Morgunblaðið - 18.01.1985, Side 26

Morgunblaðið - 18.01.1985, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1985 Nýmaveikin f Kollaf jarðarstöðinni: „Mögulegt að losna við veikina án þess að slátra öllum fiskiu — Segir Guðmundur Pétursson, nefndarmaður í fisksjúkdómanefnd „ÞEGAR er búið að setja stöðina í einangrun. Síðan þarf að fá betri upplýsingar um útbreiðslu veikinn- ar sem ekki hefur unnist tími til að ada og á grundvelli þeirra verður tekin ákvörðun um hvernig stöðv- arnar verða hreinsaðar,“ sagði Guðmundur Pétursson, forstöðu- maður Tilraunastöðvar Háskólans í meinafræði á Keldum og nefnd- armaður í fisksjúkdómanefnd, þegar rætt var við hann um nýrna- veikina sem upp hefur komið í Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði og víðar að undanförnu. Guðmundur sagði að mögulegt ætti að vera að losna við veikina úr stöðinni án þess að slátra þar öllum fiski. Það væri hægt að gera með því að rannsaka gaumgæfilega þann fisk sem al- inn yrði upp af sótthreinsuðum hrognum. „Það verður að meta það hversu afdrifarík aðgerðin er og vega það á móti líklegum árangri aðgerðanna," sagði Guð- mundur. Sagði hann að erfitt væri að hreinsa hafbeitarstöð eins og Kollafjarðarstöðina af sjúkdómnum, því þó öllum fiski yrði slátrað væri alltaf fiskur þaðan í hafinu sem kæmi til baka. „Við getum ekki treyst því að losna við veikina úr landinu með skyndiaðgerðum, hún er í nátt- Morgunbladið/ Július Sigurður Helgason, fisksjúkdómafræðingur á Keldum, að störfum við að rannsaka nýrnaveikisýkt seiði frá Sjóeldi. MorgunDiaoið/ RAX. Eiður Friðriksson með klaklax í stöðinni, en af 115 klaklöxum sem slátrað var, reyndust 13% vera með venileg nýrnaveikiseinkenni. úrunni, þannig að við verðum að læra að lifa með henni, þó þann- ig að hún komist ekki inn í stöðvarnar þar sem hún gerir mest tjón. Því verðum við að leggja alla áherslu á að stórauka sjúkdómaeftirlitið," sagði Guð- mundur. í Kollafjarðarstöðinni eru um 170 þúsund gönguseiði, 500 þús- und nýklakin seiði og um 2 millj- ónir hrogna. Um helmingur hrognanna var pantaður af nýju fiskeldisfyrirtæki en vegna nýrnasjúkdómsins er ljóst að það frestast að fyrirtækið geti hafið rekstur. Seiði frá stöðinni hafa farið til tveggja eldis- stöðva. Önnur er Sjóeldi í Höfn- um þar sem nýrnaveikin fannst um áramótin eins og kunnugt er. Hrogn hafa farið á 4 til 5 staði úti um land og eitthvað af seið- um í ár. Guðmundur sagði að hætta gæti verið á smiti út frá hrognunum og óráðlegt fyrir fiskeldisstöðvarnar að treysta á þau. Taldi hann ráðlegast að eyða þeim, en tók fram að ekki hefði verið tekin um það formleg ákvörðun af fisksjúkdómanefnd- inni. Hrogn í Kollafirði, sem líklega verður öllum eytt. „Vissulega áfall, en ekki 6bætanlegt“ — segir Jón Kr. Sveinsson, formaður Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva „JÍJ, ÞETTA er vissulega áfall fyrir okkur sem í þessu stöndum. En ég vil leggja áberslu á að þetta er mál sem er viðráðanlegt, ekki óbætanlegt, og verður að leysa,“ sagði Jón Kr. Sveinsson, formaður Lands- sambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva, þegar álits hans var leitað á nýrnaveiki sem upp befur komið í að minnsta kosti tveimur laxeldisstöðvum á síðustu dögum. Jón sagði að stjórn landssambandsins væri með þessi mál til umfjöllunar. Hefðu stjórnar- menn verið boðaðir á fund landbúnaðarráðherra í gær og næstu daga myndu fiskeldismenn skoða málið í Ijósi álits fisksjúkdómanefndar sem væntanlegt væri næstu daga. Sagði Jón að verst væri þessi uppákoma fyrir Kollafjarðarstöðina og þær stöðvar sem fengið hefðu seiði og hrogn þaðan. Jón sagði að landssambandið legði á það höfuð- áherslu að sjúkdómaeftirlit yrði aukið svo og fyrirbyggjandi rannsóknir í fiskeldisstöðvunum. Sagði hann að ráðherra hefði tekið þeirri mála- leitan vel og vonaðist hann þvi til að þau mál kæmust í lag á næstunni. Morgunblaðið/ RAX. Eiður Friðriksson, starfsmaður í Kollafjarðarstöðinni, með seiði í keri við stöðina. Gosflaska inn um bflrúðu: Var gosflöskunni kastað úr rútunni? ERJUR fólks taka á sig margvíslegar myndir. Þrír ungir menn kærðu bílstjóra langferðabifreiðar fyrir að kasta gosflösku inn um afturrúðu bifreið- ar sinnar sunnudaginn 6. janúar síðastliðinn. Atvik eru þau, að ungu menn- irnir óku bifreið sinni eftir nýja Bláfjallaveginum áleiðis til Hafnarfjarðar. Langferðabifreiðin ók á undan þeim og gramdist mönnunum að komast ekki framúr. Töldu þeir að langferðabifreiðin gæfi þeim ekki kost á því. Mönnunum tókst að komast framúr rútinni á Krísuvíkurvegin- um og hægðu að þvi loknu mjög ferð bifreiðar sinnar og héldu langferðabifreiðinni fyrir aftan sig. Gekk svo um hríð og skipti engum togum að flösku var kastað út úr rútunni, að sögn ungu mann- anna, og brotnaði afturrúðan. Við þetta juku þeir ferðina, óku sem leið lá til lögreglunnar í Hafnar- firði og kærðu. Rútubílstjórinn var síðar tekinn til yfirheyrslu, en neitar staðfastlega atburðinum. Lögreglan í Hafnarfirði biður þá, sem í rútunni voru sunnudags- kvöldið 6. janúar um klukkan 19, vinsamlega að gefa sig fram. Morgunblaðid/Júlíus Vinna yið þak Hallgrímskirkju á lokastigi ÞESSI mynd var tekin nú í vikunni af blikksmiðum við vinnu sína á þaki Hallgrfmskirkju. Snemma i október hófst vinna við að setja kopar á þak kirkjunnar og hefur sú vinna gengið vel að sögn Hermanns Þorsteinssonar formanns bygg- ingarnefndar Hallgrímskirkju. Hann sagði að ef veðrið héldist svona gott áfram yrði lokið við verkið á næstu dögum. Einnig er verið að ljúka við að steypa hvelf- ingar undir þaki kirkjuskipsins og sagði Hermann að þegar því væri lokið væri stórum áfanga náð. ( vet- ur hefst vinna við innri byggingu kirkjusalarins og verður sérstök áhersla lögð á góðan hljómburð. í desember 1985 verða liðin 40 ár frá því að fyrsta skóflustungan var tek- in og er vonast til að kirkjan verði tilbúin í ágúst 1986 á 200 ára af- mæli Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.