Morgunblaðið - 10.01.1985, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANtJAR 1985
Stofnfundur
Óðins FUS
Mánudaginn 13. nóvember síð-
astliðinn var haldinn stofnfundur
félags ungra sjálfstcðismanna á
Austurlandi. Stofnfundurinn var
haldinn í félagsheimilinu Valaskjálf
á Egilsstöðum. Fundurinn var ágæt-
lega sóttur og mikill hugur í stofn-
félögum að standa vel að félags-
starfinu. Fundinn sátu formaður
SUS, Geir H. Haarde auk nokkurra
stjórnarmanna SUS.
Samþykkt var að félagið skyldi
bera nafnið Óðinn, en félag með
því nafni var starfandi á Egils-
stöðum fyrir nokkrum árum.
Garðar Vilhjálmsson var kjörinn
formaður á stofnfundinum, en
auk hans voru kjörin í stjórn:
Birna Guðmundsdóttir, Hilmar
Bjarnason, Kristín Guðmunds-
dóttir og Vignir Elvar Vignisson.
Sambandsráðs-
fundur á Hellu
Menntamálaráðstefna
SUS á Akureyri
ÞANN 17. nóvember síðastliðinn
hélt SUS ásamt Verði, FUS á Akur-
eyri, og Víkingi, FUS á Sauðárkróki,
ráðstefnu um menntamál.
Ráðstefnan var haldin i Kaup-
angi, í húsnæði sjálfstæð-
isfélaganna á Akureyri. Friðrik
Friðriksson 1. varaformaður SUS
setti ráðstefnuna, en síðan flutti
menntamálaráðherra, Ragnhildur
Helgadóttir, stutt ávarp. Að því
loknu fluttu þeir Atli G. Eyjólfs-
son læknir og Jón H. Magnússon
verkfræðingur erindi. Atli fjallaði
í máli sínu um starf og niðurstöð-
ur þróunarnefndar Háskóla Is-
lands, en Jón ræddi um tækni-
væðingu atvinnulifsins og það
hlutverk skóla, að veita tækni-
menntun í samræmi við síauknar
kröfur atvinnulífsins.
Að loknum hádegisverði heim-
sóttu ráðstefnugestir Verk-
menntaskólann á Akureyri, en
sem kunnugt er flutti hann í nýtt
húsnæði fyrr á þessu ári. Skóla-
meistari Verkmenntaskólans vís-
aði veginn um hin glæsilegu húsa-
kynni skólans og vakti það m.a.
athygli gestanna að nemendur
skólans höfðu sjálfir lagt hönd á
plóginn við smíði hússins.
Eftir skoðunarferðina hélt svo
ráðstefnan áfram i Kaupangi,
með erindi Salóme Þorkelsdóttur,
alþingismanns, en hún fjallaði um
álit nefndar sem skipuð var af Al-
þingi til þess að gera úttekt á
sambandi heimila og skóla. Loks
flutti Þorvarður Elíasson, skóla-
stjóri Verslunarskóla Islands er-
indi sem hann nefndi: Menntun —
seld þjónusta eða gefin? Þar fjall-
aði hann um það hvort þeim pen-
ingum sem við íslendingar verj-
um til skólamála væri eins vel
varið og kostur er. Hann taldi svo
ekki vera og kynnti hugmyndir
sínar um nýtt fyrirkomulag á
fjárveitingum til skólamála, allt
frá grunnskólastigi til háskóla-
stigs. Erindi Þorvarðar vakti
mikla athygli og urðu líflegar um-
ræður meðal ráðstefnugesta um
tillögur Þorvarðar.
Húsfyllir var á ráðstefnunni og
urðu fjörugar umræður. Ráð-
stefnustjórar voru þeir Davíð
Stefánsson formaður Varðar og
Ari Jóhann Sigurðsson formaður
Víkings.
Helgina 24. og 25. nóvember, síð-
astlióinn, hélt Samband ungra
sjálfstæóismanna sambandsráðs-
fund sinn, en fundur af þessu tagi
er haldinn annaó hvert ár, þaó ár
sem SUS-þing er ekki haldið. Fund-
urinn var haldinn á Hellu á Rang-
árvöllum.
Viðfangsefni þessa fundar var
tvíþætt. I fyrsta lagi var rætt um
skipulag SUS og tengsl félaganna
um land allt, við skrifstofuna í
Reykjavík. Aðildarfélög SUS eru
nú 21 og er fyrirhugað að stofna
fleiri á þessu ári.
Meginefni fundarins var þó
kynning á starfi vinnuhóps sem
stjórn SUS skipaði haustið 1983
til þess að gera tillögur um fram-
tíðarskipan velferðarkerfisins,
með það fyrir augum að nýta bet-
ur þá fjármuni sem til velferð-
armála er varið og einnig kanna
nýjar leiðir til að veita nauðsyn-
lega þjónustu á annan hát en nú
er gert.
Vilhjálmur Egilsson hagfræð-
ingur kynnti tillögur í fram-
færslumálum, það er almanna-
trygginganiálum og starfsemi líf-
eyrissjóða. I máli hans kom meðal
annars fram að á síðustu árum
hefur það nokkrum sinnum gerst
að atvinnuleysisbætur hafa verið
hærri en dagvinnutekjur, svo það
Stjórn Þóre (efri röó frá vinstri): Einar V. Einareson, Björgvin Guðjóns-
son og Sveinn Knútsson. Neóri röð: Benjamín Jósefsson og Jón Helga-
son.
Fréttir frá Þór
FUS á Akranesi
Á SÍÐAS’TA starfsári var starfsemin
meó hefðbundnum hætti. Haldnir
voru sex bókaðir stjórnarfundir auk
fjölmargra óbókaðra funda. Félags-
menn tóku þátt í störfum nefnda á
vegum fulltrúaráósins og einnig
tóku þeir þátt í störfura Sambands
ungra sjálfstæóismanna.
