Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 1
72 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
240. tbl. 71. árg.
MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Harmleikurinn í Bhobal á Indlandi:
Yfir þúsund dánir
af völdum eitrunar
Bhopal, Indlandi, 4. desember. AP.
YFIR EITT þúsund manns höfðu í dag látið lífið af völdum gaseitrunar í
borginni Bhopal í Mið-Indlandi og er óttazt, að sú tala eigi enn eftir að hækka.
Um 20.000 manns liggja alvarlega veikir af gaseitruninni og er talið, að fæstir
þeirra muni nokkru sinni ná sér að fullu. í hópi hinna látnu eru einkum gamalt
fólk og börn, sem ekki gátu forðað sér í tíma undan eiturgasinu.
Bhobal var í dag líkust drauga-
borg með yfirgefnum húsum og
mannvirkjum, en íbúar þar voru
tæp ein milljón. Læknar og hjúkr-
unarfólk leituðu að þeim fórnar-
lömbum gaseitrunarinnar, sem enn
kynnu að finnast ósjálfbjarga í
borginni. Á götum borgarinnar var
óhuganlegt umhorfs, en þær voru
þaktar hræjum af dauðum naut-
gripum, hundum og fuglum.
Læknar telja mikla hættu á því,
að margir þeirra, sem urðu fyrir
eitruninni, muni missa sjónina og
að margar konur muni ekki geta
alið börn framar. Gert er ráð fyrir,
að um 200.000 manns hafi orðið
fyrir meiri eða minni gaseitrun og
er útilokað að svo stöddu að gera
sér grein fyrir heilsutjóni alls
þessa fólks í framtíðinni.
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, heimsótti Bhopal í dag og
kynnti sér ástandið í borginni.
Sagði hann, að stjórn sín hefði tek-
ið þá ákvörðun að leyfa aldrei
framar framleiðslu á hættulegum
efnum í þéttbýli. Jafnframt hefði
fyrirtækið Union Carbide Corp.
verið skyldað til þess að greiða
þeim skaðabætur, sem ættu um
sárt að binda af völdum gaseitrun-
arinnar, en Union Carbide er eig-
andi verksmiðjunnar, sem eitur-
gasið lak út frá.
Fimm af yfirmönnum verksmiðj-
unnar hafa verið handteknir fyrir
vanrækslu í starfi.
Kosningarnar á Grenada:
Nýi þjóðarflokkurinn
vann yfirburðasigur
SL Georges, Grenada, 4. desember. AP.
NÝI þjóóarflokkurinn undir forystu
Herberts Blaize vann mikinn sigur í
þingkosningunum, sem fram fóru á
eynni Grenada á mánudag. Höföu
frambjóöendur flokksins sigrað í öll-
um þeim 11 kjördæmum, þar sem
talningu var lokið í dag. Jafnframt
voru allar horfur á því, aö flokkurinn
Kjörstjóri í einu af kjördæmum Grenada sést hér halda á atkvæðaseðli við
atkvæðatalningu eftir þingkosningarnar, sem þar fóru fram á mánudag.
ynni sigur í þremur af þeim fjórum
kjördæmum, þar sem endanleg úrslit
voru enn ekki kunn. Fimmtán þing-
menn eiga sæti á hinu nýja þjóðþingi
Grenada.
Kjörsókn í kosningunum var um
90%, en á kjörskrá voru 48.000
manns. „Kjósendur hafa gefið Nýja
þjóðarflokknum afdráttarlaust um-
boð til þess að koma Grenada á
réttan kjöl aftur," sagði Blaize á
fundi með stuðningsmönnum sínum
í dag. Kvaðst hann nú myndu vinda
að því bráðan bug að mynda nýja
ríkisstjórn á Grenada.
í Sovétríkjunum var Blaize í dag
kallaður „skósveinn Bandaríkj-
anna“ og því haldið fram, að þing-
kosningarnar hefðu verið „sýning
ein, haldnar í því skyni að gefa
nýrri stjórn yfirbragð, sem væri
hún löglega kjörin, enda þótt það
hefðu verið ráðamenn í Washing-
ton, sem komu henni til valda."
Sjá nánar: „Leita alltaf að hinu
jákvæða," á bls 33.
(AP-símamynd)
Fórnarlömb gaseitrunarinnar
Hér sést hvar líkum er raðað upp við líkhús í indversku borginni Bhobal
í gær. Talið er, að gaslekinn þar sé hörmulegasta slys sinnar tegundar,
sem nokkru sinni hefur átt sér stað í heiminum til þessa. Gaslekinn varð
úr verksmiðju, sem framleiðir skordýraeitur.
