Morgunblaðið - 05.12.1984, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
Fyrsta loðskinnauppboö vetrarins:
Verö hélst þrátt fyr-
ir spár um hækkun
í GÆR var fyrsta loðskinnauppboö vetrarins. Refaskinn voru boðin upp í
uppboðshúsi finnska loðdýraræktarsambandsins í Helsingfors. Góð sala var
í skinnunum. 99% framboðinna blárefaskinna seldust fyrir 330 finnsk mörk
að meðaltali, sem samsvarar 2.055 íslenskum krónum. 96% shadow-refa-
skinnanna seldust fyrir 359 finnsk mörk, eða 2.236 krónur að meðaltali.
Jón Ragnar Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
loðdýraræktenda, sagði í samtali
við blm. Mbl. að þessi góða sala
hefði komið mönnum nokkuð í opna
skjöldu. Sérfræðingarnir hefðu
spáð dræmri sölu og lágu verði í
upphafi sölutímabilsins, sérstak-
lega á blárefaskinnum, en það hefði
Ný kvikmynd:
Gullsandur
GULLSANDUR nefnist ný kvikmynd
leikstjórans Agústs Guðmundssonar
og verður hún frumsýnd í Austurbæj-
arbíói á annan jóladag.
I kvikmynd þessari koma fram
um 60 manns og má þar nefna
Pálma Gestsson, Eddu Björgvins-
dóttur, Arnar Jónsson, HLH-flokk-
inn, Ómar Ragnarsson, Borgar
Garðarsson, Sigurveigu Jónsdóttur,
Sigurð Sigurjónsson, Viðar Egg-
ertsson, Hönnu Maríu Karlsdóttur
og Jón Sigurbjörnsson. Kvikmynda-
töku annaðist Sigurður Sverrir
Pálsson.
ekki komið fram samkvæmt fyrstu
fréttum af þessu fyrsta uppboði
vetrarins. Sagði Jón Ragnar að ekki
hefðu borist upplýsingar um fjölda
uppboðinna skinna né gæðaflokka
og væri því erfitt að bera verðið
saman við það sem fékkst fyrir
skinnin í fyrravetur, en samkvæmt
þessum fyrstu fréttum væru þau
svipuð og við lok sölutímabilsins í
fyrra, þegar verðið var í hámarki. Á
síðasta sölutímabili fengust 1.300
krónur að meðaltali fyrir blárefa-
skinnin, á því gengi sem þá var í
gildi.
Engin íslensk refaskinn voru á
þessu uppboði. Samband íslenskra
íoðdýraræktenda hefur samstarfs-
samning viö danska loðdýraræktar-
sambandiö og verða þau íslensku
refa- og minkaskinn, sem seld eru
fyrir milligöngu SÍL, boðin upp í
danska uppboðshúsinu í Glostrup í
febrúar og mars. tslensk refaskinn
eru einnig boðin upp hjá Hudson
Bay í London en að sögn Jóns Ragn-
ars var nóvemberuppboðinu, sem
vera átti fyrsta uppboð vetrarins,
aflýst vegna þess hve fá skinn bár-
ust til uppboðshússins.
Alda umferðarslysa í hálkunni í gæn
20 árekstrar á
fjórum stundum
— tíu á slysadeild
ALDA umferðarslysa reið yfir í Reykjavík í gær. Á fjórum klukkustund-
um urðu 20 árekstrar í Reykjavík og á níu mínútum í gærmorgun urðu
þrjú slys og voru fimm fluttir í slysadeild, en alls voru tíu manns fluttir
í slysadeild eftir umferðarslys í gær. Mikið annríki var hjá lögreglunni.
Að sögn lögreglunnar var áberandi, að ökumenn óku of hratt miðað við
aðstæður, en mikil hálka var á götum Reykjavíkur.
Klukkan 07.51 varð fullorðin
kona fyrir bifreið á Ártúns-
höfða. Hún var á leið til vinnu.
Konan gekk aftur fyrir strætis-
vagn, sem hún ferðaðist með, og
út á götuna og varð hún fyrir
bifreið. Hún skarst talsvert á
höfði.
