Morgunblaðið - 05.12.1984, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
37
Útgefandi tfrlflKfeÍfe hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aöstoóarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 25 kr. eintakiö.
Fjárlaga-
dæmið
að er samdóma álit þeirra
sem náið fylgjast með
þróun stjórnmála, að farið
hafi að halla undan fæti hjá
ríkisstjórninni á fyrstu mán-
uðum þessa árs, þegar í ljós
kom að verulegur halli yrði á
rekstri ríkissjóðs 1984 þrátt
fyrir yfirlýsingar um hið
gagnstæða við gerð fjárlaga
fyrir réttu ári og heitstreng-
ingar þá um að betur væri um
hnúta búið við fjárlagagerð en
oftast áður. Fjárlagagatið
sem tók margar vikur að fylla
á útmánuðum varð til þess að
rýra traust manna á stjórn-
inni og hitt bætti ekki úr skák
hve það tók langan tíma fyrir
stjórnarflokkana að finna
málamiðlunarlausn.
Því er þetta rifjað upp hér
og nú, að þessa dagana eru
stjórnmálamennirnir að fást
við svipaðan vanda og í vor,
það vantar nokkur hundruð
milljónir til að endar nái sam-
an í fjárlagadæminu, svo að
unnt sé að afgreiða fjárlaga-
frumvarpið, hvað svo sem
verður eftir að það er orðið að
lögum.
Albert Guðmundsson, fjár-
málaráðherra, segir í Morgun-
blaðinu í gær, að hann hafi
ætíð verið á móti skattahækk-
unum en aftur á móti kynni til
þeirra að koma nú. Aðrir við-
mælendur Morgunblaðsins
vísa til fjármálaráðherra þeg-
ar þeir eru spurðir um þær
hugmyndir sem eru uppi um
tekjuöflun fyrir ríkissjóð.
Ólafur G. Einarsson, formað-
ur þingflokks sjálfstæð-
ismanna, segir að fjármála-
ráðherra hafi lagt til að sölu-
skattur verði hækkaður um
0,5%. Sú tillaga ráðherrans
hefur verið samþykkt í þing-
flokki framsóknarmanna en
mætir harðri andstöðu ein-
stakra þingmanna í Sjálf-
stæðisflokknum. í Morgun-
blaðinu í gær neitar Albert
Guðmundsson því svo að hafa
lagt fram nokkra tillögu um
0,5% söluskattshækkun.
Flest bendir til þess að sag-
an frá því á útmánuðum sé að
endurtaka sig. Það er ekki
nægilega markvisst tekið á
því að ná endum saman í fjár-
lagadæminu. Tíminn líður án
þess að skýrar tillögur liggi
fyrir sem fjármálaráðherra
vill að nái fram að ganga.
Eðlilegt er að það taki nokk-
urn tíma fyrir menn að ná
áttum eftir kollsteypuna í
kjaramálunum nú í haust,
sem raskar markmiðinu sem
stjórnarflokkarnir höfðu sett
sér í september um hallalaus
fjárlög á næsta ári. Frá þessu
markmiði hefur nú verið horf-
ið. í stefnuræðu sinni 22. nóv-
ember komst Steingrímur
Hermannsson, forsætisráð-
herra, þannig að orði að nauð-
synlegt væri að stefna „að því
að ríkisbúskapur verði sem
næst hallalaus á næsta ári.“
Albert Guðmundssyni, fjár-
málaráðherra, er mikill vandi
á höndum nú þegar lögð er
síðasta hönd á fjárlagagerð-
ina fyrir næsta ár. Greinilegt
er að menn bíða þess nú með
vaxandi óþreyju á Alþingi að
hann taki afdráttarlaust af
skarið um það, hvernig hann
vill að staðið verði að tekjuöfl-
uninni. Reynslan af fjárlaga-
gatinu á fyrstu mánuðum
þessa árs hlýtur að vera víti
til að varast.
