Morgunblaðið - 05.12.1984, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
67
VELVAKANDI
SVARARí SÍMA
10100 KL 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS _
(Ví KiMtlXA'
íþróttaþáttur á óheppilegum
tíma fyrir unga áhorfendur
8 ára íþróttaunnandi í Garðabæ
skrifar:
Ég er 8 ára strákur, og hef
mjög gaman af íþróttum. Mér
finnst skrítið að íþróttir séu
settar síðastar á dagskrá sjón-
varpsins á mánudögum. Þar sem
ég þarf að vera mættur í skólann
kl. 8 á morgnana, get ég ekki
farið mjög seint að sofa. Éf ég
horfi á íþróttir, get ég ekki farið
að sofa fyrr en kl. 11.30.
Væri ekki hægt að hafa
íþróttaþáttinn aðeins fyrr á
kvöldin og sýna frétta- og
fræðsluþætti fyrir fullorðna
fólkið á eftir?
Góð tíðindi að norðan
Árni Helgason skrifar:
Fyrir nokkrum dögum var nýtt
og veglegt útvarpshús tekið í notk-
un á Akureyri. Þar var hópur
manna að fagna góðum áfanga.
Það vakti athygli að við vígslu
hússins var ekkert áfengi haft um
hönd.
Hinn kunni útvarpsmaður og
mannvinur, Jónas Jónasson, sem
þarna er húsbóndi, var ekki í vafa
um að heillavænlegra væri að
hleypa heimdraganum með öðrum
hætti en tíðkast hefir hjá alltof
mörgum sem áföngum hafa fagn-
að. Hann hefir séð margt miður
fara á sinni litríku æviferð. Því
var nú brotið í blað.
Hins vegar kom sóknarprestur-
inn, sr. Pálmi Matthíasson, og
flutti blessunarorð og fyrirbænir
fyrir húsinu og þeim sem þaðan
ættu eftir að flytja þjóðinni and-
legt hollustufæði. Á eftir settust
menn að veisluborði þar sem heil-
næmir og þjóðlegir drykkir voru á
boðstólum. Og í lokin fóru menn
heim glaðir og ánægðir yfir þessu
ágæta samkvæmi.
Þess var og getið að reykingar
voru stranglega bannaðar og þeir
sem ekki gátu unað eina stund án
þess að reykja urðu að fara út til
að fullnægja þessum leiða og
óholla vana. Mér þótti vænt um
þegar einn góður vinur minn
hringdi til mín og lét mig heyra
þessi ánægjulegu tíðindi. Því nota
ég tækifærið til að óska þeim fyrir
norðan til hamingju og vona að sá
andi, sem í upphafi ríkir, megi
ævinlega blómstra í þessum góðu
húsakynnum.
Ég óska Jónasi til hamingju
með þetta góða fordæmi og bið
honum allra heilla í starfi. Ég
vona að fleiri feti í þessar slóðir.
Og sú spurning verður um leið
áleitin hvort ekki sé kominn tími
til að leggja af þessar óhollu venj-
ur í veisluhöldum sem hafa alltaf
færst í aukana. Hús má varla
komast undir þak, svo ekki sé
gripið til flöskunnar, og gildir þá
einu hvort byggingin er heilsu-
gæslustöð eða barnaskóli.
Hvernig væri að ráðamenn
þjóðarinnar færu að athuga sinn
gang?
Þessir hringdu . . .
Kópavogsstrætó
Árrisull Kópavogsbúi hringdi:
Þegar leiðakerfi Strætisvagna
Kópavogs var breytt síðast, var
það að mestu leyti til batnaðar.
Þó er eitt mikilvægt atriði í því
sambandi sem mig langar til að
minnast á og það er að fyrstu
ferðum vagnanna hefur verið
seinkað. Nú fara þeir ekki af
stað fyrr en klukkan 7 og þar af
leiðandi get ég ekki notað þá.
Það hlýtur að vera hægt að hafa
þetta eins og í Breiðholtinu, en
þar fer fyrsti vagn á morgnana
kl. 6.45.
Ég trúi því ekki að ég sé eina
manneskjan í Kópavoginum,
sem verð of sein ef ég tek þennan
vagn.
Hver á rétt
á fríiim síma?
4329-8186 hringdi:
Mig langar til að vekja athygli
á málefnum aldraðra. Það virð-
ist sem þeir hafi gleymst í þessu
fjaðrafoki út af verkföllum og
öðru.
Við erum hér tvær nágranna-
konur 79 og 82 ára og vorum við
búnar að fá niðurfellingu á af-
notagjaldi síma. En í sumar
bregður svo við að okkur barst
tilkynning um að við fáum ekki
lengur frían síma, þar sem líf-
eyrir hækkaði hjá okkur og við
fórum yfir þau tekjumörk sem
veita okkur þessi réttindi. Ég hef
unnið við fiskvinnslu í 30 ár og
borgaði alltaf í lífeyrissjóð. Mér
finnst að verið sé að ráðast á
sparifé fólks, sem á að vera
skattfrjálst.
í bæklingum sem ýmis félög
gefa út stendur að þeir sem
orðnir eru 67 ára og búa í eigin
íbúð eigi rétt á að hafa frían
síma. Ég spyr, ganga ekki lands-
lög jafnt yfir alla?
Annað langar mig að minnast
á og það er, að við sem búum í
eigin húsnæði búum alls ekki
frítt. Við þurfum að borga ýmis
gjöld og skatta. En ekki þarf að
greiða okkur vasapeninga eða
byggja yfir okkur.
Seyðfirðingar
og aðrir velunnarar Seyöisfjarðarkirkju. Jólakort
Seyðisfjarðarkirkju eru til sölu í frímerkjahúsinu
Lækjargötu 6A.
Kaupiö jólakort og styrkið orgelsjóð.
Sóknarnefnd Seyðisfjarðarkirkju.
KRISTJflfl
SIGGGIRSSOfl HF.
LAUGAVEGI 13. REYKJAVIK. SIMI 25870
Vegg- og loftklæðning
í glæsilegu úrvali
úr eik, aski, belkl, gullálml. furu
antikeik, mahogany, paleaander
og 10 tegundir tll viðbótar.
Verð M aðeina kr. 75 pr. m*.
BJORNINN HF
Skúlatúni 4 - Sími 25150 - Reykjavik