Morgunblaðið - 18.01.1985, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.01.1985, Blaðsíða 35
___________MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1985 Ingibjörg Jóns- dóttir - Minning Fædd 1. desember 1908 Dáin 9. janúar 1985 Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. í dag, föstudaginn 18. janúar, kl. 3 verður móðir vinkonu minnar kvödd í Laugarneskirkju. Hún Imba, eins og hún var kölluð af vinum og frændum, varð líka vinkona mín. Ingibjörg var fædd að Syðstu-Mörk, V-Eyjafjallahr., dóttir hjónanna Guðbjargar Jónsdóttur af Víkingslækjarætt og Jóns Jónssonar er þar bjuggu. Systkini hennar voru: Guðjón, kvæntur Margréti Þórðardóttur, þau eiga þrjú börn, Ólafía, látin fyrir mörgum árum frá fjórum bömum, Guðmundur, látinn 1981, og Björgvin, yngstur, tvíburi við hann dó í fæðingu og móðir þeirra af barnsburðinum. Það var jarð- skjálftaárið 1912, hrundu þá bæir víða á Suðurlandi og varð ekki Syðsta-Mörk undanskilin. Leyfi ég mér að vitna í erfiljóð um móður Ingibjargar eftir frænda hennar, Þorstein Erlingsson. En landskjálftinn kom þar og bæ þeirra braut, það böl var svo geigvæn, svo sligandi þraut; þá verða’ eins og vikur úr stundum. En þá fannst þó föðurnum birt upp í bráð, er börnunum hafði' hann og móðurinni náð og bar þau úr húsunum hrundum. Það var, þegar móðirin bjargráða beið að barninu sjðtta í hörmungar neyð, þá settist hann bleikur hjá beði. Hann hætti’ ekki við uns þau hvíldu þar fðl við hlið sínum vin eftir grátlega kvöl. Með þeim var svo grafm hans gleði. Og hann sýndist einsamall, hvar sem hann er. En horfði 'hann á barnið, sem kvakandi fer í fangið á föður og móður, þá losnar um tárin, þau læðast á kinn, þá lítur hann tvistraða hópinn sinn, og þurkar af hvörmunum hljóður. Ekki var um margt að velja fyrir einstæðan föður í þá daga með fimm lítil börn, það þótti líka svo til sjálfsagt að koma bðrnum í fóstur og fór Ingibjörg til barn- lausra hjóna í Stóru-Mörk: Maríu Jónsdóttur og Bjarna Björnsson- ar, sem þar bjuggu góðu búi. Virti hún fósturforeldra sína alla tíð. Það tók á lítið þriggja ára barn að fara í fóstur. En það var fjölbýlt í Stóru-Mörk og eignaðist hún mörg góð leiksystkin og gaman var að leika sér í barnahópi á grænum bala í fallegri sveit. — En þegar Ingibjörg er tíu ára flytja fóstur- foreldrar hennar út yfir vötn og sanda að Geldingalæk á Rangár- völlum og saknaði hún þá vina í stað, sérstaklega leiksystranna. Árin líða, þar til ungur maður ræðst að Geldingalæk, að nafni Sigurður Sigurðsson, ættaður úr Fljótshlíð. Felldu þau hugi saman, giftu sig árið 1932 og hófu búskap að Efri-Þverá í Fljótshlíð. Þá var ekki sími eða bíll, svo það var oft verk barna að koma skilaboðum milli bæja, það sagði mér einn sendillinn að hún Imba á Þverá hefði ekki látið barnslófann fara tóman frá sér, flatkaka með kæfu var nú venjan, en það gat hrokkið með tertusneið eða smákaka. Ingi- björg og Sigurður bjuggu á Efri- Þverá í þrettán ár, en fluttu þá til Reykjavíkur. Fljótlega fór Sigurð- ur að vinna á BSÍ sem afgreiðslu- maður og vann þar sína starfsævi, en Imba hélt heimilið og vann þó oft á öðrum heimilum, sem hjálp- ar þurftu vegna veikinda eða ein- hverra annarra hluta. Með elju og dugnaði eignuðust þau góða nú- tímalega íbúð með öllum þægind- um, mikill ávinningur fyrir Ingi- björgu er naut alls sem var snyrti- legt, húslegt og heimilisiegt, í rík- um mæli, enda sérstakt hreinlæti í blóð borið. Það var reisn yfir Imbu minni þegar hún var komin í upp- hlutinn sinn, þykkt hárið niður á bak fléttað í tvær stórar fléttur, bylgjur í vöngum og vart grátt hár á höfði til hinstu stundar. Börn Ingibjargar og Sigurðar urðu tvö, Guðbjörg Jóna býr í Reykjavík, gift Jóni Þóri Einars- syni, skipverja á ms. Hofsjökli, en hann er á leið til Ameríku og get- ur því miður ekki fylgt tengda- móður sinni, og Leifur, kvæntur Særúnu Æsu Karlsdóttur, búandi á Kvígsstöðum, Borgarfirði. Þau eiga fjögur mannvænleg börn: Sigurð Inga og Sigurþór, nemend- ur í iönskóla, Karl Dúa, að Ijúka unglingaprófi, og elst er Svala, gift Jóhanni Elíassyni stýrimanni, búsett í Hafnarfirði. Eiga þau sex mánaða dreng, Elías Halldór, „augasteininn“. Það voru unaðs- stundir þegar lítill drengur kom í heimsókn í sjúkrahúsið og var lagður í hálsakot langömmu. Við þreyttumst aldrei á að ræða þær stundir eða skoða mynd af litlum dreng. Ingibjörg hafði yndi af ferðalög- um utanlands og innan og þar sem hún var í Kvennadeild Slysa- varnafélagsins og í kvenfélagi kirkju sinnar, átti hún oftar kost á ferðalögum en ella. Seinni árin naut hún sérstaklega félagsskapar í kvenfélaginu sínu og viknanna í húsmæðraorlofinu á sumrin, það var henni til sannrar gleði sam- veran við þessar kátu og hressu konur. Hún Imba mín var vinföst og eignaðist því marga góða vini og vinkonur. Tryggð þeirra sýndi sig _____________________________35^ á heimsóknum, kveðjum og fyrir- bænum í hennar ströngu veikind- um. Hún bað mig, ef ég hripaði línu að henni genginni, þar sem hún hafði grun um að ég stingi stundum niður penna við slík tækifæri, að færa þakkir til dótt- urinnar eða eins og hún sagði: „Megi Guð launa Jónu minni fyrir síðastliðið ár, því það leið aldrei sá dagur að hún ekki kæmi eða hefði samband við mig, einnig til sér- stakrar vinkonu minnar, Guðnýj- ar Berndsen, og Guðlaug, ná- grannakona mín, megi hún bless- unar njóta fyrir hjálpina." Ingibjörg verður flutt á morgun, 19. janúar, austur í Fljótshlíð í fylgd barna og nánustu frænda og lögð til hinstu hvílu í kirkjugarð- inn á Breiðabólstað við hlið manns síns, en hann lést 6. júlí 1977. Af systkinahópnum eru nú að- eins tveir bræður hennar eftir hér á jörð, báðir farnir að heilsu og geta ekki fylgt systur sinni síöasta spölinn. Munum við sakna Björg- vins, sem við slík tækifæri stóð á kirkjutröppum og hringdi klukk- um, enda heimilisfastur á prest- setrinu um fjölda ára. Hún Ingibjörg var þess alveg fullviss að okkar biði annað og meira en lífið hér á jörð og að hún hitti þá sem á undan væru gengn- ir. