Morgunblaðið - 05.12.1984, Side 71
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1984
71
Rob Jacobs dik tevreden met nieuwe spits:
Karlsson aanwinst
ROTTERDAM, woensdag
Excelsior-trainer Rob Jacobs heeft het weer voor elkaar.
In de jaarlijkse race om financieel het hoofd boven water te
houden, moet zijn ploeg de sterkste spelers laten lopen om
via „koopjes” te trachten zijn selectie weer op sterkte te
brengen. Met zijn laatste aankoop, de Uslanase amateur
Heimir Karlsson, is dat andermaal gelukt: „Mijn ploeg is
weer compleet”, meldt Jacobs dan ook tevreden.
• Heimlr Karisson jong-
• —*nrtaark Wou-
door Sieb Oostindie
Nadat Excelsior een trans-
i„i:
mir is de voorhoede com-.|
pleet”.
Zelf is de Uslander, diel
met behulp van cassettesl
Nederlands studeert, nogl
lang niet tevreden over zijnl
eigen verrichtingen. „Hej/
voetbal is hier zeker.
keer zwaarder dan
De competitie
land ir* J„.
• Heimir Karlsson leikur sór meö knöttinn á íþróttavelli Excelsior, Woudestein.
„Ávinningur Excelsior kann mjög vel viö sig í Hollandi og Rob Jacobs þjálfari er
hæstánægöur með íslendinginn,“ sagöi Telegraph í texta meö þessari mynd.
Aö ofan: fyrirsögnin úr biaðinu og upphaf greinarinnar: „Karlsson ávinningur
fyrir Excelsior.”
Lidið komst í jafnvægi
i nv eftir að Heimir kom
á
- segir þjálfari Excelsior og er ánægður með Heimi Karlsson.
Grein um Heimi í stærsta dagblaði Hollands
HEIMIR Karlsson, knattspyrnu-
maöur úr Víkingi, leikur sem
kunnugt er með hollenska úr-
valsdeildarliðinu Excelsior og
hefur hann staöið sig vel upp á
síökastiö. Grein var um Heimi í
stærsta dagblaði Hollands, Tele-
graph, á dögunum, og birtum við
hana hór í lauslegri þýöingu:
„Hlutirnir eru nú farnir að ganga
á nýjan leik hjá þjálfara Excelsior,
Rob Jacobs. Félagið þurfti aö selja
sína bestu leikmenn fyrir þetta
keppnistímabil, til aö bjarga sér
fjárhagslega, en meö síöustu
kaupum sínum hefur honum tekist
aö koma liðinu aftur saman þrátt
fyrir aö litlir peningar hafi veriö til.
Hann keypti áhugamanninn Heimi
Karlsson frá islandi. „Liöið er aftur
fullskipað," sagöi Jacobs þá
ánægöur.
i endaðan september samdi fé-
lagiö viö Heimi, en hann varö aö
bíöa i fimm vikur eftir atvinnuleyfi,
því knattspyrnumenn fá aöeins at-
vinnuleyfi í landinu sé þaö sannaö
aö koma þeirra sé ávinningur fyrir
knattspyrnuna í landinu.
„Og Heimir er ávinningur fyrir
okkur," sagöi Jacobs. „Þaö er leitt
aö hann gat ekki leikiö meö okkur
frá byrjun keppnistímabilsins því
eftir aö hann kom komst liöið í
jafnvægi á ný. Graeme Rutjes
þurfti ég aö nota bæöi i sókn og
vörn áöur en Heimir kom, en síöan
Heimir kom er framlínan loksins
fullskipuö. Sjálfur er islendingurinn
ekki ánægöur með frammistööu
sína hingaö til: „Fótboltinn hór er
áreiöanlega fimm sinnum erfiöari
en á islandi. islenska 1. deildin fer
fram yfir sumartímann og stendur í
fimm mánuöi, þess vegna hef óg
ekki yfir aö ráöa nægilegri tækni,
hraöa og krafti," segir Heimir.
En Jacobs er samt ánægöur:
„Eftir þrjá leiki viö áhugamannaliö
og nokkrar æfingar sá ég greini-
lega aö hann var nógu góöur.
Strákurinn er sterkur, fljótur og
getur skotiö vel meö báöum fót-
um. Hann iék frábærlega gegn
Feyenoord á dögunum, en ég
skipti honum þó útaf, hann var
orðinn þreyttur og haföi greinilga
ekki nóg úthald. Ein af sterkustu
hliöum Heimis sem knattspyrnu-
manns er aö hann skapar mikiö
rúm fyrir aöra sóknarmenn.“
Heimir segir: „Jacobs er góöur
þjálfari. Þaö sá ég undir eins og
þrátt fyrir að viö töpuöum fyrir Ut-
recht, Feyenoord og Twente missti
hann ekki trúna á mér. Mór finnst
ég hafa bætt mig mikiö nú þegar.
