Morgunblaðið - 23.11.1984, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984
47
Við systkinin frá Hverfisgötu 4,
Siglufirði vorum lánsöm að eiga
Guðveigu Stefánsdóttur að
frænku. Alla tíð var hún vakin og
sofin í velferð okkar og hjá þeim
Agli áttum við alltaf öruggt skjól í
Reykjavík. Og það sem meira er;
börn okkar og barnabörn nutu
þessa sama. Og ekki bara við,
heldur öll hennar frændsystkini,
þeirra fólk og margir aðrir, sem
frænka tók ástfóstri við. Til alls
þessa var faðmur frænku nógu
stór og kærleiksríkur.
Enga konu veit ég glæsilegri I
íslenzkum þjóðbúningi en frænku,
enda bar hún virðingu fyrir sér-
hverjum hlut hans. Það er mér því
persónulega stærsta gjöfin, sem
ég þáði af frænku fyrir utan henn-
ar kærleika, að hún skyldi trúa
mér og treysta til að bera þjóð-
búninginn hennar áfram að henni
genginni.
Tvö síðustu árin fór heilsu
frænku hrakandi. Hún gaf á með-
an hún gat, en mín gleði var að
geta veitt henni stuðning og at-
hvarf síðasta tímann. Það er mér
skylt að þakka eiginmanni mfnum
og sonum. Og þegar þetta athvarf
dugði ekki lengur eitt og sér, þá
varð Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund lausnin. Fyrir þá elsku,
sem hún mætti þar, erum við öll,
systkini hennar og við hin, sem
áttum frænku og ömmu í Meðal-
holti, innilega þakklát.
Guðveig Stefánsdóttir var kona
einlæg í trú sinni. Sjálf miklaði
hún sig aldrei af verkum sínum.
En svo mikilhæf var hún, að það
var henni átakalaust að sýna sér-
hverju verki, smáu sem stóru, full-
komna virðingu.
Blessuð sé minning hennar.
Sigríður Jóhannsdóttir
sem fjölskylda hans samanstóð af.
Eru mér alltaf ákaflega minnis-
stæð kynni mín af foreldrum
hans, spilakvöldin í Sjálfstæðis-
húsinu, heimsóknirnar um borð til
Hafliða, barnapössunin hjá Siddý
og svona mætti lengi telja. Ekki
get ég látið hjá líða að þakka Há-
koni sérstaklega þá vináttu og það
trygglyndi sem hann hefur sýnt
fjölskyldu minni bæði fyrr og síð-
ar, sérstaklega þær hlýlegu jóla-
kveðjur sem Tiann hefur sent for-
eldrum mínum og móður minni
eftir að hún varð ein. Hafa þær
kveðjur ávallt verið mikils metn-
ar.
Að síðustu vil ég koma á fram-
færi þakklæti til allra þeirra sem
studdu Hákon og styrktu í veik-
indum hans og erfiðleikum.
Ég sendi ættingjum Hákonar
samúðarkveðjur með þakklæti
fyrir ánægjulegar samverustundir
fyrr og síðar, um leið og ég óska
Hákoni góðrar ferðar um bjartan
og breiðan veg.
Hjörtur Benediktsson
Kertastjakí
3ja arma, gler- og silfurplett.
Verð kr. 605,-
Kertastjaki
Gler- og silfurplett.
Varð kr. 298,-
Heimsþekkt fyrir IflRIT
fyrstaflokks útfærslu
á fáguöum stíl. a §*
í skemmtilegum gjafaumbúöum
— áótrúlega góöu veröi.
HðrpucNskur
Avaxtabakki,
(27,5x22,5 cm).
Varð kr. 280,-
6305 ilangt ofntast glerfat í silfurplettgrinð
með loki (19X30cm). Verð kr. ____
silfurplett
Mokkakaffisett
6 stk. mokkakaffiglös í silfurplett-umgjörð á bakka.
Verð kr. 1.072,-
6308 Ávalt ofnfast 1
glerfat í silfurplettgrind
með loki. (15x24cm)
Verð kr. 1.480,-
6207 Þriskipt salatskál '' ••
á silfurplettbakka. (Þvermál 24cm).
Verð kr. 800,-
5896 6 stk. glasabakkar
í grind. Silfurplett
(12X11,5cm). Verð kr 550,-
6202 Kringlótt 5 skipt salatskál í
silfurplettgrind (Þvermál 36cm).
Verð kr 1.290,-
RAMMAGERÐIN
KRISTALL&POSTULlN
HAFNARSTRÆTl I9 REYKJAVÍK
Póstsendum um allt land
1007. MEIRI LYSING
OSRAM halogen perur lýsa 100/- meira en
venjulegar perur og endast tvöfalt lengur.
OSRAM fæst hjá
HINN VELUPPLÝSTI MAÐUR
ER MEÐ PERUNAÍLAGI
OSRAM