Glæsilegur
árangur
í handbolta
Könnunin á gildismati ís-
lendinga leiðir í ljós, að
fáar þjóðir segjast stoltari af
þjóðerni sinu en íslendingar
og þeir skera sig greinilega úr
öðrum Norðurlandaþjóðum
um þetta. í sjálfu sér getur
það verið breytilegt af hverju
Islendingar eru stoltastir
hverju sinni, þótt rík þjóðern-
iskennd búi þar jafnan að
baki.
Frábær árangur íslenska
landsliðsins í sex landsleikj-
um að undanförnu, þar sem
liðið sigraði í fjórum, gerði
eitt jafntefli og tapaði aðeins
einum leik eflir þjóðarstolt
mikið nú um stundir, og ekki
af ástæðulausu.
„Þetta var góð keppnisferð
hjá okkur en því ber ekki að
neita að hún var hræðilega
erfið," sagði Þorbjörn Jens-
son, fyrirliði landsliðsins, í
Morgunblaðsviðtali í gær og
bætti við: „Við lékum vel í
þessari ferð og ég tel að
árangur okkar sé mjög góður.
Við getum þó ekki ofmetnast
því að við eigum langt í land
ennþá." Eins og af þessum
orðum má ráða ætla lands-
liðsmennirnir okkar sér enn
stærri hlut. Víst er að með
þeim verður fylgst og hugur
stoltrar þjóðar fylgir þeim
með góðum óskum.
ítarleg skýrsla um ratsjármálið:
í þágu varna, flug-
umferðar og siglinga
íslendingar sjái um
rekstur og viðhald
allra ratsjárstöðva
í landinu
„Einn meginþátturinn í
starfí varnarliðsins hér á ís-
landi hefur verið eftirlit með
ferðum herflugvéla, skipa
og kafbáta, er nálgast
landið. Þörfín fyrir a efla
síkt eftirlit hefur aukist mjög
undanfarin ár. Þetta á eink-
um við um flugið, þar eð
flug sovéskra herflugvéla í
námunda við Island hefur
aukist jafnt og þétt. Var
tala þeirra, er komu inn á
loftvarnasvæði varnarliðs-
ins árið 1983, sú hæsta sem
skráð hefur verið fram að
þessu. Fjöldi útkalla orr-
ustuflugvéla varnarliðsins
hefur tæplega tvöfaldast á 7
ára tímabili, voru alls 290 á
árunum 1982—1983, en
aöeins 148 á árunum
1975—1976.“
Með þessum orðum hefst skýrsla
um endurnýjun á ratsjárkerfi
varnarliðsins, sem samin hefur
verið af ratsjárnefnd varnarmála-
deildar utanríkisráðuneytisins og
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra kynnti á blaðamannafundi í
gær. Dr. Þorgeir Pálsson, dósent
við Háskóla íslands, var með ráð-
herranum á fundinum, en hann á
setu í ratsjárnefndinni ásamt þeim
Hauki Haukssyni varaflugmála-
stjóra, fulltrúa flugmálastjórnar,
Berent Sveinssyni yfirloftskeyta-
manni, fulltrúa landhelgisgæslu,
Olafi Tómassyni yfirverkfræðingi,
fulltrúa Pósts og síma, og Sverri
Hauki Gunnlaugssyni sendifull-
trúa, deildarstjóra varnarmála-
deildar.
ítarleg athugun
í inngangi skýrslunnar segir
ennfremur:
„Núverandi ratsjárkerfi varnar-
liðsins á suðvestur- og suðaustur-
hornum Iandsins megna ekki að
fylgjast með flugi þessara her-
flugvéla nema að takmörkuðu leyti.
Loftsvæði út frá Vestfjörðum,
Norðurlandi og Norðausturlandi
eru því „opin svæði“, sem einungis
eru undir eftirliti þegar AWACS-
ratsjárvélarnar eru á lofti. Mörg
tilfelli hafa komið upp, þar sem
sovéskri flugvél hefur tekist að
fljúga undir ratsjárgeisla núver-
andi stöðva í því skyni að gera til-
raun til þess að nálgast landið óséð.
Tryggja verður, að vitneskja um
nærveru sovéskra herflugvéla ber-
ist varnarliðinu nægilega snemma
til að hægt sé að bægja þeim frá
landinu.
