli sínu og vilja stilla ríkidæmi einstakra manna í hóf en mörg- um finnst hér fulllangt gengið í öreigapólitíkinni. Folke Kistner, sonur ERiks og Sally Kistner. Hann er hér með mynd af móður sinni, sem líklega hefur talið sig skilja honum annað eftir en skuldasúpu. Suðurnesjabúar Stofnfundur Rauöakrossdeilda á Suður- nesjum veröur haldinn í fundarsal Verka- lýös- og sjómannafélags Keflavíkur, Hafn- argötu 80, laugardaginn 24. nóvember kl. 14.00. Rauöi kross íslands Kína: Segjast ekki eiga hern- aðarsamstarf við ísrael Peking, London, 22. nóvember. AP. KÍNVERJAR vísuðu á bug frétt varn- armálarits Jane’s um að þeir hefðu samið við ísraela um kaup á vopnum fyrir jafnviröi þriggja milljarða dollara og að ísraelar hefðu sent hernaðarráð- gjafa til Kína. Kínverjar eiga vingott 3 dagar, kr. 7.825.- 5 dagar, kr. 8.847.- 7 dagar, kr. 12.116.- við mörg ríki Araba, sem eiga fjand- skap við ísraela. „Við höfum engin samskipti átt við Israel. Fréttin er á sandi reist,“ sagði Qi Shuxue, talsmaður varn- armálaráöuneytisins. Frétt Jane’s er skrifuð frá Tel Aviv, og þótt hún sé ómerkt, sögðu útgefendur ritsins að hún væri byggð á upplýsingum „vel upplýstra heimilda". Jane’s segir samning ísraela og Kínverja „marka þáttaskil í leyni- legum samskiptum" ríkjanna, og bætir því við að stjórnir beggja neiti því að um samstarf þeirra sé að ræða. Allir helztu vopnaframleið- endur í ísrael eiga aðild að vopna- sölusamkomulaginu. Fyrsta vísbendingin um hernað- arsamvinnu Kína og ísraels fékkst þegar vestrænir sendifulltrúar tóku eftir því að ísraelskar fallbyssur voru í kínverskum skriðdrekum, sem tóku þátt í hersýningunni á 35 ára byltingarafmælinu í fyrra mán- uöi. Kína og ísrael hafa engin stjórn- málatengsl, en Jane’s fullyrðir að hernaðarsamvinna ríkjanna hafi hafist með leynilegum samningavið- ræðum fyrir fimm árum, þrátt fyrir stuöning Kínverja við samtök pal- estínskra skæruliða. Segir Jane’s að Kínverjar telji nauðsynlegt að eiga hernaðarsam- vinnu við ísraela þar sem þeir geti notið góðs af vitneskju Ísraela um sovézk hergögn, sem þeir hafa náð í styrjöldum í Miðausturlöndum, við endurnýjun Kínahers. Þægindi Flugleiöir bjóða þér aö velja á milli hótela í Glasgow eða Edinborg. Þessi hótel eru öll fyrsta flokks, en ódýr engu að síður. Við viljum sérstaklega vekja athygli þína á splunkunýju og stórglæsilegu hóteli í Glasgow sem heitir Skean Dhu. Gisting á þessu ágæta hóteli er ótrúlega ódýr. Skemmtun Glasgow státar af afbragðs góðum veitingastöðum og pöbbum í hefðbundnum skoskum stíl. Á fjölum leikhús- anna er alltaf eitthvað spennandi. Einnig er iíklegt að þú lendir á skemmtilegum hljómleikum. Verð Ofangreindar verðtölur fela í sér flug og gistingu í 2 manna herbergi á Skean Dhu. Morgunverður er innifal- inn, en flugvallarskattur bætist við. Sérstakur afsláttur er veittur fyrir börn. Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur FLUGLEIÐIR Gott fbtk hjá traustu félagi Verðbólgan 0,4 prósent Washington, 22. nóvember. AP. VERÐ á vörum og þjónustu í Banda- ríkjunum hækkaði um 0,4% í síðasta mánuði, að því er stjórnvöld greindu frá í gær. Munar þar mest um hækk- un á eldsneyti og matvælum. ÓSA Verðbólga í Bandaríkjunum er nú 4,2%, nokkru lægri en efnahagssér- fræðingar bjuggust við. Þeir höfðu spáð því, að verðbólgan á þessu ári í heild yrði 5%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.