Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
fclk í
fréttum
Morgunblaftift/Árni Sæberg.
Vernol John Bretlandsmeiatari í diskódansi, Heióar Ástvaldsson
danskennari og sigurvegarinn í íslenska diskódansinum, Rúrik V.
Vatnarsson.
RÚRIK V. VATNARSSON
íslandsmeistari
f diskódansi
Síðastliðinn föstudag fór fram diskókeppni í Klúbbnum. Þar fór með
sigur af hólmi Rúrik Viðar Vatnarsson 19 ára nemi úr MH. Hann
hefur að sögn Heiðars Ástvaldssonar danskennara dansað frá því hann
var fjögurra ára gamall og verið viðloðandi í sýningarflokki í nokkur ár.
Rúrik mun halda til Bretlands nú í desember þar sem keppt verður um
heimsmeistaratitilinn í „disco freestyle" og hlýtur sá sigurvegari bíl og
ferðalög í verðlaun. Þess er vert að geta að íslendingur komst í fjórða
sæti í þessari keppni í fyrra, Ástrós Gunnarsdóttir.
Dómnefndina á föstudaginn skipuðu Heiðar Ástvaldsson, Bretlands-
meistarinn í diskódansi, Vernol John, Sigríður Hallgrímsdóttir, Þor-
steinn Vilhjálmsson blaðamaður DV og Lára Stefánsdóttir.
Samdi lagið
fyrir sjö árum
Það hefur ekki verið fjallað mikið um Stevie
Wonder í Fólki í fréttum að undanförnu. Lagið
„I just called to say I love you“ hafa margir íslend-
ingar raulað fyrir munni sér uppá síðkastið og ný-
lega rakst blm. á grein þar sem Stevie var spurður
að því hvernig lagið hefði orðið til.
Sagðist hann hafa samið lagið fyrir sjö árum, en
bara beðið eftir rétta augnablikinu að syngja það
opinberlega. Aðspurður sagði hann að í hvert skipti
sem hann hringdi til fjölskyldunnar byrjaði hann á
að segja: „I just called to say I love you“ (Ég hringdi
bara til að segja þér að ég elska þig). Þetta hefði
hann alltaf gert og myndi gera því fjölskyldan væri
honum allt fyrir utan tónlistina.
og lagasmióurinn
STEVIE WONDER.
»i •
Meistarar meistaranna
að er alkunna að ekkert
íþróttafélag getur náð
langt ef það hefur ekki trausta
stuðningsmenn. Akurnesingar
hafa náð frábærum árangri sl.
tvö ár í knattspyrnu, hafa orðið
íslands- og bikarmeistarar bæði
árin. Þessi fríði hópur sem hér
má sjá telur með réttu að hann
eigi þar stóran hlut að máli. Og
því til sannindamerkis tóku þær
sig saman, eiginkonur leik-
manna og stjórnarmanna ÍA,
tóku búninga eiginmanna sinna
traustataki og létu smella af sér
þessari mynd í ágúst sl. Svo
leynt fór þetta að karlarnir
vissu ekkert af tiltækinu fyrr en
þeir fengu myndina að gjöf á
uppskeruhátíð knattspyrnuráðs
Akraness sl. laugardagskvöld!
Vakti myndin að vonum mikla
lukku. Meistarana bak við
meistarana kalla þær sig en al-
veg eins má kalla þær „meistara
meistaranna".
Meistarahópinn skipa eftir-
taldar konur, nöfn eiginmanna,
leikmanna og stjórnarmanna í
sviga: Fremri röð frá vinstri:
Lovísa Jónsdóttir (Sigurður
Halldórsson), Valdís Þorvalds-
dóttir (Sigurður Lárusson),
Bjarney Jóhannesdóttir (Guðjón
Þórðarson), Guðrún Þorsteins-
dóttir (Árni Sveinsson), Sigríð-
ur Sigurðardóttir, Guðlaug
Sverrisdóttir (Smári Guðjóns-
son) og Sóley Kjartansdóttir
(Jón Leó Rikharðsson). Aftari
röð frá vinstri: Ásrún Bald-
vinsdóttir (Gunnar Sigurðsson),
Brynja Jónsdóttir (Hallgrímur
Jónsson), Sigrún Sigurðardóttir
(Hörður Helgason), Bryndís
Guðjónsdóttir (Júlíus P. Ing-
ólfsson), Erna Haraldsdóttir
(Karl Þórðarson), Harpa Dav-
íðsdóttir (Birgir Skúlason),
Ingibjörg Björnsdóttir (Hörður
Jóhannesson), Friðmey Bark-
ardóttir (Ólafur Þórðarson),
Björg Þorvaldsdóttir (Magnús
Brandsson), Sigrún Karlsdóttir
(Kristján Sveinsson) og Dóra
Guðmundsdóttir (Ólafur Grétar
Ólafsson).
Nokkrar meistaraflokkskonur
voru fjarverandi úr bænum þeg-
ar myndin var tekin, þar á með-
al sjálfur formaður hópsins,
Ingibjörg Pálmadóttir (Harald-
ur Sturlaugsson).
Nemendur
úr
Flensborg
dimittera
Nemendur úr Flensborg
voru að „dimittera" á dög-
unum og RAX tók þessa
mynd af nokkrum hress-
um ungmennum fyrir
utan Morgunblaðshúsið.
Það er ekki seinna vænna
fyrir blessaða nemend-
urna að sletta úr klaufun-
um áður en próflesturinn
byrjar.
Traustustu stuðningsmenn
íslands- og bikarmeistaranna
Þessi föngulegi kvennahópur tekur sig ekki síöur vel út í búningunum en eiginmennirnir.