Morgunblaðið - 18.01.1985, Side 6

Morgunblaðið - 18.01.1985, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1985 Af ást og vináttu Persónulega finnast mér ítölsku miðvikudagssjónvarpsþættirnir: Saga af ást og vináttu hin ágætasta skemmtan, þótt þar sé tekið á svo alvarlegum þjóðfélagsmeinum, að oft fer kaldur straumur um hryggjarsúluna. En ítalir hafa lag á því að vefja alvarlegheitin inní huggulegar umbúðir, þannig að glettnin skín ætíð í gegnum tárin. Gætum vér Norðurlandabúar ým- islegt lært af suðurálfubúunum í þessu efni, en hér er vart svo film- uð einstæð móðir upp í Breiðholti, að ekki fylgi slíkir kveinstafir, að áhorfandinn sé fyrr en varir far- inn að draga ýsur, eða skoða inn- búið hjá hinni ógæfusömu mann- eskju. Þessarar grafhvelfingar- stemmningar er tekið að gæta í amerískum sjónvarpsþáttum, þar sem Súellen grætur nánast við- stöðulaust oní viskíið. í Sögu af ást og vináttu er ekki verið að fjalia um vandamál blokkarbúa eða nautnasjúkra milla. Þar er lýst vanda minnihlutahópa á tíma fas- isma. Annarsvegar er lýst hvernig ítalskir fasistar, fóru með komm- únista og hinsvegar hvernig þeir meðhöndluðu gyðinga. Það er kannske rangnefni að nefna kommúnista minnihlutahópi í ít- ölsku samfélagi, en svo sannarlega eru gyðingar minnihlutahópur er ætíð verður fyrir ofsóknum á spennutímum. Ofsóknarœði Starfsmenn ítalska sjónvarps- ins hafa ekki valið hér þá klass- ísku leið til að sýna ógn gyðinga- ofsókna að hella yfir ítalska gyð- inga blýi og stáli úr byssuhólkum fasista. Þeir velja enn áhrifaríkari leið, sum sé þá, að sýna inní hversdagsheim gyðingafjölskyldu, hvernig nálægð fasismans eitrar þar andrúmsloftið og bitnar jafnt á börnunum, sem fullorðna fólk- inu. Þannig sjáum við í raun í þessum myndaflokki líkt og í hnotskurn hvernig hið pólitíska vald getur ef vilji er fyrir hendi þrengt sér inná gafl hjá fólki og breytt hversdagslífi þess í píslar- göngu. Sé friðhelgi einkalifsins rofin með þessum hætti, er fátt til bjargar nema trúarvissan og sam- félagið við þjáningarbræður og systur. í Sögu af ást og vináttu sjá- um við hvert gildi trúfestan og fastheldnin við forna siði hefir fyrir gyðinga, þeir áttu ekki annað lífakkeri, þegar blóðhundarnir fóru á stjá. Sívökulir blóðhundar Myndaflokkur á borð við Sögu af ást og vináttu, á fullt erindi við okkur í dag ekki síður en sögur af óhamingjusömum peningafurst- um og einmana blokkarfólki, því allt í kringum okkur er verið að níðast á hversdagsfólki, slíku sem lýst er í ítalska myndaflokknum. Þannig hefir verið leitt í lög í íran og írak, að pynta megi og lífláta börn niður að tólf ára aldri. í Sov- étríkjunum sprauta hámenntaðir geðlæknar andófsmenn með of- skynjunarlyfjum, slíkum er glæpamenn dreifa á Vesturlönd- um. I Uruguay verða þeir, er dvelja í pyntingarklefum fangels- anna, að borga fyrir vistina, líkt og fyrir hóteldvöl. Ég hef af ásettu ráði valið hér ankannaleg dæmi um framferði blóðhundanna á því herrans ári 1984. Lesendur tækju vafalítið ekki eftir því, ef sagt væri frá, hinum hversdagslegri pyntingar- og aftökuaðferðum, sem beitt er á kerfísbundinn hátt í 90 aðildarríkjum Sameinuðu þjóð- anna. Undirritaður hefði að minnsta kosti flett framhjá