Morgunblaðið - 23.11.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984
21
Morðingi fær líftrygg-
ingu fórnarlamba sinna
Stokkbólmi, 22. nóvember. AP.
SVÍI nokkur, sem myrti konu sína og tvö börn þeirra, hefur fengið
greiddar ríflega 200 þúsund sænskar krónur (sem er jafnvirði tæplega
einnar milljónar ísl. króna) frá tryggingafélaginu, sem líftryggði þau, þar
sem hann er hinn eini í fjölskyldunni, sem er i lífi.
Það var Gerd Lundvall, sem er
yfir greiðsludeild Polksam-
tryggingarfélagsins í Stokk-
hólmi, sem greindi frá þessu í
dag. Hann sagði að samkvæmt
sænskum lögum mætti arfur
manns, sem myrtur hefur verið,
ekki ganga til morðingjans, en
frá þessu væri undantekning ef
morðingi er ósjálfráður gerða
sinna vegna geðveiki þegar hann
fremur verknaðinn. „Við erum
aðeins að sinna lagalegri skyldu
okkar,“ sagði Lundvall.
Nafn mannsins, sem er 41 árs
að aldri, hefur ekki verið birt
opinberlega. Hann var tekinn
höndum í nóvember á síðasta ári
eftir að hafa kyrkt konu sína og
stungið börnin til bana með hníf.
Konan hafði farið fram á skilnað
skömmu áður. Maðurinn reyndi
að fyrirfara sér eftir ódæðis-
verkið, en lífi hans var bjargað.
Dómstóllinn, sem fór með
málið, sýknaði manninn af
morðákæru, þar sem hann hefði
verið sturlaður á verknaðar-
stund, og úrskurðaði hann til
ótímabundinnar vistar á geð-
veikrahæli. Maðurinn var hins
vegar látinn laus í september,
aðeins níu mánuðum eftir að at-
vikið átti sér stað.
Rolf Moberg, sem er lögfræð-
ingur mannsins, sagði í viðtali
við Aftonbladet, að geðlæknar á
hælinu, þar sem maðurinn
dvaldi, litu svo á, að hann hefði
engum verið hættulegur nema
sjálfum sér þegar hann var út-
skrifaður.
Maðurinn hefur nú stefnt
fyrirtækinu, sem hann starfaði
hjá, kaupfélagi i litlum bæ í
Varmalandi, fyrir að hafa svipt
sig atvinnunni með ólögmætum
hætti. Samkvæmt sænskum lög-
um er óheimilt að víkja manni
úr starfi vegna sjúkleika. Hefur
maðurinn krafist þess að fá
greiddar 66 þúsund krónur (jafn-
virði um 300 þúsund ísl. króna) í
skaðabætur.
Vestur-Þýskaland:
Kujau í gæslu-
varðhaldi á nv
Hmmborg, 22. nóvember. AP. ^
KONRAD Kujau, sem vidurkennt
hefur að hafa falsað hinar
svonefndu „dagbækur Hitlers“, var
í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald á
ný eftir að hafa gengið laus í eina
viku. Réttarhöld standa enn yfir (
máli hans.
Dómarinn í máli ákæruvaldsins
gegn Kujau féllst á þá röksemd
saksóknara, að Kujau kynni að
reyna að komast úr landi og væri
of mikil áhætta tekin með því að
láta hann ganga lausan.
Kujau, sem er 46 ára gamall
minjasali, hefur setið í gæslu-
varðhaldi í hálft annað ár. Gerd
Heideman, fyrrum blaðamaður á
vikuritinu Stern, sem kom hinum
fölsuðu dagbókum á framfæri, sit-
ur einnig í gæsluvist. Hann segist
ekki hafa vitað að þær voru fals-
aðar. Ef þeir verða sekir fundnir
um fjársvik og blekkingar geta
þeir átt yfir höfði sér allt að 10
ára fangelsisdóm.
Réttarhöldin yfir Kujau og
Heideman hófust i ágúst og er
ekki búist við að þeim ljúki fyrr en
eftir um fimm mánuði.
Stradivarius-fiðlan, sem í dag var seld á uppboði í London fyrir hæsta
verð sem greitt hefur verið fyrir hljóðfæri fyrr og síðar: um 19 milljónir
ísl. króna. Kaupandinn, sem er hljóðfærasali í London, segist hafa boðið
í hana fyrir ónefndan mann á meginlandi Evrópu. „Sá leikur á fiðlu, en er
ekki hljóðfæraleikari að atvinnu," sagði hann.
Fiðla á 19 milljónir
London, 22. nóvember. AP.
UPPBOÐSFYRIRTÆKIÐ Sotheby í London seldi í dag Stradivarius-
fiðlu fyrir 3% þúsund sterlingspund (sem er jafnvirði rúmlega 19
milljóna íslenskra króna). Það er hæsta verð, sem nokkru sinni hefur
verið greitt fyrir hljóðfæri.