Aðstaöan hór er betri en ég átti
von á og ég held aö eftir svo sem
mánaöartíma til viöbótar veröi ég
búinn aö samlagast liöinu aö
fullu.“
Þaö var Péfur Pétursson hjá
Feyenoord sem kom Heimi, sem
starfaði sem kennari og free-lance
blaðamaður á íslandi, í samband
viö Excelsior. „Án Póturs heföi
þetta ekki gengiö hjá mér. Þegar
ég fékk ekki atvinnuleyfi studdi
hann mig mikiö og á því þarf maö-
ur aö halda í ókunnugu landi. Og
Exceisior tók líka vel á móti mér.
Ég haföi heyrt eitt og annaö um
félagiö hjá Árna Sveinssyni. sem
lék með liöinu um tima fyrir nokkr-
um árum, og nú er ég í sambandi
viö umboösmann til aö finna þýskt
félag fyrir hann!“
islendingum líkar frábærlega t
Hollandi. Hann haföi komiö þríveg-
is til landsins áöur en hann kom til
Excelsior. Hann lék meö unglinga-
landsliöinu í knattspyrnu gegn Hol-
landi, og einnig lék hann gegn
unglingalandsliöinu í handbolta.
„Sá timi kom aö ég gat ekki
stundaö bæöi handknattleik og
knattspyrnu. Ég held líka aö ég
hafi ekki veriö nógu góöur
handboltamaður fyrir íslenska
landsliöiö, sem er mjög sterkt. Mór
fannst knattspyrnan líka skemmti-
legri íþrótt þannig aö valiö var ekki
erfitt. Excelsioir er gott fólag fyrir
mig aö hefja atvinnuferil minn hjá.
Ég geröi eins árs samning viö liöið,
og ég bíö og sé til hvaö gerist svo
á næsta ári...“
Wark skoraði tvívegis
LIVERPOOL og QPR unnu bæði
auöveldan sigur í ensku 1. deild-
inni í knattspyrnu í gærkvöldi.
Liverpool sigraöi Coventry 3:1 á
Anfield Road. John Wark skoraöi
fyrir Liverpool eftir átta min. og lan
Rush bætti ööru marki viö úr vita-
spyrnu á 24. mín.
Alan Hansen, skoski landsliös-
maöurinn hjá Liverpool, lagaöi
stöðuna fyrir Coventry er hann
skoraöi sjálfsmark á 75. mín. en
John Wark geröi út um leikinn er
hann geröi sitt annað og þriöja
mark Liverpool einni mín. fyrir
leikslok.
Talið var fyrir leikinn aö Joe
Fagan geröi einhverjar breytingar
á liöinu sem tapaöi fyrri Chelsea á
laugardag og búist var viö aö Kev-
in McDonald sem keyptur var frá
Chelsea nýlega kæmi inn. Svo var
þó ekki — liöiö var óbreytt, en
heföi Fagan gert breytingar er lík-
legt aö Wark heföi veriö settur út!
QPR sigraöi Stoke 2:0 á heima-
velli sínum. Gary Bannister geröi
fyrra markið á 16. mín. og John
Gregory skoraöi síöan á 77. mín.
Jæja krakkar!
í dag drögum við um 5 Fisher Price
búgarda frá Kristjánsson hf.
Vinningsnúmerin eru: 147,23
204169 499 72630 167006
• John Wark hefur veriö iðinn
við að skora undanfarið.
Vinningarnir veröa afhentir á
skrifstofu SÁÁ í Síöumúla 3—5
Ps. það skiptir engu máli hvenær
miðarnir voru greiddir!
Enn tapa
Danir á
heimaveili
SVÍAR sigruðu Dani 19:15 í
landsleik í handknattteik í
Danmörku í gærkvöldi.
Svíar höföu yfirhöndina
mestallan tímann og unnu
sanngjarnan sigur. Sviar leika
viö ísland í Laugardalshöll á
föstudagskvöld, á Akranesi á
laugardag og aftur í Höllinni.
Danir hafa því tapaö tvívegis
á heimavelli á stuttum tíma —
fyrst gegn islandi og nú gegn
Svíum.
Ómar og Hilmar leika
í Vestur-Þýskalandi
DMAR Jóhannsson og Hilmar
Sighvatsson, knattspyrnumenn
úr Fram og Val, hafa ákveðiö að
leika í Veatur-Þýskalandi í vet-
ur.
Þeir veröa með liöi úr svokall-
aöri Oberligu — hálfatvinnu-
mannaliöi að nafni Sportfreund
Ziegen. Annaöhvort munu þeir
tilkynna félagaskipti í íslensku fé-
lögin aftur í apríl og veröa lögleg-
ir frá upphafi íslandsmóts hór
heima — eöa þeir leika út
keppnistimabiliö ytra; út maí, og
yröu þá ekki löglegir fyrr en í
seinni umferö Islandsmótsins.
\9
'DMb&e.
TiL