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig aö þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Veri elsku Imba mín kært kvödd og Guði á hendur falin. Hafi hún hjartanS þökk fyrir allt og allt. Vinarkveöja Jónína Björnsdóttir Minning: Sigríður Jónsdótt- ir frá Loftsstöðum Fædd 14. júní 1900 Dáin 8. janúar 1985 Árið 1800 fæddist þeim sæmd- arhjónum, Guðríði og Jóni ríka í Móhúsum, dóttir, sem var látin heita Sigríður. Er það eftir Jóni haft, að ætti hann tíu dætur, léti hann þær allar heita Sigríði. Dæt- ur átti hann þrjár og hétu allar Sigríður, svo miklar mætur hafði hann á nafninu. Jón í Móhúsum var mikill for- ystumaður sveitar sinnar í flest- um hlutum, og þrátt fyrir mikia sparsemi og ráðdeild, hafði hann á sér meira höfðingjasnið en þá tíðkaðist. Mjög þótti sópa að Mó- húsafjölskyldunni þá er hún gekk til kirkju á helgum dögum. Gekk Jón þá í svörtum klæðisfrakka og var innanundir í rauðu flauels- vesti með silfurhnöppum. Kona hans var í þremur pilsum með lit- uðum bekkjum, rauðum, bláum og grænum, og var sídd þeirra hagað þannig, að öll pilsin mættu sjást. Bæði áttu þau hjón föst virð- ingarsæti í kirkjunni, hann við altarishorn, hún fremst á kvenna- bekk. Var til þess tekið hversu Jón var mikill á svip og kempulegur og báru allir hina mestu virðingu fyrir honum. Eitt hundrað árum síðar, þann 14. júní árið 1900, fæðist sonarsyni einnar Sigríðar þeirra hjóna dótt- ir, sem ákveðið var að heita skyldi Sigríður. Átti hún eftir að bera sterkt svipmót forfeðra sinna. Hún var ein af sex systkinum, sem upp komust af þrettán. Æsku- heimili Sigríðar að Vestri-Lofts- stöðum í Flóa bar greinilega svip þeirrar menningar og reisnar, sem forfeðurnir lögðu grundvöll að. Hún var alin upp við ríkt tón- listarlíf og mikið athafnalíf og miðaði hún líf sitt aldrei við hið smáa. Um tvítugt kvaddi Sigríður æskuheimilið og lá leið hennar til Reykjavíkur. Þar hóf hún nám í matreiðslu og öðrum heimilis- fræðum á Hótel Skjaldbreið. Kennari hennar og yfirmaður var Elín Egilsdóttir, alltaf nefnd frök- en Elín. Hún var stórbrotin hæfi- leikakona og féll þeim Sigríði samstarfið svo vel, að eftir stuttan námstíma var Sigríður farin að aðstoða Elínu við kennslu og stjórn í eldhúsi hótelsins. Vinátta þeirra hélzt meðan Elín lifði. Örlög höfðu ofið Sigrfði annan vef en hún ætlaði sjálf, og áður en varði var hún komin með þann sjúkdóm, sem fylgdi henni í einni eða annarri mynd fram eftir ævi. En Sigríður var ekki auðunnin bráð, það áttu örlögin eftir að leiða í ljós. Um þetta leyti kynntist hún eig- inmanni sínum, Vernharði Jóns- syni, og þann 12. október 1928 gengu þau í hjónaband. Vernharð- ur var Verzlunarskólagenginn og vann við verzlunarstörf alla tið. Var hann ættaðúr úr Bárðardal og kenndi sig við Jarlsstaði. Hann var einstakt prúðmenni, sást aldr- ei skipta skapi, greindur vel og hafði yndi af tónlist. Þegar á unga aldri tók heilsa hans að gefa sig. Nú mundi margur ætla að saga þessara hjóna væri að mestu sögð, en það er öðru nær. Sameiginlega og hönd í hönd lögðu þau á bratt- ann og horfðu