Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
49
úr nýtingu hverfisverzlana og svo
koll af kolli.
Slíkar röksemdir um hagræði og
hagkvæmni ráða ekki ferðinni.
Kaupmenn ráða ekki lengur í
borgarstjórn, þegar nýting lands
undir verzlanir er skipulögð. Al-
menningur sem skynjar gildi
hverfisverzlananna fyrir þá sem
lítið komast og fyrir hversdagslíf-
ið í hverfunum, hefur ekki áhrif,
heldur ræður stríðið milli verzlun-
arjötnanna ferðinni. Kaupfélags-
fólkið, sem hefur dregið sig út úr
rekstri almennra hverfisverzlana,
spennti bogann og kom upp Mikla-
garði til samkeppni við stórverzl-
anir í einkaeign og naut til þess
fyrirgreiðslu borgarstjórnar um
lóð. Svo tók ný borgarstjórn við og
hjálpaði Hagkaupum að spenna
bogann gegn Miklagarði með því
að úthluta þeim lóð gegn vilja
samtaka kaupmanna og ráðum
Borgarskipulags vegna hagsmuna
alls almennings.
Málið liggur þannig fyrir, rétt
eins og í sjávarútvegi, að almennir
hagsmunir eru dreifðir og þeir
sem vilja gæta þeirra hafa ekki afl
á móti þeim sem eiga sterkra
sérhagsmuna að gæta.
Veilur í skipulagi
atkvæðagreiöslu
Offjárfestingu á ábyrgð stjórn-
valda má rekja til veilu í lýðræð-
isskipulaginú. í borgarstjórn
koma til álita rök um vöruverð í
stórverzlunum og rök samtaka
kaupmanna og Borgarskipulags
um gildi hverfisverzlana og um
hvernig stórverzlanir bitna á þeim
og um hæfilegt verzlunarrými á
höfuðborgarsvæðinu. Þegar til
kastanna kemur og úthluta á
verzlunarjötnunum, Miklagarði og
Hagkaupum, hvorum um sig lóð,
reynir fyrst og fremst á það hvort
meirihlutinn heldur saman um að
styrkja stöðu þess eignarforms
sem lóðin er ætluð. Atkvæðið sem
umsókninni er greitt er eitt og
óskipt, hvort sem stuðningurinn
er með hálfum hug eða heilum.
Hugsum okkur í stað þess sem
nú er, að fólk (skipulagsnefnd,
byggingarnefnd, borgarfulltrúar)
hafi atkvæðasjóð til ráðstöfunar á
mál sem koma á dagskrá og gæti
lagt fram atkvæði eftir því sem
hver metur málið miðað við önnur
mál, leggi fram fáein atkvæði með
máli sem maður metur lítils, en
mörg atkvæði með máli sem mað-
ur leggur kapp á, og eins sé með
mótatkvæði. Við lóðaúthlutun til
verzlunarjötnanna geta kjörnir
fulltrúar fyrst metið vikomandi
verzlunarform. Sá sem styður
verzlunarformið getur síðan gert
upp við sig hversu mikið er gef-
andi fyrir stuðning við umsóknina
með tilliti til áhrifa nýrrar stór-
verzlunar á aðrar verzlanir í borg-
inni og viðskiptakjör og mannlíf í
hverfunum.
Með þessu fyrirkomulagi hafa
menn hag af því að spara atkvæði
á mál sem síðar koma á dagskrá,
og geta þannig afsakað slakan
stuðning við almennan málstað,
til að mynda málstað flokksins,
meirihlutans eða minnihlutans.
Hér er aðeins tæpt á viðamiklu
máli, sem ég hef fjallað um ítar-
legar í fræðiritum. Það er veru-
lega róttæk breyting á lýðræðis-
skipulaginu að gefa fólki tækifæri
til að láta missterkan stuðning
eða andstöðu koma fram í at-
kvæðagreiðslu. Ég hef lengi von-
azt til að geta komið á tilraunum
með atkvæðasjóð, eins og þörf er á
til að gera sér fyllri grein fyrir
aðferðinni, en til þess hefur ekki
gefizt tækifæri. Hér á landi eru
takmörkuð tækifæri til að stunda
frumleg félagsvísindi, eins og hér
er um að ræða, en sæmilega góð
skilyrði til að stunda ófrumleg fé-
lagsvísindi, eins og kunnugt er.
★
Ýmsir vænta þess, að hlutfalls-
leg fjölgun þingmanna á höfuð-
borgarsvæðinu muni hafa afdrifa-
rík áhrif á byggðastefnu. Ég á
samt von á því að hvers konar
fyrirgreiðsla muni halda áfram á
Alþingi líkt og verið hefur, á sama
hátt og hún hefur þrifizt í Reykja-
vík. Á Alþingi hafa menn áhrif
með því að leita bandalags við
aðra og vinna þannig meirihluta
til stuðnings við takmarkaða
hagsmuni. Einstökum útgerðar-
fyrirtækjum er fleytt áfram með
opinberri fyrirgreiðslu, þ.e. með
stuðningi meirihlutans, þótt örlög
þeirra varði beint aðeins lítinn
hluta þjóðarinnar og þjóðinni í
heild sé talinn ávinningur að því
að fiskiskipum fækki og þá eðli-
lega þeim fyrst sem eru háð opin-
berri fyrirgreiðslu. Líku máli
gegnir um fyrirgreiðslu við fram-
kvæmdir á höfuðborgarsvæðinu,
sem þrengja að almenningssvæð-
um, að framkvæmdaaðilar með
þrönga hagsmuni njóti bandalags
við flokkana sem ráða, þótt fram-
kvæmdin gangi gegn dreifðum
hagsmunum almennings.
Þarna er sýnd gagnkvæm til-
litssemi, eins og í hverjum öðrum
félagsskap. Þar með er ekki víst,
að niðurstaðan sé í þágu heildar-
hagsmuna, eins og dæmin um
fjárfestingu í sjávarútvegi og um
nýtingu lands og skipulag verzlun-
ar í Reykjavík benda til, þar sem
veilur í skipulagi atkvæðagreiðslu
geta mótað niðurstöðuna.
Næst verður fjallað um forsend-
ur landbúnaðar hér á landi og um
nauðsyn þess að marka stefnu í
fóðuröflun, og verður það síðasta
greinin.
Björn S. Stefánsson
í tuskunum
Laugavegi 28, 2. hæö.
Berðu höfl’ðið hátt
mrártL*
nmm
Það er fleira
en þig grunar
á 2. hæð við
LAUGAVEG
Þær eru
komnar
Feikivinsælu Marokkó
klementínurnar
Starmýri