Morgunblaðið - 02.02.1985, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1985
KStSTaur I Handknattleikssambandið
sambandkb stofnar afreksmannasjóð
Stofnaður hefur verið opnaður póstgíróreikningur sjóðsins
BRESKA frjálsíþróttasam-
bandió gerði í vikunni þann
stærsta auglýsinga/styrktar-
samning sem nokkru sinni
hefur veriö geröur í tengslum
við frjálsar íþróttir þar í landi.
Samningsaöilinn er risatyrirtækiö
Kodak, Ijósmyndavörufyrirtækiö
kunna Samningurinn gildir til
næstu fimm ára og er tveggja millj-
óna sterlingspunda viröi. Það jafn-
gildir rúmum 92 milljónum islenskra
króna.
Kodak stendur aö baki fjórum
meiriháttar frjálsíþróttamótum á
þessu ári i Bretlandi.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Handknattleikssambandi íslands:
Stjórn Handknattleikssam-
bandsins hefur stofnaö sérstakan
afreksmannsjóös til aö styrkja
þátttöku landsliösfólks í æfingum,
keppnisferöum og landsleikjum.
Leitaö verður eftir stuöningi ein-
staklinga og fyrirtækja meö fjár-
framlög i þennan afreksmanna-
sjóð. Er þetta ein af fjáröflunarleið-
um sambandsins til aö auðvelda
landsliðsmönnum og þjálfara þess
aö undirbúa landsliöiö sem best
fyrir þátttöku í A-heimsmeistara-
keppninni í Sviss 1986.
íslenskir landsliösmenn í hand-
knattleik eru nú meöal þeirra
bestu í heiminum og árangur
landsliösins aö undanförnu undir
stjórn hins ágæta landsliösþjálfara
Bogdans, hefur vakiö mikla athygli
erlendis.
Núna fara vinsældir handknatt-
leiksíþróttarinnar sífellt vaxandi
um allan heim og er handknattleik-
ur núna iökaöur í 128 löndum. ís-
lenska landsliöiö er núna taliö meö
þeim allra bestu í heiminum svo og
bestu íslensku félagsliöin. Þó svo
aö islendingar séu fámenn þjóö,
þá erum viö stórveldi á sviöi hand-
knattleiksíþróttarinnar, sem af
mörgum er talinn meöal erfiöustu
og tæknilegustu íþróttagreina sem
iðkaöar eru.
Þeir sem vilja taka þátt í undir-
búningi íslenska landsliösins í
A-heimsmeistarakeppni í Sviss
1986 meö fjárframlagi í afreks-
mannasjóöinn eru vinsamlegast
beðnir um aö koma framlagi sínu
til skila á skrifstofu HSÍ i Laugar-
dal.
Áhafnir skipa og starfsmenn fyr-
irtækja geta einnig lagt framlag
sitt inn á nýstofnaöan póstgíró-
reikning Afreksmannasjóös HSÍ
nr. 677760. (Fr*tt»tilkynning)
„Rútubflnum" gengur
vel að skora mörk!
Þýska 1. deildarkeppnin í knattspyrnu af stað á ný
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttamanni
VESTUR-þýska 1. deildin í
knattspyrnu hefst aö nýju eftir
vetrarfrí um helgina. Bayer Uerd-
ingen, lið Lárusar Guömunds-
sonar, leikur þá gegn Werder
Bremen á útivelli, Kaiserslautern
fær Stuttgart í heimsókn, en Ás-
geir Sigurvinsson er reyndar
meiddur og verður ekki með.
Max Merkel, sá þekkti knatt-
spyrnuþjálfari og nú gagnrýnandi
hjá stórblaöinu Bild, fjallaöi á dög-
unum um liö Bayer Uerdingen.
Merkel segir markmann liösins,
Werner Vooack, mjög góöan og
vörnin sé einnig góö meö Mathias
Herget sem aöalmann. Merkel er
þó ekki hrifinn af Herget sem
„sweeper", segir hann ekki þann
persónuleika sem slíkur leikmaöur
þurfi aö vera, en hann sé engu aö
síður sterkur í sinni stööu.
Á miöjunni segir Merkel bestan
mjög sterkan skallamann og segir
hann þessa þrjá menn ráöa mjög
miklu um góöan árangur Uerd-
ingen-liösins í vetur, en liöiö er nú
í þriöja sæti deildarinnar.
Síöan segir Merkel: „j framlín-
unni er Islendingurinn Guö-
mundsson, sem smám saman er
aö veröa góöur leikmaöur, en er
hann var keyptur til liösins voru
>rgunblað»in» i V»»lur-Þý»kalandi.
margir sem töldu aö nær heföi ver-
iö aö nota þau 700.000 mörk, sem
í þaö fóru, í aö kaupa nýjan, góöan
rútubíl fyrir liöið! En nú er hann aö
finna sig og hefur tekist aö skora
nokkrum sinnum. Menn veröa aö
hafa í huga aö jafnvel landi hans,
Ásgeir Sigurvinsson, fann sig ekki
á einni nóttu í Stuttgart-lióinu. Þaó
tók hann heilt ár að komast á
heimsmælikvaröa hjá liöinu."
Uerdingen-liöiö á erfiöa mót-
herja í byrjun siðari umferöarinnar.
i dag mætir liöiö Werder Bremen á
útivelli, en Bremen-liðið er
óhemjusterkt á heimavelli sínum.
