Morgunblaðið - 10.01.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1985
31
Limafjörður er um margt farinn að minna í fyrrum nýlendu Dana í norðri, Grænland. Eru þar mikil hafþök en sums staðar speglast jakarnir í auðri vök.
Það þykir lán í óláni í kuldakast-
inu, að nú er hægt að stunda
skautahlaup á vötnunum í Kaup-
mannahöfn og víðar. Þessi mynd
er tekin á „Peblinges«en“, þar
sem ísinn er um 17 sm þykkur.
Hafnir að lokast
um alla Danmörku
vegna kuldanna
Kaupmannmhörn, 9. jnnúar.
EKKERT lát er á kuldunum I Evr-
ópu og útlitið allt annað en gott. Á
morgun, fimmtudag, er búist við,
að nokkuð dragi úr kuldunum með
mikilli snjókomu en síðan munu
Síberíuvindarnir aftur læsa kulda-
tönnunum sínum um gervalla
Norðurálfu að íslandi undan-
skildu. Hér á eftir verður sagt
stuttlega frá ástandinu í Dan-
mörku en þar hefur fólk þau orð
um ástandið, að búið sé að pakka
landinu inn í ís.
í fyrrinótt mældist metkuldi í
Danmörku á nokkrum stöðum en
þá fór hitastigið niður í mínus 27
stig. Þarf að leita langt aftur til
að finna eitthvað, sem kemst í
hálfkvisti við slíkan heljarkulda
í þessu veðurlitla landi. í Lima-
firði á Jótlandi er útlit fyrir að
siglingaleiðir lokist brátt ef ekki
verður gripið til öflugri ísbrjóta
en þar er nú aðeins einn lítill að
störfum. Er isinn á firðinum
víða orðinn einn til tveir metrar
á þykkt og sums staðar á grynn-
ingum er fjörðurinn botnfrosinn.
Eins og fyrr segir er líklegt, að
frostið minnki nokkuð samfara
mikilli snjókomu á morgun og
fram á föstudag en þá er því
spáð, að Síberíukuldinn færist
allur í aukana á ný. Ef frostin
standa aðeins í viku enn munu
Þessi mynd er tekin i lystibátahöfninni í San Sebastian á Spáni og eins og
sjá má eru mennirnir ekki á sjóskíðum.
þau verða farin að hafa veruleg
áhrif á líf fólks í Danmörku og
víðar á Vesturlöndum. Eitt er
það, að hafnir eru teknar að lok-
ast og fiskimenn eru nú sem
óðast að taka upp netin til að
komast í höfn áður en allt frýs
aftur. Má því búast við fiskskorti
áður en langt um liður.
Kuldarnir og snjórinn hafa
valdið mörgum slysum, einkum í
umferðinni, en fólk hefur líka
orðið úti eða látist af svokölluðu
kuldalosti. Þannig fór fyrir
tveimur dönskum tollvörðum,
sem voru við vinnu sina á landa-
mærunum við Vestur-Þýska-
land. Þeir voru báðir á nætur-
vakt í nistingskulda og mikið að
gera, mikil umferð og aðstæður
erfiðar vegna ófærðar. Þeir
þurftu ýmist að vera við vinnu
sina inni f 17 stiga hita eða úti i
20 stiga frosti og þessi miklu og
tíðu umskipti urðu líkama þeirra
að lokum ofraun.
Ljósu hliðarnar á kuldakast-
inu eru þær, að nú geta Danir
dregið fram skautana eða orðið
sér úti um slík verkfæri því að
tjarnirnar eða vötnin í Kaup-
mannahöfn og annars staðar eru
isi lögð. Hafa margir orðið til að
notfæra sér það og skemmt sér
vel, betur en svanirnir, sem fros-
ið hafa fastir unnvörpum. Var
það lika vegna þess, að það
gleymdist að opna fyrir heita
vatnið, sem á halda opinni vök
fyrir þá, en nú hefur verið bætt
úr því.
Áhöfnin á henni „Önnu“ frá Rönbjerg í Limafirði ætlaði að taka hana f
naust en urðu of seinir. ísinn hafði lukist um hana og þótt skipverjarnir
reyndu að brjóta hann fraus hann bara saman aftur.
Höfnin í Borginni við sundið er að fyllast af ís eins og þessi mynd sýnir.
Það eru ferjurnar til Óslóar og Borgundarhólms sem sjást á myndinni, en
þær eru með kraftmiklar vélar og komast enn í gegnum nærri 20 sm
þykkan ísinn.
FALCONCREST
DREIFING:
Myndbönd hf.
Skeifan 8.
Símar 686545 — 687310.
Nýir þœttir í hveni mku
18 þættir komnir
2 þættir á spólu