Morgunblaðið - 02.02.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1985
51
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FOSTUDAGS
7 uJtW'íj
Frí .sýningu á Litlu hryllingsbúðinni en aö mati bréfritara er hún hin besta skemmtun.
upphafi. Lék það alveg snilldar-
lega. Hin gervin öll voru ágæti og
kom hann þeim vel til skila. Nú,
svo var það Auður II. Hennar
þáttur var kannske sá stórkostleg-
asti og þeir tveir aðilar sem „léku“
hana eiga heiður skilið.
Þýðingin var góð, oft á tíðum
skemmtilega staðfærð og söng-
textar féliu vel að öllu hinu.
Hljómsveitin ágæt en svolítið há-
vær, en það tilheyrir víst. Svið-
setningu, leikstjórn og þess háttar
hef ég ekkert vit á en í einu orði
sagt, ég skemmti mér alveg stór-
kostlega og fór heim ánægður og í
góðu skapi, bjartsýnn á að
kannski væri Gamla bíó ekki alveg
glatað. Kærar þakkir fyrir góða
skemmtun.
Eftirmáli
Ég fór að sjá þessa sýningu á
laugardagskveldi kl. 9 og fékk í
kaupbæti stórkostlega tízkusýn-
ingu hvað hárgreiðslu og fatnað
snertir, því 90% af áhorfendum
voru ungt fólk. Klæðnaðurinn,
maður minn! Og hárgreiðslurnar,
vá! Alveg frá því svæsnasta upp í
það að vera klippt út úr tízkublaði.
Strákur í pelsinum af henni ömmu
sinni með einn eyrnalokk, sumir
með hárið litað í íslensku fánalit-
unum, hálfsíðir kjólar, túberað
hár, snoðað hár í vöngum, hvítir
smokingjakkar, svartir samfest-
ingar með hvíta hanska o.s.frv.
Hugmyndafluginu virtist engin
takmörk sett. Allt þetta unga fólk
kom fram með glaðværð og kátínu
en fyllstu kurteisi. Mikið var þó af
tómum pottvínflöskum hingað og
þangað, vottur um hina nýju vín-
„menningu" og væntanlega aukn-
ingu á skorpulifur.
Jóhannes Proppé,
5091-6774.
„Hjálpum að verma
króknandi sál“
Skeggi Skeggjason skrifar:
Það sannaðist svo ekki verður
um villst hvað við íslendingar
búum vel, hversu mikið er víða
óselt á borðum er ýmsum mark-
aðssölum lýkur, þótt nýr og góð-
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til fostudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
ur fatnaður sé þar boðinn fyrir
lítið.
Svo var það og í Templara-
höllinni á sunnudaginn var og
jafnvel hefði spurningunni:
„Hvað gerið þið við þetta?" sum-
staðar verið svarað svo, að því
yrði bara fleygt.
Vitanlega var ekki hætta á
sliku hjá templurum, sem senda
það eins og annað til Póllands.
Einum aðdáanda sem gekk
þarna um, er þetta starfsglaða
fólk var að brjóta saman þennan
fallega fatnað, beint úr búðar-
hillunum, var raulað fyrir
munni sér:
Hvar sem að labbar þú lífs um stræti
líttu til þeirra sem eru í neyð,
engu sem notast þar öðrum gæti
ættir að henda á þinni leið.
Kuldinn sem næðir um lífsins lendur
er lífi allra þjóðanna mál,
ég blessa ykkur þær hlýju hendur
sem hjálpa að verma króknandi sál.
Óréttlátar launahækkanir
N.N. hringdi:
Ég er sammála H.S. sem skrif-
ar í Velvakanda þann 16. þ.m.
þar sem talað er um óréttlátar
launahækkanir. í framhaldi af
því dettur mér í hug hvort að við
sem vorum fyrir neðan 13.
launaflokk ættum ekki að ganga
á fund fjármálaráðherra og
ræða um þetta við hann.
í samningaviðræðunum í
haust sagðist hann vera reiðubú-
inn að bæta kjör þeirra lægst-
launuðu en samninganefndin
virðist hafa hugsað eins og
kjaradómur, þ.e. að þeir sem
hærri eru skulu hækka mest.
IJmrædd forsíðumynd á tímaritinu
Storð.
Vorum með fasta-
landið í huga
Kæri Velvakandi.
Einn athugull lesandi okkar
hefur í þessum dálkum sett út á þá
staðhæfingu í nýjasta tölublaði
Storðar, að bærinn Harðbakur á
Melrakkasléttu, sem prýðir for-
síðu blaðsins, sé nyrsta hús á ís-
landi. Segir lesandinn að tvö göm-
ul eyðibýli, Skinnalón og Rif,
standi norðar — að ógleymdri
sjálfri Grímsey.
Við viljum því nota þetta tæki-
færi til að skýra, að hér vorum við
með fastalandið í huga. í annan
stað lögðum við ekki „hús“ og
„eyðibýli" að jöfnu. Að okkar mati
er „hús“ bygging í brúklegu
ástandi og í notkun sem mannabú-
staður. Að Harðbak er búið þrjá
mánuði á ári, en Skinnalón og Rif
eru nú rústir einar.
Með þökk fyrir birtinguna,
Aðalsteinn Ingólfsson,
ritstj. Storðar.
,5kíöa-
kynning
Halldór Matthíasson, skíðagöngu-
garpurinn landskunni, leiðbeinir við-
skiptavinum um val á gönguskíða-
búnaði í versluninni
I DAG LAUGARDAG FRA KL. 11—15
▲▲ FI5CHER
TYROLIA
PACHSTEIN
adidas ^
TOPPmerkin
í ikíðavörum
öpíð d áucc^arida^um
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FALKINN 105 REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670