slíku lesefni. ólafur M. Jóhannesson. ÚTVARP/SJÓNVARP Léttir sprettir ■I Jón Ólafsson er 00 með þátt sinn “ Léttir sprettir á rás 2 í dag. Að þessu sinni bregður Jón sér í eina af lfkams- ræktarstöðvum borgar- innar og tekur tali áhuga- samt líkamsræktarfólk á öllum aldri. Þá koma tveir góðkunn- ir landsliðsmenn í körfu- knattleik í heimsókn, þeir Ólafur Rafnsson og Pálm- ar Sigurðarson, en þeir leika báðir með Haukum. Sem kunnugt er verður haldin í Reykjavík innan skamms Alþjóðleg dans- keppni á íslandi 1985. Mun Jón spjalla við annað íslensku paranna sem þar Jón Ólafsson keppa en auk þeirra taka fjögur erlend pör þátt í keppninni. Á milli dagskrárliða verður síðan leikin ýmiss konar tónlist, bæði gömul ogný. Skonrokk Nýir umsjónarmenn ■I í kvöld er þátt- 10 urinn Skonrokk ' á dagskrá sjón- varps. Þær Anna Hin- riksdóttir og Anna Krist- ín Hjartardóttir eru nú hættar sem umsjónar- menn þáttarins en í stað þeirra taka við tveir ungir piltar, Tómas Bjarnason og Haraldur Þorsteinsson að nafni. Er þetta þeirra fyrsti þáttur. Að sögn þeirra félaga kennir ýmissa grasa í þættinum í kvöld sem endranær. Fyrsta ber að nefna bandarísku rokk- söngkonuna Pat Benatar sem syngur lag sitt We Belong. Þá syngur bresk- nígeríska blökkusöngkon- an Sade lag sitt Hang on Haraldur Þorsteinsson to Your Love, en Sade hef- ur rokið upp hvern vin- sældalistann af öðrum bæði hér heima og erlend- is. Big Country leika lagið East of Eden og hinn glysgjarni Elton John syngur og leikur nýtt lag að nafni Who Wears These Shoes? Rokkkóngurinn Elvis Presley hefur verið kall- aður ódauðlegur og í til- efni af því að nú eru 50 ár liðin frá fæðingu hans er ekki úr vegi að hann syngi fyrir okkur lag sitt Blue Suede Shoes. Að lokum leikur hljómsveitin Deep Purple lagið Perfect Strangers. Tómas Bjarnason Marilyn Monroe fer meó sitt fyrsta stórhlutverk í myndinni. Niagara bandarfsk mynd frá 1952 ■I Föstudags- 10 myndin er “ bandarísk frá árinu 1952 og nefnist Ni- agara. í henni fer kyn- táknið Marilyn Monroe með sitt fyrsta stórhlut- verk. Myndin gerist við Nia- gara-fossana. Fögur en viðsjál kona situr á svik- ráðum við eiginmann sinn og vill hann feigan. Felur hún elskhuga sínum aö myrða eiginmanninn en hann hefur fylgt þeim hjónum í humátt um foss- ana. En margt fer öðru- vísi en ætlað er. Ung hjón á brúðkaupsferð við foss- ana dragast inn í erjurnar sem eiga eftir að kosta mannslíf og fær myndin óvæntan endi. Auk Monroe fara með stórhlutverk í myndinni Joseph Cotten, Jean Pet- ers og Don Wilson. ÚTVARP FÖSTUDAGUR 18. janúar 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. A virkum degi. 7.25 Leiktimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurðar G. Tómas- sonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: — Hafdls Hann- esdóttir talar 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: .Tviburarnir I skóginum“ Guðrún Snæbjðrnsdóttir les smásðgu eftir Ragnar Þor- steinsson. 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöur- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 .Þaö er svo margt að minnast á“ Torfi Jónsson sér um þáttinn. 11.15 Morguntónleikar. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 122» Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar 14.00 .