Morgunblaðið - 13.02.1985, Page 46

Morgunblaðið - 13.02.1985, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1985 Lima-textinn um skírn, máltíð Drottins og þjónustu eftir Pétur Pétursson Játningarit hinna ýmsu kirkju- deilda hafa frá því á miðöldum borið vitni um sundurlyndi og klofning meðal þeirra sem telja sig kristna. Sérhver kirkjudeild hefur gert sér játningu eða kenn- ingu til aðgreiningar frá öðrum kristnum kirkjum og flokkum. Svo hafa menn einblínt á bókstafinn, orðið ósáttir við aðra játninga- hópa og jafnvel farið í stríð með Guðs orð á vör. Þess ber þó að gæta að þegar svo er komið hafa oftast veraldlegir hagsmunir, auð- ur og völd, skipt meira máli en höfundur trúarinnar og boðskapur hans. Engu að síður hafa trúar- deilur kristinna manna verið einn þeirra þátta sem valdið hafa þeirri afkristnun og afskiptaleysi um trúarefni, sem grafið hefur um sig á Vesturlöndum undanfarnar tvær aldir eða svo. Þær hafa fært vopnin í hendur þeim sem segja: Geti kristnir menn ekki komið sér saman og leiði trú þeirra til bar- áttu og stríðs, hví skildum vér taka þessa trú alvarlega og styðja kirkjur þeirra. Til eru þær játningar og þau kirkjuleg rit sem eiga sér aðra sögur og gæfulegri. Eitt af fyrstu játningaritum kirkjunnar var postullega trúarjátningin, sem varð til við skírnarfræðslu forn- kirkjunnar. Þar er kristin kenning sett fram á einfaldan og ljósan hátt fyrir þann sem undirbjó sig undir að taka skírn. Efnið skipti aðalmáli, ekki orðalagið. Það sýna hinar ólíku útgáfur sem varðveist hafa. Sá texti eða sú játning, sem ör- ugglega verður talin eitt merkasta skjalið í kirkjusögu tuttugustu aldarinnar varð til fyrir þremur árum í Líma, höfuðborg Perú, á vegum nefndar innan Alkirkju- ráðsins. Nefnd þessi, trúar- og skipulagsnefndin (Faith and Order Commission), hefur árum saman unnið þrotlaust starf að því að mynda guðfræðilegan grund- völl að auknum skilningi, samúð og samvinnu hinna ólíku flokka og kirkjudeilda kristninnar. Þessi starfsemi, sem er ein af þremur aðalgreinum Alkirkju- ráðsins, er í raun og veru eldri en sjálft Alkirkjuráðið, sem stofnað var árið 1948. Upphaf sitt á hún í samkirkjulegum fundi í Lausanne árið 1927. Um 150 fulltrúar ýmissa kirkjudeilda hafa síðan komið reglulega saman til þess að ræða guðfræðileg atriði og rannsaka forsendur hins sorglega klofnings kristinna manna, sem valdið hefur ómældum þjáningum og vonbrigð- um. Trúað fólk í flestum trúflokk- um hefur beðið um sýnileg tákn þess að kristin kirkja geti orðið heil og almenn. Markmið Al- kirkjuráðsins er samkvæmt grundvallarlögum þess; „að vera samband kirkna, sem játa Jesúm Krist sem Guð og frelsara sam- kvæmt ritningunum og leitast þess vegna við að uppfylla sameig- inlega köllun sína til dýrðar einum Guði, Föður og Syni og Heilögum anda“ (áhersla P.P.). U.þ.b. 300 kirkjur og kristnir trúflokkar eru aðilar að Alkirkjuráðinu. Líma- textinn er tákn og játning þess að árangur hefur náðst. Trúar- og skipulagsnefndin hef- ur sérstöðu innan Alkirkjuráðsins að því leyti að fulltrúar frá kirkj- um, sem ekki eru formlegir aöilar að ráðinu, geta tekið þátt í störf- um nefndarinnar sem fullgildir meðlimir. Svo er t.d. um róm- versk-kaþólsku kirkjuna, sem frá því 1963 hefur átt um 12 fulltrúa í nefndinni. Einnig hafa setið þar fulltrúar aðventista, lútersku Mis- soury