Morgunblaðið - 18.01.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 18.01.1985, Blaðsíða 33
33 góðar samverustundir eftir að þær fluttu hingað til Reykjavíkur. 1929 flytja þau Dísa og Þor- steinn til Flateyrar, þar stundaði Þorsteinn vinnu bæði til sjós og lands eins og heilsa hans leyfði, en hann bar sjúkdóm sinn með hörku um árabil, enda maðurinn stór og stæðilegur, en svo fór að sjúkdóm- urinn yfirbugaði hann. Þorsteinn var afburða sjómaður og var orð- lagður hversu góður siglingamað- ur hann var og hafði næma til- finningu fyrir bát og sjó. Hjalti sonur hans stundaði mest sjó þau ár sem hann var á Flateyri, en hann flutti hingað til Reykjavíkur fyrir um það bil tveimur áratug- um og starfaði síðast í Lands- banka íslands. Árið 1944 flytur Dísa svo til Reykjavíkur ásamt fóstursyninum Viggó. Hér stundaði Dísa öll venjuleg hússtörf. Hún vann og talsvert við saumaskap, enda mjög fær á því sviði. Dísa var lengi í húsinu nr. 37 við Klapparstíg hér í Reykjavík og þau Viggó. Það voru margir ættingjarnir og kunningj- arnir sem heimsóttu hana þangað og þáðu hjá henni mat og drykk og fengu að sofa þar, sem á því þurftu að halda. Húsrýmið var að vísu ekki mikið en hjartarýmið var þeim mun meira hjá húsráð- andanum og það var fyrir mestu. Það var eins og maður gleddi Dísu mest, ef hún þurfti að hafa fyrir manni. Hún hafði svo mikla þörf fyrir að hjálpa öðrum og gleðja aðra. Bróðir hennar, Höskuldur, sem er löngu látinn virtist hafa þekkt systur sína vel, því einu sinni sendi hann henni þessa vísu: Elsku systir auðnuveginn — al- valdshöndin leiði þig — að gleðja alla gjör þú fegin — gleður það að frétta mig. Þegar Dísa var 80 ára fékk hún þessa vísu: Áttatíu ár að baki — alla gleður Dísa hér — Drottinn blessi Drott- inn vaki — daga og nætur yfir þér. Svana Fells sendi Disu eftirfar- andi vísu sem er á þessa leið: Mjög þú tengir mildi og þrótt — megirðu lengi prýða, — mann- kynsengi, hreyfa hljótt — hjarta strengi þýða. Ekki fer á milli mála að höfund- ar þessara erinda hafi vitað hvern sannan mann Dísa hafði að bera. Dísa var mjög trúuð kona og ég er þess viss að hún var ekki ein- ungis trúuð í orði heldur leitaðist hún við af fremsta megni að starfa í anda Jesú Krists, eða eins og hún taldi hann vera. Hún hafði ákveðnar trúarskoðanir sem hún fékk strax i bernsku. Það duldist engum sem komu til Dísu hin síð- ari ár að trú hennar var henni stoð og stytta og gaf henni ákveðni, ró og frið, þó stundum syrti í álinn. Á 75 ára afmæli Dísu fékk hún eftirfarandi vísu: Þó að veður gerist grá — grúfi þoka á heiðum. — Eigðu vor og æskuþrá — enn á þínum leiðum. Ég held að lengst af hafi Disa frænka séð ljósið f glugganum en en það hefur bjargað mörgum bæði í eiginlegum og óeiginlegum skilningi. Þegar Viggó fóstursonur Dísu gifti sig og fór að heiman réðst Dísa til Einars Þórðarsonar skálds og bónda frá Skeljabrekku. Dísa vildi ekki vera ein, hún vildi hafa félagsskap. Hún hafði frá fyrstu tíð verið á fjölmennum heimilum og hún kunni vel við sig innan um annað fólk. Einar var skáld gott eins og kunnugt er og hafði yndi af ljóðum, rímum og öllu er að skáldskap laut. Vísan var því hvíldarlítið á lofti á Njarð- argötu 7 þau árin sem Dísa var þar. Einar sá að Dísa kunni að meta kvæði og ljóð og kunni mikið af þeim. Á þessum tíma mun Dísa hafa gengið í Kvæðamannafélagið Iðunni og sótti þangað fundi á meðan hún hafði möguleika á því. Sá tími, sem Dísa var hjá Einari Þórðarsyni, var því nokkur upp- rifjun frá bernskuárunum. Einar andaðist 3. okt. 1963 og var Dísa þá aftur orðin ein einu sinni enn. Það mun hafa verið ári síðar eða svo að Dísa réð sig til Ásgeirs Sig- urðssonar, vélsm. Langholtsvegi 186 í Reykjavík. Hjá Ásgeiri var MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1985 Dísa í um 14 ár, en hann reyndist