Umferð sovéskra herflugvéla
veldur einnig áhyggjum vegna
hættu, sem annarri flugumferð
stafar af þeim. Þessar flugvélar
senda ekki flugáætlanir til né fá
flugheimild frá íslensku flugstjórn-
armiðstöðinni, sem er andstætt
hefðbundnum alþjóðavenjum. Þær
fljúga því iðulega inn á leið far-
þegaflugvéla, án þess að flugstjórn
verði vör við þær. Ratsjárstöðvar á
NV- og NA-landi gerðu það hins
vegar mögulegt að fylgjast mun
betur og fyrr með ferðum þessara
sovésku flugvéla og þar með
Þannig sér teiknari fyrir sér stöðvarhús og önnur mannvirki ratsjárstöðvar á
fjallstoppi. Stöðvarhúsið yrði um 1200 m2 að flatarmáli og er þá gert ráð fyrir
vistarverum fyrir starfsmenn tækjaskála, viðhalds- og viðgerðaraðstöðu, auk
bifreiðageymslu. Ratsjárhvelfingin nær allt að 27 metrum upp yfir jafnslétt-
una.
tryKKÍa öryggi almenns farþega-
flugs.
Vegna áhuga íslenskra og banda-
rískra stjórnvalda og Atlantshafs-
bandalagsins á að bæta úr þessu
ófremdarástandi var í nóvember sl.
hafin ítarleg athugun á því með
hvaða hætti og hve fljótt unnt sé að
koma upp nýjum ratsjárstöðvum
vestan og norðaustanlands, auk
þess að endurnýja þær tvær rat-
sjárstöðvar, sem nú eru fyrir
hendi.
Markmið þessarar athugunar
hefur verið að fá fram, hvers konar
ratsjártækni kæmi helst til greina
og hvar heppilegast sé að staðsetja
ratsjárstöðvar með tilliti til rekstr-
arþátta, nauðsynlegrar upplýsinga-
öflunar og reynslu af rekstri eldri
stöðva. Einnig hefur verið athugað
á hvern hátt íslendingar gætu tek-
ið að sér rekstur og viðhald nýrra
ratsjárstöðva og hvaða not við gæt-
um haft af upplýsingum ratsjár-
stöðva fyrir flugumferðarstjórn og
siglingar á sjó. 1 þessu sambandi
hefur verið haft samráð við Norð-
menn, sem nú vinna að víðtækum
endurbótum á loftvarnaratsjár-
kerfum sínum, m.a. byggingu
þriggja nýrra ratsjárstöðva.
Verði ákveðið að hefjast handa
um byggingu ratsjárstöðva mun
mannvirkjasjóður Atlantshafs-
bandalagsins (NATO Infrastruc-
ture Programme) kosta fram-
kvæmdirnar að mestu leyti og
Bandaríkin greiða rekstrarkostnað,
en íslendingar annast reksturinn."
Hlutverk ratsjár-
kerfisins
í skýrslunni segir, að varnar-
hlutverk núverandi ratsjárkerfis sé
tvíþætt: 1) að finna, fylgjast með
og auðkenna allar flugvélar í nánd
við og innan loftvarnasvæðisins við
fsland og 2) leiðbeina orrustuflug-
vélum að flugvélum, sem ekki hafa
verið auðkenndar. Hugsanleg við-
bót tveggja ratsjárstöðva á Norð-
vestur- og Norðausturlandi mundi
á engan hátt breyta þessu hlut-
verki kerfisins, heldur eingöngu
gera því kleift að gegna því á full-
komnari hátt en nú er gert.
Varnarhlutverkið er forsendan
fyrir því að ratsjárnar eru starf-
ræktar en í skýrslunni er gerð ít-
arleg grein fyrir því, að þær megi
nota 1) til almennrar flugumferð-
arstjórnar, 2) við eftirlit með skip-
aumferð og 3) til áð fylgjast með
veðri og ef til vill hafís. Ratsjár af
þeirri gerð, sem um er rætt í
skýrslunni, „eru mjög vel fallnar til
þess að veita upplýsingar um flug-
umferð fyrir almenna flugumferð-
arstjórn", segir í skýrslunni.
