Morgunblaðið - 02.02.1985, Blaðsíða 56
LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1985
BTT NORT AUS SIMAR
áeíía
ofuð 9QQ-QZ.CC
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Skipverji af Hólma-
nesi SU drukknaði
Kskifirdi, 1. febniar.
í G/ER varð það slys um borð í tog-
aranum Hólmanesi Sll 1 frá Eski-
firði, að einn skipverjanna féll fyrir
borð og drukknaði.
Slysið varð er skipið var að veið-
um úti fyrir Austurlandi og var
slæmt veður. Verið var að taka inn
trollið, þegar sjór kom á skipið, og
féll skipverjinn þá fyrir borð. Allt
var gert sem hægt var til að finna
manninn og leituðu mörg skip
hans í allan gærdag en án árang-
urs. Hólmanesið kom síðan inn í
gærkvöldi.
— Ævar
Dauðaslys í
Saurbæjarhreppi
Akureyri, 1. febrúar.
KONA lézt af slysförum í Saurbæj-
arhreppi um miðjan dag í dag.
Ófeigur Baldursson, rannsókn-
arlögreglumaður á Akureyri, stað-
festi í kvöld að dauðaslys hefði
orðið, en kvaðst ekki geta gefið
upplýsingar um það, hvernig slys-
ið varð. Nafn konunnar er ekki
hægt að birta að svo stöddu.
G.Berg
Bifreiðaútboð ríkisins:
Tilboð bárust frá
14 umboðum
„ÞAÐ var mjög mikil þáttaka í
þessari könnun okkar og 14 bif-
reiðaumboð sendu tilboð,“ sagði
Spurt og
svarað um
skattamál
Morgunblaðið mun að venju
aðstoða lesendur sína við gerð
skattaframtala með þeim hætti að
leita svara við spurningum þeirra
um það efni. Starfsmenn ríkis-
skattstjóra munu svara spurning-
um lesenda.
Þeir geta hringt í síma Morg-
unblaðsins, 10100, milli klukkan
10 og 11:30 árdegis og beðið um
umsjónarmann þáttarins
„Spurt og svarað um skatta-
mál“. Hann tekur niður spurn-
ingarnar og kemur þeim til rík-
isskattstjóraembættisins. Svör-
in munu birtast i blaðinu jafn-
óðum.
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Inn-
kaupastofnunar ríkisins. I ár var í
fyrsta sinn leitað tilboða hjá bif-
reiðaumboðum í þær bifreiðir ríkis-
ins sem tímabært er að endurnýja.
„Við óskuðum eftir tilboðum í
fólks-, sendi- og lögreglubifreiðir
og alls var tekið fram að um 20
mismunandi stærða og tegunda
væri þörf,“ sagði Ásgeir. „Við er-
um rétt að byrja að vinna úr öll-
um þeim tilboðum sem bárust, en
það er Ijóst að þó nokkur afslátt-
ur kemur fram miðað við aö
keyptar séu margar bifreiðir frá
sama aðila."
í þeirri áætlun, sem Innkaupa-
stofnunin lagði til grundvallar
könnun sinni, var reiknað með að
119 bifreiðir yrðu endurnýjaðar á
þessu ári. „Þá á eftir að kaupa til
viðbótar bifreiðir fyrir ýmsar
stofnanir, sem eru kannski með
eina bifreið, sem þarf að endur-
nýja. Ég reikna með að alls verði
endurnýjaðar um 140 bifreiðir á
þessu ári,“ sagði Ásgeir að lok-
Morgunblaðið/Júlíus
KEILUHÖLLIN OPNUÐ
Keiluhöllin í Öskjuhlíð í Reykjavík var formlega
opnuð í gærkvöldi. Það var Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra, sem fékk fyrstur að spreyta sig,
og í þriðju tilraun náði hann „fellu" — þ.e. náði að
fella allar keilurnar í fyrsta skoti. Davíð öddsson,
borgarstjóri, Inga Jóna Þórðardóttir, aðstoðarmaður
menntamálaráðherra og Sveinn Björnsson, forseti
íþróttasambands íslands, spreyttu sig einnig I keilu
við opnunina. Að sögn Jóns Hjaltasonar, formanns
stjórnar Öskjuhlíðar hf., sem rekur keiluhöllina, er
það nefnt að „fella“ að fella allar keilurnar í fyrsta
skoti, og „feykja" að fella allar í tveimur skotum. Á
myndinni sést forsætisráðherra nýbúinn að sleppa
kúlunni.