Dísu mjög vel, bæði á meðan hún var hjá honum og svo eftir að hún fór á Hrafnistu. Hann rétti henni hjálparhönd á ýmsan hátt. Vil ég færa honum þakkir fyrir það. Síð- asta árið sem Dísa var hjá Ásgeiri veiktist hún og var flutt á sjúkra- hús, þar sem hún fékk að dvelja þar til hún fékk heilsuna aftur. Þegar hún kom af sjúkrahúsinu fór hún heim til fóstursonar síns, Hjalta Þorsteinssonar og konu hans, Massibil Bernharðsdóttur, og dvaldi hjá þeim þar til fyrri- hluta árs 1980, en þá fór hún að Hrafnistu í Reykjavík. Á Hrafn- istu eignaðist Dísa marga kunn- ingja og var gaman að sjá hana sitja og spila við jafnaldra sína þar. Þar var ekki viðhaft neitt slen á hlutunum. Þar flugu og oft vísur á milli manna. Ég þekkti Dísu lítið nema af af- spurn fyrr en ég kom hingað til Reykjavíkur, en hennar fyrstu af- skipti af mér munu hafa verið þau að þegar ég var að koma í þennan heim var systur minni, sem þá var fjögurra ára, komið fyrir hjá Dísu, sem bjó þá á næsta bæ og þá að- stoðaði hún systur mína við að prjóna eða hekla tátiljur, sem ég átti að fá sem mína fyrstu gjöf. Þó hefur mér alla tíð fundist að ég hafi þekkt Dísu alltaf, þannig var hún í mínum huga og hún um- gekkst mig eins og mina aðra móður. Hún var alltaf að biðja mann um að fara varlega allt fram á hinn síðasta dag, að hugsa um aðra hvarf aldrei úr huga hennar. Gata frænku minnar í gegnum lífið hefur eflaust stundum verið erfið yfirferðar, en hún hrasaði aldrei. Ég sá miða hjá henni fyrir nokkru sem á stóð þessi heilræði: Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt ... kjark til að breyta því sem ég get breytt ... o g vit til að greina þar á milli. Ég held að ég geti fullyrt að Dísa hafi tileinkað sér og fylgt því er í setningum þessum stendur. Því miður geta ekki allir státað af því þó lærðir séu. Dísa var búin að vera nokkuð lasburða síðasta mánuðinn fyrir jól og þurfti greinilega að fara á sjúkrahús, þar sem mjög léleg að- staða er til að veita læknishjálp á Hrafnistu og heilsugæsla í lág- marki. Það kom þó að því með að- stoð góðs starfsfólks á Hrafnistu að fengið var pláss fyrir hana á Borgarspítalanum. Þar fékk hún góða hjúkrun og virtist vera að hressast. Á Þorláksmessu vissum við ekki annað en Dísa fengi lækn- ishjlp fram yfir jól og taldi hún sig hafa fengið loforð um það. Á aðfangadag jóla um miðjan dag er komið var í heimsókn á sjúkrahús- ið var okkur tjáð að búið væri að flytja Dísu á Hrafnistu. Þegar komið var inn á Hrafnistu var bú- ið að setja Dísu í rúmið sitt og þá var það fyrsta sem hún sagði við mig og var ákveðin í málrómnum: „Ég hef alltaf vanist því að töluð orð væru látin standa. Það var bú- ið að lofa mér því að ég fengi að liggja á sjúkrahúsinu fram yfir jól.“ Ef til vill finnst mönnum ekki hlýða að koma með þetta í minn- ingargrein en því ekki það. Er ekki verið að rekja lífshlaup einnar manneskju. Hún heitir Vigdís Jónsdóttir í dag, en hver verður fyrir þessari reynslu á morgun. Ég veit að frænka mín hefði ekkert haft á móti því að láta þetta koma fram, því hún hafði „kjark til að breyta því sem hún gat breytt". Hún var hreinskiptin og dettur mér þá í hug erindi úr Passíu- sálmunum, sem var prentað á úr- klippu úr blaði og lá inni í Passíu- sálmunum hennar en það er svona: Þá þú gengur í guðshús inn, — gæt þess vel, sál mín fróma, — hæð þar ekki Herrann þinn — með hegðun líkams tóma. — Beygðu holdsins og hjartans kné — heit bæn þín ástarkveðja sé — hræsnin mun síst þér sóma. Ég hef ekki getað sætt mig við að það sé í samræmi við kristilegt siðgæði að ryðja fólki út af sjúkra- húsum fyrir stórhátíðir aðeins vegna þess að það eru að koma jól eða það eru að koma páskar og að starfsfólkið geti haldið heilög jól heima hjá sér eða með því að fara í kirkju. Mér sýnist vera orðin þörf á að stöðva þetta og kemur