Morgunblaðið - 05.12.1984, Side 54

Morgunblaðið - 05.12.1984, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984 Kirkjubæjarklaustur: Heilsuræktarstöðin TJndraland opnuð Kirkjubæjarkl&ustri, 27. nóvember. I SÍÐASTA mánuði tók til starfa á Kirkjubæjarklaustri heilsuræktar- stöðin „Undraland". Það eru tvenn hjón sem að fyrirtækinu standa, þau Matthildur Pálsdóttir og Vigfús Helgason og Soffía Ragnarsdóttir og Valgeir Ingi Ólafsson. Auk fullkomins ljósalampa — samloku — er einnig boðið upp á böð, sauna og þrekþjálfunartæki. Þá er einnig aðstaða til iðkunar á badminton, minitennis og borð- tennis. í tengslum við stöðina eru einnig námskeið, bæði hress- ingarleikfimi og heiisuræktar- námskeið í umsjón sérþjálfaðs starfsfólks, íþróttakennara og hjúkrunarfræðings. Eftir aðsókninni að dæma kann fólk greinilega vel að meta aðstöð- una. í byrjun var aðeins gert ráð fyrir að hafa opið 3 daga vikunn- ar, en nú er svo komið að opið er 6 daga vikunnar. — HSH MEÐ VALDIMARIORNOLFSSYNI, _______en adeinsein!____ 05 að Saalbach En þú verður að hafa hraðann á. Þátttaka er takmörkuð við 40 manns. „Saalbach er frábær staður,“ segir Helmut Maier, skíðakappi og kennari í Kerlingarfjöllum. • Afbragðs hótel • Aðgangur að sundlaug og gufuböðum • Yfir 50 skíðalyftur • Skíðafæri heim að hóteli og skíða- lyftur við dyrnar • Stutt á Kaprínarjökul (skíðalyftur í 2.800 metra hæð) • Stutt í hljómleikahallirnar í Salzburg Beint flug til Innsbruck með Flugleiðum. Flogið heim frá Munchen um Kaup- Verð (í tvíbýli m/hálfu fæði) kr. 33.800,- Tökum nú þegar við pöntunum. POLARIS POLAFHS FERÐASKFIIFSTOFA BANKASTRÆTI 8, SÍMI 28622 Kirkjuvígsla Langholtssafnaðar Langholt — Hálogaland. Tvö orð. Hornsteinar hárra sala. Tvær hugsjónir saman- stungnar. Hversdagsbaráttan, með allar sínar fórnir, óskir og bænir, dug og dáðir, eyri ekkjunnar, rausn hins ríka — Langholt. Hugsjónirnir, helgidómurinn, með allar sínar stjörnur og norð- urljós, sólaruppkomu og sólar- lag, söngva og dýrð, himinn Guðs — Hálogaland. Hið smáa stórt — hið lága hátt. Jörð og himinn fallast í faðma. Kirkja. Musteri við Sólheima á vegum Guðs ríkis á íslandi. Hvað er hér smátt og hvað er stórt? Sjálfur Jesús, meistarinn mikli frá Nazaret, frumherjinn á vegum friðar, frelsis og kær- leika, fæddist sem útlagi mann- heima í asnastalli. Langholtskirkja í dag, hún fæddist sem hugsjón í fyrirlitn- um hermannabragga innst í hæðinni og holtinu við alfaraveg borgar og sveitar. Fátt gat sýnzt lægra í fljótu bragði litið. En líkt og ósjálfrátt var hús þetta kennt við Hálogaland, eina æðstu hugsjón á vegum stjarna og norðurljósa, eitt fegursta orð og nafn norrænna tungumála. Samt án alls hroka, likt og við handleiðslu Guðs til að minna á hið mikla takmark þjóða, krist- indóm í verki og sannleika, ofar öllum orðum og erfikenningum. Ríki réttlætis, friðar og gleði, ríki Guðs á jörðu. Og þessi lági helgidómur varð upphafið. Þar fæddust allar þær óskir og bænir, sem hér sjást í dag í línum og litum, heyrast í orðum og ómum bylgjandi tón- listar. Hann varð með litla orgelinu sínu upphaf þessarar messu, þessarar vígslu. Þetta Langholt og Hálogaland varð ósjálfrátt tákn um ennþá meira af æðstu hugsjón og iífs- von alls mannkyns í dag. Þar blikaði sólris yfir fyrsta kirkjudegi Langholtssafnaðar 1954, þegar ungur prófessor flutti ræðuna: „Kirkja fyrir- finnst engin." En „bragginn" var tákn, talandi tákn hins lága og smáa. Undir