„Munum láta reyna
á lögmæti leyfisins“
— segir formaður Náttúruverndarráðs um námuleyfi Kísiliðjunnar
Náttúruverndarráð kom saman til
aukafundar í gær til að ræða náma-
leyfi til Kísiliðjunnar hf., sem iðnað-
arráðherra veitti hinn 30. janúar sl. í
ályktun frá ráðinu segir, að ráðið
telji iðnaðarráðherra hafa með leyfi
sínu farið út fyrir sitt valdsvið og
muni tilkynna Kísiliðjunni h.f. af-
stöðu sína nú á næstunni. Ennfrem-
ur segir, að Náttúruverndarráð sé
staðráðið í að láta reyna á það, hvort
umrætt leyfi fái staðist að lögum.
Fiskimjölsverksmiðjumar:
Tugir milljóna útistandandi
í uppsöfnuðum söluskatti
segir Jón Reynir Magnússon, framkvæmdastjóri SR
Fiskimjölsverksmiðjurnar telja
sig eiga útistandandi tugi milljóna
króna í uppsöfnuðum söluskatti;
Fiskimjölsiðnaðurinn er svokallaður
samkeppnisiðnaður og því er fyrir
því heimild í lögum, að hann fái
endurgreiddan söluskatt. Sú viður-
kenning fékkst síðastliðið haust, en
þá var miðað við að 3,3% af cif-
útflutningsverðmætum 300.000 lesta
afla, samtals 31,5 milljónir króna.
skyldu endurgreiddar. Þá voru 3,3%
útflutningsverðmæta talin 105 krón-
ur á hverja lest hráefnis.
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Síldarverksmiðja
ríkisins, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að með þeim mikla afia
sem náðst hefði fyrir áramót og
gengislækkunum væri upphæðin
orðin um 50 milljónir króna. Væri
hins vegar miðað við, að söluskatt-
ur yrði endurgreiddur af öllum út-
flutningum væri upphæðin orðin á
annað hundrað milljónir króna.
Hins vegar ætti eftir að ákveða
hvort endurgreiðslan næði til
meiri afla en gert hefði verið ráð
fyrir i haust og þá miðað við í
verðákvörðun. Þetta væru ákaf-
lega flókin mál, sem sjávarút-
vegsráðherra væri nú að vinna að.
Meðal annars þess vegna hefði enn
ekki tekizt að ákveða nýtt verð,
hinn 16. janúar síðastliðinn hefði
þágildandi verði verið sagt upp af
kaupendum. Inn í þetta fléttaðist
einnig endurgreiðsla uppsafnaðs
söluskatts alls sjávarútvegsins,
sem nú væri fyrirhugað að rynni
óskiptur til útgerðar. En hvað sem
því liði, hefðu engir peningar sézt
enn, þeir virtust fastir einhvers
staðar í kerfinu.
Eyþór Einarsson, formaður
Náttúruverndarráðs sagðist ekki
vilja útskýra nánar hvað fælist í
þeirri ákvörðun ráðsins að láta
reyna á hvort leyfisveitingin fái
staðist að lögum. „Ég er ekki nógu
mikill lögfræðingur til að útskýra
það en við förum þá leið sem
venjulegt er að fara þegar úr
lögmæti er skorið. Þaö er ekki
hægt að útskýra nánar, en við
ákveðum áframhaldandi aðgerðir
eins fljótt og unnt er og lútum þar
leiðsögn okkar lögfræðings," sagði
Eyþór.
Að áliti Náttúruverndarráðs
takmarkast heimild iðnaðarráð-
herra til að veita námaleyfi af lög-
um um verndun Mývatns og Lax-
ársvæðis, enda sé þar mælt svo
fyrir, að hvers konar mannvirkja-
gerð og jarðrask á því svæði, sem
lögin taka til, séu háð samþykki
Náttúruverndarráðs. í ályktun
ráðsins segir: „Ráðið lítur svo á,
að það hafi tvímælalausa heimild
til að banna hvers konar umsvif á
þessu verndarsvæði, sem það telur
að brjóti í bága við nefnt laga-
ákvæði."
Njá bls. 30 „Kísilgúrvinnsla og
náttúruvernd fara saman“ og
„Munum verja Syöri-Flóa meó
oddi og egg“.