Þættir af kristniboöum um vlða verðld" eftir Clar- ence Hall. .Vinur klnversku flóttamannanna". Starf Gus Borgeest I Hong Kong. Ast- ráöur Sigursteindórsson les þýöingu sina (13). 14J0 A léttu nótunum. Tónlist úr ýmsum áttum. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 1620 Slðdegistónleikar. a. Sellókonsert I e-moll op. 58 eftir Sergej Prokofjeff. Christine Walevska og Óp- eruhljómsveitin i Monte Carlo leika: Eliahu Inbal stj. b. Hornakonsert I a-moll op. 28 eftir Kurt Atterberg. Al- bert Linder og Sinfónlu- hljómsveitin I Gautaborg leika; Gérard Oskamp stj. 19.15 A döfinni. Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 19.25 Krakkarnir I hverfinu. 5. Forslðufréttin. Kanadlskur myndaflokkur I þrettán þáttum, um atvik I llfi nokkurra borgarbarna Þýðandi Kristrún Þórðar- dóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 2020 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Kastljós. 17.10 Slðdegisútvarp Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál. Valdimar Gunnarsson flytur þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka a. Frá safnamönnum. Tvö hundruö og áttatiu þúsund pör af vettlingum. Elsa E. Guöjónsson textil-safnvðröur segir frá. b. Af sakamanninum Arna Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaður Sigrún Stef- ánsdóttir. 21.10 Skonrokk. Umsjónarmenn: Haraldur Þorsteinsson og Tómas Bjarnason. 21.40 Hláturinn lengir llfið. Tiundi þáttur. Breskur myndaflokkur I þrettán þáttum um gaman- semi og gamanleikara I fjöl- miölum fyrr og slðar. Þýðandi Guöni Kolbeinsson. 22.10 Niagara. Grimssyni. Benedikt Sig- urösson flytur fyrsta frásögu- þátt sinn af fjórum. c. Dóri gamli. Helga Einars- dóttir les þjóðllfstengda smásðgu eftir Harald Glsla- son. Umsjón: Helga Agústs- dóttir. 21.30 Hljómbotn. Tónlistarþátt- ur I umsjón Páls Hannesson- . ar og Vals Pálssonar. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 2225 .Óöur Amerlku". Stiklaö á stóru I sögu bandarlskrar Bandarlsk blómynd frá 1952. Leikstjóri Henry Hathaway. Aðalhlutverk: Joseph Cott- en, Jean Peters, Marilyn Monroe og Don Wilson. Myndin gerist við Niagara- fossa. Fögur en viösjál kona situr á svikráöum við eigin- mann sinn. Ung hjón á ferð viö fossana dragast inn I erj- ur þeirra sem eiga eftir aö kosta mannsllf. Þýðandi Jón O. Edwald. 23.35 Fréttir I dagskrárlok. þjóölagatónlistar. Slðari þáttur. Umsjón: Asta Ragn- heiöur Jóhannesdóttir og Askell Þórisson. 23.15 A sveitalinunni: Umsjón: Hilda Torfadóttir. (RÚVAK). 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá rás 2 til kl. 03.00. FÖSTUDAGUR 16. janúar 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Páll Þorsteins- son og Sigurður Sverrisson. 14.00—16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdls Gunnars- dóttir. 16.00—17.00 Listapopp Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 17.00—18.00 Léttir sprettir Stjórnandi: Jón Ölafsson. Hlé 23.15—03.00 Næturvaktin Stjórnendur: Vignir Sveins- son og Þorgeir Astvaldsson. (Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá rásar 1.) SJÓNVARP FÖSTUDAGUR 18. janúar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.