hans þaki höfðu, án þess nokkur veitti því hugsun, mætzt tvær þjóðir heims hin mesta og minnsta, herþjóð og friðarþjóð í sömu leit að sólskini friðar og bræðralags. Svo komu jólin það sama ár fyrir 30 árum. Aldrei fleiri börn í einum hópi við æskulýðssamkomu í Reykja- vík. Allt átti þetta að tákni og takmarki hinn starfandi krist- indóm. Vakandi vonir á síðsumardýrð kirkjudagsins fyrsta, þegar bisk- up íslands, faðir biskupsins í dag, signdi holtið og hæðina úr flugvél, komandi að norðan, með bæn og blessun, brosi gegnum tár. Og húsameistarinn tók til að teikna og hanna það musteri sem hér skyldi rísa. Hann tók með ljúflyndi og lítillæti þeim hugmyndum, sem formaður og prestur safnaðarins fluttu hon- um. Kirkjan, hið komandi guðshús hér fyrir „20 þúsund manna söfnuð í framtíðinni", skyldi mótast hinum sýnilega heimi sem þrenns konar tákn á vegum guðsríkis: 1. Sem tjaldbúd — hið fyrsta guðshús eyðimerkurfara á leið frá Egyptalandi spekinn- Norðurlöndin eru mikilvægust fyrir sænskan útflutning Fri Magnúsi Brynjóirssyni, fréttar. Mbl. i IJppsölnni, SríþjóA. Norðurlöndin eru mikilvægari fyrir sænskan iðnað en nokkur annar markaður í heiminum. Um 25 prósent af sænskum út- flutningi fer til hinna Norðurland- anna og um 110.000 störf eru í bein- um tengslum við útflutninginn til Noregs, Danmerkur, Finnlands og íslands. Af heildarútflutningi 1983, sem var 210,3 milljarðar s.kr., seldist fyrir 51,3 milljarða til Noregs, Danmerkur og Finnlands. Island keypti fyrir um hálfan milljarð s.kr. í ár, þ.e. frá janúar og fram í maí, lítur dæmið svona út: Noregur keypti fyrir 9,4 milljarða s.kr. Það svarar til 9,2 prósenta af heildarút- flutningi Svía, sem eru 102 millj- arðar það sem af er árinu. Dan- mörk keypti fyrir 8,9 milljarða, sem eru 8,7 prósent af heildarút- flutningnum á ofangreindu tíma- bili. Finnland verslaði fyrir 6,1 milljarð, sem eru 5,9 prósent af heildarútflutningnum á sama tímabili. Hér er um að ræða verslun, sem sýnir greinilega mun hagstæðari sænskan viðskiptajöfnuð en árið á undan. Bæði Noregur og Danmörk eru ofarlega á blaði yfir þau lönd þar sem Svíþjóð hefur mun betri við- skiptajöfnuð en áður. Á árinu 1983 var um að ræða 6,6 milljarða á móti 5,4 milljörðum, sem Svíþjóð steig fram úr þessum löndum i bættum viðskiptajöfnuði, eða sem nemur 1,2 milljörðum í mismun. Viðskiptajöfnuðurinn við Finnland er heldur minni miðað við hin lönd- in, eða sem nemur hálfum millj- arði. Þessar tölur sýna aðeins eina hlið á málinu. Hin hliðin er sú að þessar staðreyndir sýna svo ekki verður um villst hversu sterk staða sænsks iðnaðar er í öllu norrænu efnahagslífi. Sérstaklega á þetta við um Noreg, þar sem sænskur iðnaður hefur verið í fararbroddi frá áttunda áratugnum og fram á þennan dag. í dag eru um 400 sænsk dóttur- fyrirtæki í Noregi með um samtals 20.000 starfsmenn. Ástandið er svipað í Danmörku og Finnlandi. Staða sænska iðnaðarins verður einnig greinilegri innan Norður- landanna þegar horft er á hvernig efnahagsþróunin í Svíþjóð hefur stjórnað og stýrt hinni samnor- rænu verslun. Norðurlöndin stökkpallur inn á aðra stærri og fjarlægari markaði Eftir hina gífurlegu þenslu í efnahagsþróuninni á sjöunda ára- tugnum og fyrri hluta áttunda áratugarins stöðvaðist þenslan næstum alveg í olíukreppunni á miðjum áttunda áratugnum. Norðurlöndin eru mjög mikil- væg fyrir sænskan iðnað út frá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.