Næsti leikur liösins veröur síöan
heima gegn Dortmund, leikur sem
ætti aö vinnast, og siöan fær liöiö
„haustmeistara“ Bayern Múnchen í
heimsókn. Fjórði leikurinn veröur
svo gegn Köln á útivelli.
Merkel segir þaö muni koma í
Ijós i þessum leikjum hvort Uerd-
ingen-liðiö sé bóla, sem muni
springa, eöa hvort hér sé um aö
ræöa nýjan eóaistein í vestur-
þýskri knattspyrnu.
Merkei tekur þaö muni ráöa
miklu um framhaldiö, hvernig
Funkel-bræöurnir muni leika.
Wolfgang í vörninni og Friedhelm á
miöju vallarins og einnig hvort
„rútubíllinn" haldi áfram aö skora
mörk!
Slæm staða hjá
meisturunum
Staöa VfB Stuttgart, meistar-
anna frá því í fyrra, er slæm nú í
byrjun síöari umferöarinnar. Ás-
geir Sigurvinsson, kjölfestan í lið-
inu á siöasta keppnistímabili,
meiddist fyrir skemmstu eins og
fram hefur komiö í Mbl. og mun aö
líkindum ekki spila meö næstu
þrjár vikurnar. Guido Buchwald,
sem einnig lék mjög vei á síðasta
keppnistímabili, meiddist illa í
haust, fótbrotnaöi, og hóf ekki aö
leika aö nýju fyrr en skömmu fyrir
jól. En þaö stóö ekki lengi, Buch-
wald meiddist illa á nýjan leik, og
veröur nú frá í langan tíma. Þaö er
einmitt mjög slæmt fyrir Ásgeir aö
missa Buchwald, því sá síöar-
nefndi gegndi mikilvægu varnar-
hlutverki á miðju, þannig aó Ásgeir
gat lagt höfuöáherslu á sóknarleik-
inn, sóknaruppbygginguna. I vetur
hefur Buchwald hins vegar ekki
veriö til staöar þannig aö varnar-
hlutverk Ásgeirs hefur komiö niöur
á leik hans og jafnfram liösins í
heild. Stuttgart mætir í dag Kais-
erslautern á útivelli.
Heldur velgengni Uerdingen-liðsins áfram?
• Lárus Guömundsson, „rútubíllinn", eins og Max Merkel segir, er
mikilvægur liði sínu. Hann er hér í búningi félagsins og eiginhandar-
áritun fylgir.
Fyrri hluti júdómóts JSI:
Kolbeinn vann
í 95 kg flokki
— Bjarni keppir í dag f opnum flokki
Meistaramót 14
ára og yngri í
frjálsíþróttum
LAUGARDAGINN 19. janúar sl.
var haldið afmælismót JSÍ, fyrri
hluti, í íþróttahúsi Kennarahá-
skólans og var keppt í 5 þyngdar-
flokkum karla.
Síöari hluti afmælismóts JSÍ
veröur haldinn á sama staö í dag,
laugardaginn 2. febrúar, og hefst
mótiö kl. 15.00. Veröur keppt í
opnum flokki karla og kvenna og
þyngdarflokkum unglinga, yngri en
21 árs.
Úrslit í einstökum flokkum 19.
janúar sl. uröu þessi:
+ 65 kg flokkur:
1. Karl Erlingsson, Ármanni.
2. Davíö Gunnarsson, Ármanni.
3. Magnús Krístinsson, Ármanni.
+ 71 kg flokkur:
1. Halldór Guöbjörnsson, JR
2. Níels Hermannsson, Ármanni.
3. Halldór Hafsteinsson, Ármanni.
+ 78 kg flokkur:
1. Ómar Sigurösson, UMFK.
2. Rögnvaldur Guöm., Gerplu.
+ 86 kg flokkur:
1. Magnús Hauksson, UMFK.
2. Arnar Marteinsson, Ármanni.
3. Páll M. Jónsson, Ármanni.
+ 95 kg flokkur:
1. Kolbeinn Gíslason, Ármanni.
2. Hákon Örn Halldórsson, JR.
3. Kristján I. Kristj., Ármanni.
• Kolbeinn Gíslason
MEISTARAMÓT íslands í Frjáls-
íþróttum 14 ára og yngri verður
haldið dagana 9. og 10. febrúar
nk. Frjá.síþróttadeild Ármanns
sér um framkvæmd mótsins.
Laugardaginn 9. febrúar hefst
mótiö kl. 12.30 í Ármannsheimilinu
viö Sigtún meö keppni í langstökki
án atrennu og hástökki meö at-
rennu (allir flokkar). Keppt veröur í
2 sölum, langstökk í minni sal.
Mótinu verður framhaidiö í
Baldurshaga sama dag kl. 17.00
meö keppni í langstökki stelpna og
telpna, og riölum í 50 m hlaupi
stráka og pilta. Sunnudaginn 10.
febrúar hefst keppni kl. 14.00 meö
keppni í 50 m hlaupi stelpna og
telpna (riölum) og stráka og pilta
og langstökki stráka og pilta.
Þátttökutilkynningar sendist á
þar til geróum þátttökuspjöldum til
Stefáns Jóhannssonar, Blönduhlíó
12, 105 Reykjavík eöa á skrifstofu
FRÍ fyrir 4. febrúar. Þátttökugjald
er kr. 50 fyrir hverja grein.