Skömmu síðar varð harður
árekstur í Sætúni. Svo virðist
sem ökumaður hafi misst stjórn
á bifreið sinni í hálkunni meö
þeim afleiðingum að hún fór yfir
á öfugan vegarhelming. öku-
menn beggja bifreiða voru flutt-
ir í slysadeild og farþegi úr ann-
arri bifreiðinni. Skömmu síðar
— eða á slaginu átta, varð svo
kona fyrir bifreið á leið yfir
Miklubraut við Miklatorg.
Meiðsli hennar reyndust ekki al-
varleg. Þá var maður fluttur í
slysadeild eftir árekstur í Borg-
artúni.
Um tvöleytið var svo ekið á
fullorðna kona í Álfheimum.
Fimm manns leituðu til slysa-
deildar Borgarspítalans i gær
eftir að hafa dottið á hálkunni
og maður datt milli skips og
bryggju, en tókst að gripa í
bryggjuna og halda sér þar til
aðstoð barst. Hann fór úr axlar-
lið. Þá var þrennt flutt á slysa-
deild í gærkvöldi eftir árekstur á
mótum Breiðholtsbrautar og
Stekkjarbakka.
Morgunbladið/Júlíus
Einn af fjölmörgum árekstnim í hálkunni í gær. Fiat-bifreiö og Range
Rover rákust saman á Kringlumýrarbraut.
Saltfiskurinn úr afturlest Stuðlafoss, 500 lestir, á bryggju í Vestmannaeyjahöfn. Monpjnbla»i»/SiRur([eir
Olíuleki í Stuðlafossi uppgötvaður í Eyjum:
500 tonnum af salt-
fiski skipað á land
- óvíst hve mikið tjón hefur orðið
VeNtmannaeyjum, 4. desember.
UM 500 lestum af saltfiski var í nótt skipað hér í land úr Stuðlafossi,
skipi Eimskipafélags íslands, vegna olíumengunar í afturlestum skipsins.
Alls var skipið með um 1.000 lestir þegar það kom hingað til Eyja
klukkan 16.30 í gærdag og hafði farminum verið safnað saman á hinum
ýmsu höfnum umhverfis landið. Vestmannaeyjar var síðasta lestunarhöfn
skipsins áður en það héit áleiðis til Portúgal og átti skipið að taka hér 80
lestir.
I allan dag hefur verið unnið
við að hreinsa lestar skipsins og
kappkostað er að koma skipinu
sem fyrst af stað með þann hluta
farmsins sem slapp við mengun-
ina. Þær 80 lestir sem skipið átti
að lesta hér verða settar í gáma
á dekk skipsins en kappkostað
verður að koma skipinu til Port-
úgals fyrir 12. desember, er sér-
stakur innflutningstollur á salt-
Fisk kemur til framkvæmda í
Portúgal.
Stuðlafoss kom hingað frá
Hafnarfirði og hreppti skipið
vonskuveður á leiðinni. Var það
19 klukkustundir að sigla þessa
leið, sem venjulega tekur um 10
klukkustundir. Þegar skipverjar
opnuðu afturlestar skipsins,
lestar þrjú og fjögur, gaus upp á
móti þeim megn olíustybba, og
þegar þeir fóru að kanna málið
nánar og komu niður í undirlest-
ina, sáu þeir olíu á lestargólfinu.
I afturlestum er ekki skilrúm
milli lestar þrjú og fjögur, en
forlestar eitt og tvö eru aðskild-
ar og þangað hafði engin olíu-
mengun borist, en í forlestunum
var um helmingur farmsins, 500
lestir.
Þegar olíulekinn uppgötvaðist
var haft samband við lestunar-
stjóra, matsmenn og fulltrúa
SÍF og var ákveðið að koma öll-
um farminum úr afturlestunum
í land. Var unnið við það í alla
nótt og um klukkan ellefu i
morgun var allur farmurinn, um
500 lestir, kominn á bryggjuna.