upp mót sólu. Sam- líf þeirra var svo mótað af þeirri virðingu, sem þau báru hvort til annars, að þar virtist ríkja ein hugsun. Þau hjón eignuðust eina dóttur, Rannveigu Hrund. Hún var að sjálfsögðu mikið yndi og eftirlæti foreldranna. Hrund fór til náms í Danmörku og settist þar það. Giftist hún dönskum manni og eignaðist með honum þrjú börn, tvo drengi og eina stúlku. Son átti hún fyrir hjónaband með unnusta sínum. Árið 1953 lézt Vernharður. Réðst Sigrfður þá til starfa hjá Sambandi íslenskra samvinnufé- laga og vann þar í 18 ár, eða með- an aldur leyfði. Hér verður ekki rakin ævi Sigríðar í einstökum at- riðum enda þótt hún hafi á engan hátt verið venjuleg. Það má geta þess, að það hefur oft verið til um- ræðu meðal vina og vandamanna, hverju þessi stórhuga kona hefði áorkað hefði hún notið heilsu. Alla tíð var hún sérlega glaður gest- gjafi og samkvæmi hennar báru listilegt yfirbragð fagurkerans og heimskonunnar. Heimili Sigríðar var ólíkt öllu, sem ég hef kynnzt. Þar átti hver hlutur sinn virð- ingarstað og naut sin sem væri hann gersemi í helgidómi. En þrátt fyrir hátíðleik heimilisins ríkti mikil kátína þar sem Sigríð- ur var. Hún hafði næmi fyrir því spaugilega, hermdi vel eftir og var hrókur alls fagnaðar. Siðustu tíu árin var Sigríður sjúklingur á Hrafnistu og ellina bar hún af sannri reisn. Kunni hún vel að meta alla þá umhyggju, sem hún naut þar. Fyrir hönd Sig- ríðar eru hér færðar þakkir öllu því góða fólki, sem annaðist hana til hinztu stundar. Sigríður var vinamörg og vina- föst, og þegar samtíðarfólkið hvarf á braut, þá reyndust afkom- endur vina hennar henni sannir vinir og misstu aldrei sjónar á henni. Þessir vinir kveðja hana í dag og eru hér færðar þakkir fyrir þeirra tryggu vináttu. Þegar ég nú kveð Sigríði frænku mína verður mér hugsað til há- tíðastunda fjölskyldu minnar á mínum uppvaxtarárum. Við frændsystkinin töldum óhugsandi að halda hátíð án þess að Sigga frænka væri með til halds og trausts. Hún kunni öðru fólki bet- ur að gera veizlu að hátíð og var líkt og samofin hugmyndum okkur um hátíð og veizlugleði. Reisn hennar og kátína gerði stundina að hátíð. Sigríður var litrík kona og skil- ur eftir sig ánægjulegar minn- ingar í hugum okkar frændsystk- inanna. Við vottum dóttur hennar og eftirlifandi systkinum samúð okkar. Ingibjörg Björnsdóttir 50 ára reynsla'////// í bílamnflutningi og þjónustu HEKIAHF HEKLA HF HEKLArl 13.28 [3 MT*««UA» | yj* nictmc | I.OOttfViAU ttENWOOD l 1'i^> Vidgerdaverkstædi-Smurstöð-Hiölbardaverl Varahlutir-Notaðir bilar Íiúk* Hvergi meira úrval bfla. □ Frá þrem gjaldeyrissvædum. Frá þrem gjörólíkum framleiðendum. Fólksbflar: bensínvél / díselvél / turbo / f ramdrif / aldrif. Sendíbflar: opnir/lokaöir /þriggja manna hús/sex manna hús / eindrif / aldríf / bensínvél / díselvél / turbo Burdarþol: 450-2900 kg. Jeppar: bensínvél/díselvél/turbo/5 manna/7 manna/ stuttir / langir / vinnubflar / f erðabílar. HF Laugavegi 170 -172 Simi 21240

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.