Maimvirkjasjóður NATO:
40 % aukning
á framlögum
Brussel, 4. desember. AP.
Varnarmálaráðherrar ríkja Atlantshafsbandalagsins samþykktu í dag aö
verja nærri átta milljörðum dollara á næstu sex árum í tækjabúnað og
aðstöðu í Evrópu, sem notuö yrði af bandarískum liðsauka, sem sendur yröi
til Evrópu á stríðstíma, að sögn brezkra heimildarmanna. Er hér um að ræða
40% aukningu miðað við núverandi framlög til Mannvirkjasjóðs bandalags-
ins.
Fjármagnið verður notað til
endurnýja flugvelli, fjarskipta-
Himgursneyðin í Eþíópíu:
Borgarastríðið hindrar
hjálp til fímm milljóna
Nairobi, Kenýa, 4. desember. AP.
AÐEINS ein milljón af þeim rösklega sex milljónum Eþíópíubúa, sem nú
þjást af hungri vegna hallærisins í landinu, nýtur matvælasendinga, aö því
er haft er eftir Anders Wijkman, framkvæmdastjóra sænska Rauða kross-
íns.
Wijkman, sem ferðaðist milli
hjálparstöðva Rauða krossins í
Eþíópíu í síðustu viku, segir að
bardagar stjórnarhersins og
skæruliða séu höfuðástæðan fyrir
því að ekki reynist unnt að koma
matvælum hjálparstofnana á
áfangastaði. Slæmar samgöngur í
norðurhluta landsins valdi einnig
alvarlegum erfiðleikum á flutn-
ingum matvæla. Hann sagði að
hjálparstofnanir Sameinuðu
þjóðanna og fleiri aðilar hefðu
hvatt marxísku herstjórnina í
Addis Ababa til að koma á vopna-
hléi svo hægt væri að hefjast
handa um dreifingu matvæla til
hinna bágstöddu.
Þjóðfrelsishreyfing Erítreu-
manna í norðurhluta Eþíópíu,
sem er ein margra skæruliða-
samtaka sem berjast gegn stjórn-
inni í Addis Ababa, hefur lýst sig
fylgjandi vopnahléi á meðan mat-
vælum sé komið til hungraðra, en
Mengistu Haile Nariam, leiðtogi
herstjórnarinnar, hefur hafnað
þeirri tillögu. Hann fullyrðir að
stjórn sín geti tryggt, að þeir sem
þurfa á matargjöfum að halda fái
þær.
neyðar-
manna
Framkvæmdastjóri sænska
Rauða krossins kvaðst óttast að
nú væri farið að draga úr fjár-
hagsaðstoð og matargjöfum til
Eþíópíu. Hann hvatti ríkisstjórn-
ir og hjálparstofnanir til að halda
neyðaraðstoðinni áfram, og sagði
ennfremur nauðsynlegt, að skipu-
leggja hjálparstarf I Eþíópíu og
öðrum Afríkuríkjum í framtíð-
inni, svo komast mætti hjá hörm-
ungum eins og þeim sem heims-
byggðin hefur orðið vitni að.
búnað og til að reisa styrkt flug-
skýli fyrir bandarískar orrustu-
þotur sem sendar yrðu til Evrópu í
mikium mæli í upphafi átaka.
Bandarikin og Vestur-Þýzka-
land munu borga helming fram-
laganna í Mannvirkjasjóðinn, en
önnur bandalagsríki það sem á
vantar. Framlög til sjóðsins voru
m.a. aukin vegna gagnrýni á
Bandaríkjaþingi þess efnis að
Evrópuríkin tækju ekki nógu mik-
inn þátt í sameiginlegum vörnum
bandalagsins.
Búist er við að ráðherrarnir
ákveði einnig að auka skotfæra-
birgðir bandarisks liðsauka í Evr-
ópu svo þær nægi í a.m.k. 30 daga
í hefðbundnum átökum.
Ráðherrarnir tilkynntu að Evr-
ópuríkin myndu á næsta ári halda
áfram endurnýjun eigin herafla
og vopna og 1 því skyni taka í
notkun samtals 740 nýja skrið-
dreka, 850 ný stórskotavopn, 280
nýjar orrustuflugvélar og eitt
flugmóðurskip.