Morgunblaðið - 13.02.1985, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1985
Jaruzelski heit-
ir rannsókn þeg-
ar heim kemur
San Remo-söngvakeppnin:
Viðhafnarveisla?
Munið að panta tímanlega!
Við bjóðum glæsilega veislusali fyrir
brúðkaupsveislur, afmælisveislur,
starfsmannaveislur og hverskonar
samkvæmi. Viðurkenndur veislumatur og
þjónusta hvort sem veislan er fyrir
10, 30, 60 eða 200 manns.
Látið okkur sjá um samkvæmið
og það verður vegleg veisla.
Pantið með góðum fyrirvara
i sfma 22322 og 22321.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
FLUCLCIDA fS HÓTtL
Borðapantanir í síma 22322 - 22321
Pólskar njósnir á Indlandi:
Nýju Delhí, 12. febrúar. AP.
JARIIZELSKI, forsætisráóherra
Póllands, sagði á blaöamannafundi í
Nýju Delhí í dag, að stjórn hans
muni rannsaka vendilega allar ásak-
anir um að Pólland ksemi við sögu í
njósnahneykslinu, sem sagt hefur
verið frá að upp hafi komizt um á
Indlandi. Jaruzelski sagði, aö það
sem Pólverjar vildu vita um Indland
og Indverja gætu þeir fengið að vita
eftir löglegum leiðum, en þyrftu
ekki að beita neinum annarlegum
aðfcrðum. Engu að síður myndi
hann láta kanna þetta rækilega þeg-
ar hann kæmi heim aftur. Hann
sagði, að sökudólgur væri ekki
stjórnarcrindreki heldur viðskipta-
aðili.
Jaruzelski sagði að þeir Rajiv
Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, hefðu rætt þetta mál „utan
dagskrár" og skoðanaskipti þeirra
einkennzt af einlægni, hreinskilni
og gagnkvæmri velvild.
Eins og áður hefur komið fram í
fréttum er þetta fyrsta för Jaruz-
elskis til lands utan Austur-
Evrópu. Hann lét vel af þeim mót-
tökum, sem hann hafði fengið,
enda væri vinátta með þjóðunum
tveimur. Jaruzelski sagðist al-
mennt mjög ánægður með þær
viðræður, sem hann hefði átt við
ráðamenn og fór sérstaklega lof-
samlegum orðum um Rajiv
Gandhi, sem væri „sterkur og
mikill persónuleiki". Þá minntist
hann Indiru Gandhi, fyrrverandi
forsætisráðherra, og sagði að hún
hefði skiiið að það væru Pólverjar
sjálfir, sem ættu að leysa sín mál
án þess að aðrir væru að skipta
sér af.
Pólski forsætisráðherrann
kvaðst vilja vekja athygli á, að
mjög mikil viðskipti væru milli
Póllands og Indlands og myndu
þau aukast enn á árinu 1985.
Jaruzelski fer á miðvikudag í
ferð um suðurhluta Indlands.
Söngvari Duran
mætti með
Duran
fótinn í gifsi
hefðbundinn samkvæmisklæðn-
að, sem hingað til hefur tíðkast í
San Remo-keppninni.
Hljómsveitin Ricchi E Poveri
tók nú þátt i keppninni í fimmta
sinn en þetta var í fyrsta sinn
sem hún sigraði. I hljómsveit-
inni eru tveir karlmenn og ein
kona og voru þau að vonum
ánægð með sigurinn. „Það hlaut
að koma að því að við ynnum,"
sagði söngkonan Angela með
grátstafinn í kverkunum þegar
úr slit voru kunngerð. „Plöturn-
ar okkar hafa selzt vel gegnum
árin, en það jafnast ekkert á við
það að vinna San Remo-keppn-
ina.“
Keppni þessi á heldur betur
upp á pallborðið hjá sjónvarps-
áhorfendum, því ítalska ríkisút-
varpið gaf á laugardaginn út yf-
irlýsingu um að 19,6 milljónir
hefðu fylgst með útsendingunni.