Talið er að olíulekinn sé tilkom-
inn vegna þess að pælirör frá
stjórnborðs-olíutanki hafi
sprungið. Talsvert magn af sjó-
blandaðri olíu rann um lestar-
gólfið og barst á bretti í neðstu
stæðunum í undirlestinni. Um-
búðir fisksins í millilestum
menguðust af olíubrækjunni,
sem barst um afturlestarnar.
Eftir að losun farmsins lauk var
þegar hafist handa við að gera
viö bilunina og að hreinsa alla
lestina, sem var mikið verk og
þurfti að rífa upp lestargólfið að
hluta til þess að komast fyrir
alla olíumengunina. Þær 500
lestir, sem voru í afturlestinni,
voru í dag færðar í geymslu hér í
Eyjum og var þeim fiski, sem
verst varð úti, haldið sér. Um-
búðir verða fjarlægðar og fisk-
urinn tekinn til skoðunar af
matsmönnum.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið aflaði sér í dag, er
talið að mestur hluti farmsins
hafi sloppið lítt eða ekkert
skemmdur, nema umbúðirnar og
sáralítil olía hafi komist í sjálf-
an fiskinn, nema rétt neðst í
stæðunum. Hvert tjón hlýst af
þessu óhappi mun ekki koma í
ljós fyrr en síðar, þegar farmur-
inn hefur allur verið skoðaður og
yfirfarinn. Engin áhætta verður
tekin með að senda neitt af þeim
hluta farms skipsins, sem var í
afturlestunum, með Stuðlafossi,
þegar skipið siglir til Portúgal í
kapphlaupi við tolladaginn 12.
desember.
H.KJ.
Vilja fá formann Sjálf-
stæðisflokks í ríkisstjórn
Miklar áhyggjur í miöstjórn af efnahags- og atvinnumálum
MIKLAR áhyggjur af stöðu þjóð-
mála, ríkisstjórnarinnar og Sjálf-
stæóisflokksins komu fram í mál-
flutningi á miðstjórnarfundi Sjálf-
stæðisflokksins í gær. Þá kom
fram í máli manna samkvæmt
heimildum Mbl., að þingflokkur-
inn ætti hið fyrsta að setja formann
flokksins, Þorstein Pálsson, í ríkis-
stjórnina.
Samkvæmt heimildum Mbl.
höfðu menn hvað mestar áhyggj-
ur af efnahags- og atvinnumál-
um og stöðu ríkisstjórnarinnar.
Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins var spurður
um miðstjórnarfundinn. Hann
svaraði: „Þarna var rætt al-
mennt um stjórnmálaviðhorfið
og horfur í efnahags- og atvinnu-
málum, ekki sízt vanda sjávar-
útvegsins. Auk þess voru umræð-
ur um ýmis flokksmál." Aðspurð-
ur um hvort óánægju hefði gætt
um stöðu mála svaraði Þor-
steinn: „Það er ekkert óeðlilegt
að menn hafi áhyggjur af þeirri
SALA er hafin á rjúpum í nokkrum
verslunum. Rjúpan kostar núna 135
til 150 krónur stykkið, óhamflett. Ef
hún er keypt hamflett bætast 10 til
12 krónur við verðið.
Hrafn Backmann í Kjötmiðstöð-
inni sagði í samtali við blm. Mbl.
að eftirspurn eftir rjúpum hefði
verið mikil. Hann væri búinn að
selja tvöfaldan jólaskammt enda
stöðu sem þjóðmálin eru í.“ Þá
var Þorsteinn spurður, hvort
fram hefðu komið áskoranir á
þingflokkinn um að hann tæki
sæti í ríkisstjórn. Hann vildi
ekki tjá sig um það mál.
verðið verið 115 krónur þar til ný-
lega að hann hækkaði það í 135
krónur stykkið. Sagði Hrafn að
rjúpan virtist ætla að halda sínum
hlut í jólamatnum þrátt fyrir að í
ár kæmu um 50 þúsund stykki af
aliöndum á markaðinn en það
samsvaraði einni máltíð fyrir 200
þusund manns. í öðrum verslun-
um fengust þær upplýsingar að
verðið væri 140 til 150 krónur.
Rjúpan á 135—150 kr.