Segir nefndin að AN/FPS-117-
ratsjárkerfið sé gott dæmi um
þann ratsjárbúnað, sem kæmi til
greina að nota í hinum nýju og
endurnýjuðu ratsjárstöðvum, en
reiknað er með alþjóðlegu útboði á
smíði tæknibúnaðar meðal aðildar-
ríkja Atlantshafsbandalagsins.
Þetta kerfi hefur bæði frumratsjá
og svarratsjá, svo sem venja er í
ratsjárkerfum, sem eru notuð við
eftirlit með flugumferð.
f skýrslunni segir, að ratsjár-
gögn frá fjórum ratsjárstöðvum
hér á landi gerðu kleift að veita
sambærilega þjónustu í flugum-
ferðarstjórn héðan og best gerist í
nágrannalöndum. Eigi þetta bæði
við um aiþjóðaflugið, sem fengi
betri þjónustu með greiðari að-
gangi að hagkvæmustu flughæðum,
og innanlandsflugið, þar sem rat-
sjáreftirlit mundi auka flugöryggi
og greiða fyrir flugumferð bæði í
leiðarflugi og aðflugi að ýmsum
flugvöllum. „Ratsjárnar stuðluðu
þannig að áframhaldandi þjónustu
við alþjóðaflugið, sem rekið er á
vegum Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar, og að auknu flug-
öryggi bæði í innanlands- og milli-
landaflugi."
Endurbætur og
nýjungar
f lok skýrslunnar, sem er 34 blað-
síður með margvíslegum teikning-
um og afstöðumyndum, eru helstu
þættir hennar dregnir saman með
þessum hætti:
„Þessi skýrsla fjallar um endur-
bætur á ratsjáreftirlitskerfi varn-
arliðsins, sem hefur verið starf-
rækt hér á landi allt frá árinu 1958.
Þessum endurbótum má skipta í
eftirfarandi þætti:
— Byggingu tveggja nýrra ratsjár-
stöðva á NV-landi á Stigahlíð-
arfjalli við ísafjarðardjúp og á
NA-landi, annaðhvort á Hroll-
laugsstaðafjalli eða Gunnólfs-
víkurfjalli.
— Endurnýjun á búnaði núverandi
ratsjárstöðva á Miðnesheiði og
Stokksnesi.
— Uppsetningu sameinaðrar eftir-
litsstöðvar á Keflavíkurflug-
velli, sem kæmi í stað núver-
andi eftirlitsstöðva á Miðnes-
heiði og Stokksnesi.
Vaxandi umferð sovéskra her-
flugvéla í nágrenni fslands veldur
því, að nauðsynlegt er að efla rat-
sjáreftirlit með flugumferð hér á
landi. Þetta á einkum við um svæð-
ið norður og austur af landinu, sem
ekki er undir eftirliti nú, nema þeg-
ar AWACS-flugvélar eru á þessum
slóðum."
Bráðabirgðastöðvar
„Á myndinni eru sýnd ytri mörk
þess svæðis, sem nýjar ratsjár á
NV- og NA-landi, ásamt núverandi
ratsjám á Miðnesheiði og Stokks-
nesi, næðu til miðað við 13.000 feta
flughæð. Stærð þessa svæðis
minnkar í lægri flughæðum, en
stækkar þegar hærra dregur.
Markmiðið með byggingu nýju
stöðvanna er því eingöngu að
stækka eftirlitssvæðið. Hlutverk
þeirra er að öllu leyti hið sama og
eldri stöðvanna, þ.e. að fylgjast
með og auðkenna alla flugumferð í
nágrenni landsins, og aðstoða við
að leiðbeina flugvélum varnarliðs-
ins, sem fara til móts við óþekktar
flugvélar. Uppbygging nýju rat-
sjárstöðvanna gæti orðið með þeim
hætti, að rekstur þeirra yrði hafinn
árið 1987 með bráðabirgðaratsjám
af sömu gerð og notaðar eru í nú-
verandi stöðvum. Mannvirki væru
þó öll endanlega frágengin. Ratsjár
af nýjustu gerð yrðu síðan teknar í
notkun árið 1989, og þá yrði sams
konar búnaði komið fyrir í eldri
stöðvunum á Miðnesheiði og Stokk-
snesi. Ef þessi bráðabirgðalausn er
ekki valin, gæti rekstur stöðvanna
á NV- og NA-landi ekki hafist fyrr
en árið 1989.“
Reksturinn í höndum
íslendinga
„íslendingar sæju um rekstur og
viðhald nýju ratsjárstöðvanna og
tækju jafnframt við rekstri núver-
andi stöðva.
