Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984 59 Minning: Jónína Þórðardóttir frá Þingholti Fædd 2. mars 1909 Dáin 6. september 1984 Fyrsta minningin, sem kemur í huga minn er ég nú kveð góða vinkonu Jónínu á Þingholti er mjög skír og fögur, ég var telpu- hnokki, sem hún bauð að sjá ný- fædda drenginn sinn. Þá var hún glæsileg ung kona og andlitið ljómaði af móðurgleði. Sannarlega virtist hamingjan blasa við, hún bjó við góð efni og þrek hennar var mikið og virtist óbilandi. Hún var afbragðs mat- reiðslukona hver man ekki kjöt- súpuna og þá ekki síður lúðusúp- una hennar? Bóndi hennar lét ekki sitt eftir liggja og verkaði það besta saltkjöt, sem ég hef smakk- að. Þegar ég minnist æskuáranna finnst mér að ailtaf hafi verið veislumatur á borðum hjá henni, sem mjög margir nutu góðs af. Jónína Þórðardóttir var fædd 2. mars 1909 næst elst sjö barna hjónanna Guðrúnar Jónasdóttur og Þórðar Gunnarssonar, sem lengi bjuggu með rausn að Víkur- gerði í Fáskrúðsfirði. Jónína ólst upp í stórum systkinahópi, auk systkinanna höfðu foreldrar henn- ar tvo stálpaða drengi, er þau tóku í fóstur, voru þeir elstir barnanna. Tók Jónína miklu ástfóstri við þá, og bera tvö börn hennar nöfn þeirra. Strax og systkinin uxu úr grasi komu þau til hjálpar á þessu stóra heimili því auk hjónanna og barnanna voru alltaf 2—3 gamal- menni, sem voru börnunum gleði- gjafi með sögum sínum og ekki síður kvæðum. Því hugur Jóninu og Jósafínu systur hennar, stóðu mjög til ljóðagerðar og var það Jónínu ómetanlegt hvað hún gat oft stytt sér stundir við ljóðagerð er hún háði sitt langa sjúk- dómsstríð. Unglingsár Jónínu voru enginn værðartími, því á þessum árum fylltist fjörðurinn oft af fiski og sagði hún að ausa hefði mátt fisk- inum með háf upp í bátinn rétt við landsteinana, var þá lögð nótt við dag til að draga sem mesta björg í bú. Fjölskyldan var mjög samhent og er systkinin voru fermd fóru þau i vinnu utan heimilis, og létu kaup sitt að mestu óskert ganga í heimilið. Jónína var mjög eftirsótt til vinnu vegna dugnaðar og verk- lagni. Á þessum árum fór hún vetrarstúlka til Vestmannaeyja og var þar á myndarheimilum, sá margt og lærði og eignaðist marga góða vini sem héldu tryggð við hana ævilangt. Rúmlega tvítug gekk hún að eiga ágætismann, Arni Þórðarson fv. skólastjóri Fæddur 3. júní 1906 Dáinn 10. október 1984 Á kreppuárunum um og eftir 1930 voru merkilegir hlutir að ger- ast í íslenskum skólamálum. Ungl- ingar sveitanna fengu tækifærit til náms eftir farskólann í nýreist- um héraðsskólum og heim komu forframaðir skólamenn sem settu nýjan svip á skólastarf. Ýmislegt af því sem nú er talað um sem nýjungar í skólastarfi mátti þá finna hjá mönnum eins og Steingrími Arasyni og Sigurði Thorlacius, svo nöfn séu nefnd. Þá komu líka fram á sjónarsvið- ið kennarar frá Kennaraskólanum sem áttu eftir að vera í farar- broddi stéttar sinnar um áraraðir. Einn þeirra var Árni Þórðarson sem nú er nýlega látinn á sjötug- asta og níunda aldursári. Náms- ferill hans er dæmigerður fyrir þá úr sveitum landsins á þeim tíma sem stóð hugur til náms en áttu ógreiðan aðgang að því: héraðs- skóli, erlendur lýðskóli, bænda- skóli, kennaraskóli. Það var ekki fyrr en með landsprófinu 1946 sem unglingar í dreifbýli fengu sæmi- lega möguleika á að komast í menntaskóla, og það er e.t.v. ekki viðeigandi að velta fyrir sér hve marga hæfa menn kennarastéttin fékk