Margir erlendir gestir skemmtu
milli atriða og í þeim hópi var
ekki ófrægara fólk en Sade Adu,
Frankie Goes to Hollywood,
Bronski Beat, Talk Talk, Duran
Duran og fleiri í sama gæða-
flokki. Þess má í lokin geta að
Simon Le Bon, söngvari Duran
Duran, datt og fótbrotnaði
nokkrum klukkustundum áður
en hann kom fram og mætti því
til leiks með fótinn í gifsi.
Tórínó, 12. febrúar. Frá Brynju Tomer frétU-
riUra Morgunblaósins.
HINNI árlegu San Remo-söngva-
keppni á Ítalíu lauk á laugardags-
kvöld með pompi, prakt og sigri
hljómsveitarinnar Ricchi E Poveri
(Ríkir og fátækir), sem hlaut rösk-
lega eina og hálfa milljón atkvæða
sjónvarpsáhorfenda fyrir lagið „Se
IVfi Innamoro“ (Ef ég verð ást-
fanginn). Á hæla ríkra og fátækra
kom hinn kornungi Luis Miguel,
aðeins 14 ára gamall, sem söng sig
gjörsamlega inn í hjörtu áhorfenda
með laginu „Ragazzi Di Oggi“
(Krakkar nú til dags). í þriðja sæti
hafnaði söngkonan Gigliola Cinqu-
etti með ástarballöðuna „Chiam-
alo amore“ (Köllum það ást).
San Remo-söngvakeppnin er
ætíð sýnd í beinni sjónvarpsút-
sendingu víða um heim og var nú
hatdin 35. árið í röð. Keppnin var
haldin í hinu glæsilega Ariston-
leikhúsi í San Remo. Keppnin
stendur yfir í þrjá daga og vekur
jafnan mikla eftirtekt. Hefur
hún verið talin með glæsilegustu
og virðulegustu keppnum af
þessu tagi í Evrópu. Þátttakend-
ur að þessu sinni voru 22, allir
þekktir og viðurkenndir lista-
menn, a.m.k. á Ítalíu.
Það þótti skyggja talsvert á
glæsileikann, sem til þessa hefur
einkennt keppnina, að í ár var öll
tónlist leikin af segulbandi.
Simon Le Bon söngvari Duran
Duran.
Söngvararnir „sungu“ í ótengd-
an hljóðnema og hljóðfæraleik-
arar „léku“ á ótengd hljóðfæri.
Þá hneykslaði söngkonan
Anna Oxa marga með sviðs-
framkomu sinni, en hún þótti
helst til djörf í klæðaburði og
hreyfingum. Anna var klædd há-
rauðum níðþröngum leikfimibol,
sem stakk óneitanlega í stúf við
GENGI
GJALDMIÐLA
Staða dalsins
styrkist enn
London, 12. febrúnr. AP.
Bandaríkjadalur styrkti enn
stöðu sína gagnvart helstu gjald-
miðlum Vesturlanda á gjaldeyr-
ismörkuðum í dag. Gull hækkaði
einnig í verði.
Gengi sterlingspunds gagn-
vart bandaríkjadal hefur aldrei
verið lægra en í lok viðskipta í
dag. Þá fékkst 1,0870 dalur fyrir
hvert pund, en í gær fékkst
1,0975 dalur fyrir pundið.
Gengi bandaríkjadals gagn-
vart öðrum helstu gjaldmiðlum
var sem hér segir: 261,80 yen (í
gær 260,50) í lok viðskipta í
Tókýó, en 263,07 yen í lok við-
skipta í London; 3,2910 vestur-
þýsk mörk og hefur ekki verið
hærra í 13 ár (í gær 3,2675);
2,7962 svissneskir frankar og
hefur ekki verið hærra í 7 ár
(2,7870 í gær); 10,0035 franskir
frankar og hefur aldrei verið
hærra (í gær 9,9545); 3,7230 hol-
lensk gyllini og hefur ekki verið
hærra í 13 ár (í gær 3,6960);
2.020,37 ítaiskar lírur (í gær
2.004,50); 1,3384 kanadadalur (í
gær 1,3391) og 11,6950 danskar
krónur (í gær 11,6220).
