Morgunblaðið - 18.01.1985, Síða 15

Morgunblaðið - 18.01.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1986 15 Blokkflautu- og orgeltónleikar: Flutt verk eftir frönsk og ítölsk tónskáld barokktímans Blokkflautu- og orgeltónleikar verða haldnir í Kristskirkju i Reykja- vík næstkomandi laugardag. Flytjend- ur eru þau Camilla Söderberg blokk- flautuleikari og Hörður Áskelsson organisti Hallgrímskirkju. Tónleikar þessir, sem hefjast klukkan 17 á laug- ardag, eru haldnir á vegum músík- hóps er kallast Musica Antiqua. Að undanfornu hafa tónlistarmennirnir verið við sfingar i Kristskirkju og þar hitti blaðamaður Mbl. þau stuttlega að máli. En hvaða hópur er Musica Antiqua? Damilla Söderberg svarar því: — Þessi hópur hefur það markmið að flytja gamla tónlist og hefur haldið nokkra tónleika. Þess- ir tónleikar eru aðrir tónleikar vetrarins og gerum við ráð fyrir að tvennir til viðbótar verði haldnir síðar í vetur. f þessum hópi eru auk mín Snorri örn Snorrason lútuleik- ari, Helga Ingólfsdóttir semballeik- ari og ólöf Sesselia Óskarsdóttir sem leikur á viola da gamba. Oftast höfum við, sem erum meðlimir hópsins, sjálf komið fram á tónleik- unum, en stundum fáum við einnig aðra tónlistarmenn til liðs við okkur eins og á þessum tónleikum. Hvaða tónlist er á efnisskrá ykkar? — Þetta er aðallega barokktón- list eða frá lokum renaiss- ance-timabilsins og yfir í barokk- tímann, eftir ítölsk og frönsk tón- skáld. Þau itölsku eru Frescobaldi, Castello og Mancini og þau frönsku Boismortier, Clérambault og Dorn- el, en hann er eitt af mörgum af- mælisbörnum ársins meðal tón- skálda, var fæddur 1685. Og þú notar mismunandi flautur í þessum verkum? — Já, ég verð með fjórar flautur. Það er renaissance-sópran-blokk- flauta, renaissance-tenór-blokk- flauta, barokk-altblokkflauta og síðan flauta er nefnist barok flute de voix, en hún er eiginlega tenór- flauta í d. Venjulega eru tenórflaut- ur í c. Camilla Söderberg og Hörður Áskelsson flytja gamla tónlist á tónleikum I Kristskirkju á laugardaginn. tónleikum vil ég gjarnan spila verk sem þurfa mismunandi flautur enda er það tilbreyting bæði fyrir áheyrendur og mig. Annars þarf ekki að leika Fresco- baldi og Castello á blokkflautu, þau eru stundum leikin á fiðlu eða jafn- vel cornet eða trompet. Undirleik- urinn getur einnig verið breyti- legur, ýmist orgel eða sembal, en stundum lúta. Hvað með hljóðfærin sjálf, eru þetta nýjar flautur? — Þessar blokkflautur eru eftir- líkingar af hljóðfærum þessa tíma og eru þær ekki svo mjög gamlar. Eina þeirra er ég að nota í fyrsta sinn á tónleikum, ég fékk hana fyrir aðeins rúmri viku. Það er sú sem heitir flute de voix, en hana smíðaði Adrian Brown og hefur hann einnig smíðað aðra flautu sem ég nota, sópranflautuna, og er hún ársgöm- ul. Það er kannski dálitið snemmt að spila á svona nýja blokkflautu á tónleikum, því venjulega þarf mað- ur talsverðan tíma til að kynnast ingu fyrir henni. Færðu allar þínar blokkflautur smíðaðar sérstaklega fyrir þig? — Venjulega pantar blokkflautuleikari sérstaklega sín- ar flautur og það getur tekið langan tíma að fá þær afgreiddar. Ég spila nokkuð mikið og þarf að endurnýja þær öðru hverju, þvi með tímanum minnkar hljómur þeirra og þá þarf að huga að því að fá ný hljóðfæri. Blokkflautuleikari þarf líka að kunna á hinar ýmsu gerðir og verð- ur að geta notað margs konar blokkflautur. Nú eru blokkflaututónleikar ekki algengir, hefur blokkflautuleikari á íslandi nóg að gera? — Það er nú erfitt að lifa af blokkflautuleik og þess vegna kenni ég bæði i Tónlistarskólanum i Reykjavík og Kennaraháskólanum. Blokkflautuleikur hefur heldur ekki verið kenndur í skólum hér sem sér- stakt fag fyrr en ég kom hingað fyrir fimm árum. Annars liggur við að ég sé feimin við að segja að ég spili á blokkftautu, því stundum finnst mér bera á því að mönnum finnist þetta hálfómerkileg iðja. Það er stundum sagt að