synodunnar og babtista í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Þeir síðarnefndu taka annars ekki þátt í neinum samkirkjulegum samtök- um. í starfi sínu hefur nefndin að sjálfsögðu aðallega tekið fyrir þau grundvallaratriði kristindómsins, sem mestu varðar að ná samstöðu um, þ.e.a.s. skírnina, heilaga kvöldmáltíð og embætti eða þjón- ustuhlutverkin innan kirknanna. Tvíhliða umræður hinna ólíku kirkjudeilda eru hluti af hinni samkirkjulegu hreyfingu og nefndin hefur stuðst við niður- stöður þeirra umræðna í starfi sínu. Sjálf skýrslan er ekki langt mál, u.þ.b. 45 síður vélritaðar. Hún skiptist í þrjá kafla, einn um hvert áðurnefndra grundvallaratriða. f stuttum formála nefndarinnar er aðdragandi og tilgangur skýrsl- unnar rakinn. Hún kom fyrst út á ensku árið 1982 og heitir á frum- málinu Baptism, Eucharist and Ministry. Fyrsta útgáfan var 5.000 eintök. Nú, þremur árum seinna, hefur skýrslan verið þýdd á nálega 30 tungumál og dreift í u.þ.b. 300.000 eintökum. Hún er nú kom- in út á íslensku hjá Skálholtsút- gáfunni á vegum kirkjuráðs í þýð- ingu prófessors Einars Sigur- björnssonar, sem einnig ritar sér- stakan formála. Textinn verður tekinn til umræðu innan kirkn- anna og til þess er ætlast að þær skili áliti og athugasemdum til nefndarinnar fyrir lok þessa árs. Skjalið er því hvorki hugsað sem endanleg smíð né óbreytanleg. Sérstakar athugasemdir í textan- um benda á þau atriði þar sem frekari rannsókna og samvinnu er þörf. Athugasemdir kirknanna og viðbrögð verða svo rædd á fundum nefndarinnar og gert er ráð fyrir allsherjarráðstefnu um skýrsluna árið 1988. Vel skal til þess vanda er lengi skal standa og það er mikið verk sem hér er unnið. Greinilegt er að nefndin lítur ekki á sig sem yfir- boðara er segi fyrir um hverju menn eigi að trúa og hverju ekki. Hún er fremur ráðgjafi og ekki einangruð frá því samkirkjulega starfi, sem framfer utan hennar. Þetta kemur fram í þeim spurn- ingum, sem nefndin setur fram í formála sínum. Þar er m.a. spurt að hve miklu leyti kirkjurnar geti séð í þessum texta trú kirkjunnar á öllum öldum. Einnig spyr nefnd- in: „Hvaða ályktun getur kirkja þín Per Erik Persson, prófessor í trú- fræði við guðfræðideild háskólans ■ Lundi, hefur tekið þátt í starfi trúar- og skipulagsmálanefndar Alkirkju- ráðsins í tvo áratugi. dregið af þessum texta í sambandi við samvinnu og samræður við aðrar kirkjur, sérstaklega þær, sem líka sjá í þessum texta tján- ingu á hinni postullegu trú?“ Per Erik Persson í Lundi Einn af þeim sem tekið hafa þátt í samningu Límatextans er Per Erik Persson, prófessor í trúfræði við guðfræðideild háskól- ans í Lundi. Hann var fulltrúi sænsku kirkjunnar frá því nefndin kom saman til aðalfundar í Montreal í Kanada árið 1963 og þar til í fyrrasumar. Fréttaritara Mbl. í Lundi fannst því tilvalið að leita nánari frétta af tilurð þessa merkilega skjals hjá honum. Guðfræðideildin í Lundi er rótgróin stofnun og til húsa í gam- alli þriggja hæða byggingu í miðju háskólahverfinu. Á göngunum upp að skrifstofu Per Eriks hanga myndir af prófessorunum, sem kennt hafa við deildina frá upp- hafi. Þeir eru 60 talsins, sá elsti fæddur árið 1607. Þar má sjá nöfn eins og Gustaf Aulén, Anders Nygren og Gustaf Wingren, þekkt- ir trúfræðingar á alþjóða- mælikvarða. Um skeið var meira að segja talað um Lundarguð- fræðina. Per