Morgunblaðið - 23.11.1984, Page 52
52
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1984
Svíadrottning
vill eyða meiri tíma með
börnunum sínum
Hann verður að halda áfram að dansa til
þess að geta borgað skattinn.
Deilir herbergi
með
Brooke
Shields
■sr
r
Þeir eru margir sem eflaust vildu skipta við Isobel Coles um herbergi. Hvers vegna? Jú, því
herbergisfélagi hennar á skólavistinni er engin önnur en Brooke Shields. Hér á myndinni eru
þær að spóka sig á Manhattan-eyjunni, en þær búa á vist Princeton-háskólans. ótrúlegt að stjarna
eins og Brooke fari að deila herbergi með einhverjum. En þetta eru víst skólareglurnar og enginn
kemst fram hjá þeim ...
MORRIS
REDMAN
SPIVACK
Að setja
á svið
leikrit
gengur að mér og segist muna eft-
ir mér. Og þetta hlýjar manni um
hjartarætur. Nú vonast ég að geta
verið hérna í nokkur ár og teiknað
það sem ég á eftir af fslending-
um.“
Hér á landi er staddur Morris
Redman Spivack, sem margir
kannast eflaust við þar sem hann
hefur nokkrum sinnum komið til
landsins, ferðast um og teiknað
andlitsmyndir af fólki. í þetta
skipti er þó koman til íslands af
annarri ástæðu. Hann hyggst
setja á svið leikrit nokkuð sem
hann hefur sjálfur samið, og blm.
fór og spjallaði örlítið við hann af
því tilefni.
„Þetta leikrit nefnist „The piece
machine," og hefur í rauninni ver-
ið í smíðum í 55 ár. Ég ritaði upp-
__ haflega frumritið 1930 en það var
fyrst sett á svið 1938, þá til að
mótmæla Hitler. í dag er leikritið
aðeins endurbætt til að fjalla um
kjarnorku og vinna að friði í heim-
inum. Ef allir menn sameinast um
frið þá verður friður og spurning-
in er bara hvort við kjósum frið
eða ekki.
Þetta leikrit var sýnt í Uppsöl-
um f desember 1981 og mun verða
sýnt einu sinni hérlendis. Leikritið
tekur um eina klukkustund og
sýningin verður að öllum líkindum
9. desember."
— Fjármagnar þú sjálfur leik-
ritið?
„Já, það geri ég aigjörlega, en
það sem kemur inn af sýningunni
mun renna í vasa leikaranna. Ég
hef þegar fengið einn leikara í lið
með mér en vantar nokkra i við-
bót, svo ef einhver les viðtalið og
hefur áhuga má hann hafa sam-
band við mig. Hver leikari hefur
siðan á sinum snærum mörg hlut-
verk.“
— Hvenær komstu fyrst til
landsins?
„Það var í janúar 1965 og þetta
er í sjöunda skipti sem ég kem
núna. Ég hef ferðast um landið
þvert og endilangt og málað and-
litsmyndir. Annars ferðast ég um
allan heiminn og teikna, er reynd-
ar nýkominn frá Kína. Veistu, ís-
land er samt uppáhaldslandið
mitt. Það er eina landið sem kann
að meta mig og mina hæfileika.
Flestir muna eftir mér og þegar ég
kem til landsins er ég varla lentur
á flugvellinum þegar einhver
Svo virðist sem það sé ekki
neinn dans á rósum að til-
heyra konungsfjölskyldu. A.m.k.
kvartar Sylvía Svíadrottning sáran
yfir því hve litlum tíma þau hjón
geti eytt með börnum sínum þrem-
ur, Victoriu, Carli Philip og Made-
leine, vegna ýmissa anna er til-
heyra konungstigninni. Drottning-
unni finnst einnig að börnin fái of
sjaldan tækifæri til að hitta móð-
urfólkið sitt, ömmu og afa, og hefur
Sylvía ítrekað reynt að fá foreldra*
sína til að flytjast til Svíþjóðar, en
enn án árangurs. Eina stundin sem
þeim hjónum gefst með börnum
sínum er við morgunverðarborðið.
Vænkast hagur Vanessu
Vanessa Williams, fyrrum Ungfrú Ameríka,
sem missti titilinn þegar nektarmyndir birt-
ust af henni í Penthouse-tímaritinu, er nú aftur
komin á kreik og að þessu sinni kappklædd.
Vanessa hafði flest til að bera sem prýða má
eina konu, fegurð, gáfur og hæfileika. Þegar hún
var kjörin Ungfrú Ameríka virtust þvi allar dyr
standa henni opnar en allt í einu birtustaf henni
myndir í Penthouse þar sem hún var allsnakin I
ástarleikjum með annarri konu. Var hún þá um-
svifalaust svipt titlinum og mátti heita útskúfuð
og bannfærð kona um stund.
Nú er farið að rætast úr fyrir
Vanessu, en það byrjaði með því,
að tímaritið Éssence birti af
henni opnumynd inni í
blaðinu í september sl.
Síðan fékk hún hlutverk
í La Boheme, sem nú er
verið að setja á svið í
New York með
rokkstjörnunni Lindu
Ronstadt í aðalhlutverl
og fyrir skemmstu va
hún valin í gestahlutverk í
nýjum leynilögregluþætti í
sjónvarpi með Loni
Anderson og Lyndu Carter
í aðalhlutverkum.
Þó lítill tími gefíst til að sinna
börnunum geta konungshjónin öðru
hverju sloppið frá önnum og helgað
sig ungunum slnum.
Konungshjónin eiga miklum vin-
sældum að fagna og segist Sylvía
reyna allt hvað hún geti til að vera
bara hún sjálf.