börnin læri á blokkflautu áður en þau læri á hljóðfæri — og það lýsir kannski viðhorfi margra til blokkflautunn- ar. Camilla Söderberg nam blokk- flautuleik í Vin í Austurríki og tók þaðan einleikarapróf. Sfðan hélt hún til Basel í Sviss og stundaði þar framhaldsnám þar sem hún lagði einkum stund á gamla tónlist. Hörður Áskelsson nam orgelleik Camilla með þrjár af fjórum flautum sem hún notar á tónleikunum. Sú stærsta er renaissance-tenórflauta. hérlendis og síðan í Þýskalandi og tók kantorspróf frá tónlistarhá- skólanum í Dtisseldorf. Hann er nú organisti við Hallgrfmskirkju f Reykjavík. Auk verkanna sem Camilla Söd- erberg og Hörður Áskelsson leika saman á tónleikunum leikur hann tvö orgelverk. Eru þau eftir Fresco- baldi og Clérambault, tvær svftur sem samsvara sér vel f formi, en eru þó mjög ólíkar. Sem fyrr segir eru þessir tónleikar Musica Antiqua á laugardaginn i Kirstskirkju og hefjast þeir klukkan 17. Þegar ég vel verk til flutnings á stillingu flautunnar og fá tilfinn- ísraelar vara PLO við að fara inn í Suður-Líbanon Bílasýning á morgun Genf, 1S. janúar. AP. ÍSRAELAR sögðust ( dag „áskilja sér rétt“ til að koma f veg fyrir ögrunar- aðgerðir skæruliða PLO frá suður- hluta Líbanon eftir að ísraelar hverfa þaðan með heri sína. Er litið á þessa yfirlýsingu sem svo að hún tákni að ísraelar muni fara inn f suðurhluta Líbanon og uppræta starfsemi skæruliða frels- isfylkingar Palestfnumanna komi þeir sér þar fyrir. Binda ísraelar vonir við að stjórnarherinn f Líbanon og gæzlu- sveitir Sameinuðu þjóðanna (Uni- fil) taki sér stöðu i suðurhlutanum og komi f veg fyrir að skæruliðar PLO hreiðri um sig þar. Ráðuneytisstjóri f utanrfkisráðu- neytinu segist efins um að Sýr- lendingar fari inn í suðurhluta Líb- anon er fsraelar hverfa þaðan, þvf þeir vissu mætavel að slíkt yrði að- eins til að auka á spennuna. „Hvorki þeir né við hafa áhuga á að auka á hættuna," sagði hann, en ísraelar hafa þó enga tryggingu fengið frá Sýrlendingum um að þeir haldi sig fjarri landshlutanum. Áætlun um brottflutning ís- raelshers frá Lfbanon er á lokastigi og er jafnvel við því búist að brottflutningurinn hefjist í janú- arlok. ísraelar og Líbanir náðu samkomulagi f dag um að hefja að nýju viðræður um öryggismál í suð- urhluta Lfbanon eftir brotthvarf ísraela þaðan. Verður haldinn fundur f næstu viku f Naqoura. frá kl. 1—4 Nýir og notaöir bílar til sýnis og sölu Lada Sport frá kr. 408.000, árviss viðburður. f febrúar s.l. sóttu Selfyssingar Suðurnesja- menn heim og sigruðu gestirnir naumlega, enda sjálfsögð kurt- eisi af hálfu gestgjafa. Keppt var í fyrsta skipti um farandbikar, er Keflavíkurbær gaf til keppn- innar. Áður höfðu Suðurnesja- menn unnið til eignar bikar, er fyrr var keppt um og gefinn var af Bridgefélagi Suðurnesja. Eitt er það framtak sem vert er að minnst sé á, en það er bridgekennsla, sem Einar Jóns- son hefur séð um að öllu leyti og á hann heiður skilinn fyrir. Haldin hafa verið nokkur nám- skeið undanfarin ár og þátttaka verið allgóð. í haust hélt Einar tvö námskeið fyrir byrjendur, eitt almennt og annað fyrir starfsmenn á fjölmennum vinnustað, er félög starfsmanna stóðu að. Mættu fleiri starfs- mannafélög taka upp þessa ný- breytni, þar sem bridge er víða spilað á vinnustöðum, en kunn- áttu þátttakenda er oft ábóta- vant. Einar hyggst halda áfram á sömu braut og hefjast vænt- anlega byrjenda- og framhalds- námskeið í næstu viku, ef næg þátttaka fæst. Námskeiðsgjaldi er mjög f hóf stillt. Er allt áhugafólk um bridge hvatt til að notfæra sér þetta tækifæri. Að lokum er skorað á alla bridgespilara á Suðurnesjum að taka þátt f starfsemi félagsins. Spilað er i samkomuhúsinu i Sandgerði hvert mánudagskvöld og hefst spilamennska kl. 20. ■ K r f ■ r Góðir greiðsluskilmálar Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf Suðurlandsbraut 14 - Sími 38 600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.