Erik Persson er sérfræðing- urt í kaþólskri guðfræði. Dokt- orsritgerð hans fjallaði um Thom- as af Aquino. Hann var því vel undir það búinn að taka þátt í starfi trúar- og skipulagsnefndar Alkirkjuráðsins. Einnig hefur hann tekið þátt í tvíhliða umræð- um kaþólskra og lútherskra. Nokkrir íslendingar hafa stund- að hér framhaldsnám, m.a. Einar Sigurbjörnsson, sem nú gegnir prófessorsembætti í trúfræði við Háskóla íslands. Hann var nem- andi Per Eriks og hefur nú nýlega tekið sæti í trúar- og skipulags- nefndinni. „Það er skemmtileg tilviljun að þú skulir koma einmitt núna,“ sagði prófessor Per Erik, þegar undirritaður bað hann um viðtal. „Það er nýbúið að ganga frá því að ég fari til Reykjavíkur í næsta mánuði í boði guðfræðideildar Há- skólans til að halda fyrirlestra um samkirkjulega starfið og Líma- textann." Hver er aðaltilgangurinn med starfi trúar- og skipulagsnefndarinn- ar og Límatextanum sérstaklega? „Límaskýrslan er eitt af mörg- um verkefnum nefndarinnar — og örugglega það sem við höfum náð mestum árangri með. Textinn er ekki bindandi fyrir kirkjurnar í þeirri merkingu að þær skuldbindi sig til að taka hann bókstaflega. Hér er um það að ræða að fá kirkj- urnar og trúflokkanna til þess að sjá sínar eigin hefðir í víðara sam- hengi. Spurningin er um það hvort þær sjái í textanum eitthvað, sem er alveg samkvæmt ritningunni og kjarna kristinnar trúar, en sem þær hafa af einhverjum ástæðum vanrækt. Sé svo, verður það vonandi kirkjunum hvati þess að endur- meta sína eigin hefð og afstöðu til annarra kirkjudeilda. Við vonum að fólk í öllum kristnum kirkjum og félögum veiti textanum mót- töku með þessu hugarfari. Þetta er hugsað sem einskonar ferli (process), þannig að textinn verði umræðugrundvöllur innan kirkn- Járnsprotinn Á hann að veröa framtíðarstjórntæki okkar? eftir Grím S. Norödahl Á hann að verða framtíðar- stjórntæki okkar? „íslendingar eru löghlýðin þjóð að því tilskyldu að lögin séu fá og réttlát," sagði Davíð Stefánsson. Þetta mættu löggjafar- og reglu- gerðarsmiðir hafa til hliðsjónar, þegar þeir vaða elginn svo djúpan, að glatast öll yfirsýn, eins og henti við samning tillagna Náttúru- verndarráðs um reglugerð um akstur og umgengni í óbyggðum. Náttúruverndarráð á ekki að vera refsiglöð valdaklíka, rang- hverfa þess hlutverks sem því er ætlað að þjóna og takmarka að þarflausu ferðir um óbyggðir þann tíma, sem bjartastur er og bestur til ferðalaga, eða frá miðjum apríl og framyfir sólstöður. Það minnir á þegar orðum Krists „sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steinin- um,“ var snúið upp í það af þjón- um orðsins að starfrækja Drekk- ingarhyl. Og þrátt fyrir þessa grimmd, sem er einn af svörtu blettunum á „réttvísi" þjóðarinn- ar, tókst. ekki að útrýma lauslæti. Þaö er gáfulegt að rugla saman óbyggðum og bithögum á milli bæja í sveit, og svo á að vera ein- hver lína á milli ræktaðs og óræktaðs bithaga og yfir þá línu má enginn aka, að viðlögðum sekt- um eða tukthúsi. Enginn íslendingur veit hvar línan er. Ég gæti ekki dregið hana á eigin jörð, þar sem ég þekki næstum hverja þúfu og stein. Lín- an þó fundin væri breytist frá ári til árs. Allt er þetta órökrétt bull. Og bætir ekki úr skák að segja, að menntamálaráðuneytið gæti fund- ið hana. Og til að kveða ofurlítið fastar að orði og sýna svart á hvítu hversu