Morgunblaðið - 23.11.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984
23
Sovétríkin:
Fullkomnustu þotur
í notkun á Sakhalin
Tókýó, 22. nÓTember. AP.
SOVÉTMENN hafa tekid nýjustu og
fullkomnustu MIG-orrustuþotur sín-
ar í notkun á Sakhalin-eyju norður
af Japan í þeim tilgangi að stórefla
loftvarnir sínar þar um slóðir, að
sögn japanskra blaða.
t flugstöð nærri Dolinsk, sem er
skammt norður af helztu borg eyj-
unnar, Yuzhno Sakhalinsk, eru
þegar í notkun 10 Mikoyan MIG-
31 þotur, sem gefið hefur verið
viðurnefnið „Foxhound" af Norð-
ur-Atlantshafsbandalaginu,
NATO.
Samkvæmt upplýsingum banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins er
MIG-31 fyrsta bardagaflugvél
Rússa, sem flogið getur i mikilli
flughæð og séð og skotið á flugvél-
ar og stýriflaugar, sem fljúga rétt
yfir yfirborði jarðar. Þær geta
einnig elt uppi háfleygar flugvélar
og flaugar.
Voru Bítlarnir
hlunnfarnir?
London, 22. nóvember. AP.
BRESKU Bítlarnir voru hlunnfarnir
í viðskiptum sínum við fyrirtækið,
sem gaf hljómplötur þeirra út, ó
þeim tíma er vinsældir þeirra voru
hvað mestar, að því er lögfræðingur
þeirra sagði við réttarhöld í London
í gær.
Það er fyrirtækið Apple Re-
cords, sem er í eigu hinna þriggja
eftirlifandi Bítla, Pauls McCart-
neys, George Harrison og Ringos
Starr, og Yoko Ono, ekkju John
Lennon, sem stefnt hefur EMI
Records, umboðsfyrirtæki Bítl-
anna á árunum 1962—1970.
Lögfræðingur Apple, Robert
Gatehouse, segir að um verulegar
vangreiðslur EMI á höfundarlaun-
um sé að ræða. Forráðamenn EMI
segjast hins vegar ekki skulda
Bítlunum neitt. Talið er að rétt-
arhöld i máli þessu, sem hófust í
dag, muni standa í þrjár til fjórar
vikur.
ERLENT
Jenkin í bílslysi
Londoa, 22. oÓTember. AP.
PATRICK Jenkin umhverfisráð-
herra varð að gista í sjúkrahúsi í
nótt vegna meiósla sem hann hlaut í
umferðarslysi í austurhluta London í
gærkvöldi er hann var á heimleið úr
kjördæmi sínu f norðausturhluta
London, Wanstead.
Ráðherrabifreið Jenkins lenti í
árekstri viö aðra fólksbifreið með
þeim afleiðingum að Jenkin slas-
aðist lítillega. Bílstjóri ráðherrans
slapp nær ómeiddur, en Norman
Miscampbell, þingmaður Ihalds-
flokksins, sem var samferða Jenk-
in, hlaut meiðsl á fótum og varð
einnig að dveljast i sjúkrahúsi i
nótt.
Japanir segjast mega
veiða hvali eftir 1988
Tókýé, 22.nó»ember. AP.
JAPANSKIR embættismenn sögðu í
dag að Bandaríkjastjórn hefði rang-
túlkað nýgerðan samning um hval-
veiðar og béldu því fram að Japanir
hefðu rétt til að halda áfram hval-
veiðum eftir 1988.
Bandaríska viðskiptaráðuneytið
tilkynnti í síðustu viku að sam-
kvæmt málamiðlunarsamkomu-
lagi við Japani fengju þeir að
veiða búrhveli til 1988 án þess að
missa rétt til fiskveiða á banda-
riskum miðum, en skorað væri á
þá að hætta hvalveiðum eftir 1988.
Hiroya Sand, framkvæmda-
stjóri japönsku fiskimálastofnun-
arinnar, sagði að sendinefnd Jap-
ana hefði einungis farið til Wash-
ington til að ræða veiðar á búr-
hvelum og ekki rætt hvalveiðar al-
mennt.
