Morgunblaðið - 05.12.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
21
Einsemd
Bókmenntir
Jenna Jensdóttir
Erlendur Jónsson. Laufið grænt.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur.
1984.
Höfundur sem fyrst og
fremst er leikrita- og ljóðskáld
bregður sér hér inn á svið
skáldsögunnar.
Ellefu ára drengurinn Ingi-
mundur er höfuðpersóna sög-
unnar. Hann er sonur einstæðr-
ar móður í Vesturbænum í
Reykjavík. Hún er sjúkraliði
um þrítugt.
Drengurinn Ingimundur er
„ég“ í sögunni. Öryggislaus,
ástríkislaus drengur, sem raun-
ar er ofaukið í lífi móður sinn-
ar.
drengnum, þegar hann fær
henni peninga frá móðurinni —
meðlag sitt.
Drengurinn Baldur er í sjálfu
sér ágætur, sjálfstæður og
raunsær. En tilfinningalega ná
þeir ekki saman og því myndast
engin vináttutengsl milli
þeirra.
Höfundur ætlar lesanda að
raða saman brotum úr orðum
og gerðum annarra persóna á
bænum og fá úr þeim heildar-
myndir — veikar og sterkar
eftir aðstæðum. Þetta tekst
honum. Svo er einnig um gesti í
umhverfinu — og þá er að garði
ber.
í friðsæld og fegurð náttúr-
unnar flækjast misgengir menn
fyrir drengnum. Og næstum
vondir menn og „asnar". Hið
skuggalega mannlíf sem jafnan
birtist í miklum átökum í ná-
grenni við drenginn er stundum
hrollvekjandi fyrir litla' ein-
mana sál.
Einn er þó öðruvísi en aðrir.
Stóri maðurinn með jarpa
skeggið. Maðurinn sem hús-
freyjan bauð ekki inn. Sem bað
húsfreyju leyfis að láta „dreng-
inn“ fylgja sér út að hliði.
Á örstuttri leið getur lítill
drengur úthellt hjarta sínu
fyrir hlýrri og skilningsríkri
sál. Og séra Sigurjón á Kirkju-
bæ gefur drengnum heilræði
sem lesanda býður grun í að
seinna ráði gerðum drengsins:
„Láttu ekki brjóta þig niður."
Höfundur er óvæginn. Hann
leiðir drenginn á barm hyldýpis
örvæntingarinnar, þegar hús-
freyjan sýnir honum svo and-
legt ofbeldi að hann sleppir sér.
Eftir það á hann einskis úr-
kosta nema strjúka. Einnig í
Erlendur Jónsson
þeirri ferð er að honum þrengt.
Heima fyrir bíður hans tómt
hús — hann á hvergi athvarf.
En það eru til manneskjur sem
Hún á sér ástmann — ráð-
herra, sem hún ætlar með til
Spánar. Á meðan á drengurinn
hvergi afdrep og hann er send-
ur í sumardvöl á bæ fyrir aust-
an Hreppa.
Höfundur er nærfærinn í lýs-
ingum sínum á náttúrunni.
Stuttar setningar hans, sem oft
minna á ljóðlínur, snerta les-
anda þar og litríkt, stórbrotið
landið færist nær honum.
Þessar stuttu setningar verða
hins vegar áreitnar í eðli sínu,
þegar þær birta mannlífið í
sveitinni í allri sinni nekt. Mis-
kunnarlaust sker höfundur upp
tilfinningalíf þeirra er dreng-
urinn kynnist og umgengst.
Hann gerir lesanda uggandi um
hag lítils, einmana drengs sem
er bara til og reynir að gera sitt
besta.
Húsfreyjan á bænum er haf-
gleypa og talandi dæmi um hið
gamla snobb er var svo nær-
tækt í fámenninu áður fyrr.
Hún kynnir ávallt drengina á
bænum með þessum orðum:
„Baldur, sonur séra Páls bróður
míns á Blönduósi. Þetta er
drengur úr Reykjavík."
í eitt skipti er framkoma
hennar mannleg gagnvart
eru góðar í sér — sýna öðrum
kærleika og góðvild án orsaka.
Þegar drengurinn ber dyra
þar sem hann hefur einu sinni
áður komið, er hann þegar
kominn í hlýtt og vinsamlegt
umhverfi. Hugsanirnar sem þá
flæða um hug drengsins og tár-
in sem flæða af hvörmum hans
orka sterkt á lesandann. En
gegnum það birtist fyrirheit
um framtíðaröryggi og hjálp-
semi góðviljaðrar fjölskyldu.
í sögunni þræðir höfundur
myrkvuð einstigi sálarlífs per-
sónanna og stundum verður úr
slæmt fólk. Hann sýnir því
enga vorkunn og teflir sjálfum
sér jafnvel í tvísýnu.
Sagan er hrikaleg og í henni
ríkir viss spenna. Mörg högg
eru slegin og eflaust hitta þau
flest í vaxandi ógn örvilnaðs
samfélags.
Kápumynd er skemmtileg.
Og barnsmynd af höfundi sjálf-
um setur spurningamerki í hug
lesandans.
sögu Reykjavíkur. En Árni Óla
kunni þá list að fjalla um hvert
efni af þeim næmleika að úr varð
holl og eftirminnileg lesning. Því
olli hinn mikli húmanismi hans,
næm réttlætiskennd og samkennd
með þeim sem minna máttu sín.
Það fer því ekki á milli mála að
lestur þessara þátta veitir undra
góða innsýn í mannlíf í Reykjavík
fyrr á tímum og sýnir vel úr hvaða
jarðvegi Reykjavík nútímans er
sprottin. Þá má það ekki gleymast,
að Árni óla er frumkvöðull að
þessari tegund þjóðlegrar blaða-
mennsku. Margir hafa síðan fetað
í fótspor hans og þegar vel hefur
tekist til, hafa þeir séð þjóðinni
fyrir góðu og menningarlegu lestr-
arefni.
Útgáfa þessi birtir þætti
tveggja fyrstu Reykjavíkurbók-
anna óbreytta og í sömu röð og
þeir birtust upphaflega. Við bæt-
ist einungis ágætur inngangur um
Árna Óla, sem Sigurður Bjarna-
son frá Vigur hefur ritað. Að út-
gáfunni er myndarlega og smekk-
lega staðið. Get ég ekki að henni
fundið annað en það, að æskilegt
er að nafnaskrá fylgi riti sem
þessu.
Ég trúi ekki öðru en því að
Reykjavíkurþættir Árna óla eigi
eftir að verða heimilisvinir víða, í
þessum nýja og myndarlega bún-
ingi, heimilisvinir, sem halda
áfram að fræða og gleðja í stað
þess að gleymast í bókahillum sem
stofustáss.
PAD ÞARF
ENGIN ..
BELLI BRC>GÐ
TIL PESS AD FÁ ÓDÝRARA
FARGJALD INNANLANDS FYRIR
FJÖLSKYLDUNA MEÐ FLUGLEIDUM
FLUGLEIDIR jSt
í wmmfrnm
, --------