lítils ég met svona þvætting, er hér orðsending til Svifdrekafélags Reykjavíkur: „Um árabil hafið þið farið upp í fjallið Úlfarsfell út frá túnum hjá mér, á vélknúnum farartækjum í besta samkomulagi. Þessi heimild stendur óbreytt, og að auki er ykk- ur heimil för um allt mitt land eins og heimamönnum. Þessi heimild stendur svo lengi sem ferðamáti ykkar er eins og hann hefur verið, „að njóta lands en níða ei,“ og gildir alveg eins hvort tillaga Náttúruverndarráðs nær fram að ganga eða ekki. Þessa heimild veiti ég sem eigandi landsins og þessi réttur verður ekki af mér tekinn nema þjóðar- heill krefji. Með lögum og fullar bætur komi fyrir. Það verður ekki gert með órökréttu reglugerðar- blaðri.“ Hér er ef til vill komið að kjarna eða kviku allrar náttúru- verndar. Að meta skaða á þeim þáttum lífsins sem aldrei verða til peninga metnir. Auk þess er ein- staklingsbundið hversu mikils virði þeir eru. Fyrir mér hefur sú lífsnautn að lifa með litríku og til- breytingarmiklu náttúrufari þessa lands, komið að fullu í staö tóbaks og brennivíns, sólarlanda- ferða og að miklu leyti lystisemda sem fyrir peninga eru keyptar. Þá skiptir ekki máli hvort um er að ræða fuglasöng á friðsælu vorkvöldi, ferð í svartnættisstór- hríð, glitrandi skautasvell undir norðurljósum, svífandi mann með svifdrekaham eða fylgja þeim í anda sem ferðast um óbyggðir á öllum tímum árs. Heilbrigt mannlíf er hugstæðast allra fyrir- brigða í náttúrunni. I»á skammaðist ég mín fyrir að vera fæddur og uppaiinn í Mos- fellssveitinni Það bar til þegar kreppan lá eins og svört og blaut dula yfir mannlífinu, að ein reglugerðin sá dagsins ljós, þess efnis að enginn Grímur S. Norðdahl „Náttúruverndarráð á ekki að vera refsiglöð valdaklíka, ranghverfa þess hlutverks sem því er ætlað að þjóna og takmarka að þarflausu ferðir um óbyggðii þann tíma, sem bjartastur er og bestur til ferða- laga.. mætti fara yfir annars manns land í þessari góðu sveit nema með leyfi. Ekki veit ég til þess að henni hafi nokkurn tíma verið beitt, eða nokkur hafi tekið tillit til hennar eða hver afdrif hennar urðu. Hitt man ég, að þegar ólafur prófessor Lárusson lýsir gönguleiðum í Kjósarsýslu í Árbók Ferðafélags- ins, þá sleppir hann Mosfellssveit- inni viljandi. Vildi ekki stuðla að því að fólk lenti í leiðindum og fengi á sig kærur samkvæmt reglugerð, þó hann teldi engar lík- ur á því að hún stæðist fyrir dómi. Skammt öfganna á milli Þegar frumvarp til laga um náttúruvernd var lagt fyrir Al- þingi, samið af einum ágætis- manni úr hverjum flokki, og átti vísan byr í gegnum þingsalina, var í því ákvæði þess efnis, að allir mættu fara um allt nema tún og garða með öllu meiri rétti og minna aðhaldi en þeir sem kaupa sig inn á skemmtisvæði. Einhvern veginn tókum við eftir þessu, nokkrir bændur í Mosfellssveit, og bundumst samtökum um að fá þessu breytt án þess að í því fælist nein andstaða við lögin. Við skipt- um þingmönnum á milli okkar eft- ir kunningsskap og persónusam- böndum og reyndum að hafa tal af þeim sem flestum. Þá var og öllum sent bréf, þar sem meðal annars var bent á að það gæti varla geng- ið vandræðalaust að beina fólki inn í girðingar þar sem geymd eru naut, stóðhestar, hrútar eða skap- illar kýr. Svo kom þar að haldinn var fjölmennur fundur í Súlnasal

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.