Fyrir gullúnsuna fengust í lok
viðskipta í dag 302 bandaríkja-
dalir, en í gær 299,75 dalir.
Skip eiga nú í mestu erfiðleikum á Eyrarsundi vegna ísa þar um slóðir og var þessi mynd tekin um helgina í
Kaupmannahöfn. Spáð er því að Danmörk og Svíþjóð „frjósi“ saman á næstu dögum.
Ekki linnir frosti
í Evrópu um sinn
Iiindnn I? fphniar AP
London, 12. febrúar. AP.
KULDAKAST í Evrópu fjórða dag-
inn í röð raskaði vega-, járnbrauta-
og vatnaleiðasamgöngum, og segja
veðurfræðingar að ekki sjái fyrir
endann á frosthörkunum, sem kost-
að hafa a.m.k. 60 manns hTið frá því
á laugardagsmorgun.
Segja má að snjór þeki alla
Vestur-Evrópu og eru menn enn
að grafa sig út úr húsum eftir gíf-
urlega snjókomu um helgina, sem
olli rafmagnsbilunum og um-
ferðaröngþveiti.
Er þetta annað kuldakast vetr-
arins í Evrópu og komst tala lát-
inna af völdum veðursins í 60 í dag
er þrír menn fundust frosnir í hel,
tveir í útborg Ghent í Belgíu og 74
ára bóndi úti á akri sínum í
Norður-írlandi.
Frostið komst niður í 18 gráður
á celcius í Köln í nótt og 15 gráður
í Bonn. Hafa 30 manns týnt lífi af
völdum kuldanna í V-Þýzkalandi
frá því á laugardag. Seinagangur
við snjóruðning í Frankfurt er
orðinn að pólitísku deilumáli og
situr hreinsunardeild borgarinnar
undir ámælum fyrir skipulags-
lausa snjóhreinsun, þar sem aðal-
götur hafi verið látnar sitja á hak-
anum og fæstir því komist leiðar
sinnar.
I Bretlandi hafa 17 manns látizt
vegna kuldanna og spáð var meiri
snjókomu í suður- og vesturhluta
landsins á morgun, miðvikudag.
Bændur sögðu að verð á grænmeti
myndi rjúka upp ef kuldarnir yrðu
langvarandi. Kuldarnir hafa kost-
að sjö menn lífið í Svíþjóð, þrjá í
Sviss, tvo í Belgíu og einn í Hol-
landi.
Kuldakastið kom í kjölfar
tveggja vikna bliðukafla, þar sem
hitastig var sem að vori í venju-
legu árferði. Er nú 40 sentimetra
þykkur ís í dönsku sundunum og
skipaleiðin inn í Eystrasalt er
einnig frosin. Kuldarnir hafa
valdið miklum usla í Austur-
Evrópu.
900 sportveiði-
mönnum bjargað
Mo.skvu, 11. febrúar. AP.
UM ÞAÐ BIL 900 sportveiðimönnum
sem voru að veiða á ís við strönd
Azovs-hafs við Suður-Rússland var
bjargað um borð í árabáta og þyrlur,
þegar ísinn brotnaði og rak frá landi,
að því er sovéska blaðið Izvestia sagði
á laugardag.
Blaðið kvað atburð þennan hafa
hent við Taganrog-flóa í Azov-hafi,
en gat ekki um hvenær. Var sterk-
lega varað við, að menn létu slíka
fífldirfsku henda sig aftur.
Ekki var frá því greint, hvers
vegna svo margir veiðimenn voru
saman komnir á einum stað, en á
þessum slóðum er mikið um
orlofsstaði.