Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984 35 Kimni sér ekki hóf Melbourne. 4. desember. AP. A meðfyigjandi mynd má sjá páfagaukinn „Cocky“ og svo sem sjá má enn fremur er eins gott að loftslag í Ástralíu er milt. Það fór illa fyrir Cocky er hann fékk um daginn uppáhaldsmat sinn, sól- blómafræ. Réðist hann á mat sinn af slíkri áfergju, að líkaminn mótmælti. Fékk Cocky slíkt ofnæmi, að hver fjöður hrundi úr ham hans. En Cocky jafnaði sig og hefði mátt ætla að honum líkaði lífið illa svo fáklæddur, en það var eitthvað annað! Þvert á móti líkaði fuglinum svo mjög hin nýja ásjóna, að hann kroppaði miskunnarlaust úr sér alla fjaðra- og dúnbrúska sem kíktu úr hamnum og er ekkert eftir nema „kanínuskott" sem Cocky nær ekki með sterku nefi sínu. Hafa gárungarnir stungið upp á því að Cocky fái sér vinnu í „Playboy-klúbbinum" í Mel- bourne! Annars er það helst af Cocky að frétta, að hann hefur skipt um mataræði eftir áfallið, uppáhaldið er nú ofbrennt ristabrauð, kexmylsna og bjór öðru hvoru til að skola niður þurrmetinu. Belgrano-dagbókin: Höfundurinn nafngreindur London, 4. des. AP. SKÝRT var frá því í brezka viku- blaóinu Observer um helgina hver væri höfundurinn að dagbók þeirri, sem blaðið hefur birt úrdrátt úr um þann atburð, er argentínska herskip- inu Belgrano var sökkt í Falklands- eyjastríðinu 1982. Höfundurinn heit- ir Nyenra Sethia. Hann er 27 ára gamall, fyrrverandi sjóliðsforingi, sem nú rekur siglingaklúbb á Bermúdaeyjum.. Samkvæmt brezkum herrétti varðar það fangelsisvist að halda dagbók um það, sem gerizt í her- þjónstu og er ástæðan ótti við, að óvinir geti komizt yfir mikilvægar hernaðarupplýsingar. Óður mannfjöldi: Hengdi grunaða morðingja Rio de Janeiro. 4. deoember. AP. ÓÐIJR mannfjöldi réðst á lögreglu- bifreið f bænum Vitoria f Espirito Santo í dag, dró út úr honum fimm menn grunaða um bankarán í borg- inni og morð á lögreglumanni sem reyndi að koma í veg fyrir það. Voru fimmmenningarnir gersamlega ofurliði bornir, dregnir til bankans og hengdir þar án dótns og laga á skyndigálga sem fólkið snaraði upp. Mennirnir fimm voru í hópi sjö sem lögreglan hafði handtekið og var lögreglan á leið með þá til bankans þar sem stóð til að yfir- heyra þá um atburðarásina. Komst fólkið á snoðir um það og varð brjálað af reiði. Lögreglan rannsakar nú aftökurnar og reyn- ir að hafa hendur f hári hvata- manna þeirra ef einhverjir eru. Bandaríkja- menn átelja Dani fyrir barnaklám Kaupmannahöfn, 3. desember. AP. Yfírfýsingar bandarískrar öld- ungadeildaar, þess efnis, að 90 pró- sent barnakláms í Bandaríkjunum eigi rætur að rekja til Danmerkur og Hollands, urðu til þess að danska lögreglan barði upp á hjá Ifffræði- kennara nokkrum, David Clayre, en heimilsfang hans mátti lesa utan á klámriti sem heimilisfang útgáfufyr- irtækisins. Danskir embættismenn lýstu undrun sinni á þessu, því ekkert misjafnt fannst á heimili kennar- ans og sjálfur vissi hann framan af ekki einu sinni um hvað málið snerist. Clayre þessi er formaður hóps í Danmörku sem rekur nokkrar nektarnýlendur og hafði hópurinn sent frá sér nokkra bæklinga þar sem sjá mátti fólk á öllum aldri sveipað húð sinni einni. En ekkert kynferðislegt var þar á sveimi, þaðan af sfður klám, enda hefur hópurinn gefið út kynningarbæklinga sína að ein- hverju leyti fyrir ríkisstyrki. Fyrr á árinu ásökuðu Banda- ríkjamenn Dani fyrir að stöðva ekki útgáfu barnaklámrita. Þá hétu Danir því að uppræta það og hafa síðan fjórir menn verið góm- aðir fyrir að dreifa slíku efni, en enn sefn kpmið er hafa ritstjór- amir ekki náðst. Útgáfa af þessu .tagi fr refsivert áthæfi í • Dan- mðrku. ýmist háar sektir eða fangeJsjsvist. aílt affir eðli af- brotirns. ' . • . "■ . .Si' « búkfem. Sio, húsáaðveíonhUmS,etóhSmL 9luI!aT^rhús —l«t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.