fyrir það að leið langskóla- náms var lokið. Að loknu kennaraprófi árið 1932 helgaði Árni sig kennslu og skóla- stjórn uns hann lét af störfum ár- ið 1967. Hann var þá búinn að vera skólastjóri Gagnfræðaskólans við Hringbraut, sem síðar varð Haga- skóli, frá stofnun hans árið 1949, og það var í því embætti sem ég kynntist honum. Samvinna okkar varð löng og náin, einkum við margt varðandi skólastjórn. Árni var mikill reglumaður, jafnt í sínu embætti sem á öðrum sviðum, kröfuharður við kennara og nem- endur, áhugasamur um allt er skólann varðaði og úrvalskennari í sinni kennslugrein, íslensku, svo rómað var. Árni varð skólastjóri í kjölfar fræðslulaganna 1946 þegar skóla- skylda var lengd um ár og efsti bekkur barnaskólans, 7. bekkur, færður á gagnfræðastig. Þá var m.a. komið á fót unglingaskólum með 7. og 8. bekk og var Gagn- fræðaskólinn við Hringbraut einn þeirra. Nemendur sem kvöddu skólann áttu um þrjár leiðir að velja ef þeir héldu áfram í gagn- fræðaskóla: landspróf eða almenn- ar gagnfræðadeildir bóknáms eða verknáms. Árni varð oft var við óánægju með þessa valmöguleika og að nemendur skyldu þurfa að yfirgefa skólann eftir 8. bekk. Hann barðist fyrir nýrri leið að gagnfræðaprófi, verslunardeild, sem eftir hikandi byrjun dafnaði vel og varð eftirsótt og síðan tekin upp við fleiri skóla. Það er hins vegar tákn þess tíma að hún var eingöngu fyrir stúlkur og þótti eðlilegt. Eftir að skólinn flutti í nýtt húsnæði, Hagaskóla, varð hann almennur gagnfræðaskóli með allar deildir og um tíma stærsti gagnfræðaskóli iandsins, rúmlega tvísetinn, með öllum þeim þrengslum og óþægindum sem því fylgdu. Það var aldrei lognmolla kring- um Árna Þórðarson. Hann var skörulegur málflytjandi í samtök- um kennara og skólastjóra og bar- áttumaður um kjör og aðbúnað. Hann mun hafa verið fyrstur skólastjóra til að fella niður kennslu eftir hádegi á laugardög- um og lét eins og vind um eyrun þjóta þótt að væri fundið. Mörg voru þau haustin og vorin sem við Árni unnum saman í skól- anum áður en kennsla hófst og eftir að henni lauk. Þá var aldrei um annað að ræða en að ég færi með honum heim í mat og kaffi og þýddi ekki að mótmæla. Þannig kynntist ég vel hinu ágæta heimili hans og Ingibjargar Einarsdóttur, konu hans, og hef átt þar margar notalegar stundir. Þau hjón voru ræðin og skemmtileg heim að sækja og sérlega alúðlegir gest- gjafar. Tvö börn eignuðust þau, Steinunni og Einar, og er nú vík milli vina þar sem hann býr á Isa- firði en hún sem stendur í Kenýa í Afríku. Ég sendi þeim öllum ein- lægar samúðarkveðjur. Þótt Árni væri nokkuð við aldur var hann enn ern vel og kunni að njóta áranna eftir að föstu starfi lauk. Hann settist aldrei í helgan stein, vann við prófarkalestur og ritstörf, stundaði útiíþróttir, eink- um hestamennsku, og var rétt Sigurð Jónsson vélstjóra, sem í mörg ár var vélamaður á Komp- aníisbátunum. Hann hélt heimili með foreldrum sínum og yngri bræðrum á Þingholti í Búðakaup- túni. Er Jónína kom inn á heimilið kynntist hún annarri þeirri konu sem mest og best hjálpuðu henni í þeim veikindaerfiðleikum sem hennar biðu. Það var tengdamóðir hennar Elísabet Guðnadóttir, ein af þessum góðu konum, sem lifðu fyrst og fremst öðrum, en sjálfum sér. Lét Elísabet með ljúfu geði öll völd á heimilinu í hendur tengda- dótturinni og hjálpaði henni síðan með ráðum og dáð á meðan líf og heilsa entust. Skömmu eftir að