Haldin var ráðstefna um áfeng-
is- og fíkniefnamál og voru fengn-
ir fyrirlesarar frá SÁÁ og sjúkra-
húsinu á Akranesi. Ráðstefna
þessi tókst mjög vel og var mjög
fróðleg.
SUS hélt ráðstefnu um land-
búnaðarmál í Borgarnesi i haust
og tók Þór þátt í undirbúningi
hennar.
.ti-----------------
Aðalfundur Þórs var haldinn
sunnudaginn 28. október síðastlið-
inn. Benjamín Jósepsson var
endurkjörinn formaður, en aðrir í
stjórn voru kjörnir: Jón Helgason
(varaformaður), Sveinn Knútsson
(ritari), Einar V. Einarsson
(gjaldkeri), Björgvin Guðjónsson,
Guðfinnur Birgisson og Ólafur
Hallgrímsson.
Stefnt er að því að halda opinn
fund um sjávarútvegsmál í janú-
ar, en einnig hefur stjórnir ákveð-
ið að gera átak í félagaöflun og
eru ungir sjálfstæðismenn á
Akranesi hvattir til að skrá sig í
félagið.
Morgunbladið/M. Hjörleifsson
Stjórn Stefnis næsta starfsár. Fremri röð f.v.: Þórdís Þóredóttir, Unnur
Berg, Þórarinn Jón Magnússon, Lovfsa Árnadóttir og Sigrún Traustadótt-
ir. Aftari röó: Guðmundur Á. Tryggvason, Jóhann Ulfarsson, Oddur H.
Oddsson, Haraldur Hansen og Eyjólfur Ámundason.
Aðalfundur Stefnis
í Hafnarfirði
AÐALFUNDUR Stefnis var haldinn
þann 6. nóvember síóastlióinn.
(>estur fundarins var Friðrik Frió-
riksson, varaformaður SUS.
I skýrslu stjórnar kom fram að
starfið var mjög öflugt á siðasta
starfsári og mikið um fundi og
ýmiss konar skemmtanir og
ferðalög fyrir félagsmenn. Þórar-
inn Jón Magnússon var endur-
kjörinn formaður Stefnis.
Á þessu starfsári hefur verið
bryddað uppá þeirri nýjung i
starfinu að halda hádegisverðar-
fundi einu sinni í mánuði.
Gestur fyrsta fundarins var
Geir H. Haarde formaður SUS og
aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Starfsáætlun Stefnis til vors
verður dreift í hvert hús í Hafnar-
firði nú á næstunni.
hefur jafnvel ekki borgað sig fyrir
suma einstaklinga að reyna að sjá
fyrir sér og sínum með vinnu. Vil-
hjálmur benti einnig á að með
sama áframhaldi er hætt við að
lífeyrissjóðir landsmanna, sem
brunnu upp í verðbólgunni og
neikvæðum raunvöxtum, geti ekki
staðið við skuldbindingar sinar
um næstu aldamót, það er eftir 15
ár.
Auðun Svavar Sigurðsson hafði
framsögu um tillögur hópsins í
heilbrigðismálum. Hann fjallaði
um það fyrirkomulag sem nú tíð-
kast gjarnan á heilbrigðisstofn-
unum, að það séu sameiginlegir
hagsmunir lækna og sjúklinga að
eyða peningum. Þar veitir einn
aðili öðrum þjónustu og sendir
svo þriðja aðila reikninginn. I
niðurstöðum velferðarhópsins
svokallaða er lagt til að i auknum
mæli verði farið að nota kostnað
sem stjórntæki og lögð áhersla á
að neytendum heilbrigðisþjónust-
unnar sé gerð grein fyrir raun-
verulegum kostnaði til dæmis
vegna lyfjagjafar, jafnvel þótt
bein þátttaka sjúklinga i kostnaö-
inum yrði litil sem engin. Einnig
taldi Áuðun nauðsynlegt að leggja
meiri áherslu á fyrirbyggjandi
starf í heilbrigðismálum en nú er
gert.
Eirikur Ingólfsson viðskipta-
fræðinemi fjallaði um álit vel-
ferðarhópsins i menntamálum.
Þar er Iögð áhersla á að sjálfstæði
skólastofnana verði aukið og
valfrelsi nemenda á milli skóla-
stofnana verði aukið. Einnig var
fjallað um tillögur sem snerta
námslánakerfið, gerð námsgagna
og margt fleira.
Á fundinum urðu mjögfjörugar
umræður um þessar tillögur, en
þær verða kynntar betur á næstu
vikum. Fyrirhugað er að halda
ráðstefnur á vegum SUS, um vel-
ferðarmálin, i siðari hluta febrú-
ar, væntanlega í Reykjavík.
Nomen-
clatura
Samband ungra sjálfstæðis-
manna hefur gefið út smáritið
Nomenclatura, sem Birgir Isleifur
Gunnarsson alþingismaður hefur
skrifað.
Hér er á ferðinni greinaflokkur
sem Birgir ritaði í Morgunblaðið á
árinu 1983 og segir þar frá bók
Michaels Voslenskys, sem ber
nafnið Nomenclatura. I henni seg-
ir frá herrastétt Sovétríkjanna,
hverjir eru í henni, hvernig herra-
stéttin varð til og hvernig menn
komast í hana. Einnig er lítillega
fjallað um utanríkisstefnu Sov-
étríkjanna og fleira.
Sigurður Magnússon hafði veg
og vanda af útgáfu smáritsins
fyrir hönd utanrikisnefndar SUS.
Ritið er fáanlegt á skrifstofu SUS,
á Háaleitisbraut 1, Reykjavík.