Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
17
Samtök áhugamanna um tónlistarhús:
• •
Oskjuhlíð varð
fyrir valinu
Tónleikar Philharmóníunnar verða í febrúar
Samtök um byggingu tónlistarhúss héldu framhaldsaðalfund um lóóamál
sl. mánudag. Kosið var um þrjár lóðir sem komu til greina undir fyrirhugað
tónlistarhús, í Laugardal, í Vatnsmýrinni skammt frá Norræna húsinu og í
norðvestanverðri Öskjuhlíð. Var lóðin í Öskjuhlíðinni kosin með meirihluta
atkvæða eða 41, Laugardalur fékk 18 og lóðin við Vatnsmýrina 11. Er gert
ráð fyrir að fyrirhugðað tónlistarhús verði um 6000 fermetrar og verður
væntanlega samkeppni um hönnun þess.
Á fundinum afhenti Helga byggingu tónlistarhússins verða
Snjóhjólbarðar
Heilsólaðir snjóhjólbarðar á fólksbíla, vestur-
þýskir, allar stærðir, bæði Radial og venjulegir, með mjög
góöu gript.
Einnig nýir snjóhjólbarðar á mjög lágu veröi.
Allir bílar teknir inn ókeypis.
Snöggar hjólbarðaskiptingar. Jafnvægisstillingar.
Kaffisopi til hressingar, meðal staldrað er viö.
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 (nálægt Miklagaröi).
Símar: 30501 og 84844.
Hauksdóttir 30 þúsund krónur í
byggingarsjóð tónlistarhússins
fyrir hönd starfsmannafélags Sin-
fóníuhljómsveitar íslands. Einnig
kom fram að tónleikar Fíl-
harmóníuhljómsveitar Lundúna
sem fyrirhugaðir eru til styrktar
ASÍ vill fella
niöur yfirvinnu:
Samningar
verði lausir
1. sept. ’85
ASÍ-ÞINGIÐ, sem haldið var í lok
nóvember, skoraði á aðildarfélög sín
„að hlutast til um að gildandi kjara-
samningar verði ekki framlengdir á
næsta sumri, svo launaliðir verði
lausir 1. september 1985,“ eins og
segir í áskorun sem samþykkt var á
þinginu.
í ályktun, sem samþykkt var um
málsmeðferð varðandi uppsögn
samninga, segir að ef til framleng-
ingar samningsins kemur, verði
eftirfarandi háttur hafður á um
ákvörðun skv. uppsagnarlið samn-
ingsins frá 6. nóvember sl.:
„1. Efnt verði til formanna—
eða fulltrúafundar innan hvers
landssambands og með félögum
með beina aðild. Á þessum fundi
verði formlega tekin afstaða til
hugsanlegrar framlengingar
samningsins. Atkvæðavægi á
þessum fundum verði í samræmi
við atkvæðamagn hvers félags á
35. þingi Alþýðusambandsins.
2. Á sérstökum fundi formanna
landssambanda, forseta og einum
fulltrúa félaga með beina aðild,
skal greint frá niðurstöðum lands-
sambandsfunda. Reynist þriðj-
ungur innan einhvers landssam-
bands andvígur framlengingu
samningsins skal henni hafnað.
Náist ekki samkomulag um
sameiginlega framlengingu samn-
ingsins er ljóst, að eftir 25. júní
1985 eru félögin með öllu óbundin
og taka óháð öðrum afstöðu til
nýrra samninga," segir í ályktun-
inni.
Þingið harmaði að ekki skuli
hafa „tekist að rétta hlut lág-
launafólks neitt verulega í nýgerð-
um samningum". Þingið taldi það
ranga stefnu, að auka frekar
launamismun í samningum með
prósentuhækkunum. Þingið skor-
aði á aðildarfélögin að hafa þetta í
huga í næstu samningum.
X Alþýðusambandsþinginu var
einnig ályktað, að það væri eitt af
næstu verkefnum verkalýðshreyf-
ingarinnar að vinna að niðurfell-
ingu eftirvinnu, t.d. í áföngum, án
skerðingar launa.
haldnir í London þann 26. febrúar
undir stjórn Vladimirs Ashken-
azy.
Hugmynda-
samkeppni
kUiínkn Imikans
IXvlt merki
mlt liíkn
Mikil gróska er nú í starfsemi Iönaðarbankans.
Bankinn hefur vaxið ört undanfarin ár, enda lagt
kapp á að mæta kröfum viðskiptavina sinna um sífellt
betri þjónustu. Um þessar mundir stendur yfir víðtæk
endurskipulagning á starfsemi bankans, í því skyni, að
búa hann enn betur undir það markmið, að vera
nútíma banki, sem veitir góða þjónustu. Liður í þess-
ari endurskipulagningu er hugmyndasamkeppni sem
bankinn efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur liðum:
a) Um nýtt merki, skrift og einkennislit, eða liti fyrir
bankann._______________________________________
b) Um myndrænt tákn til notkunar í auglýsingum og
kynningargögnum barikans.
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum FÍT, Félags
íslenskra auglýsingateiknara og er öllum opin.
Veitt verða ein verðlaun fyrir bestu tillögurnar.
a) Fyrir merki, skrift ogeinkennislit kr. 120.000.00
b) Fyrirtákn kr. 40.000.00
Tillögur um merki skulu vera 10 -15 cm í þvermál, í
svörtuni lit, á pappírsstærð DIN A-4. Einkenna skal
tillögurnar með kjörorði, en nafn höfundar og
heimilisfang fylgi með í lokuðu ógagnsæju umslagi.
Þátttakendum er heimilt aö senda fleiri en eina
tillögu. Skal hver tillaga þá hafa sér kjörorð og henni
fylgja sér umslag með nafni höfundar.
Dómnefnd skipa: Bragi Ásgeirsson, listmálari, Gísli
B. Björnsson, teiknari FÍT., Rafn Hafnfjörð, prent-
smiðjustjóri, Tryggvi T. Tryggvason, teiknari FÍT. og
Valur Valsson, bankastjóri.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður
keppenda er Jónína Michaelsdóttir, Iðnaðarbankan-
um við Lækjargötu. Þátttakendur geta snúið sér til
hennar og fengið frekari upplýsingar um samkeppn-
ina og um Iðnaðarbankann. Síminn er 91 -20580.
Skilafrestur tillagna er til 15. janúar 1985. Skal skila
tillögunum í póst eða til einhverrar afgreiðslu Iðnaðar-
bankansmerktum:
Iðnaðarbankinn
Hugmyndasamkeppni
b/t Jónínu Michaelsdóttur
Lækjargötu 12
101 Reykjavík.
Dómnefnd skal skila niðurstöðum innan eins mánað-
ar frá skiladegi.
Efnt verður til sýningar á tillögunum og þær endur-
sendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun
höfundar. Iðnaðarbankinn áskilur sér einkarétt á
notkun þeirra tillagna sem dómnefnd velur. Jafn-
framt áskilur bankinn sér rétt til að kaupa hvaða
tillögu sem er samkvæmt verðskrá FÍT.
lónaðarbankinn
-nútimabanki