annað barn þeirra hjóna fæddist 1932 fór að bera á veikindum þeim er hún barðist við í hálfa öld, Parkinson-veikinni, sem þá var lítið þekkt og ekki komin þau lyf, ófarinn af stað í langa ferð á hest- um þegar hann veiktist. Veikindin komu óvænt og fóru geyst. Ég hygg að honum hafi verið meira að skapi að kveðja í fullu fjöri eins og hann gerði en berjast hinni löngu baráttu við hrörnun og elli sem svo margir þurfa nú að gera. Ég er þakklát fyrir okkar löngu og góðu kynni. Þuríður J. Kristjánsdóttir sem nú þekkjast til að halda sjúk- dómnum í skefjum. Smám saman braut sjúkdómurinn niður líkama hennar, en andlega þrekinu hélt hún til hinstu stundar og undruð- ust það allir, sem kynntust henni hvað hún var hörð við sjálfa sig og kvartaði aldrei. Sagði hún „að Guð legði ekki meira á neinn, en hann gæti borið“, og sannaði þessi orð með 50 ára vonlausri baráttu þar sem hún bognaði aldrei andlega á hverju sem gekk. Þrátt fyrir alla sjúkdómserfiðleika, taldi hún sig gæfumanneskju, hún átti gott æskuheimili sem hún minntist ætíð með gleði, kynntist mörgu ágætisfólki, eignaðist góöan mann og heimili, fjögur myndarleg börn, Óskar, kvæntur Sonju Andrés- dóttur, eiga fjögur börn; Sigrún Elísabet, gift Halldóri Þorbergs- syni er lést sl. vor, eiga 5 börn; Nanna Sigurbjörg, gift Sveini Sig- urðssyni, eiga 4 börn og Jóhannes, kona hans er Guðlaug Arnþórs- dóttir, eiga 3 börn. Tengdabörnin var hún mjög þakklát forsjóninni fyrir og sagðist ekki hefði getað fengið þau betri svó og barnabörn- in. Tengdamóðirin reyndist henni eins og besta móðir og síðast en ekki síst önnur sú kona sem hún átti svo mikið að þakka, tengda- dóttirin Sonja, sem var henni svo framúrskarandi góð og eftirláts- söm að hún gat dvalið á heimilinu eftir að Óskar giftist og ráðið í eldhúsinu eins og hún hafði gert alla tíð frá því fyrsta. Komu mannkostir Sonju vel fram í yfir 20 ára sambúð við tengdamóður- ina og munu fáar hliðstæður nú til dags. Allir sem hlut eiga að máli munu vera þeim hjónum Óskari og Sonju ævinlega þakklátir fyrir fórnfýsi þeirra. Alfarin frá Þing- holti fór hún fyrir 5 árum þá farin að líkamlegum kröftum, var hún hjá dætrum sínum þar til hún fékk pláss á hjúkrunardeild Hrafnistu. Þar beið hún svo með þakklætishug til allra, þessa dags sem sameinaði hana ástvinum og öðrum sem á undan voru farnir. Hún trúði „að þar bíða vinir í varpa, sem von er á gesti". Guð blessi Jónínu Þórðardóttur og alla hennar niðja. Bella Sœvar Valdimars- son - Minning Fæddur 14. júní 1967. Dáinn 19. nóvember 1984. Það var eins og myrkur skylli á þegar við fréttum að vinur okkar Sævar Valdimarsson væri dáinn. Af hverju hann, aðeins 17 ára gamall, var það fyrsta sem maður hugsaði. En hver skilur helgiletur lífs og dauða. Sævar fæddist 14. júní 1967 á Húsavík. Hann var sonur hjón- anna Valdimars Ingólfssonar og Erlu Sigurjónsdóttur. Hann var yngstur af 4 systkinum. Við nutum samfylgdar Sævars frá því við vorum krakkar. Þangað til hann hvarf frá okkur í ný heimkynni. Sævar var vinamargur enda var hann öllum góður sem þekktu hann, alltaf svo hress og vitum við að margir syrgja góðan dreng. Það var sama hvernig á okkur lá þegar við hittum hann. Alltaf kom hann okkur til að brosa. En það var ekki bara brosið hans, það var svo gott að tala við Sæsa. Við gátum trúað honum fyrir öllu sem okkur langaði til, sem við hefðum ekki talað um við aðra stráka, jafnvel ekki við vin- konur. Hann var vinur vina sinna. Við vottum hans elskulegu for- eldrum og systkinum okkar dýpstu samúð svo og öðrum að- standendum. Megi guð styrkja þau í hinni miklu sorg. Við vonum að honum líði vel í sínum nýju heim- kynnum og biðjum Guð að blessa þennan góða dreng. Við þökkum Sævari fyrir allar þær góðu stund- ir sem við áttum með honum, stundir sem við munum aldrei gleyma. „f söknuði við signum þig sorg þótt tíminn jafni ljúfi faðir lífsins stig þig leiði í Jesú nafni.