Jafnhliða ofangreindum endur-
bótum á ratsjárstöðvunum yrði eft-
irlitið með flugumferðinni samein-
að í einni eftirlitsstöð á Keflavík-
urflugvelli. Þetta eftirlit fer nú
fram á tveim stöðum, þ.e. í rat-
sjárstöðvunum á Miðnesheiði og
Stokksnesi. Þessi sameining bygg-
ist á því að senda ratsjárgögnin á
stafrænu formi frá ratsjárstöðvun-
um um fjarskiptakerfi Pósts og
síma til eftirlitsstöðvarinnar.
Starfsliði í núverandi eftirlits-
stöðvum fækkaði því verulega.
Starfsliði í Stokksnesstöðinni
fækkaði þannig úr 110 manns niður
í 30.
Auk varnarhlutverksins gætu Is-
lendingar haft ýmis not af rat-
sjánum og þá sérstaklega til:
— Flugumferðarstjórnar í innan-
lands- og alþjóðaflugi;
— eftirlits með skipaumferð í
grennd við ratsjárstöðvarnar,
og til að afla veðurupplýsinga.
Flugmálastjórn hefur um tólf
ára skeið notað gögn frá svarratsjá
stöðvarinnar á Miðnesheiði til eft-
irlits með flugumferð allt að 200
sjómílur frá Keflavíkurflugvelli
með mjög góðum árangri. Sú
stækkun, sem yrði á þessu svæði, ef
flugstjórnarmiðstöðin fengi gögn
frá fjórum ratsjám á öllum horn-
um landsins, ylli byltingu í stjórn
flugumferðar bæði í innanlands- og
alþjóðaflugi. Hagsbæturnar fælust
í auknu flugöryggi og hagkvæmni,
m.a. í lægri eldsneytiskostnaði
flugvéla. Fylgjast mætti með flug-
vélum í innanlandsflugi yfir öllu
landinu yfir 13.000 feta flughæð og
ratsjárnar kæmu jafnframt að
gagni við eftirlit með aðflugi að
flugvöllum, t.d. á ísafirði, Þórs-
höfn, Raufarhöfn, Kópaskeri og
Húsavík. Óhætt er að fullyrða, að
þjónustan við alþjóðaflugið, sem
veitt er samkvæmt samningi við
Alþjóðaflugmálastofnunina,
treystist mjög til frambúðar með
tiikomu fullkominnar ratsjárþjón-
ustu, en framfarir í fjarskiptum
með gervitunglum valda nú nokkr-
um áhyggjum um framtíð þessarar
starfsemi."
Skiparatsjár
„Komið yrði upp sérstökum
ratsjám til að fylgjast með skipa-
umferð í grennd við ratsjárstöðv-
arnar. Eftirlit með skipum gæti
náð allt að 55—59 sjómílur til hafs,
þar sem best lætur. Með sérstakri
útfærslu á búnaðinum yrði jafn-
framt mögulegt að fylgjast með úr-
komusvæðum, sem getur komið að
gagni við siglingar í lofti og á sjó.
Augljóst er, að umræddar endur-
bætur á ratsjáreftirlitskerfinu eru
stórt verkefni, sem krefst mikils
undirbúnings og tæknivinnu.
Gengið er út frá því, að íslensk
stjórnvöld og íslenskir tæknimenn
tækju virkan þátt í þessari vinnu á
öllum stigum. Tekið yrði mið af að-
stæðum hér á landi og notaðir ís-
lenskir staðlar varðandi hönnun
mannvirkja og búnaðar."