Shigeru Hasui, formaður jap-
anska hvalveiðifélagsins, sagði að
samkomulag Japana og Banda-
ríkjamanna næði aðeins til veiða á
búrhvelum og neitaði því að I sam-
komulaginu væri skorað á Japani
að hætta hvalveiðum eftir 1988.
„Við höfum enga ástæðu til að
hætta hvalveiðum," sagði hann.
Bandarískt umhverfisverndar-
fólk hefur gagnrýnt samkomulag-
ið, en af öðrum ástæðum. Það
heldur þvi fram að Bandaríkja-
stjórn brjóti innlend lög, sem gera
ráð fyrir ströngum refsiaðgerðum
gegn þjóðum, sem halda áfram
hvalveiðum.
Japanir veiða mest af hrefnu og
halda því fram að veiðar þeirra
stofni ekki hrefnu eða nokkrum
öðrum tegundum í hættu.
Er MIG-31 búin fullkomnustu
ratsjám, tölvubúnaði og sérstök-
um flugskeytum til þessara hluta,
auk þess sem hreyflarnir eru afl-
meiri. Framleiddar hafa verið 50
þotur þessarar tegundar og talið
er að auk Sakhlin séu þær helzt
staðsettar í Murmansk og nærri
Moskvu.
Talið er að það sé Rússum
keppikefli að efla loftvarnir sínar
í austri, því margar sovézkar
orrustuþotur brugðust í fyrra er
þeim mistókst að elta uppi kór-
ezku farþegaþotuna, sem Rússar
skutu niður fyrir rösku ári. Send-
ar voru upp orrustuþotur frá
Kamtchaka, en þær náðu ekki
þotu KAL. Það var ekki fyrr en
kóreska þotan var búin að fljúga i
sovézkri lofthelgi í 2lk klukku-
stund að Sukhoi-15-þota frá Sakh-
alin tókst að elta þotuna uppi.
Orrustuþotan grandaði þotunni
með 269 manns innanborðs, eins
og víðfrægt er.
Inn í Súdan
Eþíópískir flóttamenn fara yfir landamæri Súdans með aleiguna. Ferð-
inni er heitið í flóttamannabúðir. Þessi hópur fór rúmlega 250 km
vegalengd fótgangandi og var níu sólarhringa á leiðinni frá bænum
Sherato I héraðinu Tigre < Eþfópíu.
Indland:
452 fórust
í óveðri
Delhí. 22. nóvember. AP.
AFLEIÐINGAR fárviðris í síðustu
viku og úrhellis sem því fylgdi eru
betur og betur að koma í Ijós og er
tala látinna af völdum veðursins
komin í 452, að sögn yfirvalda.
í fylkinu Andhra Pradesh fór-
ust 393 og vitað er um 59 látna i
nágrannafylkinu Tamil Nadu.
Oveðrið sleit niður rafmagns-
og símalínur og lagði 30 þúsund
leirkofa í rúst. Rúmlega 64 þúsund
nautgripir féllu, 65 þúsund íbúð-
arhús stórskemmdust eða eyði-
lögðust og mikið tjón varð á nær
87 þúsund hekturum akurlendis.
Hjá okkur færðu öll tæki og efni til logsuðu og rafsuðu.
Við bjóðum aðeins viðurkenndar, vandaðar vörur.
tttf
Sænska gæðamerkið
GASMÆLAR margargerðir. Fyrir
Acetylen, Oxygen, Kolsýru, Argon
Blandgas og Própan.
LOGSUÐUTÆKI til iðnaðar- og tóm-
stundastarfa. Mjög hentugttil nota við
allskonar viðgerðir og nýsmíðart.d.
í landbúnaði.
Mjög meðfærileg tæki.
VANDAÐAR RAFSUÐUVÉLAR Marg-
ar gerðir. Transarar, jafnstraumsvélar
og Mig Mag vélar. Hentugartil nota
í smiðjum og á verkstæðum. Litlar
vélar til tómstundastarfa sem stórar
iðnaðarvélar.
Gott verð.
RAFSUÐUVÍR margar tegundir.
Pinnasuðuvírog vír á rúllum.
Hátt í 40 tegundir.
um land allt