Morgunblaðið - 02.02.1985, Page 5
Hluti reiðhjólanna í óskilura.
Tónlistarfélagið:
Söngtónleik-
ar í Austur-
bæjarbíói
í DAG, laugardaginn 2. febrúar,
verða haldnir söngtónleikar í Aust-
urbæjarbíói á vegum Tónlistarfé-
lagsins og hefjast þeir kl. 14.30. I*ar
koma fram sænski baritonsöngvar-
inn Carl John Falman og píanóleik-
arinn Jan Eyron.
I frétt frá Tónlistarfélagsins
segir, aö Carl Johan Falkman
stundaði nám hjá Ingrid Eksell-
Eidrs í Stokkhólmi og síðar í Si-
ena á Ítalíu hjá Gino Becchi. Hann
kom fyrst fram í Konunglegu
óperunni í Stokkhólmi árið 1973 í
óperunni „Tintomara" eftir Lars
Johan Werle. Síðan hefur hann
sungið mörg aðalhlutverk m.a.
Figaró í Rakaranumí Sevilla eftir
Rossini, Germount í La Traviata
eftir Verdi og Eugene Onegin í
samnefndri óperu eftir Tchaiko-
kvsky. í fyrra söng hann á Broad-
way í New York hlutverk nauta-
banans í frægri uppfærslu Peter
Brooks á óperunni Carmen.
Sænski píanistinn Jan Eyron
stundaði nám í Stokkhólmi hjá
Olof Wilberg og Greta Erikson.
Hann kom fyrst fram sem undir-
leikari 1956 og hefur síðan verið
eftirsóttur undirleikari jafnt inn-
an Svíþjóðar sem utan. Hann hef-
ur m.a. unnið með Nicolai Gedda,
Birgit Nilsson, Elisabeth Söd-
erström, Peter Schreier og Kerst-
in Meyer.
Jan Eyron hefur komið til ís-
lands oftar en einu sinni, m.a. til
að leika með Edith Thallaug á tón-
leikum Tónlistarfélagsins árið
1967.
Hann fæst ekki eingöngu við
undirleik en hefur einnig getið sér
gott orð fyrir kammermúsík og
sem einleikari og hljómsveitar-
stjóri. Hann hóf reyndar feril sinn
sem einleikari.
Miðar sem ætlaðir voru á tón-
leika Nicolai Gedda gilda á þessa
tónleika.
Skákþing Reykjavíkur:
Róbert Harð-
arson efstur
RÓBERT Harðarson hefur tekið for-
ystu á Skákþingi Reykjavíkur. Hann
sigraði l)an llansson í 8. umferð
skákþingsins. Önnur helstu úrslit
urðu að Andri Áss Grétarsson og
Haukur Angantýsson gerðu jafntefli,
svo og l’röstur hórhallsson og Hilm-
ar Karlsson. Árni Á. Árnason vann
Davíð Ólafsson, Pröstur Bergmann
vann Ríkharð Sveinsson og 1‘orvald-
ur Logason vann Svein Kristinsson.
Staða efstu manna er nú:
1. Róbert Harðarson 7. 2—4. Dan
Hansson, Andri Áss, Árni Á.
Árnason 6!4 vinning hver. 5—9.
Þröstur Þórhallsson, Hilmar
Karlsson, Haukur Angantýsson,
Þröstur Bergmann og Þorvaldur
Logason 6 vinninga hver.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1985
Á fjórða hundrað
reiðhjóla í óskilum f
„VIÐ erum með á fjórða hundrað reiðhjóla í óskilum hér á lögreglustöðinni
við Hverfisgötu. Hér ægir saman öllu sem nöfnum tjáir að nefna. Hér er
hjólastóll í vanskilum, barnavagnar, barnakerra, gítar og forláta flauta, svo
eitthvað sé nefnt. í mörgum tilvikum hefur þessu verið stolið og skilið eftir í
reiðileysi. Skilvíst fólk hefur síðan komið þessu til okkar. Við viljum eindreg-
ið hvetja fólk, sem hefur glatað munum, að koma til okkar,“ sagði Þórir
Hersveinsson, lögreglumaður hjá vanskiladeild lögreglunnar í Reykjavík, í
samtali við Mbl.
„Við reynum ávallt að koma
hlutunum í hendur réttra eigenda,
en eins og gefur að skilja eru oft
vandkvæði á að það sé hægt. Mörg
seðlaveski fara um okkar hendur.
Oft eru skilríki í þeim og því hægt
að hafa upp á réttum eiganda. En
oft er með engu móti hægt að
rekja slóðina til réttra eigenda. Ég
vil eindregið hvetja fólk, sem á
hluti í óskilum, að snúa sér til
okkar og kynna sér hvort óskila-
munir séu í okkar vörzlu," sagði
Þórir Hersveinsson.
MorgunblaðiA/Bjarni Eirfksson
Það ægir öilu saman hjá óskiladeildinni. Þórir Hersveinsson með hjólastól.
Einnig má greina svefnpoka, töskur, kerru, barnavagna og margt fleira.
VIUU SPARA
100 til 200 þúsund krónur?
Vegna hagstæðra innkaupa okkar, þá er MAZDA 626 GLX miklu
ódýrari en sambærilegir bílar í sama gæðaflokki.
Eftirfarandi búnaður fylgir MAZDA 626 GLX:
Framdrif • 2000cc vél 102 hö DIN • Sjálfskipting • Vökvastýri • Veltistýri • Aflhemlar •
Rafknúnar rúður á öllum hurðum • Rafknúnar hurðarlæsingar • Snúningshraðamælir •
Ferðamælir • Aðvörunartölva • Viðvörun vegna hurða, Ijósa og ræsislykils • Tölvuklukka
• Stillanleg mælaborðslýsing • Bólstrað stýrishjól • Lýsing í vindlakveikjara og öskubakka
• Lýsing í hurðarskrá og ræsi • Læst hanskahólf með Ijósi • Inniljós með leslömpum •
Hanskahólf við ökumannssæti • Spegill í sólskyggni hægra megin • Handgrip ofan við
hurðir • Barnaöryggislæsingar á afturhurðum • Ökumannssæti stillanlegt á 10 vegu •
Niðurfellanlegt aftursætisbak 40/60% • Niðurfellanlegur armpúði í aftursæti • Öflug 4
hraða miðstöð • Hitablástur aftur í • Vandað slitsterkt plussáklæði á sætum • Geymslu-
vasar á framsætisbökum • Baksýnisspegill með næturstillingu • Útispeglar stillanlegir
innan frá beggja vegna • Lokuð geymsluhólf í framhurðum • Öryggisgler í framrúðu • Lit-
að gler í rúðum • Rafmagnshituð afturrúða • Ljós í farangursgeymslu • Pakkabönd í far-
angursgeymslu • Halogen aðalljós • Rúðuþurrkur með 5 sek. rofa • Rúðusprauta og
þurrka á afturrúðu (Hatchback) • Sportrendur á hliðum • Farangursgeymsla opnuð innan
frá • Bensínlok opnað innan frá • Þokuljós að aftan • Hjólbarðar 185/70 HR 14 • Heilir
hjólkoppar • Aurhlífar við fram- og afturhjól • WAXOYL ryðvörn og 6 ára ryðvarnarábyrgð.
Opið laugardaga frá kl. 10—4
MEST FYRIR PENINGANA
BILABORG HR
Smiöshöföa 23 sími 812 99