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Stjórnmálasamband íraka og
Bandaríkjamanna kann að marka
þáttaskil í Miðausturlöndum
SAMKOMULAG Bandaríkjanna og íraka um að taka upp stjórnmála
samband á ný, eftir sautján ára hlé á því bendir til þess að Bandaríkin
telji ástæðu og nauðsyn til að auka áhrif sín í Arabaheiminum. Það þarf
út af fyrir sig ekki að koma á óvart, en á hinn bóginn munu Bandaríkja-
menn þurfa að halda vel og skynsamlega á spilunum, svo að ísraelar túlki
þetta ekki sem einhvers konar aðgerð gegn sér. Mjög mikil heift ríkir
milli íraka og ísraela eins og allir vita sem fylgjast með málefnum þessa
heimshluta. Israelar hafa gert árásir, all umdeildar, á írak, vegna þess
þeir álitu að írakar væru að vígbúast til að geta ráðist á ísrael og vildu
vera fyrri til. Nú er ekki sennilegt að ísraleum verði stætt á þvílíku, að
minnsta kosti eru írakar án efa þeirrar skoðunar, að þeim sé að nokkru
vernd i því að taka upp samskipti við Bandaríkin opinberlega aftur.
R:
eagan stjórnin lét fylgja
mjög adráttarlausa yfirlýs-
ingu um, að Bandaríkin myndu
ekki aðhafast neitt það sem
styrkti íraka á hernaðarsviðinu
og sú ákvörðun að taka upp
stjórnmálasamband breytti
engu um ævarandi stuðning og
vináttu við Ísraelsríki.
írakskir embættismenn segja
að þetta muni leiða til þess að
Sovétmenn fari að hugsa sitt
ráð. Áhrif þeirra í írak hafa ekki
verið jafn augljós og í Sýrlandi
og svo virðist sem úr þeim hafi
raunar dregið í báðum löndun-
um, meðal annars vegna ákefðar
Bandaríkjamanna að bæta sam-
skipti við Arabaríkin.
Það er Irakar munu binda
mestar vonir við nú er að þetta
kunni að verða þeim til fram-
dráttar og hálfgildings bjargar í
fran-írak stríðinu. Svo mjög hef-
ur það ljóta stríð og langa dregið
máttinn úr frökum, að þeir hafa
haft tiltölulega litla sinnu á þvi
að hafa uppi yfirlýsingar gegn
ísrael. Nema hvað það snertir,
að ísraelar hafa látið frönum í té
vopn, að minnsta kosti lengst af
stríðinu. Það sýnir betur en ým-
islegt annað þann margfalda
hráskinnsleik sem stríð eru:
samtímis því að gyðingar eru
hundeltir og ofsóttir í íran, láta
ísraelar þeim í té vopn, svo að
þeir geti barið á Arabaþjóð, sem
er í þeirra augum enn verri kost-
ur að bæri sigur úr býtum en að
íranska byltingin flæddi yfir
Miðausturlönd.
Samtimis þessu hafa Banda-
ríkjamenn svo látið líklega við
frani, sagt að alls ekki væri úti-
lokað að reyna að ná samkomu-
lagi um „eðileg samskipti" svo
fremi sem stjórnin í Teheran
hætti að styðja alþjóðlega
hryðjuverkastarfsemi. Svar hef-
ur ekki heyrzt frá frönum, en
auðvitað er það opinbert leynd-
armál, að Bandaríkjamenn og
ýmsar Vesturlandaþjóðir hafa
stutt frani og fraka á víxl í stríð-
inu, ýmist með vopnasendingum,
sem ekki hafa alltaf farið hátt
eða á óbeinan hátt, meðal annars
með því að senda til landsins
hernaðarráðgjafa og sérfræð-
inga.