Kaupandinn var Peter Bidd- handverksmanninum Antonio
ulph, sem er einn umsvifamesti Stradivari árið 1707 og hefur
kaupsýslumaður með hljóðfæri í gengið undir nafninu „La Cathe-
borginni. drale" vegna tónanna, sem hún
Fiðlan var smíðuð af ítalska gefur.
Noregur:
Vínútsölur opn-
ar á laugardögum
Ösló, 22. nóvember. Frá Jan Erik Laure, frétUriUra Mbl.
VÍNEINKASÖLUR norska ríkisins
verða á ný opnar á laugardögum, en
hafa verið lokaðar á þeim vikudög-
um nú um hálfs árs skeið. Var það
gert í því skyni að ganga úr skugga
um, hvort draga mundi úr áfengis-
neyslu við lokunina.
Á sama tíma var áfram haft
opið í áfengisútsölum í sex bæjum.
Niðurstöður rannsóknar, sem gerð
var af þessu tilefni, sýndu, að
drykkjuskapur, drykkjulæti og
misnotkun áfengis reyndist ekki
minni í bæjunum sem höfðu lokað
á laugardögum en í hinum sem
höfðu opið í áfengisútsölunum.
gMflígíL
mMátm
«ÍJ=jkI W'< " '/í
toseam
Wtotoi
ú
11 i
m
ppmw
Viltu rytjerupp
stafsetninguna?
Mjög margir finna til óöryggis þegar
skrifa á bréf, útbúa skýrslu eða skrifa
fundargerð.
Margar og flóknar ritreglur þvælast fyrir
og eru til eintómra leiðinda - á meðan
víðkomandi hefur þær ekki á valdi sínu.
Þessu viljum við breyta. Við viljum auka
öryggi þitt gagnvart stafsetningunni og
um leið frelsi þitt til að tjá þig skriflega.
Þess vegna efnum við til
10 daga námskeiðs
í stafsetningu
dagana 26. nóvember - 9. desember.
Kennt verður frá kl. 16.00-18.00 alla virka daga.
Kennarar Kristín Jónsdóttir og Lilja Hilmarsdóttir.
Verð kr. 3.500.- (öll kennslugögn innifalin).
20% afsláttur fyrir félaga í Stjórnunarfélagi íslands.
VtSA
MÁLASKÓUNN
BRAUTARHOtTl 4
Pátttaka tilkynnist eftir kL 13.00
í síma 10004-11109
LfMrtíKl
piW
í!iiMíiö®a
AMERÍKA
PORT3MOUTH/NORFOLK
Clty ot Perth 29. nóv.
Bakkafoss 12. des.
Laxfoss 19. des.
City of Perth 28. des.
NEW YORK
City of Perth 27. nóv.
Bakkafoss 11. des.
Laxfoss 17. des.
City ot Perth 26. des.
HAUFAX
Laxfoss 22. des.
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 25. nóv.
Álafoss 2. des.
Wessel 9. des.
Aiafoss 16. des.
FEUXSTOWE
Eyrarfoss 26. nóv.
Alafoss 3. des.
Vessel 10. des.
Álafoss 17. des.
ANTWERPEN
Eyrarfoss 27. nóv.
Álafoss 4. des.
Vessel 11. des.
Álafoss 18. des.
ROTTERDAM
Eyrarfoss 28. nóv.
Álafoss 5. des.
Vessel 12. des.
Alafoss 19. des.
HAMBORG
Eyrarfoss 29. nóv.
Alafoss 6. des.
Vessel 13. des.
Alafoss 20. des.
GARSTON
Helgey 26. nóv.
U8SABON
Skeiósfoss 12. des
LEIXOES
Skeiösfoss 13. des.
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Lagarfoss 23. nóv.
Skógafoss 30. nóv.
Lagarfoss 7. des.
Skógafoss 14. des.
KRISTIANSAND
Lagarfoss 26. nóv.
Skógafoss 3. des.
Lagarfoss 11. des.
Skógafoss 17. des.
MOSS
Lagarfoss 23. nóv.
Skógafoss 4. des.
Lagarfoss 7. des.
Skógafoss 18. des.
HORSENS
Skógafoss 6. des.
GAUTABORG
Lagarfoss k 28. nóv.
Skógafoss 5. des.
Lagarfoss 12. nóv.
Skógafoss 19. des.
KAUPMANNAHÖFN
Lagarfoss 29. nóv.
Skógafoss 7. des.
Lagarfoss 13. des.
Skógafoss 20. des.
HELSiNGJABORG
Lagarfoss 30. nóv.
Skógafoss 7 des
Lagarfoss 14. des.
Skógafoss 21. nóv.
HELSINKI
írafoss 23. nóv.
Irafoss 17. des.
GDYNIA
Irafoss 28. nóv.
írafoss 21. des
TORSHAVN
Skógafoss 1. des
N. KÖPING
írafoss 26. nóv
Iratoss 21. des
T ; itrrr
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram ogtil baka
fra REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
fra AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP
*