“ Dísa Braga og Helga Björg. Minning: Jóhann Halldór Jóhannsson, Alberta Fæddur 4. aprfl 1906 Dáinn 21. nóvember 1984 Nýlátinn er Jóhann H. Jó- hannsson fyrrum bondi í Mark- erville-héraði í Alberta, Kanada. Jóhann var maður í meðallagi hár en vegna þess hve margir hávaxn- ir menn báru sama ættarnafn í byggðarlaginu var hann oft kall- aður „Little Joe“ og lét hann sér það vel líka. Hann var vinmargur í byggðar- laginu og beitti sér fyrir margs- konar framfaramálum í því. Búmaður var hann góður og rak lengst af myndarlegt bú sem eldri sonur hans, Fred, hefir tekið við fyrir nokkru. Hinn sonur hans, Les, býr einnig góðu búi og ræktar holdanaut. Eitt af þeim málum, sem Jó- hann hafði mikinn áhuga á og beitti sér fyrir, var að viðhalda minningunni um Stephan G. Stephansson, skáld. Var hann for- ystumaður í hópi áhugamanna um það mál, sem stofnuðu Stephan G. Stephansson Memorial Society í Markerville og tók það upp við- ræður við Albertastjórn um að fylkið hefði forgöngu um að varð- veita og gera við hús það sem skáldið reisti sér og fjölskyldu sinni á erfðafestulandi sínu um sjö km fyrir norðan Markerville. Hefir Albertastjórn gert það af myndarskap og er staðurinn fjöl- sóttur af ferðafólki. Ekki lét Jóhann þar við sitja heldur vann hann ötullega að því að fá Albertastjórn til þess að varðveita rjómabú í Markerville, sem landnemarnir komu sér upp til þess að framieiða afurðir sem hægt var að koma á markað t.d. í Calgary. Er það mál komið á góð- an rekspöl og eru framkvæmdir komnar af stað í þá átt og er nú skarð fyrir skildi þegar ekki leng- ur nýtur Jóhanns við til þess að fylgja því máli eftir. Jóhann kom nokkrum sinnum til íslands, fyrst árið 1967 með Lilyan Johnson, konu sinni af ís- lenskum ættum, en hún dó fyrir aldur fram árið 1973. Fór hann á æskustöðvar foreldra sinna í Húnavatnssýslu og prýðir fallegt málverk af Svartárdalnum einn vegg á heimili hans. Auk þess ferðaðist hann víða um landið og eignaðist þar marga vini og kunn- ingja. Eina ferð fór hann til ís- lands í boði Þjóðræknifélags ís- lendinga ásamt fleiri Vestur- íslendingum og hafði hann mikla ánægju af. Síðast kom hann til ís- lands fyrir nokkrum árum og þá ' voru með honum dætur hans tvær, Shirley og Bernice og fóru þær í „safarí“-hringferð í kringum land- ið. Þegar íslenskir ferðahópar hafa komið á þessar slóðir hafði Jó- hann jafnan forgöngu um móttöku þeirra og ráðstafaði gestunum á bóndabæina í byggðinni og eins í nærliggjandi bæjum. Jóhann átti yfirleitt við góða heilsu að búa þangað til fyrir stuttu og dó hann á sjúkrahúsi í Innisfail. Með Jóhanni er genginn sér- kennilegur og vinsæll leiðtogi hinnar fámennu sveitar hér, sem viðheldur íslenskri arfleifð í hin- um nýja heimi. Er hann minnis- stæður öllum sem honum kynnt- ust fyrir ljúfmennsku sakir, glað- værðar og myndarskapar. Sveinn Þórðarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.