En hvað sem þessu nú líður
hafa viðbrögð fraka við stjórn-
málasambandi á ný við Banda-
ríkin verið heldur jákvæð. I
grein sem AP-fréttastofan sendi
frá sér nýlega hafði verið rætt
við ýmsa borgara í Bagdad, sem
allir létu í ljós ánægju með þessa
ákvörðun. „Þetta eru beztu frétt-
ir sem ég hef heyrt í fjögur ár,“
sagði kaupmaður nokkur, Subhi
að nafni, sem að öðru leyti vildi
ekki láta gera fyrir sér nánari
grein. Subhi þessi sagði, að
styrjöldin, sem hefur nú staðið í
fjögur ár og tveimur mánuðum
betur, væri raunar að nokkru
sök Bandaríkjanna. Að hluta til
vegna þess að Washington-
stjórninni hefði ekki á sfnum
tíma tekizt að halda franskeis-
ara við völd og sýnt alltof mikla
undanlátssemi við þá sem börð-
ust gegn stjórnarfarinu á síð-
ustu mánuðum keisaratímans.
Þetta hefði svo aftur haft í för
með sér að völdin hefðu hrifsað
öfgasinnaðir stjórnleysingjar,
sem stjórnuðu með harðræði og
ógn, sem væri ekki til neins jafn-
að.
Saddam Hussein
forseti íraks
W
't W* 'SmA
Stríð íraka og frana hefur kostað óheyrilegar fórnir.
Sama virtist upp á teningnum
hjá ýmsum öðrum, sem AP
fréttamenn ræddu við og voru
sumir svo bjartsýnir, að þeir
staðhæfðu fullum fetum, að
„Bandaríkjamenn myndu stöðva
stríðið við írani“.
Eins og komið hefur fram slitu
Bandaríkjamenn stjórnmála-
sambandi við frak i Sex daga
stríðinu 1967. frakar hafa tekið
þátt í öllum þeim hernaðarað-
gerðum gegn Israel sem Araba-
ríkin hafa á einhvern máta stað-
ið að sameiginlega. Grimmd
þeirra í stríðinu 1948, eftir að
Israel lýsti yfir sjálfstæði er enn
í minnum höfð og ekki farið dult
með það að frakar séu ásamt
Sýrlendingum eðlisgrimmari
öðrum Aröbum. Á síðasta sumri
beindi stjórn Saddam Husseins í
frak þeim tilmælum til Banda-
ríkjamanna að þeir tryggðu það
og ábyrgðust að fsraelar myndu
ekki gera loftárásir á olíulínu
sem átti að fara að leggja og
liggja um Jórdaníu. Verkið við
lögn þessa hefur að nokkru leyti
legið niðri vegna þess að frakar
hafa ekki viljað hætta á neitt.
Nú segja embættismenn i frak,
að Saddam Hussein líti ekki svo
á að írak sé í fremstu víglínu
þeirra Arabalanda sem deili við
Israela. Svo kann því að fara að
olíuleiðslan verði lögð með friði
og spekt.
Jórdanir gerast æ áfjáðari í að
ná einhvers konar samningi við
fsraela eins og kunnugt er. Jórd-
anir og frakar hafa um árabil
haft með sér nána samvinnu á
öllum mögulegum sviðum. Nú er
því ekki talið fjarri sanni, að
Jórdaníumenn eigi sinn þátt i
því að draga úr fjandskap fraka
í garð fsraels. Það kemur varla
til að Jórdanía geri árás á ísrael.
Eins og málin standa nú er raun-
ar ekkert útlit fyrir að hernaðar-
átök verði milli ísraela og Ar-
abaþjóða þótt kuldi sé mikill
þarna á milli. óopinberlega hafa
flestar Arabaþjóðanna á þeim 36
árum sem eru liðin frá stofnun
Ísralesríkis sætt sig við að því
verði ekki breytt héðan af. Sú
ákvörðun fraka að taka upp
stjórnmálasamband við Banda-
ríkin, dyggustu stuðningsmenn
ísraela, er því ekki aðeins vegna
eiginhagsmuna og vegna þess að
þeir vilja minnka áhrif Sovét-
manna. f ákvörðun fraka felst
einnig óbein viðurkenning á því
að Ísraelsríki skuli standa. Og
það er hreint ekki svo lítið.
(Heimildir AP-Jenu>lem Post oO.)
Jóbaana Kristjónsdóttir er blm. í
erl. fréttadeild Mbl.