mér þá í hug hvort þetta geti ekki verið verkefni fyrir okkar presta og guðfræðinga úr því að verald- lega valdið er á annarri skoðun. Ég hef grun um að gamalmenni verði hér frekar fyrir barðinu á þessu heldur en þeir yngri. Fyrir 70 árum, eða 19. desember 1914, sat Dísa frænka mín við dán- arbeð föður síns, Jóns Egilssonar, sem þá bjó í Hraunsdal við ísa- fjarðardjúp. Hann hafði ofkælt sig með því að fara út fáklæddur til að leiðbeina sonum sínum sem voru á heimleið til að dvelja hjá foreldrum sínum um jólin. Það var dimm kafalds mugga í logni þann- ig að ekki sást eitt skref frá sér. Leiðbeiningin fór þannig fram að hann hóaði og þeir gengu á hljóð- ið. Dísa hafði tekið við af móður sinni að sitja yfir föður sinum, en móðir hennar var orðin mjög þreytt og ósofin við að hjúkra manni sínum. Það var hljótt í baðstofunni og Dísa hélt í höndina á föður sínum. Dísa sagði að sér hefði sennilega runnið aðeins í brjóst en þegar hún kom til sjálfs sín aftur var faðir hennar dáinn, en hélt samt fast í höndina á þess- ari dóttur sinni, 19 ára gamalli. Hann mun nú eflaust endurnýja þetta handtak er þau hittast í æðra heimi. Frænka mín óskaði eftir því og var búin að ákveða að hún og vin- kona hennar, Halla Hannesdóttir, vildu hvíla saman hlið við hlið í Fossvogskirkjugarði. Þær höfðu talað um þetta eins og þær væru að fá sér íbúð. Þar verður frænka mín kvödd í dag. Ég vil þakka syni Höllu, Halldóri Guðmundssyni, fyrir alla þá vinsemd og alúð sem hann sýndi henni sérstaklega eftir að mamma hans veiktist og gat ekki heimsótt Dísu á Hrafnistu. Hann var ólatur að heimsækja hana og var hún honum mjög þakklát fyrir það. Hér við skiljum — og hittast munum — á fegins degi fira. — Drottinn minn gef þú dauðum ró — en hinum líkn er lifa. Jóhann Þórðarson Jarðarfarar- skreytingar Blóm, kransar, krossar. Græna höndin Gróðrastöð við Hagkaup, sími 82895. Kransar; kistuskreytingar BORGARBLÓMlÐ SKÍPHOLTÍ 35 SÍMh 32213 t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför IDU JENSSON, Baldursgötu 12. Fyrir hönd aöstandenda. Ingibjörg Kristófersdóttir. t Þökkum innilega samúð og hlýhug viö andlát og útför ÓLAFSJÓNSSONAR, Hagamel 6. Sólveig Magnúsdóttir, Ingunn Ólafsdóttir, Pétur Þorgilsson, Auður Ólafsdóttir, Stefón Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega vinsemd og hluttekningu viö andlát og útför eigin- manns mins, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, SIGURBJARNA TÓMASSONAR, bifreiöastjóra, Hólmgarói 14. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Landakotsspitala, þökkum ykkur hlýjar móttökur. Gislína Guömundsdóttir, Sigurbjörn Hreiöar Sigurbjarnason, Guömundur Vignir Sigurbjarnason, Aöalbjörg Jónsdóttir, Siguröur Tómas Sigurbjarnason, Hafsteinn Sigurbjarnason, Bergrós Björnsdóttir, Guðrún Erla Sigurbjarnadóttir, Jón Hrólfur Sigurjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur og afa, JÓNS GÍSLASONAR fró Baldurshaga, Gríndavlk. Erla Jónsdóttir, Þorleifur Guömundsson, Sæmundur Jónsson, Steinunn Ingvadóttir, Gfsli Jónsson, Margrét Brynjólfsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega auösynda samúö og vinsemd viö andlát og útför móður okkar og tengdamóður, SIGRÍÐAR KARLSDÓTTUR fró Tjaldbúöum, Staöarsveit. María Bjarnadóttir, Jón Pólsson, Fínnbogí Bjarnason, Mólmfriöur Jóhannsdóttir. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför EMILÍU BORG. Fjölskyldan Borg. t Innilegustu þakkir sendum viö öllum þeim, sem sýndu okkur samúö og vinsemd viö andlát og útför RAGNHEIÐAR LÁRU SIGURÐARDÓTTUR, Kleppsvegi 16. Reykjavfk. Trausti Friðbertsson, Sunneva Traustadóttir, Dagur S. Ásgeirsson, Gylfi Traustason, Sigrföur Kr. Davfösdóttir, Ragnar M. Traustason, Hulda M. Gunnarsdóttir, Frióbert Traustason, Sigrún Ó. Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.